Dagur - 07.09.1987, Blaðsíða 9

Dagur - 07.09.1987, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - 7. september 1987 7. september 1987 - DAGUR - 9 Halldór Áskelsson sendir knöttinn í mark KA á laugardaginn. Það dugði ekki til því Bjarni Jónsson jafnaði fyrir KA skömmu fyrir leiks lok. Mynd: EHB SL mótið 1. deild í knattspyrnu: Óheppnir Þórsarar - misstu tvö dýrmæt stig á lokamínútunum Hjá KA var Erlingur góður að vanda, sennilega langmikilvægasti* leikmaður liðsins. Halldór Halldórs- son átti líka góðan dag í vörninni, svo og Arnar Bjarnason. Sóknar- mennirnir voru frekar slakir. Jón Sveinsson og Sigurður Harðarson náðu sér ekki á strik og var skipt út af. Árni Freysteinsson og Árni Hermannsson komu í stað þeirra en voru ekki mikið sprækari. Júlíus Tryggvason, Árni Stefánsson og Halldór Áskelsson voru einna bestir hjá Þór, aðrir misjafnlega brokk- gengir. Guðmundur Valur og Sigur- björn Viðarsson fengu gult spjald hjá Sveini Sveinssyni dómara. SS SL mótið 1. deild í knattspyrnu: Valsmenn ís- landsmeistarar - Hafa þegar tryggt sér titiiinn þegar einni umferð er ólokið í mótinu - Gífurieg barátta þriggja liða á botninum Þórsarar gætu átt eftir að bölva jöfnunarmarki KA-manna lengi því stigin tvö sem þeir misstu geta haft afgerandi áhrif í baráttunni um Evrópusætið. IA og KR töp- uðu að vísu sínum leikjum þannig að slagurinn stendur nú á milli Þórsara og Skagamanna. En lítum þá á leik Þórs og KA í SL-mótinu sem fór fram á laugardag. Bæði liðin spiluðu býsna vel í fyrri hálfleik. Guðmundur Valur átti skot að marki KA á 4. mín. en beint á Ólaf Gottskálksson. Á 20. mín fengu Þórsarar aukaspyrnu nokkuð fyrir utan vítateig KÁ. Jónas Róbertsson vippaði boltanum inn í teig þar sem Halldór Áskelsson tók hann á lofti og afgreiddi snyrtilega í netið framhjá Ólafi sem kom engum vörn- um við. Fallegt mark og staðan 1:0 fyrir Þór. Þórsarar drógu sig dálítið aftur eft- ir markið og KA menn fengu tvö góð færi. Fyrst Sigurður Harðarson eftir skemmtilegt háloftaspil Gauta og Tryggva en skot Sigurðar sigldi framhjá Þórsmarkinu. Þetta var á 30. mínútu og tveimur mínútum síðar komst Tryggvi Gunnarsson í gegn en Baldvin bjargaði vel með úthlaupi. Þórsarar fóru nú að gera sér grein fyrir því að sókn er besta vörnin og var oft gaman að sjá til þeirra á vell- inum. Varnarmenn KA sáu hins veg- ar um að hleypa þeim ekki of nálægt markinu. Á 44. mín. ná Þórsarar góðri sókn sem endaði á Jónasi Róbertssyni en skot hans mistókst með öllu. Staðan í hálfleik 1:0. Þórsarar voru mun betri í upphafi síðari hálfleiks. Á 50. mín. spiluðu þeir laglega fyrir framan KA vörnina og Jónas skaut lymskulega að marki KA, boltinn stefndi neðst í bláhornið en Ólafur var snöggur niður og góm- aði boltann. Á 56. mín. átti Guð- mundur Valur skot framhjá KA markinu eftir þrælgott spil Þórsara. Skemmst er frá því að segja að leikurinn var leiðinlegur næstu 25 mínúturnar. Kraftinn vantaði í bæði liðin, Þórsarar biðu eftir því að leikurinn yrði flautaður af og KA- menn virtust ekkert áfjáðir í að jafna metin. Furðuleg knattspyrna á tíma- bili. Á 84. mín. jöfnuðu KA-menn hins vegar óvænt og var það sannkallað heppnismark. Bjarni Jónsson skaut þá þokkalegu skoti af um 22ja metra færi, boltinn fór í varnarmann Þórs og breytti um stefnu og þaut rétt framhjá Baldvini sem var frosinn á línunni og í markið. Baldvin var kominn úr jafnvægi því ekki átti hann von á knettinum hægra megin við sig. 1:1. Spenna hljóp í leikinn síðustu mínúturnar og á 86. mín. fékk Árni Stefánsson boltann inni í vítateig KA, sneri sér við en skaut beint í fangið á Ólafi. Úrslitin 1:1 og verða þau að teljast nokkuð sanngjörn miðað við gang leiksins en vissulega var jöfnunarmark KA óvænt. Valsmenn tryggðu sér íslands- meistaratitilinn í knattspyrnu á ný, eftir að Framarar höfðu geymt hann síðasta ár, er þeir sigruðu KR-inga með tveimur mörkum gegn engu á KR-velli á laugardag. Hilmar Sighvatsson og Sigurjón Kristjánsson skoruðu mörkin fyrir Val með stuttu millibili, skömmu fyrir leikhlé. Þetta var jafnframt fjórði tapleik- ur KR-inga í röð og hefur liðið alger- lega brugðist þeim vonum sem til þess voru gerðar m.a. með tilkomu nýrra leikmanna í upphafi keppnis- tímabilsins. Framarar komust í annað sætið með sigri á Völsungi á sama tíma og Skagamenn lágu heima 3:4 fyrir baráttuglöðum Víðismönnum sem enn eiga von um það að halda sæti sínu í deildinni. Skagamenn og Þórs- arar berjast um Evrópusætið sem í boði er en Þórsarar misstu dýrmæt stig í jafnteflinu við KA á laugardag. Skagamenn mæta KA á Akureyri f síðustu umferð og Þórsarar mæta FH-ingum í Hafnarfirði. Keflvíkingar björguðu sér frá falli með því að sigra FH-inga í Keflavík á laugardag 1:0 og skoraði Bretinn Peter Farrell þetta mikilvæga mark beint úr aukaspyrnu. ÍBK mætir Fram í Reykjavík í síðustu umferð. Þrjú lið berjast við falldrauginn og tvö þeirra verða að bíta í það súra epli að falla í 2. deild. FH er í neðsta sæti með 13 stig, Víðir hefur 14 og Völsungur 16. Það mun því ríkja mikil spenna á laugardag en þá fer fram 18. og síðasta umferð SL móts- ins að þessu sinni. Þá mæta Völsungar Valsmönnum á Hlíðarenda, Víðir fær KR í heim- sókn og FH-ingar Þórsara. ..V-.'ÓVö IþróttÍL Umsjón: Kristján Kristjánsson SL mótið 1. deild í knattspyrnu: Völsungar enn í bullandi fallhættu Fram sigraöi Völsung með tveimur mörkum gegn einu á Húsavík á laugardag, er liöin áttust við í SL mótinu 1. deild í knattspyrnu. Og verða Völs- ungar nú helst að ná jafntefli við Val í síðustu umferðinni, til þess að sleppa við fall í 2. deild. Það fer þó allt eftir því hvernig Víðismönnum gengur á móti KR-ingum og FH-ing- um á móti Þórsurum. Völsungar byrjuðu leikinn af miklum krafti og strax á 7. mín. fengu þeir vítaspyrnu, eftir að Ormarr Örlygsson hafði hand- leikið knöttinn í vítateignum. Jónas Hallgrímsson skoraði af öryggi úr spyrnunni og var þetta 30. vítið í röð sem Jónas skorar úr fyrir Völsung og geri aðrir betur. Eftir markið dró heldur af Völsungum, Framarar fóru í gang og spiluðu oft mjög skemmtilega. Á 17. mín. jafna þeir 1:1. Há sending kom fyrir markið, á fjærstöngina og þar stóð Kristján Jónsson einn og óvaldaður og skallaði í markið. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, sóttu Framarar en án þess að Aðalsteinn meiddur Aðalsteinn Aðalsteinsson leikur ekki með liði Völsungs I síðasta leiknum í 1. deildinni í knattspyrnu. Hann meiddist illa í leiknum gegn Fram, lenti í sainstuöi við Framara og við það slitnuðu liðbönd í hné Aðalsteins. Hann var fluttur suður þar sem gerð var á honum aðgerð. í hans stað á laugardag kom Svavar Geirfinnsson. Svavar var ekki búinn að vera inná í nema 2 mín., er hann lenti einnig í samstuöi og hálfrotað- ist. Varð því einnig að bera hann af veíli. Úrslitaleikur 4. deildar: Hvöt meistari - sigraði Gróttu 2:1 í gær skora. Besta færið átti Guð- mundur Steinsson er hann skaut í stöng tveimur mín. fyrir hlé. í síðari hálfleik réðu Framarar ferðinni og voru oftast með knöttinn, án þess þó að skapa verulega hættu. Sigurmarkið skoraði Ragnar Margeirsson úr þvögu eftir eina af mörgum horn- spyrnum Framara. Þegar líða tók á hálfleikinn færðist mjög mikil harka í leikinn og mátti Guð- mundur Haraldsson hafa sig allan við að hemja menn. Framliðið sýndi það í þessum leik að það er engin tilviljun að þeir eru bikarmeistararar. Þeir eiga sennilega eitt besta liðið í deildinni í dag en slakur kafli í byrjun mótsins kostaði liðið titil- inn. Bestir í leiknum voru þeir Pétur Ormslev, Kristján Jónsson og Viðar Þorkelsson. Völsungar léku ágætlega fyrstu mínúturnar í leiknum en síðan datt botninn úr leik liðsins. Bestir í þessum leik voru þeir Jónas Hallgrímsson, Sveinn Freysson, Kristján Olgeirsson og Helgi Helgason. Dómari var Guðntundur Haraldsson og dæmdi hann vel að vanda. ASG Hafþór Kolbeinsson fremst á myndinni, fagnar marki sínu gegn UBK á laugardag ásamt félögum sínum. Mynd: Pétur Knattspyrna 2. deild: KS-ingar björguðu sér frá falli Siglfirðingar sóttu sér dýrmætt stig í fallbaráttuna suður yfir heiðar á laugardag, er þeir gerðu jafntefli 1:1 við Breiða- blik í Kópavogi. Hið fengna stig gerir það að verkum að lið- ið ieikur varla í 3. deild að ári, nema stórslys komi til í síðustu umferðinni. Má segja að KS- ingar hafi heldur en ekki sýnt vígtennurnar upp á síðkastið, eftir mikinn öldudal. Knattspyrna 2. deildar: Hvöt frá Blönduósi innsiglaði góðan árangur sinn í 4. deild- inni í sumar með sigri í úrslita- leiknum gegn Gróttu á Sauðár- króki í gær. Blöndósingar státa því af meisturum deildar- innar og ekki er ótrúlegt að lið þeirra eigi eftir að gera góða hluti í 3. deildinni að ári. í upphafi leiksins virkaði lið Gróttu sigurstranglegt með nett og lipurt spil, en Hvatarmenn virtust stressaðir. Leikur Hvatar reyndist þó árangursríkari þegar líða tók á hálfleikinn, en þá skor- uðu þeir 2 mörk með stuttu milli- bili á 26. og 29. mín. Fyrst þrum- aði Axel Rúnar Guðmundsson boltanum í markið með viðstöðu- lausu skoti af stuttu færi og síðan lék Hermann Arason svipaðan leik er hann fékk stungu inn fyrir frá Páli Leó. Staðan var 2:0 í hálfleik og eftir seinni hálfleikn- um að dæma virtust Hvatarmenn halda að þessi tvö mörk dygðu. Þeim hefndist fyrir það undir lok leiksins þegar Sverrir Herberts- son náði að minnka muninn og iokamínúturnar voru æsispenn- andi þar sem Gróttumenn fengu færi á að jafna, þegar Gísli Felix Bjarnason stóð fyrir opnu marki, en húnvetnskur fótur komst fyrir skot hans. Alveg í lokin fékk svo Páll Leó færi á að gulltryggja sig- ur Hvatar. En úrslitin urðu 2:1 fyrir Hvöt, fyllilega sanngjörn. -þá Leiftur í annað sætið eftir sigur á Einherja - Leiftur á góða möguleika á sæti í 1. deild - Einherji nánast fallinn í 2. deild Hermann Arason skoraði annað mark Hvatar í gær. Leiftur sigraði Einherja frá Vopnafirði með þremur mörk- um gegn einu í 2. deild Islands- mótsins í knattspyrnu á laug- ardag. Með sigrinum komst Leiftur í annað sæti deildarinn- ar og hefur nú alla möguleika á því að vinna sér sæti í 1. deild að ári þegar aðeins einni umferð er ólokið. Liðið mætir Þrótti í Reykjavík í síðustu umferð og með sigri í þeim leik tryggir liðið sér að öllum lík- indum sæti í 1. deild. Einherji er aftur á móti svo gott sem fallinn í 3. deild. Það var greinilegt á leik lið- anna á laugardag hversu mikið var í húfi. Leiftursmenn í topp- baráttu en Einherjamenn að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Leikmenn voru nokkuð tauga- veiklaðir og kom það nokkuð niður á leiknum sjálfum. Strax í upphafi leiksins átti Gústaf Tindastóll í 2. deild - Liðið sigraði Magna 1:0 á Króknum á laugardag Það var glatt á Króknum á laugardaginn eftir að heimalið- ið Tindastóll hafði lagt Magna frá Grenivík að velli og þannig tryggt sér sigur í b-riðli 3ju deildar og með því sæti í 2. deild að ári. Fyrir leikinn áttu bæði lið möguleika á sigri í riðlinum og var því mikið í húfi. Enda var leikurinn dæmigerður stressleik- ur og knattspyrnan sem liðin sýndu ekki upp á marga fiska. Magnamenn komu mjög frískir til leiks og voru öllu skarpUri í þófkenndum fyrri háifleik. Tindastólsmenn virkuðu mjög þungir, en fengu samt heldur hættulegri sóknir og voru óheppnir að skora ekki snemma í leiknum þegar Hólmar Ástvalds- son átti skalla í þverslána og nið- ur eftir hornspyrnu. Gestirnir byrjuðu einnig seinni hálfleikinn af krafti, en fljótlega náðu Stólarnir frumkvæðinu og byggðu upp sóknarleik sem bar skjótt árangur. Á 10. mínútu fengu þeir dæmda vítaspyrnu sem Sverrir Sverrisson tók, en ísak markvörður Magna varði laust skot hans. En 2 mínútum síðar skoraði Tindastóll svo mark sem reyndist úrslitamark leiksins. Þá skallaði Stefán Pétursson bolt- ann í markið af stuttu færir eftir að Eyjólfur hafði unnið boltann í loftinu í baráttu við markmann- inn. Það sem eftir lifði leiksins var nokkurt jafnræði með Iiðun- um, en heimamenn þó heldur meira í sókn. Magnamenn náðu þó að ógna í nokkur skipti með góðum skotum á markið, en þar var fyrir Gísli markvörður Sigurðsson sem varði af snilld í nokkur skipti og var hann óum- deiianlega langbesti rnaður liðs síns í leiknum. Leikurinn var nokkuð harður á köflum og rak dómarinn Sigurður Víglundsson 2 leikmenn af velli fyrir gróf brot, einn úr hvoru liði. Bjarni Jóhannsson þjálfari Tinda- stóis leiddi liö sitt til sigurs í B-riðli 3. deildar. Ómarsson þrumuskot í vinkilinn á marki Einherja. Leiftursmenn áttu hættulegri sóknir og náðu forystunni eftir um 20 mín. leik. Steinar gaf fyrir, Halldór flikkaði boltann áfram fyrir markið á Óskar sem skallaði hann af öryggi í netið. Á 35. mín. jafnaði Árni Ólason metin fyrir Einherja með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu utan við vítateig og þannig var staðan í leikhléi. Strax í upphafi síðari hálfleiks komst Óskar inn í sendingu frá varnarmanni Einherja og skoraði laglegt mark, sem var síðan dæmt af þar sem Óskar var talinn rang- stæður, sem hann var ekki, þar sem sendingin kom frá Einherja- manni. Skömmu síðar átti Óskar skot í þverslá Einherjamarksins. Á 60. mín. náðu Leiftursmenn forystunni á ný með marki Haf- steins Jakobssonar. Leifturs- menn léku laglega upp völlinn, Hafsteinn komst síðan inn úr og vippaði yfir markvörð Einheria og í markið. Eftir markið dofnaði heldur yfir leiknum. Síðustu 10 mín. leiksins sóttu þó Einherja- menn stíft en það var svo gegn gangi leiksins að Steinar Ingimundarson innsiglaði sigur heimamanna er hann skaut hörkuskoti í varnarmann og inn. Róbert Gunnarsson, Gústaf Ómarsson og Þorvaldur Jónsson markvörður voru bestu menn Leifturs en ekki er hægt að tína einn sérstakan úr jöfnu liði Ein- herja. Það voru ekki liðnar fullar tvær mínútur af leiknum á laugardag er knötturinn lá í marki Blik- anna. Varnarmaður þeirra hugð- ist hreinsa frá markteig, sveiflaði fæti tignarlega og spyrnti en án þess að snerta knöttinn sem rúll- aði í makindum til Hafþórs Kolbeinssonar sem stóð nærri í dauðafæri. Hafþór gerði engin mistök og áhorfendur varla sestir þegar staðan var orðin 1:0 fyrir KS. Heimamönnum hljóp kapp í kinn og þeir freistuðu þess mjög ákaft að jafna og áttu þrjú færi til þess strax næsta korterið. Á 18. mín. voru þeir síðan í þungri sókn og eftir barning í vítateig KS, tók Magnús Magnússon bolt- ann niður og þrumaði í markið, 1:1. Það sem eftir lifði fjörugs og allskemmtilegs fyrri hálfleiks voru Blikarnir meira með bolt- ann og voru oft skeinuhættir en aftasta vörn KS með Mark Duffield í banastuði og Axel Comes í ágætu formi í markinu, varðist vel. KS-ingar áttu svo sjálfir nokkrar vel útfærðar sóknir, enda Hafþór og Jónas Björnsson sprækir frammi. Annað var uppi á teningnum í seinni hálfleik, sem var vægast sagt hrútleiðinlegur, þar sem miðjuþóf var einkennandi. Það var helst á síðustu 20 mínútunum sem að leikmenn tóku við sér. Á 73. mín. áttu Blikar þrumuskot í hliðarnet KS-marksins og litlu munaði að KS stæli öllum stigun- um er Jónas tók aukaspyrnu á 88. mín. Aukaspyrnan var varin, boltinn hrökk til Óla Agnarsson- ar sem þá var nýkominn inná en hann skaut naumlega framhjá af stuttu færi. Leiktíminn rann út og leikmenn KS fögnuðu mjög, enda ástæða til. Að vísu voru þeir nokkuð heppnir að vera ekki einu til tveimur mörkum undir í hléi en síðari hálfleikur var jafnt eign þeirra og gestgjafanna. Mark Duffield var maðurinn sem braut flestar sóknarlotur Blika á bak aftur og átti stórleik. Axel var líka góður í markinu og Björn Ingimarsson duglegri en oft áður. Gústaf þjálfari var einnig nokkuð drjúgur og liðið lék allt ágætlega og sem ein heild. Tómas Kárason og Björn Sveins- son fengu báðir að líta gula spjaldið. Bestir Blikanna voru Ingvaldur Gústafsson og Jón Þórir Jónsson Leiftursbani. GÞE Staðan SL-mótið 1. deild Úrslit leikja í 17. og næst síð- ustu umferö SL-mótsins í knattspyrnu á laugardag urðu þessi: KR-Valur 0:2 ÍA-Víðir 3:4 Þór-KA 1:1 ÍBK-FH 1:0 Völsungur-Fram 1:2 Staöan í deildinni er nú þessi: Valur 17 10-6-1 30:10 36 Fram 17 9-4-4 33:21 31 ÍA 17 9-2-6 36:30 29 Þór 17 9-2-6 32:29 29 KR 17 7-4-6 28:20 25 KA 17 5-5-7 18:17 20 ÍBK 17 5-5-7 22:30 20 Völsungur 17 4-4-9 20:32 16 Víðir 17 2-8-7 18:33 14 FH 17 3-4-10 18:33 13 Markahæstir: Pétur Ormslev Fram 12 Halldór Áskelsson Þór 9 Pétur Pétursson KR 8 Jónas Hallgrímss. Völs. 8 Björn Rafnsson KR 7 Kristján Kristjánss. Þór 7 Óli Þór Magnússon ÍBK 7 Sigurjón Kristjánsson Val 7 Sveinbjörn Hákonars. ÍA 7 Valgeir Barðason ÍA 7 Staðan 2. deild Úrslit leikja í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu um helgina urðu þessi: IR-IBI 4:3 UBK-KS 1:1 Leiftur-Einherji 3:1 Selfoss-Þróttur 3:1 ÍBV-Víkingur 2:3 Staðan í deildinni þegar ein umferð er eftir er þessi: Víkingur 17 10-2-5 32:24 32 Leiftur 17 8-5-4 30:21 29 Selfoss 17 8-5-4 33:25 29 Þróttur 17 9-1-7 34:29 28 UBK 17 8-2-7 29:21 26 ÍR 17 7-4-6 30:28 25 ÍBV 17 6-5-6 30:28 23 KS 17 6-4-7 27:29 22 Einherji 17 5-4-8 18:30 19 ÍBÍ 17 2-0-15 20:49 6 Markahæstir: Heimir Karlsson ÍR 13 Trausti Ómarsson Víkingi 13 Jón Þórir Jónsson UBK 11 Jón Gunnar Bergs Selfossi 10 Sigurður Hallvarðss. Þrótti 9 Hafþór Kolbeinsson KS 9 Bragi Björnsson ÍR 8 Tómas I. Tómasson, ÍBV 8 Óskar Ingimundars. Leiftri 7 Staðan 3. deild B: Úrslit leikja í lokaumferðinni í B-riðli 3. deildar á íslandsmót- inu í knattspyrnu um helgina urðu þessi: Sindri-Þróttur N 4:1 Tindastóll-Magni 1:0 Reynir Á-HSÞ-b 3:1 Lokastaðan í riðlinum varð þessi: Tindastóll 12 9-2-1 45:12 29 Magni 12 7-4-1 22:10 25 Þróttur N 12 6-2-4 26:17 20 Sindri 12 6-1-5 19:17 19 Revnir Á 12 4-2-6 17:25 14 HSÞ-b 12 3-0-9 11:34 9 Austri E 12 1-1-10 11:36 4 Eyjólfur Sverrisson leikmaður Tindastóls, var langntarka- hæstur í riðlinum, skoraði 21 niark.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.