Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, fímmtudagur 26. nóvember 1987 226. tölublað Hefur þú kynnt þér fjármálaráðgjöf Kaupþings Norðurlands? éélKAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 - Akureyri Sími 96-24700 Kemur erlendur tannlæknir í Ólafsfjörð? „Menn hljóta að neyta allra bragða" - segir bæjarstjóri Ólafsfjörður hefur verið tann- læknislaus frá í haust. Þá hafði verið starfandi tannlæknir um eins árs skeið í bænum en þar á undan var tannlæknislaust í eitt ár. Ólafsfírðingar eru að vonum óánægðir með þetta ástand og hefur nú verið ákveðið að leita til þess fólks sem nú er að Ijúka námi og jafnvel verður leitað út fyrir landsteina til að fínna tann- lækni. „Jú, þetta er rétt. Þetta er möguleiki sem hefur verið rædd- ur og menn hljóta að neyta allra bragða til að fá tannlækni. Það er verulega slæmt þegar detta úr ár inn í milli eins og gerst hefur hér,“ sagði Valtýr Sigurbjarna- son, bæjarstjóri í Ólafsfirði er það var borið undir hann hvort leitað yrði erlendis eftir nýjum tannlækni í Ólafsfjörð. Valtýr sagði að Björn Rögn- valdsson sem síðast starfaði við tannlækningar í Ólafsfirði hafi gert gott átak í tannheilsu skóla- barna áður en hann fór en í vetur sé ekki útlit fyrir að fastur tann- læknir komi til starfa í Ólafsfirði. Valtýr sagði að á næstunni verði kannaður áhugi meðal nema í tannlæknadeild á að koma til starfa í Ólafsfirði en ef ekki fáist nein vilyrði sé ekki um annað að velja en leita erlendis eftir tann- lækni. JÓH - þar af um þriðjungi til frambúðar - tæki til framleiðslu á gaffalbitum seld til Hornafjarðar Akureyri: Heimavist á 250 Kostnaðaráætlun vegna fyrir- hugaðrar byggingar heimavist- ar við Menntaskólann á Akur- eyri liggur nú fyrir. Samkvæmt henni mun byggingin kosta um 250 milljónir króna. Áætlunin er unnin af Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. en frumteikningar af húsinu eru gerðar af þeim Bjarna Reykja- lín og Árna Árnasyni á Teikni- stofunni Form. Á frumteikningum, sem vel að merkja eru aðeins hugmyndir að stærð og lögun byggingarinnar en ekki endanleg hönnun, má sjá að nýja heimavistin tengist þeirri gömlu að norðanverðu og teygir sig síðan í suður, meðfram Þór- unnarstræti. Milli bygginganna verður nánast U-Iaga, opið og sólríkt svæði. Jóhann Sigurjónsson skóla- meistari MA sagðist ekki vera sáttur við þessa tölu, 250 milljón- ir. „Ég held að það sé hægt að gera þetta miklu ódýrara en arlína og tæki til pökkunar í dósir. Kaupandi tækjanna er Fiskimjölsverksmiðja Horna- fjarðar en gengið var frá samn- ingum um kaupin í gær. Fiskimjölsverksmiðjan er stór síldarsaltandi. Hermann Hans- son framkvæmdastjóri sagðist telja að vegna þess gæti raun- kostnaður á hráefninu verið minni en ella auk þess sem aukin söltun myndi nýta betur fasta- kostnað fyrirtækisins. ET Lífeyrissjóður Einingar: Mun færri sækja um lán en áður „Þaö er hagkvæmara fyrir líf- eyrissjóðina að kaupa skulda- ibréf í stórum skömmtum og þurfa ekki að standa í inn- heimtu hjá einstaklingum. Það er líka mun tryggari ávöxtun á fjármunum sjóðanna,“ sagði Jón Helgason hjá Lífeyrissjóði Sameiningar á Akureyri. Mik- ið hefur dregið úr umsóknum einstaklinga um lífeyrissjóðs- lán eftir að reglum uisi hús- næðislánakerfið var breytt í fyrra. Að sögn Jóns Helgasonar er fylgt sömu reglum í ár og giltu í fyrra; hámarkslán til sjóðfélaga er kr. 380 þúsund. Allar umsókn- ir sem hafa borist hafa verið afgreiddar í samræmi við þágild- andi reglur. Að meðaltali berast 4-5 umsóknir á mánuði en áhugi fólks á þessum lánum hefur stór- minnkað þegar í boði eru lán frá Húsnæðisstofnun ríkisins með niðurgreiddum vöxtum. „Við uppfyllum samninga okk- ar við Húsnæðisstofnun ríkisins og höfum samið um skuldabréfa- sölu til þeirra til ársins 1990. Þó höfum við ekki lokað fyrir lán til einstaklinga eins og sumir aðrir lífeyrissjóðir og höfum afgreitt allar umsóknir eins og áður. En það er tímaspursmál hversu lengi við munum halda áfram á þeirri braut. Sú breyting hefur orðið á þessu ári að menn hafa í ríkari mæli greitt upp skuldir sínar við okkur eða greitt lánin hraðar niður en áður. Þetta bendir til að fjárhag- ur einhverra sé betri en áður. í annan stað hefur mönnum blöskrað hvernig lífeyrissjóðslán- in hafa hlaðið utan á sig, þau hafa hækkað mun meira en launin í landinu," sagði Jón Helgason. EHB Skyldustörfin. Mynd TLV Sigló hf. á Siglufírði hefur hætt framleiðslu gaffalbita. Fram- leiðslulína fyrir gaffalbita hef- ur verið seld til Hafnar í Hornafirði og öllu starfsfólki fyrirtækisins hefur verið sagt upp. Meirihluti starfsfólksins verðúr þó ráðinn aftur til vinnu við rækjuvinnslu fyrirtækisins sem rekin verður áfram. Ákvörðun þessi var tilkynnt starfsfólki fyrirtækisins á fundi í fyrradag en- uppsagnirnar taka gildi 1. desember. Þá verður íllu starfsfólki fyrirtækisins, um 70 að tölu sagt upp, þar af um 20-25 manns til frambúðar. Afgangur- inn verður ráðinn aftur sem fyrr segir. „Við teljum okkur ekki geta haldið þessari framleiðslu áfram þar sem enn hefur ekki tekist að ná hagnaði í framleiðslunni," sagði Guðmundur Skarphéðins- son framkvæmdastjóri um ástæð- urnar fyrir þessari skipulags- breytingu á fyrirtækinu. Gaffal- bitaframleiðslan hjá Sigló hófst árið 1984 þegar núverandi eig- endur keyptu fyrirtækið og hefur alla tíð verið rekin með tapi. Framleiðslan hefur verið seld fyr- ir dollara til Sovétríkjanna og lækkun á gengi dollars hefur enn aukið vandann. Tækin sem um er að ræða eru síldarflökunarvél, niðurlagning- milljónir? Frumdrög að nýrri heimavist við MA. Hún tengist þeirri gömlu og teygir sig í suður meðfram Þórunnarstræti. þarna er gert ráð fyrir. Forsend- urnar eru mjög litlar að mínu mati. Það var ekki til fjármagn til að gera úttekt á vcrkinu og því var reynt að finna einhverja sam- líkingu og sú samlíking var helst gerð við hótel og það gerir töluna hærri en ella. Við ætlum ekki að byggja neitt lúxushótel þarna,“ sagði Jóhann. Aðspurður kvaðst hann ekkert geta sagt um það hvenær fram- kvæmdir myndu hefjast fyrr en Alþingi væri búið að afgreiða fjárlagafrumvarpið. En um leið og fjárveiting fengist yrði ráðist af fullum krafti í hönnun bygg- ingarinnar, en þau frumdrög sem nú liggja fyrir mættu alls ekki skoðast sem teikningar sem byggt yrði eftir. Samkvæmt frumdrögum eru herbergin á heimavistinni 2ja manna, tæplega 26 fermetrar með baði. Nýja heimavistin verður, líkt og núverandi hús- næði, rekin sem Edduhótel á sumrin. SS Sigló hf: Öllu starfsfólki sagt upp

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.