Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 2

Dagur - 26.11.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 26. nóvémbér 1987 Hvammstangi: Viðgerð lokið á Glað Hjá útgerðarstjóra Meleyrar hf. fengum við þær fréttir, að viðgerð á vélbátnum Glað væri lokið og er ráðgert að hann fari á línuveiðar. Gert hefur verið við spil bátsins og heldur hann til veiða í kvöld. Vel fiskast á innfjaröarækjunni en bátarnir eru svo gott sem búnir með kvótann. „Verst að fá ekki meiri rækju, eina lausnin er að það verði aukið við kvótann,“ sagði Svanur Jóhannsson útgerðarstjóri. Aðspurður um það hvar Glað- ur kæmi til með að leggja línuna, þá svaraði Svanur því til að hann hefði frétt af bát af Ströndunum sem hefði verið að fiska ágætlega í „Birgisvíkurpollinum“, tiltölu- lega innarlega í flóanum. „En annars róa bátarnir mikið á Hornbankann, á Tunguna og svo náttúrlega Reykjafjarðarálinn. Glaður kemur til með að leggja upp hér á Hvammstanga. Hvern- ig farið verður með aflann er nú ekki alveg ákveðið, þ.e.a.s. hvort við söltum hann eða sendum frá okkur, það er ekki alveg ljóst. Pó geri ég fastlega ráð fyrir því að við vinnum aflann eftir því sem við höfum mannskap til,“ sagði Svanur. í samtalinu við Svan kemur fram að líklega verða innfjarða- rækjubátarnir búnir með kvótann eftir svona tíu daga og gefur auga leið að það mun koma illa niður á atvinnulífi staðarins. „Pað er vit- anlega mjög bagalegt fyrir okkur og þá um leið fyrir fólkið sem við höfum í vinnu ef við fáum ekki hráefni. Þegar bátarnir eru búnir með kvótann þá fer verulega að harðna á dalnum hjá okkur. Ein- hverjar þreifingar eru byrjaðar í sambandi við það að fá aukinn kvóta, en hvað út úr því kemur veit enginn, en þangað til verður maður að vera bjartsýnn,“ sagði Svanur að lokum. pbv Utgjöld sveitar- félaga aukast - en tekjur Jöfnunarsjóðs vaxa nokkuð á móti Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu um álagningu útsvars og verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga en undanfarið hefur mikil umræða um þessi efni farið fram. Meginefni tilkynningarinnar er á þá leið að á næsta ári sé ætlunin að stíga fyrsta skrefið í átt að breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þessi breyting mun hafa í för með sér 200-250 millj- óna króna útgjaldaaukningu sveitarfélaga á árinu 1988. Til að vega á móti þessu er gert ráð fyrir tekjuaukningu Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga að upphæð kr. 400 milljónir frá núgildandi fjár- lögum. Skuldir ríkisins við sveitar- félögin vegna framkvæmda sem þegar hefur verið unnið að nema um 450 milljónum króna. Fjár- málaráðherra hefur lagt til að þessi skuld verði að fullu greidd upp á næstu þremur árum með 150 milljóna króna fjárveitingu hvert ár næstu þrjú ár. í tilkynn- ingunni segir að ætla megi að með þessum ráðstöfunum sé sveitarfélögunum bættur sá kostnaðarauki sem felst í breyttri verkaskiptingu auk þess sem gengið sé frá óuppgerðum skuld- um vegna sameiginlegra fram- kvæmda fyrri ára. Þá er rætt um staðgreiðslukerfi skatta og tekið sérstaklega fram að breytt skattakerfi megi ekki verða til að auka skattaálögur eða stuðla að skattahækkunum. Umræða hafi átt sér stað um útsvarshlutfallið og hversu hátt það megi vera í staðgreiðslukerf- inu svo ekki sé gengið gegn ofangreindu markmiði. Ljóst sé að álagt útsvar á árinu 1987 sé um 7.235 milljónir kr. í staðgreiðslu- kerfi hefði 6,25% útsvar skilað svipuðum tekjum eða 7.290 millj- ónum kr. á þessu ári. 7,5% útsvar hefði skilað 8.748 milljónum kr. Varðandi árið 1988 kemur fram að 6,25% útsvar hefði skil- að sveitarfélögunum 8.529 millj- ónum króna í álagningu. Þetta þýðir sömu eða svipaðar raun- tekjur og fyrir árið 1986. Ef hámarksálagningu 7,5% væri beitt þýddi það um 1700 milljónir kr. umfram lægra dæmið. Þetta leiddi til 6,82% skattbyrði útsvars í staðgreiðslu samanborið við 5,7% og 5,87% á þessu og síðasta ári. Hér er um að ræða skattbyrði upp á 25-30 þúsund krónur fyrir fjögurra manna fjöl- skyldu. EHB Hann er væntanlega ekki að brýna kutan á jólasteikina þessi starfsmaður hjá ÚA, en þó er hann glaðhlakkalcgur á SVÍpínn. Mynd: TLV Hlíðarfjall: „Ekki eins miklar úti- leguferðir og áður“ - segir Sigfús Jónsson um skíðaíþróttina Akureyri hefur oft verið köll- uð vetrarparadís, enda er mjög skemmtilegt skíðasvæði í Hlíð- arfjalli fyrir ofan bæinn. Nú í lok nóvember, er að vísu ekki mjög vetrarlegt um að litast, auð jörð og sunnanblær. Skautafólk getur þó farið að hugsa sér gott til glóðarinnar því verið er að útbúa vélfryst skautasvell sem hægt verður að nota í a.m.k. 8 mánuði á ári. Skíðamenn eru hins vegar háðir snjónum. Eflaust mun gjörbreytt aðstaða Skautafélags Akureyrar efla Akureyri enn frekar sem vetrar- Eggjabændur vilja undanþágu frá samkeppnislögum: Innbyrðis samkeppni leiðir til gjaldþrots margra bænda Eggjabændur ákváðu sl. mánudag að hverfa frá samráði um verð fyrir kfló af eggjum. Jafnframt sóttu þeir um undanþágu frá lögum um sam- keppni en nú er rúm vika síðan þeir komu sér saman um að hækka verð á eggjum í 160- 180 krónur. En hvers vegna taka eggjabændur þennan kost? „Við teljum að sú samkeppni sem hefur verið innbyrðis á milli framleiðenda hafi verið svo hörð að slíkt leiði ekki til annars en gjaldþrots hjá mörgum bændum og þar af leiðandi verði ekki eftir nema tveir til þrír aðilar sem allir vita hvernig fara með verðið þeg- ar í slíka aðstöðu er komið,“ sagði Jón Gíslason, fyrrverandi formaður Sambands eggjafram- leiðenda í samtali við Dag. Ef það verð sem eggjabændur hafa sett og nú er í gildi verður brotið á bak aftur telja þeir ekki aðra leið færa en að óska eftir verðlagningu á eggjum. „Verðið út úr búð í dag er gegnumsneitt 199 kr. en það er nánast sama verð og í ágúst 1985. Það er kannski eðlilegasta leiðin að verðið verði ákveðið í gegnum sex-mannanefndarkerfið en þá mundu neytendur að sjálfsögðu krefjast þess að sett verði há- marksálagning á egg. Mér kæmi ekki á óvart þótt eggjaverð fari þá nálægt 300 krónum á kíló,“ sagði Jón Gíslason. Kaupmenn hafa ákvörðunar- vald varðandi verðlagningu á eggjum en viðmiðunarverð frá eggjabændum er 162 krónur lág- marks og 180 hámarksverð. Innan þessa ramma er mismunandi verð í gangi frá framleiðendum en ætl- ast er til að stærstu markaðirnir fái eggin á lágmarksverði vegna stærðarhagkvæmni. JOH íþróttamiðstöð. í Hlíðarfjalli er hins vegar þörf á uppbyggingu og hafa þeir Sigfús Jónsson bæjar- stjóri og Þoríeifur Þór Jónsson, starfsmaður atvinnumálanefnd- ar, rennt þangað hýru auga með vaxandi ferðamannaiðnað í huga. Aðspurður sagði Sigfús að byrjað væri að vinna að framtíð- aráætlunum varðandi Hlíðarfjall án þess þó að hægt væri að greina frá áþreifanlegum niðurstöðum. „Auðvitað er þetta bara einn þáttur í því að efla Akureyri sem ferðamannabæ og gera lífið fjöl- breyttara í bænum," sagði Sigfús. Hann sagðist telja grundvöll fyrir rekstur skíðahótels brostinn og að gisting myndi leggjast þar af í framtíðinni, enda væri stutt í hótelin í bænum. Hins vegar þyrfti skíðafólk alltaf að hafa afdrep og starfsfólkið í Hlíðar- fjalli þyrfti sína aðstöðu þannig að það væri spurning hvort ekki ætti að rífa Skíðastaði og koma upp einfaldari þjónustumiðstöð. „Þetta eru ekki eins miklar úti- leguferðir og áður. Fólk vill frek- ar gista í bænum, fara á skíði í einhvern tíma og síðan á hótelið sitt aftur, fá sér eitthvað gott að borða, fara í leikhús o.s.frv. Nú eru allir á bílum og auk þess eru reglulegar rútuferðir í Fjallið," sagði Sigfús. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.