Dagur - 19.06.1987, Blaðsíða 16
xnoR
Akureyri, föstudagur 19. júní 1987
Opn iinartím i
á Bauta í sumar
verður Irá kl. 9.00-23.30.
Bifreiðaeftirlitið á Akureyri:
- Reksturinn til fyrirmyndar
„Bifreiðaeftirlitið á Akureyri
er að öllu leyti mjög vel rekið
og til fyrirmyndar í rekstri,“
sagði Haukur Ingibergsson
framkvæmdastjóri Bifreiðaeft-
irlits ríkisins. Opnunartími
bifreiðaeftirlitsins í Reykjavík
og víðar hefur verið styttur um
klukkustund, en það er hluti af
margþættu rekstrarátaki eftir-
litsins. Miðar það að því að
útgjöld fari ekki umfram
tekjur, en slíkt myndi verða að
óbreyttum rekstri.
Ástæða fyrir styttingu opnun-
artímans er sú að starfsmenn
þurfa að ganga frá ýmsum gögn-
um eftir að lokað er og hefur það
verið gert í yfirvinnu. Með styttri
opnunartíma skapast svigrúm til
að vinna þessi verk á dagvinnu-
tíma. Nú er verið að endurskoða
opnunartíma á öðrum afgreiðslu-
stöðum eftirlitsins. Sagði Haukur
að mál bifreiðaeftirlitsins á Akur-
eyri hefði verið skoðað og það
væri til mikillar fyrirmyndar.
„Það er alls ekki sjálfgefið að þar
verði nýr opnunartími, eða yfir-
höfuð nokkur breyting," sagði
Haukur.
Bifreiðaeftirlitið í Reykjavík
hefur að sögn Hauks mun fleiri
verkefni á sinni könnu, en eftir-
litið á Akureyri þannig að breyt-
Þrotabú KSÞ:
Ekkert
uppboð
íbili
„Uppboöinu á eignum KSÞ á
Svalbarðseyri hefur verið
frestað í bili. Ég mun boða til
skiptafundar og gera aðilum
grein fyrir stöðu mála, síðan
verður haldið áfram,“ sagði
Hafsteinn Hafsteinsson,
skiptastjóri í þrotabúi Kaup-
félags Svalbarðseyrar, í gær,
en uppboðið átti að fara fram
19. júní.
Að sögn Hafsteins er ætlunin
að halda skiptafundinn eins
fljótt og auðið er, og er verið að
vinna að undirbúningi hans.
„Það hefur verið reynt að fá til-
boð í allar eignirnar á frjálsum
markaði og það hefur tekist, en
breytt atstaða stærsta kröfuhaf-
ans til þess að láta selja eignirn-
ar á uppboði varð til þess, að ég
verð að skýra öðrum kröfuhöf-
um frá gangi málanna," sagði
Hafsteinn.
Skúli J. Pálmason, lög-
fræðingur Samvinnubanka
ísiands, lýsti því yfir fyrir
skömmu að bankinn sæi hag
sínum best borgið með því að
kaupa eignirnar á uppboði, því
þau tilboð, sem borist hafa, séu
allt of lág. EHB
ingar í rekstri snerta eftirlitið hér
ákaflega lítið.
í gær voru tveir menn frá bif-
reiðaeftirlitinu á Akureyri á
Siglufirði þar sem þeir skoðuðu
bílaflota Siglfirðinga. Alls starfa
fjórir menn við bifreiðaeftirlitið á
Akureyri. mþþ/RMH
!
Þensla í
Fljótum
„Við erum fimm sem vinnum í
stöðinni núna. Það er verið að
vinna við framkvæmdir líka og
ég á von á að ég fjölgi mönnum
ef þeir fást. Það er bara svo erfitt
að fá fólk. Það er svo bullandi
atvinna hér í Fljótum núna að
ég hef aldrei vitað annað eins.
Þetta er algjör þensla hérna,“
sagði Reynir Pálsson fram-
kvæmdastjóri Miklalax.
Atvinnan í Fljótum nú er í
kringum báðar laxeldisstöðvarn-
ar, Miklalax og Fljótalax. Miklar
vegaframkvæmdir standa yfir, en
leggja á bundið slitlag á veginn
frá Stafá að Reykjaá við Lamba-
snesreyki, sem er 16 km leið.
Unnið er að viðgerð á stíflugarð-
inum við Skeiðfossvirkjun og þar
er hafin skógrækt á vegum raf-
veitunnar og hreppsins. Þá hefur
verið unnið að lagfæringum í
kirkjunum á Barði og Knapp-
stöðum og framundan eru gagn-
gerar endurbætur á höfninni í
Haganesvík. Og menn eru farnir
að byggja hér sumarbústaði.
„Það er mjög bjart yfir hlutunum
hér. Við erum bara óánægðir
með að við skulum ekki vera
farnir að heyra í Rás 2 ennþá.
Okkur finnst við eiga rétt á þess-
ari þjónustu og ekki minnkaði
óánægjan þegar margir af bestu
þáttunum voru teknir af Gufunni
og færðir yfir á Rásina,“ sagði
Reynir Pálsson. -þá
Friðarkyndillinn kom til Akureyrar í gærkvöld, en hér taka eyfirsk ungmenni við af þeiin þingeysku á sýslumörk-
unum. Mynd: RÞB
Góð byrjun í norð-
lenskum laxveiðiám
Laxveiði í norðlenskum ám
hefur almennt farið vel af stað
og er jafnvel álitið að þetta
verði besta ár í langan tíma ef
miðað er við byrjunina.
Veiði í Laxá í Aðaldal hefur
farið mjög vel af stað og í gær
höfðu veiðst 179 laxar og var þá
gærdagurinn ekki talinn með.
Stærsti laxinn var 22.5 pund og
einnig höfðu veiðst þó nokkrir
yfir 20 pundum. Smáfiskur sést
ekki en meðalþyngdin er um og
yfir 12 pund sem þykir mjög gott.
Enn er aðeins veitt á 4 stangir í
ánni.
Veiði hófst 12. júní í Miðfjarð-
ará og fyrstu þrjá dagana veidd-
ust 57 laxar. Meðalþyngdin var
11.6 pund. í gær var annar hóp-
urinn að hætta og höfðu þeir
fengið 17 laxa og alla mjög væna.
Stærsti fiskurinn í Miðfjarðará til
þessa var 25 pund. Heldur treg-
lega hefur gengið síðustu daga
vegna mikillar birtu.
Eftir mjög góða byrjun í Laxá
á Ásum kom einhver afturkippur
í veiðina en þar höfðu veiðst 107
laxar um hádegi í gær. Sá stærsti
var 20 pund en meðalþyngdin var
í kringum 11 pund.
í Vatnsdalsá fór veiðin mjög
vel af stað og fyrsta daginn veidd-
ust þar 62 laxar. í gær höfðu
náðst á land 127 stykki og var
meðalþyngdin um 11 pund en þó
nokkrir þyngri en 23 pund hafa
veiðst í ánni. í Blöndu höfðu
veiðst nærri 240 laxar á fjórar
stangir og í Víðidalsá höfðu feng-
ist 81 lax og var sá þyngsti 24
pund. Veiði þar hófst þann 15.
júní. Mikið er um stóran fisk í
ánni og höfðu þó nokkrir stærri
en 20 pund komið á land.
Enn er ekki hafin veiði í
Fnjóská en Sigurður Ringsted
sagði í samtali við blaðið að þeir
væru farnir að sjá lax í ánni.
Veiði í Fnjóská hefst 20. júní.
JHB/G.Kr.
Þróunarfélag Islands:
Hugmyndir um sjálfstæð
þróunar- og fjárfestingafélög
„Það sem við erum að hugsa er
að það hefur verið vaxandi, og
að okkar mati réttmæt,
umræða í þjóðfélaginu um að
ýmis ákvarðanataka mætti
gjarnan færast nær mönnum
úti á landsbyggðinni. Við telj-
um að Þróunarfélagið sé að
mörgu leyti á réttri braut með
þau mál sem það er að vinna
að og að það sé hlutverk fyrir
svona fjárfestingafélög og þá
ekkert síður úti á landsbyggð-
inni,“ sagði Jón Sigurðarson,
stjórnarmaður í Þróunarfélagi
Islands þegar hann var spurður
út í hugmyndir sem komið hafa
upp hjá félaginu um sjálfstæð
þróunar- og fjárfestingafélög í
landshlutunum.
Jón sagðist telja að mörg þess-
ara mála yrðu mun betur
afgreidd ef. heimamenn öxluðu
ábyrgðina sem fylgdi ákvarðana-
tökunni. „Við viljum því fá menn
til að stofna fjárfestingafélög í
landshlutunum sem gætu átt við
mörg af þessum smærri málum
sem annars væru afgreidd fyrir
sunnan."
Aðspurður hver tengsl Þróun-
arfélagsins yrðu við þessi félög
sagði Jón að félagið væri tilbúið
til að leggja fram um það bil 20%
af hlutafé og aðstoð við gangsetn-
inguna. „Við erum einnig reiðu-
búnir til að hjálpa til með ráð-
leggingar og mat á ýmsum hlut-
um þar sem þess þyrfti við en
annars er meiningin að þessi
félög verði nokkuð sjálfstæð. Eitt
sem ég vil taka fram er að þar
sem Þróunarfélagið leggur fram
fé í þetta mun það gera kröfu um
að arðsemissjónarmiða verði
gætt við úthlutun fjármagns rétt
eins og gerist hjá Þróunarfélag-
inu sjálfu,“ sagði Jón.
Þessa dagana er verið að
athuga undirtektir við þessar
hugmyndir og sagðist Jón ekki
heyra annað en þær væru góðar.
Sagði hann að líklega yrði á næst-
unni ráðinn starfsmaður til að
kanna betur áhugann í héruðun-
um og hrinda þessu af stað þar
sem hann væri fyrir hendi. JHB
Breyttur opnunartími
ekki sjálfgefinn