Dagur - 03.06.1987, Side 12
!M$E
Akureyri, miðvikudagur 3. júní 1987
ONY-FLEX
VATNS-
KASSA-
HOSUR
Mývatnssveit:
Upprekstur
á afrétti
leyfður
1. júní var leyfður upprekstur á
sauðfé í austur- og suðurafrétt í
Mývaínssveit. Fyrir helgina
fóru fulltrúar bænda, land-
græðslustjóri, gróðurverndar-
nefnd og sveitarstjórn Skútu-
staðahrepps, ásamt fleirum í
könnunarferð inn á afréttinn til
að kanna ástand gróðurs en
miklar deilur hafa verið uppi
að undanförnu vegna upp-
reksturs sem átti sér stað fyrir
nokkru.
Helga Valborg Pétursdóttir,
oddviti Skútustaðahrepps sagði í
samtali við blaðið að á fundi eftir
skoðunarferðina hefði verið
ákveðið að leyfa upprekstur á
afréttinn þar sem leyfi Land-
græðslunnar lá fyrir. Ástand
gróðurs sagði hún vera gott á
mólendi og þeim tilmælum því
beint til bænda að þeir reki fyrst á
mólendið. Mellendið erskemmra
komið í gróðri enda hefur vorið
verið úrkomulítið og hlýtt. Helga
sagði að þeir bændur sem þegar
höfðu rekið upp á afrétt mundu
ekki fá sektir og að sér vitandi
væri málið því frágengið. JÓH
Hæglætisveður
um helgina
Það var ekki laust við að það
setti að manni hroll við að
koma út í rigninguna og kuld-
ann í gær. Við slógum því á
þráðinn til Unnar Olafsdóttur
veðurfræðings á Veðurstof-
unni og spurðum hvort sama
steytan ætti að vera áfram.
Anna Guðmundsdóttir, fulltrúi Pólaris á Akureyri,
dregur úr réttum lausnum.
Vinningshafinn, Arnheiður Kristinsdóttir. Myndir: rþb
„Kom mér skemmtilega á óvart"
- sagði Arnheiður Kristinsdóttir, sem í gær fékk 50 þúsund króna
ferðavinning í ferðagetraun Dags og Pólaris
að draga úr umslagabunkan-
„Þetta kom mér skemmtilega
á óvart,“ sagði Arnheiður
Kristinsdóttir tannsmiður á
Akureyri sem í gær fékk
ferðavinning að upphæð 50
þúsund krónur í ferðagetraun
Dags og ferðaskrifstofunnar
Pólaris. Alls tóku 1485
manns þátt í getrauninni og
það var Anna Guðmunds-
dóttir fulltrúi Pólaris á Akur-
eyri sem hafði það vanda-
sama hlutverk með höndum
um.
Arnheiður sagði þetta hafa
verið skemmtilega getraun, hún
hefði ekki verið of erfið og
þannig vildi hún hafa getraunir.
„Mér finnst gott að fá Dag með
morgunkaffinu, þegar getraun-
in hófst datt mér í hug að vera
með. Ég setti umslagið í póst
þegar ég skrapp út í búð og
pældi svo ekkert í þessu. Mér
datt aldrei í hug að ég myndi
vinna. En það kom mér
skemmtilega á óvart,“ sagði
Arnheiður. Ekki sagðist Arn-
heiður gera mikið af því að taka
þátt í getraunum og happdrætt-
um, en hefði þó tvisvar fengið
lægsta vinning í Happdrætti
Háskólans. „Það eru alltaf ein-
hverjir aðrir sem vinna,“ sagði
hún, en að þessu sinni var það
hún sjálf. Við óskum Arnheiði
til hamingju með vinninginn og
góðrar ferðar. mþþ
þÓRSHWWR HF.
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Nýr vegur að
Hrafnagili
Þessa dagana er veriö að betr-
umbæta akstursleiðina frá
Brunná og inn að Hrafnagili.
Nýr vegur verður lagður alla
leið og er áætlað að því verki
Ijúki á næsta ári. Meirihlutan-
um mun þó ljúka í ár.
Þá standa einnig yfir fram-
kvæmdir í Ljósavatnsskarði. Par
er um að ræða tvo vegarkafla sem
sitt hvor verktakinn sér um. Ann-
ar kaflinn er um Sigríðarstaði en
hinn er frá Stórutjörnum og að
Krossi. Síðarnefndi vegurinn
verður m.a. færður út í vatnið
sökum snjóflóðahættu á þessum
slóðum. JHB
Ólafur hættir
Dagur hefur það eftir mjög
áreiðanlegum heimildum að
nýsettur fræðslustjóri í
Norðurlandsumdæmi eystra
muni segja af sér, vegna þess
hvernig að málum var staðið,
en fræðslustjórinn nýi telur að
farið hafi verið á bak við sig og
hann leyndur upplýsingum um
ástand mála í fræðsluumdæm-
inu.
Ólafur Guðmundsson,
fræðslustjóri, hefur ekki staðfest
þetta sjálfur en látið að því liggja
í viðtölum við fjölmiðla að hann
hefði fengið villandi upplýsingar
og hann hefur sagt að hann hefði
ekki komið nálægt málinu ef
hann hefði vitað hvernig það
væri vaxið.
Heimildir blaðsins herma að
Ólafur hafi þegar tekið ákvörðun
en ætli að tilkynna menntamála-
ráðherra ákvörðun sína áður en
gerð verður grein fyrir henni
opinberlega. JHB/HS
„Eg er hrædd um að þetta
verði svipað þennan sólarhring,
kalt og úrkoma, en á morgun og
föstudag fer að birta til á ný. Um
helgina lítur út fyrir hæglætisveð-
ur og bjart víða um land og hita-
tölur vonandi hærri en hafa verið
þessa kuldadaga."
Starfsskóli í Löngumýri:
Heimild til áframhaldandi
- góður árangur síðastliðin tvö ár
reksturs
Menntamálaráðuneytið hefur
veitt heimild til áframhaldandi
reksturs starfsskólans í Löngu-
mýri. Skólinn tók til starfa í
september 1985 og var afráðið
að hann yrði skilgreindur sem
tilraun er stæði í tvö ár. Þessi
tvö ár eru nú liðin og hefur
skólanefnd óskað eftir tillög-
um frá baknefnd skólans og
Kaupfélag Eyfirðinga:
„Kemur til álita að
flytja birgðastöðina"
„Það kemur til álita að flytja
birgðastöðina, en ekki er
ákveðið hvert hún muni fara.
Gamli Sjafnarlagerinn við
Hvannavelli er laus, og það
kemur til greina að flytja
þangað. Við erum einnig að
athuga með endurnýjun á
nokkrum flutningabifreiðum
Kaupfélagsins og endurskipu-
lagningu á bifreiðaflutningum
KEA,“ sagði Valur Arnþórs-
son, kaupfélagsstjóri.
- segir Valur Arnþórsson
Að sögn Vals hefur verið gerð
veruleg úttekt á flutningamálum
KEA, en kaupfélagið rekur m.a.
bifreiðastöðina Bifröst auk einn-
ar vöruflutningabifreiðar, sem
notuð er til að dreifa vörum til
verslana KEA innanbæjar á
Akureyri. Þá hefur verið ljóst um
nokkurt skeið, að nauðsyn bæri
til að flytja birgðastöð KEA, en
hún hefur um árabil verið stað-
sett vestast í húsinu Hafnarstræti
91-95, með innkeyrslu neðst í
Gilsbakkavegi. Endurnýjun á
ýmsum fleiri vélum og tækjum í
eigu KEA er einnig til athugun-
ar, t.d. endurnýjun á vélakosti
Smjörlíkisgerðarinnar.
„Það húsnæði, sem við erum í,
hentar ekki vel fyrir þessa starf-
semi. Birgðastöðin er á tveimur
hæðum og það er óhentugt að
flytja vörurnar milli hæðanna.
Auk þess er þetta einfaldlega of
lítið og þröngt," sagði Ingvi
Guðmundsson, forstöðumaður
birgðastöðvarinnar, þegar hann
var spurður um málið. EHB
forstööumanni hans um hvern-
ig starfsemi hans verði háttaö.
Aðdragandi að stofnun skólans
er sá að vorið 1985 gengu nokkrir
sérkennslunemendur upp úr
grunnskólum Akureyrar og fyrir-
séð þótti að þeir stæðu ekki jafn-
fætis öðrum grunnskólanemum
hvað varðar starfsval og skipulagt
framhaldsnám við þeirra hæfi var
ekki fyrir hendi. Meginmarkmið
skólans er að gera nemendur
færa um sjálfstæða búsetu og
þátttöku á almennum vinnu-
markaði, auk þess sem skólinn
hefur alhliða uppeldisleg
markmið. í nýlegri úttekt sem
unnin var á vegum skólanefndar
kemur fram að skólanum hefur
tekist nokkuð vel að uppfylla þau
markmið sem sett voru. Fram
kemur að það virðist samdóma
álit foreldra, nemenda og þeirra
atvinnurekenda sem fengið hafa
nemendur skólans í vinnu að vel
hafi til tekist.
Löngumýrarskólinn er rekinn
af skólanefnd Akureyrarbæjar,
en kennslukostnaður er greiddur
af ríki. Rúmar tvær stöður eru
við skólann. Ráðuneytið hefur
nú veitt heimild fyrir áframhald-
andi starfsemi og sagði Ingólfur
Ármannsson skóla- og menning-
armálafulltrúi Akureyrarbæjar
viðræður heimamanna um fram-
hald skólans á frumstigi. Skóla-
nefnd hafi óskað eftir tillögum
frá baknefnd og forstöðumanni
skólans og viðræður væru að fara
af stað. Sagði Ingólfur að vanga-
veltur væru um hvort staðið yrði
að starfseminni á óbreyttan hátt,
en hann reiknaði þó með að
henni yrði haldið áfram þar sem
vel hefði tekist til. mþþ
Gunnar Ragnars
endurkjörinn
Gunnar Ragnars var á bæjar-
stjórnarfundi í gær endurkjör-
inn forseti Bæjarstjórnar
Akureyrar til eins árs, með 7
atkvæðum Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks.
Freyr Ófeigsson var kjörinn 1.
varaforseti í stað Áslaugar Ein-
arsdóttur og Sigurður Jóhannes-
son kjörinn 2. varaforseti.
Ritarar bæjarstjórnar voru
kjörnir þeir Gísli Bragi Hjartar-
son og Heimir Ingimarsson en til
vara þær Bergljót Rafnar og Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir.
Fulltrúar Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks skiluðu auðu í
öllum tilfellum. BB.