Dagur - 08.10.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 8. október 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík,
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SL-mótið:
„Höfum sýnt að knattspyma
hefur mikið auglýsingagildi"
- segir Helgi Jóhannsson forstjóri SL
„Okkur fínnst þetta hafa borið
árangur, og sést hann fyrst og
fremst á aukinni aðsókn og
áhuga á knattspyrnuleikjum,
en það er tölulega sannað að
aðsóknin jókst í sumar,“ sagði
Helgi Jóhannsson forstjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar þegar
hann var spurður um árangur
þeirrar nýjungar að auglýsa í
heild íslandsmótið í knatt-
spyrnu.
„Ég held að þeir hjá KSÍ hafi ver-
ið ánægðir líka. Þetta var tilraun
sem aldrei hefur verið reynd áður
og ég tel að hún hafi heppnast vel.
Við vorum brautryðjendur og
höfum sýnt það að knattspyrnan
hefur mikið auglýsingagildi.
Félögin eiga ekki að þurfa að
betla, því þau eru að láta í hlut
nokkuð sem hefur gildi. Fyrir-
tæki ættu glöð að borga fyrir það.
Það er ljóst, að nú eiga fyrirtæki
eftir að sækjast eftir því að fá að
vera svipaðir stuðningsaðilar og
við.
Ástæðan fyrir því að við fórum
út í þetta er sú, að á síðasta ári
gekk vel hjá Samvinnuferðum-
Landsýn og ákváðum við að veita
fé í einhverja ákveðna grein.
Við höfum hingað til verið að
styrkja hina og þessa óskipulega,
en nú tókum við okkur til og
styrktum íþróttahreyfinguna
myndarlega. Við gerðum þetta
skipulega og markvisst og eydd-
um um 20% af heildarkostnaði
við auglýsingar hjá okkar fyrir-
tæki í þetta sem er geysilega mik-
ið á einn stað. Það var sömuleiðis
mun meira en við ætluðum í upp-
hafi en þar sem árangurinn er
mjög viðunandi, erum við
ánægðir.
Ég er sannfærður um að eftir
nokkur ár verður orðið svo eftir-
sótt að auglýsa þetta mót, að við
munum ekki hafa efni á að gera
það lengur,“ sagði Helgi að
lokum. VG
leiðari.____________________________
Þörf tillaga
Fulltrúar Framsóknarflokksins í bæjar-
stjórn Akureyrar, Sigurður Jóhannesson
og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, hafa flutt til-
lögu þess efnis í bæjarstjórn að gerðar
verði ráðstafanir til að þétta byggð í Síðu-
hverfi. Nú er málum þannig háttað að eftir
er að byggja allnokkur hús í hverfinu en
djúpt er niður á fastan jarðveg og grunnar
því dýrir. Af þeirri ástæðu hafa bæjarbúar
ekki haft fyrir því að sækja um lóðir sem
eru afar dýrar í vinnslu.
í frétt sem Dagur flutti af málinu kemur
fram að fordæmi fyrir því að Akureyrarbær
liðki fyrir væntanlegum lóðareigendum -
með því að gera lóðirnir byggilegri — eru
mjög fá. Og Sigurður Jóhannesson segir að
ekki sé til nein almenn regla fyrir því
hvernig bæjarfélagið geti komið til móts
við þá sem vilja byggja.
Á fundi í bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykktu bæjarstjórnarfulltrúar að vísa til-.
lögu Sigurðar Jóhannessonar og Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur til bæjarráðs til frekari
umfjöllunar. Það er hagur bæjarfélagsins
að búa þannig um hnúta að þessar lóðir
verði byggðar sem allra fyrst. Ekki er langt
þar til fólk vill fara að byggja í nýju hverfi
sem nefnt hefur verið Giljahverfi, en skipu-
lagning þess er nokkuð á veg komin hjá
skipulags st j ór a.
í samtali við Dag sagði Sigurður: „Ég
geri mér grein fyrir að kostnaður við þetta
er talsverður en hagurinn af þéttingu
byggðarinnar er þó meiri. Frá mínu sjónar-
miði er útilokað að hefja framkvæmdir við
Giljahverfi án þess að ganga fyrst frá þess-
um málum....Bærinn hefur lagt í mikinn
kostnað og segja má að fjármunir séu hér
grafnir í jörðu því uppbygging gatna og
lagna nýtist aðeins að litlu leyti.“
Gera má ráð fyrir að bæjarkerfið þurfi
nokkurn tíma til að afgreiða tillögu Sigurð-
ar Jóhannessonar og Úlfhildar Rögnvalds-
dóttur. En Dagur hvetur stjórnendur
bæjarins til að hraða afgreiðslunni því
umræddar lóðir eru ágætar og án efa vilja
margir byggja á þeim - ef bæjaryfirvöld
koma til móts við væntanlega umsækjend-
ur. Þrátt fyrir að ekki séu mörg fordæmi fyr-
ir því að Akureyrarbær liðki fyrir fólki á þann
hátt sem flutningsmenn tillögunnar leggja
til á það ekki að verða til að seinka af-
greiðslu hennar. ÁÞ
Erlent
vinnuafl
í Grímsey
Útgerðarfélagið:
Hrímbakur kallaður inn
- til að forðast stopp í frystihúsi
Mönnum hefur oröið tíðrætt
um það undanfarin misseri að
nú geti erlent vinnuafl farið að
streyma inn í landið hömlu-
laust. Þetta hefur gengið eftir
þótt ekki hafí stórir hópar
útlendinga komið til landsins.
Síðasti hópurinn af slíkum far-
andverkamönnum, sem af
fréttist, kom til Grímseyjar á
dögunum.
Þetta eru 5 Bretar, tveir karl-
menn og þrjár konur og starfa
þau öll í fiskverkun KEA í eynni.
Að sögn Þorláks Sigurðssonar,
oddvita í Grímsey hefur það
komið fyrir áður að útlendingar
komi til fiskvinnu í Grímsey yfir
vetrartímann þótt ekki 'væri það
algengt. Þorlákur sagði að svo
margir útlendingar hefðu ekki
verið við vinnu á sama tíma í
eynni.
Þorlákur sagði að fólk vantaði
til fiskvinnu í eynni um þessar
mundir. Fiskverkendum hefur
fjölgað í Grímsey auk þess sem
að skólafólk sem vinnur í fisk-
vinnsluhúsunum yfir sumarið
hverfur til skólastarfa á haustin
og því þarf oft að manna húsin
með aðkomandi vinnuafli yfir
vetrartímann. JOH
Tveir togarar Útgerðarfélags
Akureyringa lönduðu í síðustu
viku og einn er kominn með
afla í þessari viku. Veiði hefur
verið heldur treg og nú er
bræla á miðunum.
Kaldbakur landaði 29.9. 84
tonnum og var uppistaðan í
aflanum þorskur. Á fimmtudag-
inn var svo Hrímbakur kallaður
inn með aðeins 70 tonn sem að
mestu leyti voru karfi. Þetta var
gert til að ekki þyrfti að stöðva
alla vinnslu í frystihúsi Útgerðar-
félagsins eins og gerðist fyrr í vik-
unni, en ekki var fisk að fá ann-
ars staðar frá. í fyrradag landaði
svo Svalbakur og var þar um að
ræða 97 tonn, þar af var um
helmingurinn þorskur. ET
# Aðstingaaf
frá árekstri
Dagur greindi frá því í gær að
um helgina hefðu ökumenn
þriggja bifreiða ekið á jafn
marga kyrrstæða bíla og
skemmt þá nokkuð. Söku-
dólgarnir forðuðu sér allir -
tilkynntu ekki brot sitt. Tjón
þessi eru oftast lítil, segir í
Degi, og mjög bagalegt að
verða fyrir þeim. Umsjónar-
maður þessa þáttar hefur
orðið fyrir því að bifreið hans
var skemmd á bílastæði. Ekki
tókst að ná í sökudólginn og
þvi varð umsjónarmaðurinn
að greiða háan reikning. Án
efa hefur sá sem varð valdur
að því tjóni - og eflaust þeir
þrír sem skemmdu bílana um
helgina - verið að hugsa um
bónusinn. Eitt Iftið tjón getur
nefnilega orðið til þess að
ökumaðurinn missi bónus fái
þar með hærra iðgjald næst
þegar reikningur berst frá
viðkomandi tryggingafélagi.
# Sérkenni-
legur hugs-
unarháttur
Sem betur fer eru flestir öku-
menn þannig þenkjandi að
þeim dytti ekki í hug eitt
andartak að flýja ef þeir hafna
óvart á bíl. Umsjónarmaður S
& S á erfitt með að ímynda
sér virðulegan fjölskylduföð-
ur koma heim að kvöldi dags,
setjast niður með börnunum,
sussa á Nonna litia og vagga
henni Gunnu - rétt nýbúinn
að eyðileggja hurð á bíl - og
hafa flúið af vettvangi af því
að næsta ár var einmitt
„tjónlaust ár“. En svona
herramenn eru til. Sam-
kvæmt frétt Dags sem áður
var vitnað til var ekið á bíl hjá
Glerárkirkju. Atburðurinn
mun hafa átt sér stað á bilinu
kl. 15.00 til 16:30 á sunnudag-
inn. Ef að Kkum lætur var
þarna kirkjugestur á ferð.
Heldur þykir umsjónarmanni
að guðhræðslan hafi viðrast
af þeim trúrækna. Hann hefur
varla verið kominn út þegar
sunnanáttin blés samvisk-
unni norður undir Kaldbak.
# Nýjum
bílum fjölgar
Ekkert lát er á innflutningi
bíla. Á fyrstu níu mánuðum
árins hefur Bifreiðaeftirlitið
skráð 17.742 nýja bíla og stór
bifhjól. Allt árið 1986 skráði
eftirlitið 15.895 nýja bíla og
stór bifhjól. Var einhver að
taia um peningaleysi?