Dagur - 19.06.1987, Page 11

Dagur - 19.06.1987, Page 11
19. júní 1987- DAGUR- 11 Krist.ján Arason verður í eldlínunni hér fyrir norðan um helgina. Mynd: Rl>B Handbolti: Landsleikur við Dani á Akureyri - í kvöld kl. 18.30 og á Húsavík á morgun kl. 16 I kvöld fer fram stórviðburður á sviði íþrótta hér á Akureyri en þá leika Island og Danmörk landsleik í handbolta. Lcikur- inn fer fram í Iþróttahöllinni og hefst kl. 18.30. Á morgun laugardag, verður þessi við- burður síðan endurtekinn en þá leika liðin í nýju íþrótta- höllinni á Húsavík og hefst sá leikur kl. 16. Þriðji leikur lið- anna fer svo fram í Laugardals- höllinni á sunnudagskvöld kl. 20. Bæði löndin mæta með sitt sterkasta lið og í liði íslands verða nt.a. stórskytturnar Alfreð Gíslason, Kristján Arason, Sigurður Gunnarsson, Atli Hilmarsson, Páll Ólafsson og Sigurður Sveinsson. í liði Dana verða einnig snjallir kappar, eins og þeir Michael Fenger horna- maðurinn snjalli, Erik Veje Rasmusen, Morten Stig Christ- ensen og Hans Henrik Hattesen, svo einhverjir séu nefndir. Eftir leikinn í kvöld fer fram annar stórleikur hér á Akureyri en þá leika KA og Völsungur í SL mótinu 1. deild. Sá leikur fer fram á Akureyrarvellinum og hefst kl. 20.15. Leikmenn fslands og Danmerkur ætla að mæta á völlinn eftir landsleikinn, fylgjast með leiknum og gefa þeim sem áhuga hafa eiginhandaráritanir. Það er því óhætt að tala um sann- kallaða íþróttaveislu hér á Norðurlandi i dag og á ntorgun og ættu íþróttaáhugamenn ekki að láta þessa viðburði fram hjá sér fara. Knattspyrna helgarinnar: KS fær Selfoss - í heimsókn - Leiftur mætir ÍR í Reykjavík KS og Selfoss leika á Siglufirði í kvöld kl. 20 í 2. deild Islands- mótsins í knattspyrnu. KS-ing- ar þurfa nauðsynlega á sigri að halda, eftir slæmt tap gegn IBV í Eyjum um síðustu helgi. Á sunnudag kl. 16 leika ÍR og Leiftur í Reykjavík í sömu deild og er það einnig mikil- vægur leikur fyrir Leifturs- menn, sem eru í toppbaráttu eins og KS-ingar. Leiftur lagði UBK að velli um síðustu helgi í Ólafsfirði. ÍR-ingar hafa verið að sækja sig að undanförnu og búast má við jöfnum leik. Á laugardag kl. 16 leika KA og Valur á KA-velli í 1. deild kvenna. Á Sauðárkróki leika Tindastóll og Reynir og á Nes- kaupstað Þróttur og HSÞ-b í 3. deild. Leikirnir heljast kl. 14. Á sama tíma lcika í 4. deild, Hvöt og Kormákur á Blönduósi, Árroðinn og Neisti á Laugalandi og HSÞ-c og Vaskur að Ýdölum. Kvennalið Þórs í 2. flokki leik- ur tvo leiki fyrir sunnan um helg- ina. Á morgun laugardag gegn Val á Hlíðarenda og á sunnudag gegn Stjörnunni í Garðabæ. Þá verða nokkrir leikir á íslandsmóti yngri flokka, KS og KA leika á Siglufirði á sunnudag í 5., 4. og 3. flokki og á Sauðárkróki leika Tindastóll og Þór f sömu flokkum. í Ólafsfirði leika Leift- ur og UMFS í 4. flokki og á Blönduósi leika Hvöt og Völs- ungur í sama flokki. SL mótið 1. deild: Þórsarar heillum horfnir Hún varð skammvinn sælan þeirra Þórsara eftir sigurinn á Skagamönnum á dögunum. Þeir magalentu á KR-vellinum í gærkvöld þar sem þeir stein- lágu gegn frískum KR-ingum. Sigur KR-inga verður að vísu að teljast í stærra lagi ef tekið er mið af því að Þórsarar höfðu í fullu tré við þá allt fram í síðari hálfleik, nánar til- tekið fram á 57. mínútu er KR- ingar skoruðu sitt annað mark. Eftir það var aðeins eitt lið á vellinum, uppgjöf Þórsliðsins var alger líkt og í Keflavík á dögunum. Það hlýtur að vera áhyggjuefni hversu auðveld- lega liðið missir dampinn þeg- ar á móti blæs. Fyrri hálfleikur var með ágæt- um af hálfu beggja liða og knatt- spyrnan var höfð í fyrirrúmi. KR- ingar náðu marki strax á 8. mín- útu er Björn Rafnsson skoraði eftir góðan samleik. Þórsarar bitu frá sér og gerðu harða hríð að KR-markinu. Kristján Krist- jánsson átti ágætt skot úr auka- spyrnu á 12. mínútu en rétt yfir. A 24. mínútu komst Hlynur í gott færi en skaut naumlega framhjá. Loks fór Siguróli illa að ráði sínu í dauðafæri er hann var of svifaseinn og lét markvörð KR-liðsins hirða knöttinn af sér. Höfðu því KR-ingar yfir 1:0 í leikhléi eftir jafnan og skemmti- legan fyrri hálfleik þar sem Þórs- arar voru óheppnir að vera undir. Siguróli var aftur á ferðinni á 55. mínútu þegar hann skaut rétt yfir af vítateigslínu. Annað niark KR-kom síðan á 57. mínútu en þá skoraði Andri Marteinsson með þrumuskoti rétt utan víta- teigs. Framgöngu Þórsara eftir þetta var lýst í upphafi og verður hún ekki tíunduð frekar en - Steinlágu gegn KR 5:0 markasúpa KR í lokin var fram- reidd á eftirfarandi hátt: Á 71. rnínútu skallaði Pétur Pétursson fyrirgjöf Rúnars Krist- inssonar í netiö, 3:0. Á 86. mín- útu fékk Pétur stungusendingu inn fyrir vörn Þórsara og vippaði yfir Baldvin í markinu. 4:0. A 87. mínútu skaut Björn Rafnsson þrumuskoti utan af kanti, af u.þ.b. 25 metra færi, beint í vink- ilinn fjær. Stórglæsilegt mark og súpan var þar með framreidd, 5:0. Árni Stefánsson er enn meidd- ur og kom það niður á lcik varn- arinnar, einkum vegna þess hve Guðmundur Valur Sigurðsson var skástur Þúrsara í gærkvöld. Vormót KRA: KA sigraði í keppni liðanna Keppni á vormóti KRA í knattspyrnu, var fram haldið fyrir skömmu en þá léku KA og Þór í 3. flokki kvenna, a, b og c. KA sigraði í keppni a lið- anna en í keppni b og c liðanna höfðu Þórsstelpurnar betur. KA sigraði nteð einu marki gegn engu í keppni a liðanna og skoraði Ingibjörg Símonardóttir mark KA. I leik b liðanna sigraði Þór 3:0 og skoruðu þær Inga Stelia Pétursdóttir 2 og Brynhild- ur Smáradóttir mörkin. Þór hafði einnig betur í leik b liðanna. Úr- slitin urðu 5:1 og skoruöu þær Freydís Freysdóttir 4 og Harpa Frímannsdóttir mörk Þórs en Sigríður Kristinsdóttir svaraði fyrir KA. Næstu leikir í mótinu fara fram á morgun en þá leika KA og Þór í 7. flokki a, b og c. Leikið verður á KA-velli og hefst fyrsti leikur- inn kl. 14. góðar gætur Nói þurfti að hafa á Pétri Péturssyni. Auk þess fór Jónas Róbertsson út af í hléi vegna smávægilegra meiðsla í nára. í hans stað kom Sigurbjörn og var hann allfrískur framan af. Guðmundur Valur Sigurðsson var einna skástur Þórsara en dal- aði þegar á leið. Baldvin verður varla sakaður um mörkin. Rúnar Kristinsson og Andri Marteinsson voru bestir KR- inga. Dómari var Eysteinn Guð- mundsson og dæmdi hann þokka- lega. Gaf hann einurn Þórsara og tveimur KR-ingum gula spjaldið. GÞE SL mótið 1. deild: Tekst Völsungi að endurtaka leikinn -frá leiknum við Þór, er liðið mætir KA á Akureyri í kvöld? I kvöld kl. 20.15 fer fram stór- leikur í knattspyrnu á Akur- eyrarvellinum en þá leika KA og Völsungur í SL mótinu 1. deild. KA-menn hafa verið á miklu skriði að undanförnu og liðið hefur unnið tvo síðustu leiki sína í deildinni. Völsung- um hefur ekki gengið eins vel og liðið aðeins unnið einn leik til þessa. Leikurinn sem Völsungur vann var einmitt gegn Þór hér á Akur- eyri í 2. umferð mótsins. Spurn- ingin er því sú, tekst Völsungi að endurtaka leikinn við Þór, gegn KA í kvöld, eða munu KA-menn halda sínu striki og vinna sinn þriðja leik í röð? Möguleikar KA verða að teljast meiri, liðið leikur á heimavelli og er greinilega í mikilli sókn. Völsungar eru þekktir fyrir að leika af sérstök- um krafti er þeir mæta Akureyr- arfélögunum og víst er að þeir munu mæta fílelfdir til leiks í kvöld. Dagur hafði samband við Hörð Helgason þjálfara KA og spurði hvernig leikurinn legðist í hann. „Ég er skíthræddur við þennan leik. Völsungar eru eitilharðir baráttujaxlar sem erfitt er að leika gegn. Ég á von á þvt að það verði allt í járnum en við munum að sjálfsögðu leika til sigurs,“ sagði Hörður. Knattspyma 3. deild: Jafntefli í leik Reynis og Magna Reynir og Magni gerðu jafn- tefli í vikunni, er liðin áttust við á Árskógsstrandarvelli í B- riðli 3. deildar á Islandsmótinu í knattspyrnu. Hvort lið skor- aði eitt mark og voru þau bæði skoruð í seinni hálfleik. Með þessu jafntefli fékk Reynir fyrsta stigið í deildinni í ár en liðið hefur leikið þrjá leiki. Það var ljóst strax í upphafi leiksins að Reynismenn ætluðu að selja sig dýrt í leiknum. Magnamenn fengu lítinn frið til þess að byggja upp sóknir en þó tókst liðinu að skapa sér nokkur góð færi sem ekki nýttust. Reyn- ismenn náðu upp ágætu spili á köflum en liðið fékk lítið af afgerandi færum. Magni fékk dæmda vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Eiríkur Eiríksson markvörður og þjálfari Reynis, gerði sér lítið fyrir og varði frá Jóni Ingólfssyni. Það voru þó Reynismenn sem fengu besta færi leiksins, fyrir utan vítaspyrnuna sem Magni fékk. Haukur frantherji liðsins fékk þá boltann óvænt inn fyrir vörn Magna, komst framhjá Isak markveröi en skaut framhjá tómu markinu. Þegar um stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleik náði Magni forystunni og var það Sverrir Heimisson sem rak endahnútinn á ágæta sókn með marki. Eftir markið sóttu Reynis- menn nokkuð stíft að marki Magna og þegar um 15 mín. voru eftir af leiknum jafnaði Þorvald- ur Hilmarsson með lúmsku skoti. boltinn sveif yfir ísak og hafnaði í markinu. Magnamenn hresstust á ný eftir markið en fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli því staðreynd. Golf: Jónsmessumót um helgina Tvö golfmót fara fram að Jaðri um helgina og er annað þeirra opið mót fyrir 50 ára kylfinga og eldri. Það er keppnin um Jóhannsbikarinn, leiknar verða 18 holur með og án for- gjafar. Mótið hefst kl. 13 á sunnudaginn. Á laugardag fer Jónsmessu- mótið fram og hefst keppni kl. 21 á laugardagskvöld. Jónsmessu- mót fara einnig fram á Húsavík og á Sauðárkróki á sarna tíma.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.