Dagur - 26.11.1987, Side 8
8 - DAGUR - 26. nóvember 1987
Aðaldalur:
Fjallskil
erfið og
kostn-
aðarsöm
Haga, Aðaldal 23. nóv.
Þrátt fyrir erfitt tíðarfar í októ-
ber hefur þetta haust verið
nokkuð gott, t.d. var lögð
vatnsveita á átta bæi í Hvömm-
um í nóvember, leiðslan er 4-5
km á lengd og kostar um 900
þúsund krónur.
í Hafralækjarskóla var tekin
upp kennsla í níunda bekk í
haust, alls eru 112 nemendur við
skólann í vetur.
Endurnýjaður var allur dælu-
og rafbúnaður við hitaveituna
sem sér Hafralækjarskóla og fé-
lagsheimilinu Ýdölum fyrir vatni,
og loks er komið þriggja fasa raf-
magn til nota fyrir veituna.
Nokkrar framkvæmdir voru
við Hraunsrétt í sumar, botn í
almenningi var sléttaður og
hraunmöl sett yfir. Petta var einn
liður í aðgerðum þeim gegn riðu-
veiki sem í gangi eru. 40% af
fjárstofni í sveitinni hefur nú ver-
ið slátrað vegna riðuveikinnar og
eru fjallskil að verða mjög erfið
og kostnaðarsöm fyrir þá sem
enn eiga fé.
Þrjú loðdýrahús hafa verið
byggð á þessu ári.
Karlakórinn Hreimur hefur
ekki starfað í vetur, munu félagar
vera að hvíla sig eftir Norður-
landaferð sl. sumar. Kirkjukór
Nessóknar er byrjaður vikulegar
æfingar undir stjórn Friðriks
Jónssonar organista og fyrirhug-
að er aðventukvöld í Neskirkju.
Kirkjukór Grenjaðarstaðarsókn-
ar hefur fengið Margréti Bóas-
dóttur söngkonu til að raddþjálfa
kórinn. Síðastliðið vor var byrjað
með kirkjuskóla fyrir börn í
Neskirkju og er það sr. Kristján
Valur Ingólfsson sem sér um
hann.
Briddsráð Geisla stendur fyrir
vikulegum æfingum og eftir ára-
mót er fyrirhuguð ýmiss konar
keppni og þátttaka í mótum.
Skemmtanalíf vetrarins hófst í
október með stjörnumessu að
Ýdölum, sem slysavarnádeild-
irnar á Húsavík stóðu fyrir. Var
það fjölsótt samkoma og marg-
fræg orðin en ég held að hún hafi
tekist vel miðað við þann mann-
fjölda sem þarna var saman
kominn.
Þann 28. nóv. verður haldið
hið árlega hjónaball að Ýdölum.
IMDJ/IM
Tilkynning
til eigenda
búfjármari(a
„Vegna útgáfu markaskráa árið
1988, skv. lögum nr. 6/1986 um
afréttamál, fjallskil o.fl. og reglu-
gerð nr. 224/1987, og tölvuskrán-
ingar á mörkum hjá Búnaðarfé-
laginu, beina markanefnd og
Búnaðarfélag íslands þeim til-
mælum til allra eigenda búfjár-
marka (annarra en frostmerk-
inga), að þeir tilkynni viðkom-
andi markaverði mörk sín til birt-
ingar í markaskrá sýslunnar, eigi
síðar en 10. janúar 1988,“ segir í
fréttatilkynningu frá Marka-
nefnd, Búnaðarfélags íslands.
Hverjir eru þeir? Hvaðan komu þeir?
Hvert fóru þeir? Flott hjól, mikill hraði, leðurföt o.fl.
Hvað meira veistu? Allt-síðan ákvað að reyna að
fræðast aðeins um „Sniglana“.
Hér á eftir sérðu afraksturinn
Sveinn Guðmundsson
Hann segist ekki vita hvenær
þessi hjóladella greip hann. Telur
hana meðfædda.
- Hvenær voru Sniglarnir
stofnaðir?
„Ja, fyrir rúmum fjórum árum
setti einn Snigill, sem er kailaður
„Súper-Lúlli“ auglýsingu í
blöðin, bara upp á sitt einsdæmi,
um stofnun samtaka bifhjóla-
fólks. í dag erum við rúmlega
þrjú hundruð og þar af ekki
nema rúmlega fjörutíu konur.
Konurnar eiga yfirleitt ekki sjálf-
ar hjól, heldur sitja aftan á.“
- Hefur ykkur þá orðið eitt-
hvað ágengt sem hagsmunasam-
tökum?
„Nei, raunverulega ekki, því
að við erum það fámennur
hópur. Samt sem áður erum við
ekkert að rugla. Þú sérð það að
þegar felldir voru niður tollar á
bílum, voru um leið felldir niður
tollar á öllum farartækjum nema
hjólum. Þú sérð svo bara með
hjálmana, sem eru öryggisatriði,
þeir kosta 15-20 þúsund krónur."
- Eruð þið eitthvað merktir?
„Já, við erum allir með merki
samtakanna á vinstri handleggn-
um (á jakkanum þ.e.a.s.). Við
norðlenskir Sniglar erum auk
þess einkenndir með rauðum
borða á ermi eða öxl. Við erum
þeir einu sem einkennum okkur
eitthvað sérstaklega. Sunnlend-
ingarnir eru auðvitað svo fáir að
við þekkjum þá alla!“
- Eruð þið ekkert á fjórhjól-
um?
„Það er bara svo hundleiðin-
legt á fjórhjóli. Það er kannski
allt í lagi að fara á þetta hálftíma
í einu og svo búið. Þá er nú betra
að fara bara á hestbak. Við
Kermit eigum nefnilega báðir
hesta.“
- Hefur þú þá einhvern tíma
til að vinna?
„Nei, það er nú gallinn við
þetta. Ég hef svo lítinn tíma. Sól-
arhringurinn þyrfti að vera helm-
ingi lengri ef hann ætti að duga
mér. Hjólin taka auðvitað alveg
óskaplega mikinn tíma, en mað-
ur fær það margborgað til baka.“
- Hvernig fer maður að því að
ganga í Sniglana?
„Til að ganga í Sniglana þarf
maður að vera orðinn sautján ára
og hafa bifhjólapróf. Síðan þarf
maður að vera með, fyrst í þrjá
mánuði til reynslu, og svo að lok-
um þarf maður meðmæli 13
Snigla. í rauninni er ekkert mál
að fá þessi þrettán meðmæli, þú
þarft náttúrlega að kynnast fólk-
inu.“
(Innskot frá Kermit): „Þetta er
ekkert mál, nema maðurinn sé
þeim mun meiri drullusokkur. Ef
þetta ákvæði hefði verið þegar ég
gekk í Sniglana, hefði ég aldrei
komist inn.“
- Eiga Sniglarnir sér formann?
„Nei, en innan Sniglanna er
starfandi stjórn, í henni eru
gjaldkeri, ritari, formaður og svo
meðstjórnendur. Stjórnin hefur
þann starfa að sjá um fjármál,
skipuleggjá ferðir sem farnar eru,
bæði innanlands og svo Norður-
landaferðirnar og hjólasýninga-
ferðirnar. Hún sér líka um að
gefa út fréttabréfið okkar,
Sniglafréttir, og svo hefur hún
skipulagt og undirbúið löggæslu,
sem við höfum tekið að okkur,
t.d. á tónleikum."
Birgir Örn Sveinsson
Hjá Sniglunum er hann kallaður
Kermit. Hann er giftur og hún er
ekki Snigill.
- Hvað gera Sniglarnir
saman?
„Við höldum skemmtanir og
landsmót, förum í ferðir um land
allt, svo förum við einu sinni á ári
til Norðurlandanna og svo af og
til á mótorhjólasýningar, núna
síðast í haust.“
- Hverjir eru í Sniglunum?
„Það er bara alls konar fólk,
verkamenn, menntafólk,
námsmenn, stjórnmálamenn og
landsfrægir skemmtikraftar, sem
sagt alls konar fólk á öllum aldri,
bæði karlar og konur úr öllum
stéttum og þrepum samfélags-
ins.“
- Skipta Sniglar oft um hjól?
„Nei, það mundi ég ekki segja,
annars er það mjög misjafnt.
Náttúrlega ef þú ert ánægður
með hjólið þitt, þá selur þú það
ekki. Uti eru til dæmi þess að
menn hafa gifst hjólinu sínu, ég
mundi ekki selja konuna mína.
Þar eru svo aftur dæmi þess að
menn eigi fleiri hjól en eitt. Það
eru nokkrir sem eiga tvö hjól og
ég þekki einn, sem er að fá sér
það þriðja. Svo eru sumir sem
eiga hreinlega ekkert hjól.
Algengast er svo auðvitað að
menn eigi eitt ágætt hjól.“
- Eru allir Sniglar hrifnir af
Sniglabandinu sem hljómsveit?
„Já, það held ég örugglega.
Þetta er auðvitað besta sveit
landsins fyrir utan Stuðmenn.“
- Leðurfötin sem þið eruð í,
eru þau bara stælar?
„Nei alls ekki. Þau eru fyrst og
fremst alveg geysileg vörn, fyrir
utan hvað þau eru hlý. Ef þú ert
í gallabuxum og dettur, máttu
eiga voii á því að þær tætist í
sundur og náttúrlega lappirnar og
kjötið með, en ef þú ert í leður-
fötum þá renna þau eftir malbik-
inu þannig að þú kæmir nærri því
óskaddaður út úr því. Svona al-
galli, jakki, buxur, hanskar, skór
og hjálmur, kostar sennilega í
kringum fimmtíu og fimm - sex-
tíu þúsund krónur.“
- Hvað endast Sniglar yfirleitt
lengi?
„Flestir Sniglar eru á milli tví-
tugs og þrítugs, en elsti Snigillinn
er um fimmtugt. Ég hugsa að
menn endist yfirleitt eins lengi og
áhuginn leyfir. Auðvitað er kom-
in voðalega lítil reynsla á það
hvað menn endast, samtökin eru
það ung enn. Ég vona bara að ég
endist þar til í kistuna er komið.“
Steindór Valur Reykdal
Hjá Sniglunum heitir hann Júlli
og er númer 225. Hvaðan Júlla-
nafnið er komið er svo spurning.
- Hvað finnst þér um Snigl-
ana?
„Hvað á manni að finnast?
Mér finnst þetta auðvitað mjög
gaman. Ég trúi því líka að Snigl-
ar eigi eftir að lifa á meðan til eru
mótorhjól. Sem hagsmunasam-
tök hafa þeir ekki orðið eins
sterkir og til var ætlast. Þetta er
svo lítill hópur að það er sáralítið
hlustað á þá á æðri stöðum.“
- Er það eins gaman og af er
látið, að þeysa um á mótorhjóli?
„Já. Það er það. Þetta er alveg
sérstök tilfinning. Eiginlega
ennþá skemmtilegri en orð fá
lýst. Ég veit ekki hvað þetta er,
fyrir mér er þetta, held ég, veik-
leikinn fyrir frelsinu."
- Hvernig eru ástamálin inn-
an Sniglanna?
„Þau eru mjög skrautleg, ég
stunda þau ekki.“ (Svarinu fylgdi
mikill hlátur.)
(Innskot frá Svenna): „Ef
stelpa kemur inn í hópinn
(þ.e.a.s. Sniglana) og er með ein-
hverjum gæjanum og svo hætta
þau saman, þá er það algengt að
hún fari ekkert út úr hópnum.
Hún byrjar bara með næsta og er
þar með alltaf í þessum hópi.“
- Er hjólið ekki mikill keppi-
nautur í hjónabandinu?
Og hér eru þeir allir þrír á hjólunum. Lan