Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 5
W! hó«WérWó7-^ÁöUr - S „Þaft eru ökumeimímír sjálfir sem valda slysunuma - spjallað við Gunnar Jóhannsson lögreglumann á Akureyri Gunnar Jóhannsson lögreglu- maður á Akureyri er einn þeirra manna sem áhuga hafa á bættri umferðarmenningu í bænum. Gunnar hefur fylgst með þeirri þróun sem orðið hefur á tíðni slysa á Akureyri og hefur sínar skoðanir á hvað veldur fjölgun slysa í bænum. En hvað er að í umferðinni? „Það sem að er í umferðinni á Akureyri eins og annars staðar á landinu eru þessir stanslausu árekstrar og umferðarlagabrot sem hér eru alla daga. Auðvitað stingur árekstrafjöldinn á Akur- eyri í augun en hann er náttúr- lega alltof mikill miðað við ekki fleiri bíla og meira gatnakerfi. Meirihlutinn af þessum slysum þyrfti ekki að verða ef menn færu eftir reglunum og gáðu að hvað þeir eru að gera.“ - Hverju heldurðu að sé um að kenna að þessir árekstrar og slys verða? „Þetta er mest kæruleysi og virðingarleysi fyrir lögum og reglum. íslendingar eru þekktir fyrir agaleysi og því verður ekki breytt á skömmum tíma. Það þarf að byggja upp nýjan hugs- anagang hjá fólki og til þess dugir ekkert minna en stanslaus áróð- ur. Allur áróður er góður ef hann er markviss og kemur fram í réttu formi.“ - Nú er stundum sagt að kennslu ökumanna sé ábótavant. Þarf að breyta ökukennslunni? „Kannski þarf ekki að breyta henni heldur gera hana meiri og láta nemendur fá meiri reynslu og æfingu í akstri við mismun- andi aðstæður. Krakkar sem fá bílpróf 17 ára hafa oft ekki þessa reynslu og það verður þeim að falli. Sumir þeirra hafa heldur ekki nægan þroska til að haga sér rétt í umferðinni." Gunnar Jóhannsson. - En er viðhorf og hegðan ungra ökumanna í dag nokkuð verri en t.d. fyrir 10 árum? „Nei, aðstæður hafa breyst frá því sem var og mun fleiri ungir ökumenn fara út í umferðina í dag en fyrir 10 árum. Nú eru til fleiri bílar og öllum þykir sjálf- sagt að eiga bíl og af því leiðir að fleiri ungir ökumenn eru út í umferðinni. Bílarnir eru líka kraftmeiri og hraðskreiðari en áður en hvort hugsanagangurinn sjálfur hafi breyst held ég ekki.“ - Nú segir fólk oft að gatna- kerfið á Akureyri bjóði upp á umferðarslys. Er þetta rétt? „Það eru alltaf einhverjir sem finna að gatnakerfinu hvernig sem það er. Auðvitað gætu ein- hver atriði verið betri en ég held að ekki sé hægt að kenna gatna- kerfinu um árekstra og siys á götunum. Það eru hvorki göturn- ar né þílarnir sem valda slysunum heldur ökumennirnir sjálfir.“ - Eru óhöpp orðin áberandi mörg á Akureyri? „Já, það er áberandi fjölgun óhappa í umferðinni á þessu ári frá því sem var í fyrra. Við tók- um nýlega saman hvað var búið að tilkynna mörg óhöpp til lög- reglunnar og þá kom í ljós að þau eru að nálgast 800 það sem af er árinu. Þetta eru allt of mörg óhöpp og allt of mikið eigna- tjón,“ segir Gunnar. - Þegar talað er um að umferðarmenningu sé ábótavant segir fólk oft að löggæsla í umferðinni sé ekki næg. Kemur til greina að herða löggæslu á götunum? „Þetta er kostur sem verður að huga vel að. Núna er nýbúið að herða gæsluna í Reykjavík og þar hrúgast upp kærur á ökumenn fyrir alls konar umferðarlaga- brot. Gæsla skilar alltaf árangri en hún kostar líka bæði mann- skap og tæki og slíkt kallar á pen- inga. Þar stendur hnífurinn í kúnni.“ -Umferðarlagabrot má flokka í nokkra flokka t.d. hraðakstur, akstur gegn rauðu ljósi, aðal- brautarréttur ekki virtur og svo framvegis. Er einhver einn flokk- ur brota sem er áberandi hér á Akureyri? „Já, það er áberandi að aðal- brautarréttur er ekki virtur. Það eru kæruleysi, sofandaháttur og klaufaskapur sem valda slysunum t.d. er það oft svar manna þegar þeir keyra í veg fyrir bíla á aðal- braut að þeir hafi ekki tekið eftir bílnum. Þetta er auðvitað ekkert annað en sofandaháttur og aðgæsluleysi en svona verða fjöldamargir árekstrar,“ segir Gunnar Jóhannsson. JOH Vélsleða- og útilífsmenn Norðurlandi athugið! L.I.V. Þeir sem vilja gerast félagar í L.Í.V. Landsam- bandi íslenskra vélsleðamanna hafið samband við Stefán Þengilsson í síma 24913 eða Þorstein Pétursson í síma 21509 og látið skrá ykkur í félagið. Biocomfort heilsunnar vegna Akureyringar (Eyfirðingar): Kynnum hin geysivinsælu BioComfort iðubaðtæki, sem breyta venjulegu baðkeri í afkastamikinn nuddpott, í versluninni Hita sf. Draupnisgötu 2, Akureyri, laugardaginn 28. nóvember. Komið og kynnist frábærri heilsulind. M.G. KRISTJÁNSSON SF. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Innigosbrunnar Ert þú áskrifandi? Dagur Akureyri, sími 96-24222 Dagur llúsavík, sími 96-41585 Dagur Reykjavík, sími 91-17450 Dagur Sauðárkróki, sími 95-5960 Dagur Blönduósi, sími 95-4070 Skilid getraunaseölinum fyrir nóvember sem fyrst. Dregið verður um hljómtækjasamstæðu að verðmæti 98.000 kr. 15. desember. Einungis skuldlausir áskrifendur geta tekið þátt í getrauninni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.