Dagur - 26.11.1987, Side 3
Félagsmálastofnun Akureyrar:
Tilsjónarmenn ráðnir
í sérstök verkefni
„Þetta er í beinu framhaldi af
barnaverndarlögunum en þar
er getið um tilsjónarmenn sem
eitt af þeim úrræðum sem eiga
að vera fyrir hendi,“ sagði
Guðrún Frímannsdóttir hjá
Félagsmálastofnun Akureyrar,
en stofnunin hefur verið að
auglýsa eftir fólki til að sinna
tilsjónarstörfum með börnum
og unglingum.
Guðrún sagði að stofnunin
hefði leitað uppi fólk í hverju
einstöku tilfelli sem þurft hefði
að sinna, en nú væri stefnan sú að
reyna að koma upp ákveðnum
kjarna fólks sem hægt væri að
leita til með verkefni. Slíkt hefði
m.a. verið gert í Reykjavík og
gefið mjög góða raun.
„Þegar við erum búin að velja
úr umsækjendum munum við
bjóða því fólki upp á námskeið
þar sem starfið verður kynnt
nánar. Síðan gerum við samning
við hvern og einn um vinnutíma,
Nýtt fiskverð ákveðið
Yfírnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið nýtt
fískverð. Verðið gildir frá 16.
nóvember til 31. janúar 1988.
Verðið var samþykkt með
atkvæðum fulltrúa sjómanna,
útgerðarmanna og annars full-
trúa vinnslunnar. Það er nokk-
uð svipað því verði sem hefur
verið að undanförnu á frjálsum
markaði. Sem dæmi má nefna
að verð fyrir 2ja kílóa þorsk var
ákveðið 31,42 krónur fyrir
kflóið.
Bjarni Lúðvíksson var á móti
þessu samkomulagi og í greinar-
gerð frá honum segir: „Þessi
verðlagning skilur frystinguna
eftir í tapi. Hún tekur þannig
ekki tillit til þess að vinnslan hafi
viðunandi afkomu við núverandi
framleiðslukostnað og markaðs-
verð.“ Árni Benediktsson, hinn
fulltrúi fiskkaupenda, samþykkti
verðið á þeim forsendum að
ríkisstjórnin falli frá því að gera
uppsafnaðan söluskatt fiskvinnsl-
unnar upptækan á þessu ári og að
ekki verði lagður á launaskattur á
næsta ári.
í yfirnefndinni eiga sæti auk
Bjarna og Árna, þeir Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, sem var oddamaður
nefndarinnar, Guðjón A. Krist-
jánsson og Sveinn H. Hjartarson.
AP
laun og markmið, þannig að hér
verði um markvisst starf að ræða
en ekki fálmkennda íhlaupa-
vinnu,“ sagði Guðrún.
Hún sagði að verkefni tilsjón-
armanna væru mjög breytileg og
beindust að börnum, unglingum,
foreldrum eða fjölskyldum í
heild. Hér væri um að ræða starf
sem þyrfti að inna af hendi
seinnipart dags, á kvöldin eða um
helgar, en vinnustundafjöldinn
væri ákveðinn í upphafi tímabils-
ins í samráði við hvern tilsjón-
armann.
Aðspurð sagðist Guðrún bæði
vera með karla og konur í huga,
en umsækjendur þyrftu að vera
a.m.k. 20 ára. SS
Kennarasamband Islands:
Lagasetning getur
fækkað tónlistarskólum
Fundur í fulltrúaráði Kennara-
sambands íslands skorar á
fjármálaráðherra og Alþingi
að hafna þeirri hugmynd að
færa rekstur tónlistarskólanna
alveg yfír á sveitarfélögin.
„Fulltrúaráðið óttast að í kjöl-
far slíkrar lagasetningar fækki
tónlistarskólum verulega og
starfsemi þeirra sem eftir standa
verði skert. Til að mæta kostnaði
við skólahald yrði óhjákvæmilegt
að hækka námsgjöld en það gerði
færri nemendum kleift að stunda
tónlistarnám og hefði einnig í för
með sér atvinnuleysi tónlistar-
kennara.
Menntamálaráðuneytið hefur
nú faglega yfirstjórn skólanna
undir höndum, setur námskröfur
fyrir hverja kennslugrein og gef-
ur út samræmdar námsskrár.
Hætti ríkið fjárhagslegum stuðn-
ingi við skólana slitna þeir úr
tengslum við hið almenna
menntakerfi. Tónlistarskólar
víða um land starfa í nánum
tengslum við grunnskóla og fram-
haldsskóla og hafa t.d. tekið að
sér kennslu í tónlistargreinum
nemenda á tónlistarbraut og
meta árangur annarra nemenda
sem kjósa sér tónlist sem val-
grein.
Á íslandi hefur tónlistarlíf vax-
ið og dafnað fyrir tilvist tónlistar-
skólanna. Ef þessar breytingar
verða og lögin um fjárhagslegan
stuðning við tónlistarskóla felld
úr gildi yrði að fara 25 ár aftur í
tímann til að finna sambærilegt
ástand í tónlistaruppeldi þjóðar-
innar,“ segir í fréttatilkynningu
frá fulltrúaráði kennarasambands
íslands.
K. JONSSON & CO
Í tilefni af 40 ára afmæli
Niðursuðuverksmiðju K.Jónssonar & Co.
// verðum við með sérstaka afmæliskynningu
// í KEA-verslunum eingöngu.
K.JÓNSSON &CO
26. nóvember 1987 - DAGUR - 3
BÖKUNAR
VÖRUR
Ljóma smjörlíki, 500 g 43,-
Strásykur, 1 kg 16,-
Finax hveiti, 2 kg 41,-
Golden síróp, 500 kg . 65,-
í Golclen síróp, 1 kg 110,-
Hagvers kókosmjöl, 500 g i co
Dansukker flórsykur, 500 g .. 17,-
Dansukker dökkur púðursykur, 500 g 19,-
Rússnesk jarðarberjasulta, 454 g 31,-
Odense hrámarsipan, 200 g 139,-
Odense konfektmarsipan, 200 g o 1
Konsum suðusúkkulaði, 200 g 127,-
Mónu súkkulaðíspænir, 150 g .. 47,-
HAGKAUP
AKUREYRI