Dagur - 07.09.1987, Síða 10

Dagur - 07.09.1987, Síða 10
10 -■ ÍÍU0AG - DAGUR VSGí' s&’dmoíqaa .\* 7. september 1987 Enska knattspyrnan: Clemence hetja Tottenham - Q.P.R. með 4ra stiga forystu - Markaveisla á Brúnni Það gekk mikið á í leikjum helgarinnar á Englandi. Q.P.R. gefur ekkert eftir í toppbaráttunni og hefur nú örugga forystu í 1. deild. Tveir sjö marka leikir í 1. deild, og nú hafa öll liðin tapað stigum, en staða Liverpool er sterk, hefur ekki tapað leik og aðeins leikið á útivelli, þrem heima- leikjum liðsins hefur verið frestað. En lið Charlton situr nú eitt á botni 1. deildar og hefur ekki hlotið stig til þessa. Stefnir í hörkubaráttu bæði í 1. og 2. deild í vetur. Efsta lið 1. deildar, Q.P.R. lék á útivelli gegn Charlton og náði að knýja fram sigur með eina marki leiksins. Dean Coney sem keyptur var frá Fulham fyrir £200.000 í sumar skoraði á 37. mín. eftir sendingu frá Gary Bannister. Sigur liðsins var öruggur og hefur gengi liðsins til þessa komið mjög á óvart, en fyrr í vikunni sigraði liðið meistara Everton á heimavelli sínum með sömu markatölu. Ray Clemence var hetja Tottenham gegn Everton og varði m.a. víta- spyrnu. Englandsmeistarar Everton léku á heimavelli gegn Totten- ham og var það hörkuleikur eins og búist var við. Everton sem nú er að endurheimta flesta af sínum bestu leikmönnum eftir meiðsli var sterkari aðilinn í leiknum og gerði oft harða hríð að marki Tottenham. Þrem mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks fékk liðið gullið tækifæri til að ná forystunni, þegar dæmd var vítaspyrna á Richard Gough fyrir að fella Wayne Clarke innan vítateigs, en hinn 39 ára gamli markvörður Tottenham Ray Clemence sem lengi lék í markinu hjá Liverpool gerði sér lítið fyrir og varði frem- ur lausa spyrnu enska landsliðs- mannsins Trevor Steven við lít- inn fögnuð heimamanna. Leikmenn Everton sóttu mjög í síðari hálfleik, en vörn Totten- ham var sterk með Clemence sem besta mann og varðist öllum sóknarlotum heimamanna. Und- ir lok leiksins skoraði Nico Claesen mark fyrir Tottenham en það var dæmt af vegna rang- stöðu. Á Stamford Bridge léku Chelsea og Nottingham For. frábæran leik þar sem skoruð voru sjö mörk. Hið unga lið Forest hóf leikinn af miklum krafti og yfir- spilaði heimamenn algerlega í fyrri hálfleiknum. Colin Foster náði fljótlega for- ystunni fyrir Nottingham með skallamarki og á 20. mín. bætti Nigel Clough við öðru marki, en Gordon Durie lagaði stöðuna fyrir Chelsea 2:1. Leikmenn Forest voru hins vegar óstöðv- andi og Paul Wilkinson kom lið- inu í 3:1 forystu fyrir leikhlé. í síðari hálfleiknum tók heima- liðið loksins við sér og besti mað- ur vallarins Mike Hazard lagði undir sig miðjuna, þaðan sem hann mataði framherja sína á snilldarsendingum. Á 10 mín. kafla í síðari hálfleik skoraði Chelsea 3 mörk og gerði þar með út um leikinn, fyrst Gordon Durie sitt annað mark, Clive Wil- son jafnaði 3:3 og Steve Clarke gerði síðan fjórða mark Chelsea og sigurmark leiksins. Hætt er við því að Brian Clough framkvæmdastjóri Forest hafi látið sína menn fá það óþvegið eftir leikinn því fyrr í vikunni tapaði liðið niður3:l for- skoti heima gegn Southampton, en ef til vill getur hann sjálfum sér um kennt, að hafa látið eldri og reyndari leikmenn liðsins fara í sumar. Liverpool náði forystu gegn West Ham sex mín. eftir að síðari hálfleikur hófst, John Aldridge skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Steve McMahon og það virtist ætla að duga til sigurs, en leikmenn West Ham gáfust ekki upp og náðu að jafna 14 mín. fyrir leikslok. Alan Hansen átti þá misheppnaða sendingu til markvarðar og hinn eldsnöggi Tony Cottee komst í milli og jafnaði. Liverpool átti þó mun meira í leiknum og Aldridge og McMahon áttu báðir skot í markstangir West Ham sem mátti þakka fyrir jafnteflið. Áhorfendur létu sig ekki vanta á heimavöll Newcastle á laugar- dag þar sem Brasilíumaðurinn Mirandinha lék í fyrsta sinn á heimavelli, en leikmenn Wimble- don voru fljótir að þagga niður í heimamönnum og strax eftir 10 mín. ieik var hátíðin á enda, staðan orðin 2:0 fyrir Wimble- don. John Fashanu skoraði fyrst og strax á næstu mínútu bætti Alan Cork öðru marki við með glæsilegu skoti. Leikmenn Wimbledon lögðust í vörn eftir þetta og börðust með kjafti og klóm. í síðari hálfleiknum tókst Newcastle að laga stöðuna með marki Neil McDonald úr víta- spyrnu og við það sat. Luton vann sinn fyrsta sigur á laugardag og hafði hann glæsileg- an, á útivelli gegn Oxford. Brian Stein náði forystu fyrir Luton, en bakvörðurinn Neil Slatter jafnaði fyrir Oxford. Tim Breacker tryggði Luton síðan forystu fyrir leikhlé. í síðari hálfleik tóku leik- menn Luton öll völd í sínar hend- ur og þeir Emeka Nwajiobi tvö og Mick Harford náðu 5:1 for- ystu fyrir lið sitt áður en Oxford náði að skora í lokin. Lee Chapman náði forustu fyrir Sheffield Wed. snemma í leiknum gegn Southampton, en heimaliðið náði að jafna leikinn rétt áður en blásið var til leiks- loka og Sheffield Wed. hefur enn ekki sigrað í deildinni, er næst neðst með aðeins tvö stig. Steve Bruce tryggði Norwich sigur á útivelli gegn Watford með marki í síðari hálfleik. Reynir frá Árskógsströnd sigr- aði HSÞ-b á laugardag í síðasta leik liðanna í B-riðli á íslands- mótinu í knattspyrnu. Leikur- inn fór fram á Árskógsstrandar- velli og skoruðu heimamenn þrjú mörk á móti einu marki John Aldridge skoraði jöfnunar- mark Liverpool gegn West Ham. Derby og Portsmouth liðin sem komu upp úr 2. deild í vor tókst ekki að koma boltanum í netið í leik sínum í Derby, og sömu sögu var að segja að leik Coventry og Manchester Utd. sem einnig skildu jöfn í Coventry '0:0, en Manchester er í öðru sæti í 1. deild ásamt Chelsea með 12 stig. I 2. deild stjórnaði Ron Atkin- son liði W.B.A. til sigurs gegn Shrewsbury, en hann tók við lið- inu í síðustu viku eftir að Ron Saunders var rekinn. Það kostaði þó félagið £ 80.000 að losna við Saunders þannig að hann ætti ekki að þurfa að fara í strætið. Það verður fróðlegt að sjá hvort Atkinson tekst að blása lífi í félagið á nýjan leik. Ipswich sigraði Leeds Utd. með einu marki gegn engu í hníf- jöfnum hörkuleik og greinilegt að Billy Bremner verður að fara að líta í kringum sig eftir sóknar- leikmanni sem getur skorað mörk ef hann ætlar að koma Leeds Utd. upp í 1. deild í vetur. Þ.L.A. gestanna. Örn Arnarson skor- aöi öll mörk Reynis í leiknum. Leikurinn var nokkuð þóf- kenndur en þó fengu bæði lið ágæt marktækifæri. Reynismenn áttu m.a. tvö stangarskot í fyrri hálfleik en hvorugu liðinu tókst að skora í hálfleiknum. Strax í upphafi síðari hálfleiks skoraði Örn Arnarson tvö mörk fyrir Reyni með stuttu millibili. Það fyrra með föstu skoti af víta- punkti en það seinna með því að kasta sér fram og skalla boltann í netið og var það sérlega fallegt mark. Skömmu síðar minnkaði Ari Hallgrímsson muninn fyrir HSÞ-b, er hann komst inn fyrir vörn Reynis, eftir að rangstöðu- gildra þeirra hafði brugðist og skoraði af öryggi. Mývetningar gerðu síðan harða hríð að marki Reynis eftir markið en Eiríkur markvörður varði tvívegis mjög vel og einu sinni bjargaði varnar- maður á marklínu. Undir lok leiksins náðu Reynismenn skyndisókn og Örn bætti við sínu þriðja marki, eftir misskilning í vörn HSÞ-b. Skömmu áður hafði hann átt ágætt skot í stöngina. Eftir markið voru Reynismenn nær því að bæta við marki heldur en að Mývetningar næðu að minnka muninn en fleiri urðu mörkin ekki og úrslitin 3:1. .. Knattspyma 3. deild: 0m með þrennu er Reynir vann HSÞ-b Knatt- spyrnu- úrslit Úrslit leikja i' 1. og 2. deild ensku knattspyrnunnar á laugardag uröu þessi: 1. deild: Charlton-Q.P.R. 0:1 Chelsea-Nottm.Forest 4:3 Coventry-Man. United 0:0 x Derby-Portsmouth 0:0 Everton-Tottenham 0:0 x Newcastle-Wimbledon 1:2 2 Oxford-Luton 2:5 2 Southampt.-Sheff.Wed 1:1 x Watford-Norwich 0:1 2 West Ham-Liverpool 1:1 x 2. deild: Barnslcy-Plymouth 2:1 Birmingham-C.Palace 0:6 Bradford-Millwall 3:1 Hull-Bournemouth 2:1 Ipswich-Leeds 1:0 Leicester-Áston Villa 0:2 Man.City-Blackburn 1:2 Middlesbro-Swindon 2:3 Reading-Oldham 3:0 Sheff.Utd.-Stoke 0:0 W.B.A.-Shrewsbury 2:1 Staðan 1. deild Q.P.R. 6 5-1-0 9:1 16 Man.United 6 3-3-0 10:4 12 Chelsea 6 4-0-2 13:8 12 Tottenham 6 3-2-1 9:4 11 Wimbledon 6 3-2-1 9:5 11 Nottm.Forest 6 3-2-110:8 11 Coventry 6 3-1-2 8 :8 10 Everton 6 2-3-1 6:2 9 Liverpool 3 2-1-0 7:3 7 Southampton 6 1-4-1 9:9 7 Norwich 6 2-1-3 5:6 7 Arsenal 5 1-2-2 8:5 5 Derby 4 1-2-1 2:2 5 Luton 6 1-2-3 8:10 5 West Ham 5 1-2-2 6:8 5 Oxford 5 1-2-2 8:12 5 Portsmouth 6 1-2-3 6:16 5 Newcastle 5 1-1-3 4:7 4 Watford 5 1-1-3 2:5 4 Sheff.Wed. 6 0-2-4 3:12 2 Charlton 4 0-0-4 3:10 0 Staðan 2. deild Barnsley 6 4-1-1 9:7 13 Plymouth 6 3-1-2 11:6 10 Bradford 5 3-1-1 7:3 10 Hull 6 2-4-0 9:7 10 Swindon 5 3-1-1 7:5 10 Blackburn 6 3-1-2 9:8 10 Ipswich 6 2-3-1 5:3 9 Leeds 6 2-3-1 3:2 9 C.Palace 5 2-2-1 14:7 8 Stoke 6 2-2-2 4:8 8 Reading 4 2-1-1 4:1 7 Bornemouth 5 2-1-2 6:5 7 Millwall 5 2-1-2 7:7 7 Birmingham 5 2-1-2 6:10 7 Man.City 4 1-2-1 5:5 5 Aston Villa 5 1-2-2 5:6 5 Shrewsbury 5 1-2-2 2:3 5 Oldham 6 1-2-3 4:9 5 Sheff.United 5 1-1-3 3:5 4 Middlesbrough 5 1-1-3 5:8 4 W.B.A 5 1-1-3 4:7 4 Leicestcr 5 1-0-4 2:6 3 Huddersfield 4 0-2-2 5:11 2

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.