Dagur - 07.09.1987, Side 15
7. september 1987 - DAGUR - 15
Ski pulagsnefnd fundar með
íbúum í Sunnuhlíð
Sl. fimmtudagskvöld stóð
skipulagsnefnd Akureyrar fyr-
ir fundi með íbúum við Sunnu-
hlíð í verslunarmiðstöðinni við
Sunnuhlíð. Tilgangur fundar-
ins var að heyra sjónarmið
íbúanna vegna dagvistar sem
fyrirhugað er að opna í göt-
unni, en þessa dagana er verið
að athuga með kaup á einbýlis-
húsi í götunni þar sem dagvist-
in myndi verða ef af yrði.
Fundinn sátu einnig Jón
Björnsson, félagsmálastjóri,
Finnur Birgisson, skipulags-
stjóri, Gunnar Jóhannesson,
verkfræðingur hjá Akureyrar-
bæ, og fulltrúar frá félags-
málaráði.
Jón Björnsson sagði að að í
umsókn félagsmálaráðs um dag-
vist í Sunnuhlíð hefði tvennt ver-
ið lagt til. í fyrsta lagi hefði verið
lagt til að innkeyrsla að húsinu
yrði frá Hlíðarbraut. Pað hefði
gert það að verkum að umferð að
dagvistinni hefði ekki þurft að
fara í gegnum Sunnuhlíð. Þetta
hefði verið aðaltillagan en til vara
hefðu þeir lagt fram aðra sem var
á þá leið að umferð yrði um
Sunnuhlíð og eftir fyrstu umfjöll-
un skipulagsnefndar væri ljóst að
nú væri verið að ræða um þann
möguleika.
Stefnan að hafa
færanlegar dagvistir
Jón vék síðan að dagvistinni
sjálfri. Hann sagði það vera
stefnu félagsmálaráðs að hafa
færanlegar dagvistir þar sem al-
gengt væri að í hverfum í upp-
byggingu væri mikið af börnum.
Síðar, þegar þessi börn stálpuð-
ust, minnkaði þörf hverfísins fyr-
ir dagvist og því væri hentugt að
geta fært dagvistina þangað sem
þörfin væri meiri. Hugmyndin
væri því að kaupa hús, breyta því
eins lítið og kostur væri og selja
síðan aftur sem íbúðarhús þegar
þörfin væri orðin meiri annars
staðar. Reiknað væri með að
þarna yrði pláss fyrir 23 börn,
hugsanlega í 5-10 ár og þarna
yrði um að ræða dagheimili fyrir
börn úr næsta nágrenni.
Jón sagðist telja að íbúar við
Sunnuhlíð hefðu ástæðu til að
hafa áhyggjur af þrennu. í fyrsta
lagi yrði fólk að vinna í húsinu og
íbúar hefðu hugsanlega áhyggjur
af að mikið yrði af bílum í kring-
um húsið. Þetta ætti hins vegar
að vera ástæðulaus ótti því uppi
væru áform um að gera bílastæði
yfir þvera austanverða lóðina og
þannig fengjust stæði fyrir 8-10
bíla.
í öðru lagi hefði fólk jafnvel
áhyggur af að íbúar næstu húsa
yrðu fyrir ónæði, þá fyrst og
fremst íbúar í húsi númer 13 og
íbúar Viðarholts.
í þriðja lagi væri svo aukin
umferð sem fylgdi dagvistinni.
Jón lagði síðan fram útreikninga
sem hann hafði gert og taldi
hugsanlega sýna hve umferðin
myndi aukast með tilkomu dag-
vistarinnar. Útreikningar þessir
verða ekki raktir hér en til að
gera langa sögu stutta fékk Jón út
að umferðin myndi aukast sem
samsvaraði 3,5 húsum til viðbót-
ar í götuna.
Meirihlutinn á móti...
Eftir nokkrar umræður kom ber-
lega í ljós að meirihluti íbúanna á
fundinum var andvígur hug-
myndinni, fyrst og fremst vegna
ótta við aukna umferð. Lýstu
þeir áhyggjum sínum vegna þessa
og bentu m.a. á að umferð í þess-
ari götu hefði áður verið til
umræðu. Sögðu þeir hana vera of
mikla fyrir og því vafasamt að
ætla að auka enn frekar á hana.
Pá komu fram efasemdir um að
bílastæðin yrðu notuð og fleira
var tínt til sem talið var gera
þessa daevist óæskilega. Ekki
virtust þeir setja dagvistina fyrir
sig að öðru leyti en vegna
umferðarinnar, þó heyrðust
raddir um að möguleikar á
endursölu húsa í götunni myndu
versna.
...en ekki þó allir
Ekki voru þó allir andvígir hug-
myndinni. Ein kona lýsti því yfir
að ef dagvistin kæmi í Sunnuhlíð-
ina væru íbúar þar búnir að
leggja sitt af mörkum til að leysa
dagvistunarvandann á Akureyri
og það væri skemmtileg tilhugs-
un. Fleiri kosti sá hún við þetta,
stutt yrði að fara með börnin í
dagvist, börn, sem annars myndu
leika sér á götunni, gætu hugsan-
lega fengið að notfæra sér útivist-
araðstöðu þarna seinnipartinn og
um helgar, auk þess sem snjó-
mokstur hefði verið vandamál
hingað til í götunni og nú myndi
hugsanlega verða bætt úr því.
Var ekki annað að sjá en hún
væri fylgjandi hugmyndinni. í
sama streng tók kona við sama
borð. Bætti hún við að hún óttað-
ist ekki ónæði barnanna vegna,
sagðist viss um að það yrði bara
notalegt að heyra í þeim.
Þannig gengu umræðurnar
fram og til baka en ljóst var að
meirihlutinn var á móti. Fundin-
um lauk með því að Tómas Ingi
Olrich stóð upp og þakkaði gest-
um fyrir komuna, en hann hafði
tekið við fundarstjórn þegar
Freyr Ófeigsson, formaður
skipulagsnefndar, neyddist til að
yfirgefa staðinn.
Og nú er bara að bíða og sjá
hvaða afstöðu nefndin tekur.
Hún er nú einhvers vísari um
afstöðu íbúanna eftir þennan
fund sem að mörgu leyti er mjög
merkilegur. Það er full ástæða til
að fagna því þegar ráðamenn
leita eftir áliti þegnanna, sérstak-
lega þegar teknar eru ákvarðanir
sem snerta þá á jafn áþreifanleg-
an hátt. Vonandi er þetta það
sem koma skal. JHB
Bjöm Sigurdsson, Baldursbrckku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfísferðir. Hópferðir. Sætaferðir. Vöruflutningar
Haustáætlun frá 6. sept. ’87
S ____M Þ M F F L
Frá Húsavík kl.: 19 8 8 8
Frá Akureyri kl.: 21 16 16 16
ATH.
Morgunferðir frá Húsavík tengjast Norðurleið til Reykjavíkur.
Ferðist ódýrt - Ferðist með sérleyfisbílum.
Fargjald Húsavík-Akureyri kr. 450.-
Fargjald með Norðurleið Akureyri-Reykjavík kr. 1.650.-
Afgreiðsla hjá eftirtöldum aðilum:
Húsavík: Á. G. Guðmundsson, Stóragarði 7, sími 41580.
Akureyri: Farþegaafgreiðsla, öndvegi hf., sími 24442.
Akureyri: Vöruafgreiðsla, Ríkisskip v/Sjávargötu, sími 23936.
Sérleyfishafi.
Sérverslun í Miðbænum
Við leitum að liprum starfsmanni (konu) til
starfa við afgreiðslu og smáviðgerðir hjá rót-
gróinni verslun í Miðbænum.
★ Góð laun ★
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 - Akureyri • simi 25455
Stýrimann og vélstjóra
vantar strax á 80 tonna rækjubát frá Ólafsfirði.
450 ha. aðalvél.
Uppl. í síma 96-62256, 96-62484 eða um borð í
bátnum í síma 985-20426.
Óska eftir að ráða
karlmann á aldrinum 20-28 ára til afgreiðslu-
starfa í verslun.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Uppl. í versluninni Tipp Topp, Ráðhústorgi 9
milli kl. 18 og 19.
ÍSTESS H.F. óskar að ráða tvo
Vélgæslumenn
Um er að ræða vaktavinnu a.m.k. hluta ársins.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af meðferð
véla og tölvubúnaðar. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir skulu sendar til
ístess h.f., Glerárgötu 30, 600 Akureyri, fyrir 15.
september n.k.
Glerárgata30
600Akureyri
Island
* (9)6-26255
Blaðamaður
á Blönduósi
Dagur óskar eftir að ráða blaðamann
með aðsetri á Blönduósi.
Gert er ráð fyrir að blaðamaðurinn annist einnig
dreifingu blaðsins á Blönduósi.
Nánari upplýsingar gefur Áskell Þórisson í
síma 24222.
Sæpíast hf. óskar að ráða
mann til skrifstofustarfa
[ starfinu felst bókhaldsvinna, umsjón meö fjárreiðum fyrir-
tækisins, innheimtum, launum, inn- og útflutningi.
Um er að ræða umfangsmikið ábyrgðarstarf þar sem gerð-
ar eru kröfur um sjálfstæð vinnubrögð, samstarfsvilja og
ósérhlífni. Ekki eru gerðar kröfur um ákveðna menntun en
hún skemmir ekki fyrir. Reynsla af hliðstæðum störfum er
nauðsynleg. Sæplast hf. framleiðir plastvörur fyrir útgerð
og fiskvinnslu og hefur verið í örum vexti. Hjá fyrirtækinu
starfa nú 23 menn.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 15. september ásamt
upplýsingum um fyrri störf, menntun og hugmyndum um
laun.
Gunnarsbraut 12 • Pósthólf 50 ■ 620 DaJvlk • Slmi 96-61670
Slys gera ekki boð á undan sér!
OKUM EN8 OO MCNNI