Dagur - 07.09.1987, Síða 11

Dagur - 07.09.1987, Síða 11
7. september 1987 - DAGUR - 11 Y8Sr.V - *Kt')hO - {nv I skólanum... Þá eru skólarnir byrjaðir eitt haustið enn. Rúmlega þrjú þúsund nemendur stunda nám í sex grunnskólum á Akureyri. Flestir krakkar hlakka til að byrja í skólanum, „Það verður að minnsta kosti skemmtilegt fyrsta daginn,“ eins og einn viðmælandi orðaði það. Við fórum á stúfana og brugðum okkur í Miðbæ- inn þar sem við hittum nokkra krakka að máli. „Fyrsti dagurinn er skemmti- legastur“ - segja þær Katrí og Katrín Katrí Gísladóttir og Katrín Hauksdóttir voru að skoða skóla- dót ýmiss konar í bókabúðinni Eddu. Þær eru báðar í fimmta bekk í Oddeyrarskólanum. „Kennararnir okkar heita Mar- grét og Hólmfríður og þær eru Við erum ekkert að kaupa- bara skoða, segja vinkonurnar Katrí og Katrín. Myndir: mþþ um að þau hlakkaði til að byrja í skólanum. „Að minnsta kosti pínulítið svona fyrst,“ sagði Magnús. - Hvað finnst ykkur skemmti- legast í skólanum? „Mér finnst skemmtilegast í leikfimi og sundi og það er líka dálítið skemmtilegt í reikningi,“ sagði Albert og Magnús sam- sinnti því. Lára var farin að skoða pennaveski, en hún sagðist vera búin að kaupa allt skóladót- ið sem hún þyrfti fyrir veturinn. Erum að skoða - spjallað við Áslaugu og Hörpu sem voru að líta á úlpur Þau hlakkaði til að byrja í skólanum, frá vinstri er Lára, Magnús og Albert, sem er að velja sér skólatösku. bara alveg ágætar,“ sögðu þær stöllur. „Við erum ekkert að kaupa - bara skoða. Það er ekki enn búið að segja okkur hvað við eigum að kaupa, en við vitum auðvitað að við þurfum að kaupa stílabækur, reikningsbækur og svoleiðis." - Hvað er skemmtilegast í skólanum? Ekki stóð á svarinu. „í fslensku,“ sögðu þær báðar sam- stundis. - Hvað er svona skemmtilegt við íslenskuna? „Magga kennir okkur. Hún er svo skemmtileg." Katrí sagðist eiga ágæta skólatösku frá því í fyrra, en Katrín keypti sér skólatösku á Spáni í sumar. Báðar sögðust þær hlakka til að byrja í skólanum. „En fyrsti dagurinn er alltaf skemmtilegastur. Já, og líka sá síðasti.“ mþþ Albert, Magnús og Lára: A5 kaupa skólatösku „Við vitum ekki enn hvað kennarinn okkar heitir,“ sögðu þeir Albert og Magnús sem við hittum í Bókabúð Jónasar. Kennarinn sem kenndi þeim síð- asta vetur heitir Þórarinn, en þeir vissu ekki hvort hann myndi halda áfram að kenna þeim eða hvort þeir fengju nýjan kennara. Þeir er báðir 10 ára og eru í Barnaskóla Akureyrar. Albert var að velja sér skólatösku fyrir veturinn. „Ég er að spá í þessa,“ sagði hann og sýndi blaðamanni fína bláa tösku. „Mig langar eiginlega mest í hana, en hún er dálítið dýr,“ bætti hann við, en taskan kostaði 2250 krónur. Með þeim félögum Albert og Magnúsi var Lára, en hún er frá Seyðisfirði og er þar í skóla. Krakkarnir voru allir sammála En krakkarnir kaupa ekki bara skóladót fyrir veturinn. Margir kaupa sér líka úlpur og við hitt- um einmitt þær Hörpu og Áslaugu í Vöruhúsi KEA þar sem þær voru ásamt mæðrum sín- um að skoða vetrarúlpur. Harpa er að byrja í skólanum, en Áslaug fer í annan bekk. Báð- ar eru í Síðuskóla. Að sjálfsögðu hlakka þær til að byrja og skemmtilegast er að lesa og skrifa, að því er Áslaug sagði. Feimin Harpa sagði fátt, enda rétt að byrja í skólanum. „Við erum að skoða hvað er til og hvað hentar best,“ sögðu mæður stúlknanna. Úlpurnar kostuðu tæpar 2000 krónur og sögðu þær verðið í lægri kantin- um. „Ég vildi alveg eiga svona úlpu í vetur,“ sagði Aslaug. „Okkur líst bara vel á þessar úlpur," segja þær Harpa og Áslaug. Sumarhús - íbúðarhús Höfum til sýnis stórt og rúmgott sumarhús. Húsiö má einnig nota sem íbúöarhús. Sjáum um flutning sé þess óskaö. .TRESMIÐJAN VVV MOGILSF.Cm SVALBARDSSTRÖND 601 AKUREYRI S 96-21570 SV Viðskiptavinir athugið! Verkstæði okkar að Hvannavöllum 14b verður lokað vikuna 7.-11. september. Opnum aftur mánudaginn 14. september. Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum 14b, sími 22840. Hjúkrunar- fræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu- gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustööina í Ólafsvík. 2. Staða hjúkrunarforstjóra og staöa hjúkrunarfræð- ings við Heilsugæslustööina í Fossvogi, Reykja- vík. 3. Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustööina á Þingeyri. 4. Staöa hjúkrunarfræöings við Heilsugæslustöðina á Selfossi. 5. Staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsugæslustööina í Reykjahlíö, Mývatnssveit. 6. Hálf staöa hjúkrunarfræöings við Heilsugæslu- stööina á ísafiröi. 7. Staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsugaéslustlöö Suðurnesja í Keflavík. 8. Staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsugæslustöö Hlíöasvæðis í Reykjavík. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf viö hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Laugavegi 116, Reykjavík. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 1. september 1987. ATVINNA Sklnnaidnaður Okkur vantar nú þegar hresst og duglegt starfsfólk á dagvakt og kvöldvakt við ýmiss störf í Skinnaiðnaði. Einnig getum við bætt við fólki á næturvakt frá kl. 1.35-7.00. Vi vaktir koma til greina. Unnið er eftir bónuskerfi. Mötuneyti er á staönum. Lítið inn og kannið tekjumöguleika. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra. IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.