Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 15
26. rióvember 1987 - DAGUR - 15 Fá Akureyringar Kevin Keegan í heimsókn í sumar? Það yrði svo sannarlega viðburður ef af verður. Kevin Keegan til Akureyrar? íþróttir Valur-KA í kvöld í bikarkeppni HSÍ: „Tími kominn að hrista af sér aumingjaskapinn“ - segir Þorleifur Ananíasson liðsstjóri KA Töluverðar líkur eru á því að hinn heimsfrægi enski knatt- spyrnumaður Kevin Keegan komi til Akureyrar næsta sum- ar á vegum knattspyrnudeildar KA. Deildin vinnur að því um þessar mundir að fá hann hing- að til að leiðbeina á knatt- spyrnunámskeiði fyrir yngstu knattspyrnumenn bæjarins. Um þetta hefur verið rætt við Keegan og hafa viðbrögð hans verið mjög jákvæð. Keegan er mikill golfáhuga- maður og því yrði ferð hans hugs- uð sem bæði knattspyrnu- og golfferð. En hann hefur sýnt því áhuga að leika golf að Jaðri og þá hugsanlega í Aretic Open alþjóðamótinu sem fram fer í sumar. Kevin Keegan er einn snjallasti knattspyrnumaður Englendinga fyrr og síðar og hann var m.a. Stjórn knattspyrnudeildar KA var öll endurkjörin á aðal- fundi deildarinnar sem haldinn var í KA-heimilinu í fyrra- kvöld. Stefán Gunnlaugsson mun því sitja áfram sem for- maður en hann hefur unnið geysilega mikið og fórnfúst starf fyrir félagið, eins og reyndar aðrir stjórnarmenn. Aðrir í stjórninni eru Gestui Jónsson, Gunnar Kárason, Ólaf- ur Ólafsson, Magnús Magnús- son, Sveinn Brynjólfsson og Örlygur ívarsson. Stjórnin hefur tvívegis valinn „Knattspyrnu- maður Evrópu", er hann lék með Hamburger Sportverein í Þýska- landi á árunum 1977-80. Hann var keyptur til Liverpool árið 1971 fyrir 35.000 pund og með liðinu varð hann tvívegis Eng- landsmeistari, FA-bikarmeistari og Evrópumeistari. Hann hélt síðan til Þýskalands og lék með HSV. Eftir að hann kom heim til Englands á ný lék hann fyrst með Southampton og svo Newcastle í 2. deild. Keegan lék í 2 ár með Newcastle og var öðrum fremur maðurinn á bak við það að liðið vann sig upp í 1. deild árið 1984. Hann lét það verða endinn á glæstum ferli og lagði skóna á hilluna það sama ár. Keegan lék 63 landsleiki fyrir England og skoraði í þeim 21 mark. ekki endanlega skipt með sér verkum en þeir Ólafur og Gestur sjá að öllum líkindum um fjár- málin, Magnús þá ritari og Sveinn varaformaður. „Það byggist allt á því að árangur meistaraflokks sé góður og ég vildi ekki standa í því að reka svona deild ef svo væri ekki,“ sagði Stefán Gunnlaugs- son í samtali við blaðið, „Rekst- urinn gekk þokkalega en við erum þó aðeins undir núllinu," sagði Stefán einnig. Valur og KA leika að Hlíðar- enda í kvöld í fyrstu umferð bikarkeppninnar í handbolta. Á sama tíma leika UMFN og Fram í Njarðvík og Grótta og KR b á Seltjarnarnesi. KA- menn hafa oftast stoppað stutt í bikarkeppninni og Ijóst er að róður liðsins verður þungur í kvöld. Valsmenn hafa leikið mjög vel í vetur og unnið alla leiki sína í nýja íþróttahúsinu að Hlíðarenda. KA sótti Val heim í 1. deild- inni í 3. umferð og tapaði með 10 marka mun 10:20. Það var ein- mitt í þeim leik sem Jakob Jóns- Hið árlega Laugamót í innan- hússknattspyrnu fór fram að Laugum í Reykjadal um síð- ustu helgi. Alls mættu 22 lið til leiks frá 18 félögum og var leikið í fimm riðlum. Fimm lið voru í tveimur riðlum og fjögur í þremur. Lið Menntaskólans á Akureyri skaut öðrum liðum ref fyrir rass og sigraði á mót- inu. A lið Þórs hafnaði í öðru sæti og Einherji frá Vopnafirði í því þriðja. Tvö lið komust áfram úr hverj- um riðli í þrjá milliriðla. Efstu liðin úr milliriðlunum komust í úrslitakeppnina þar sem allir léku við alla. í A-riðli léku Þór A, UMFP, HSÞ-B, Magni A og Árroðinn og komust Þór A og Magni A áfram. í B-riðli léku Æskan, Þór B, HSÞ-A og Magni B og komust HSÞ-A og Þór B áfram. í C-riðli léku Reynir B, Tinda- stóll, Huginn, Kópasker og Hvöt og komust Huginn og Hvöt áfram. í D-riðli léku Leiftur, Reynir A, Neisti og Einherji og komust Einherji og Reynir A áfram. í E-riðli léku Laugar, UMFS, ÍMA B og Efling og komust ÍMA B og UMFS áfram. Milliriðlar: í fyrsta milliriðli léku Þór B, Einherji og Magni og vann Ein- herji báða sína leiki og komst því í úrslit. í öðrum milliriðli léku HSÞ A, Huginn og UMFS og þar sigraði Huginn í báðum sínum leikjum og komst í úrslit. í þriðja milliriðli léku síðan Þór A, Reyn- ir A, Hvöt og ÍMA B og þar sem þriðji milliriðlinn var með fjórum liðum, komust tvö lið áfram úr honum. Það voru Þór A og ÍMA B sem það gerðu og tryggðu sér rétt til þátttöku í sjálfri úrslita- keppninni. Úrslitakcppnin: Úrslitakeppnin var hnífjöfn og æsispennandi en það fór svo að lokum að ÍMA B sigraði á marka- hlutfalli. Úrslit leikjanna urðu þessi: Huginn-Þór A 6:7 Einherji-ÍMA B 5:5 Huginn-Einherji 4:4 ÍMA B-Huginn 9:2 Einherji-Þór A 7:7 ÍMA B-Þór A 5:5 Lokastaðan í úrslitakeppninni varð þessi: son KA-maður handarbrotnaði og hefur ekkert getað leikið síðan. Dagur hafði samband við Þorleif Ananíasson liðsstjóra KA og spurði hann um möguleika liðsins í kvöld. „Við færum náttúrlega aldrei að leggja upp í kostnaðarsama ferð til Reykjavíkur bara til þess að tapa. Eg tel líka að það sé kominn tími til þess að hrista af sér þennan aumingjaskap og fara að gera eitthvað af viti. Við mun- um því gera allt sem við getum til þess að vinna leikinn í kvöld.“ - Nú hefur ykkur ekki gengið vel í bikarnum síðustu ár? ÍMA B 3 1-2-0 19:12 4 Þór A 3 1-2-0 19:18 4 Einherji 3 0-3-0 16:16 3 Huginn * 3 0-1-2 12:20 1 „Nei það er alveg rétt og ég þakka bara fyrir að þurfa ekki að fara til Vestmannaeyja að þessu sinni.“ - Ertu ósáttur með árangur liðsins í deildinni það sem af er? „Já ég er það enda hefur hann ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Ég er sérstaklega óánægður með gengi liðsins á heimavelli. Áhorfendur hafa fyllt Höllina í hverjum leik en mér finnst við hafa brugðist þeim með slakri frammistöðu. Ég hafði trú á því og þeir eru fleiri, að þetta lið gæti gert mun meira en það hefur síð- an sýnt í vetur. Það munar mikið um Jakob Jónsson og ég er viss um að það hefur kostað okkur fjögur stig og jafnvel sex, að hafa misst hann vegna meiðsla. Þessir leikir sem við höfum verið að gera jafntefli í eða tapa með einu marki hefðu farið öðruvísi ef hann hefði verið með. Því í þeim leikjum vantaði aðeins herslumuninn,“ sagði Þor- leifur Ananíason. Frá leik Einherja og Leifturs í Laugamótinu. Einherjamenn reyndust sterk- ari og sigruðu 9:4. Mynd: -þá Golfmlun Dayids Bmwell Tilboðsverð á TITLEIST - WILSON STAFF - SWILKEN og FAZER GOLFSETTUM PUTTERUM - GOLFKERRUM - GOLFPOKUM GOLFBOLTUM „DRIVERAR“ - járn- og graphitesköft Golfskór - Buxur - Peysur - Skyrtur ALLT FYRIR GOLFIÐ! TILVALDAR JÓLAGJAFIR! Verslunin í Golfskálanum að Jaðri opin mánudaga til föstdaga frá kl. 16-20. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-14. GOLFVKRSUN DAVIDS RARNWHI.I. (iOI.I SKAI.Wl M Ml iMIIII KK/ÞLA Aðalfundur knattspyrnudeildar KA: Öll stjómin endurkjörin

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.