Dagur - 03.06.1987, Side 8

Dagur - 03.06.1987, Side 8
8-DAGUR-3. júní 1987 Þóra Karlsdóttir hjúkrunaríræðmgur. Úrræðaleysið er oft svo inikirt Breytt viðhorf til deyjandi sjúkl- inga var umræðuefni Póru Karls- dóttur hjúkrunarfræðings á lyfja- deild Borgarspítalans. Þóra rakti sögu Hosbis sjúkra- húsanna, sem rekin eru t.d. í Bretlandi og eru einungis ætluð deyjandi sjúklingum. Hún sagði að á þeim sjúkrahúsum gengi sjúklingurinn fyrir öllu. Litið væri á allar þarfir sjúklingsins, félagslegar, andlegar og líkam- legar á heildrænan hátt og aðstandendurnir væru teknir með sem hluti af heildinni. Þóra sagði að einnig hefði ver- ið komið á heimahlynningu fyrir þá sem kjósa að deyja heima, eða vilja vera sem lengst heima. Sjálfboðaliðar gegna mikilvægu hlutverki í heimahlynningu og eru þeir sérstaklega þjálfaðir til þessara starfa. Sagði Þóra að á vegum Krabbameinsfélagsins Passa- myndir Gott úrval mynda- ramma mynol LjAtMYN DASTOFA Slmi 96-22807 • Pósthólf 464 Glerárgötu 20 602 Akureyri hefði nú verið komið upp vísi að heimahlynningu og væri það ánægjuleg og góð þróun. Erfitt fyrir hjúkrunar- fólk að umgangast dauðvona sjúklinga Þeir sem ekki eiga neina von um lækningu, eiga engu að síður rétt á virðingu, sagði Þóra. Hún sagði að á Hosbis sjúkrahúsunum væri opið andrúmsloft og þar þyrftu sjúklingar ekki að sitja uppi einir með tilfinningar sínar. Einnig væri fjölskyldan öll tekin inn í myndina og reynt væri að gera þann tíma sem viðkomandi sjúkl- ingar ættu eftir ólifaðan sem létt- bærastan og gjöfulastan bæði fyr- ir hann sjálfan sem og aðstand- endur hans. Hún sagði það oft erfitt fyrir þá sem á sjúkrahúsum starfa að horfa á eftir aðstandendum út í tómið eftir missi ástvinar. Sú spurning væri oft áleitin hvort eitthvað hefði verið hægt að gera. Framfarir á sviði læknisfræði beinast að lækningunni, sagði Þóra, en það er ekki hægt að lækna allt. Hún sagði að ef eitthvað alvarlegt væri á seyði þá fengju sjúklingar oft loðin svör hjá læknum. Þeir snéru sér því oft til hjúkrunarfólks og á því lenti oft að tala við sjúklingana. Hún sagði það erfitt fyrir hjúkrunarfólk að umgangast dauðvona sjúklinga og aðstand- endur þeirra. Úrræðaleysið væri oft svo mikið og lftið hægt að gera. Erfiðasti tíminn fyrir aðstandendur er þegar dauðinn er afstaðinn. En þá væri mikill stuðningur að vita að fólk væri ekki eitt, að vita að til væri ein- hver sem vildi hlusta og styðja. Bjöm Sigurðsson, Baldursbrckku 7. Slmar 41534 & 41666. Sírleyfisfcrðir. Hópferðir. Sætaferðir. Vörunutningar Sérleyf isferðir sumarið 1987 Húsavík - Akureyri - Húsavík. Gildir frá 31. maí 1987. S M Þ M F F L Frá Húsavík kl. 19.00 08.00 13.30 *08.00 13.30 08.00 Frá Akureyri kl. 21.00 16.00 16.00 *16.00 16.00 16.00 Akureyri - Húsavík - Ásbyrgi - Kópasker - Raufarhöfn. Þórshöfn - Bakkafjörður - Vopnafjörður. Sumaráætlun frá 10. júní 1987. Miðvikudagar. Frá Akureyri kl. 16.00. Fimmtudagar. Frá Vopnafirði kl. 08.00. Frá Húsavík kl. 18.15. Frá Þórshöfn kl. 09.20. Frá Ásbyrgi kl. 19.10. Frá Raufarhöfn kl. 10.30. Frá Kópaskeri kl. 19.45. Frá Kópaskeri kl. 11.15. Frá Raufarhöfn kl. 20.30. Frá Ásbyrgi kl. 12.00. Frá Þórshöfn kl. 21.40. Frá Húsavík kl. 13.30. Til Vopnafjarðar kl. 23.00. Til Akureyrar kl. 15.00. Allir millitímar eru áætlaðir og ekki bindandi. ATH. Flytjum allar smávörur með áætlunarbílnum. ‘Sérstakur vöruflutningabíll á miðvikudögum milli Húsavíkur og Akureyrar. Vörur sem flytja á með flutningabíl frá Húsavík til Akureyrar berist eða tilkynnist á þriðjudögum til afgreiðslunnar hjá Á.G. Guðmundsson, Stóragarði 7, sími 41580. Vörur sem flytja á með flutningabíl frá Akureyri til Húsavíkur berist á afgreiðslu Ríkisskip v/Sjávargötu á miðvikudögum fyrir kl. 11.30. Á Húsavík er afgreiðsla hjá Á.G. Guðmundsson, sími 96-41580. Á Akureyri erfarþegaafgreiðsla hjá Öndvegi hf. sími 96-24442. Öll vöruafgreiðsla á Akureyri hjá Ríkisskip sími 96-23936. Sérleyfishafi. Þeir voru að fá sér ábót á hádegismatinn þessir ungu menn sem Ijósmyndari Dags rakst á í Svarfdælabúð á Dalvík á dögunum. Frá vinstri: Jón Björn, Jóhannes Bjarmi, Jón Már og Heiðar. Mynd: rþb Hljóðbylgjan hefur frétta- sendingar í dag í dag verður byrjað að senda út fréttatíma á Hljóðbylgjunni. Friðrik Indriðason hefur verið ráðinn fréttamaður og tók hann til starfa á mánudaginn. Tveir fréttatímar verða á dag, kl. 12 og 18 virka daga og auk þess einhverjar fréttir um helgar. Einnig verða sendar út fréttir ef eitthvað sérstakt er Hvammstangi: Reiðvegur og sumarhús í sumar er fyrirhugað að ieggja reiðveg ofan við kauptúnið á Hvammstanga. Reiðvegur þessi hefur lengi verið á óska- lista hestamanna á staðnum og nú hillir sem sagt undir að ósk- in rætist. Þá er komin upp hug- mynd um að reisa sumarhús í nágrenni staðarins, sem yrðu leigð ferðamönnum eða öðrum sem áhuga kynnu að hafa. Nokkuð er um hestamenn á Hvammstanga eins og víða ann- ars staðar í bæjum og þorpum og það hefur lengi hvekkt bæði þá og aðra á staðnum að ekki skuli vera hægt að komast ríðandi fram hjá kauptúninu. Flestir eru með hesthús norðan við staðinn og ætli menn t.d. að ríða út á skeiðvöll verða þeir að fara um götur bæjarins og eru lítt hrifnir af því. En nú sér sem sagt fyrir endann á þessu ástandi með til- komu áðurnefnds reiðvegar ofan við staðinn í sumar. Þá kom sú hugmynd upp á hreppsnefndarfundi nýlega að kannað yrði hvort einhver eða einhverjir hefðu áhuga á að reisa sumarhús í nágrenni Hvamms- tanga, til útleigu fyrir ferðamenn eða félagasamtök. Engin ákvörð- un hefur enn verið tekin í þessu máli en svo virðist sem helst sé horft til Kirkjuhvammsins í þessu tilliti. Kirkjuhvammur er mjög fallegt svæði rétt ofan við kauptúnið og þar eru m.a. tjald- stæði með nokkurri aðstöðu. G.Kr. - kl. 12 og 18 um að vera og verður þá dag- skráin rofin til að senda út fréttir. Dagur hafði samband við Gest Einar Jónasson, útvarpsstjóra og spurði hann hvernig hefði gengið þennan mánuð sem þeir hafa verið í loftinu. „Þetta hefur gengið vonum framar, auglýsingamagnið er á uppleið og það er það sem við lif- um á. Það eru hérna 27 manns í vinnu og þetta er því stórt fyrir- tæki.“ Sagði Gestur að eina vanda- málið væri að þegar stærri fyrir- tækjum væri boðið að auglýsa hjá þeim þá væri svarið alltaf það að auglýsingum væri stjórnað að sunnan. „Reykjavík stjórnar Rokktríóið „Gildran“ sendi frá sér sína fyrstu plötu föstu- daginn 29. maí, og ber hún heitið „Huldumenn“. Gildran sem áður hét Pass er skipuð þremur stofnendum þess- ara hljómsveita en það eru þeir Birgir Haraldsson, söngur og gítar, Þórhallur Árnason, bassi þessum bæ. Þeir aðilar sem á annað borð auglýsa eitthvað eru með skipulagðar auglýsingaher- ferðir úr Reykjavík. Auglýsinga- stofur í Reykjavík vita lítið um þessa stöð og hvaða möguleika hún gefur hér á Norðurlandi. Við þurfum því að kynna okkur á ein- hvern hátt en það kostar mikið og er í rauninni ógerlegt fyrir nýtt fyrirtæki sem er að fara af stað.“ Sagði Gestur að það væru aðal- lega smærri fyrirtæki sem hefðu auglýst hjá þeim, „en þau eru fæst með nokkurt skipulag á auglýsingum. Hjá mörgum fyrir- tækjum er áætluð viss prósenta af veltu í auglýsingar en ég tel að það séu afskaplega fáir hér sem hafa slíkt skipulag.“ -HJS og Karl Tómasson, trommur, bakraddir og munnharpa, en þeir félagar hafa starfað saman í 8 ár. Huldumenn inninheldur 9 lög sem öll eru eftir Gildruna. Plata þessi var tekin upp í Studio Stemmu í apríl sem leið, um upptökur sáu Gunnar Smári Helgason og Sigurður Rúnar Jónsson. „í Gildrunni“. Birgir Haraldsson, Þórhallur Árnason og Karl Tómasson. Rokktríóiö Gildran gefur út hljómplötu

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.