Dagur - 03.06.1987, Page 11
3. júní 1987- DAGUR - 11
Á hverju vori er haldin bekkjarkeppni í Barnaskóla Akureyrar í sundi og er keppt um „Snorrabikarinn“ svokall-
aðar. Að þessu sinni sigraði 6. bekkur í 8. stofu. Mynd: rþb
„Höldum uppbyggingu áfram“
- Fréttatilkynning frá starfsfólki Fræðsluskrifstofu
Norðurlandsumdæmi? eystra
Síðan menntamálaráðherra,
Sverrir Hermannsson, vék Sturlu
Kristjánssyni, þáverandi fræðslu-
stjóra, fyrirvaralaust úr starfi,
þann 13. janúar sl. hefur starfs-
fólk Fræðsluskrifstofu Norður-
lands eystra (og fleiri aðilar)
ítrekað lýst eftir gildum rökum
fyrir þeirri ákvörðun. Slík rök
hefur ráðherra ekki tekist að færa
fyrir ákvörðun sinni, en þess í
stað haft í frammi dylgjur og
persónulegan óhróður í garð
Sturlu Kristjánssonar auk ýmissa
ummæla í garð starfsfólks skrif-
stofunnar og vissra starfsstétta
þar, sem telja má atvinnuróg af
versta tagi, þegar sjálfur mennta-
málaráðherra landsins opinberar
hleypidóma sína og fáfræði með
þeim hætti, sem þjóðin sjálf hef-
ur orðið vitni að í fjölmiðlum
undanfarna mánuði.
Starf Sturlu Kristjánssonar á
Fræðsluskrifstofunni var ekki
einangrað og úr tengslum við
störf annarra þar. Pví var hin
gerræðislega ákvörðun ráðherr-
ans um brottvikningu Sturlu um
leið áfellisdómur á starfsemi
skrifstofunnar yfirleitt. Ráðu-
neytið hefur síðan lýst því yfir að
sú hafi alls ekki verið ætlunin,
ráðuneytið hafi ekkert út á störf
starfsfólks að setja. Þar sem
embættisfærsla er meira en starf
eins manns, má síðan draga þá
ályktun, að eitthvað annað hafi
ráðið ferðinni þegar ráðherra tók
ákvörðun sína um að víkja Sturlu
frá.
Það er því full ástæða fyrir
starfsfólk að íhuga, hvort vinn-
andi væri undir því ámæli, sem í
ákvörðun ráðherrans fólst sem og
seinni ummælum hans. Starfsfólk
skrifstofunnar er ráðið af
fræðsluráði umdæmisins og fyrir
tilmæli þess var ákveðið að halda
störfum áfram eftir þvf sem skil-
yrði leyfðu.
í kjölfar brottvikningar Sturlu
Kristjánssonar upphófst mikil
deila milli menntamálaráðherra/
menntamálaráðuneytis og
fræðsluyfirvalda/skólamanna á
Norðurlandi eystra. Sú deila er
óleyst. Sem yfirmanni mennta-
máía í landinu ber ráðherra að
leggja sig fram um að leysa slíkar
deilur og ekki síst þegar þær
valda jafn alvarlegum trúnaðar-
bresti milli 2ja afgerandi aðila í
framkvæmd skólahalds og hér
um ræðir. í yfirstandandi deilu
hefur menntamálaráðherra alger-
lega brugðist þessari skyldu sinni
og þar með sýnt af sér vítavert
ábyrgðarleysi. Við fullyrðum, að
engar tilraunir hafi verið gerðar
til að leysa þessa deilu og þaðan
af síður reyndar til þrautar. Með
því að setja sinn mann í fræðslu-
stjórastarfið nú, gegn yfirlýstum
vilja heimamanna og landssam-
taka kennara og skólastjóra virð-
ist ráðherra hafa fyrirgert mögu-
leikum sínum til að ná fram
friðsamlegri lausn þessarar deilu.
Með setningu Ólafs Guðmunds-
sonar skólastjóra á Egilsstöðum
og fréttaritara Morgunblaðsins
þar eystra, hefur menntamála-
ráðherra enn á ný hundsað vilja
heimamanna og sniðgengið 2
aðra umsækjendur, sem báðir
hafa starfsreynslu og menntun
umfram Ólaf Guðmundsson til
fræðslustjórastarfsins. Við for-
dæmum þessi vinnubrögð ráð-
herrans. Við skorum á Ólaf
Guðmundsson að taka ekki við
setningu í fræðslustjórastarfið og
gefa ráðherra þannig tækifæri til
að finna friðsamlega lausn á yfir-
standandi deilu.
Við aðstæður sem þessar hlýt-
ur starfsfólk Fræðsluskrifstofunn-
ar að skoða sína stöðu, stöðu sem
einkennist af því, að markvisst
virðist hafa verið unnið gegn
uppbyggingu þjónustu við skóla
umdæmisins af hálfu miðstýrðs
embættisvalds og ráðherra
menntamála að þess ráðum.
Fjölmiðlar og ráðherra hafa
nánast verið að ætlast til þess að
starfsfólk segði upp. Engar slíkar
yfirlýsingar hafa komið frá starfs-
fólki, en um þetta rætt innan-
húss.
Að íhuguðu máli höfum við
ákveðið að leggja ekki árar í bát.
Ef til vill mætti segja að við firr-
um ráðherra pólitískri ábyrgð á
vítaverðri embættisfærslu í þessu
máli með því að halda störfum
okkar áfram, en við erum starfs-
fólk fræðsluráðs, sem hefur ráðið
okkur til starfa. Samkvæmt lög-
um um grunnskóla eru fræðslu-
ráð gerð ábyrg fyrir stofnsetningu
þjónustu við skóla umdæmis. Við
þá ábyrgð hefur fræðsluráð N.e.
alltaf staðið og í samræmi við það
hefur formaður ráðsins ítrekað
þau tilmæli til starfsfólks að það
haldi störfum sínum áfram á
sömu braut og hingað til.
Fræðsluráð með Sturlu Kristjáns-
son sem framkvæmdaaðila hefur
háð margra ára baráttu til að ná
núverandi þjónustustigi við skól-
ana. Það væri ábyrgðarlaust af
okkur að láta þá baráttu verða að
engu vegna gerræðislegrar
ákvörðunar eins ráðherra sem
senn er á förum úr embætti. Við
teljum okkur einnig sýna Sturlu
Kristjánssyni og starfi hans í
þágu skóla umdæmisins mesta
samstöðu með því að halda
áfram á sömu braut og láta ekki
deigan síga.
Við hvetjum fræðsluráð til að
nýta þekkingu og reynslu Sturlu
Kristjánssonar í þágu áframhald-
andi uppbyggingu og þróunar
skólastarfs í umdæminu.
Akureyri 27. 05. ’87.
Starfsfólk Fræðsluskrifstofu
Norðurlandsumdæmis eystra.
nærsveitir
Nýtt Ftuglei5aumbo5
Umboðsmaður okkar á Grenivík er Haukur
Ingólfsson, Túngötu 23, sími 33202.
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi
Laust starf
Heilsdagsstarf í vélritun við embætti bæjarfógetans
á Akureyri er laust til umsóknar.
Umsóknir óskast sendar undirrituðum.
Bæjarfógetinn á Akureyri,
2. júní 1987.
Elías I. Elíasson.
Starfsfólk óskast
Vantar röskar stúlkur, ekki yngri en 18 ára, til starfa
nú þegar.
Upplýsingar veittar á staðnum ekki í síma.
AKUREYRl
Skipagötu 14,
Bílstjórí óskast
Steypustöð Dalvíkur óskar eftir bílstjóra með meirapróf.
Góð laun í boði. Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í símum 61231 og 61883.
Starfsmaður óskast
til framleiðslustarfa.
Upplýsingar aðeins gefnar á staðnum.
Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776
Starfsstúlkur
Starfsstúlkur óskast til afleysingastarfa í Þvottahús-
inu Mjöll.
Um er að ræða í hálft eða heilt starf.
Upplýsingar gefa starfsmannastjóri KEA og for-
stöðukona Þvottahússins Mjallar í síma 21400
Kaupfélag Eyfirðinga
Bændur Eyjafirði athugið
Verðum með sýningu á heyvinnuvélum, jarð-
vinnslutækjum, dráttarvélum og Boða rafmagns-
girðingum, hjá umboðsmanni okkar Díselverki,
Draupnisgötu 3, föstudaginn 5. júní.
Díselverk, Oraupnisgötu 3, Boðí hf, Kapplahrauni 18,
sími 96-25700.
sími 91-651800.