Dagur - 26.11.1987, Side 11
26. nóvember 1987 - DAöUR - 11
Skáksveit Búnaðar-
bankans sigraði
Um síðustu helgi kom skák-
sveit Búnaðarbanka íslands til
Akureyrar og tefldi við Skák-
félag Akureyrar. Aður en
leikurinn hófst á laugardag,
færði Skákfélag Búnaðarbank-
ans Skákfélagi Akureyrar veg-
legt bókasafn að gjöf.
Hvorugt liðið náði að stilla upp
sínum sterkustu mönnum, en
teflt var á 10 borðum. Á tveimur
fyrstu borðunum tefldu fyrir
Búnaðarbankann stórmeistararn-
ir Jóhann Hjartarson og Margeir
Pétursson og gefur það vísbend-
ingu um styrkleika sveitarinnar.
Enda fóru leikar svo að sveit
Búnaðarbankans sigraði, hlaut
sjö vinninga gegn þremur vinn-
ingum Akureyringa.
Úrslit urðu þessi:
1. borð Jóhann Hjartarson -
Gylfi Þórhallsson 1:0
2. borð Margeir Pétursson -
Arnar Þorsteinsson 1:0
3. borð Jón Garðar Viðarsson -
Bogi Pálsson 1:0
4. borð Þröstur Árnason -
Tómas Hermannsson 1:0
5. borð Leifur Jósteinsson -
Jón Árni Jónsson 1:0
6. borð Guðjón Jóhannesson -
Sigurjón Sigurbjörnsson 0:1
7. borð Kristinn Bjarnason -
Hjörleifur Halldórsson 1:0
8. borð Kristján Snorrason -
Þór Valtýsson 0:1
9. borð Björn Sigurðsson -
Jón Björgvinsson 0:1
10. borð Árni Kristjánsson -
Skafti Ingimarsson 1:0
Á sunnudaginn mættust sömu
sveitir að nýju, en að þessu sinni
í hraðskák. Keppnin var afar jöfn
og spennandi. Bankamenn höfðu
forystu lengst af en síðan náðu
Akureyringar að jafna og síga
fram úr. Fyrir síðustu umferðina
voru sveitirnar jafnar, 95:95, en
sveit Búnaðarbankans hafði bet-
ur á endasprettinum og sigraði
með 101‘/i vinningi gegn 98Vi.
Bestum árangri bankamanna
náði Jóhann Hjartarson en hann
vann allar sínar skákir, 20 talsins.
Margeir Pétursson hlaut 18 vinn-
inga, Þröstur Árnason 15'A, Jón
Garðar Viðarsson 13 og Guðjón
Jóhannesson 11.
Hjá Skákfélagi Akureyrar
náðu bestum árangri þeir Gylfi
Þórhallsson sem hlaut 14 vinn-
inga, Kári Elíson sem hlaut \2Vi
vinning og Tómas Hermannsson
og Sigurjón Sigurbjörnsson sem
hlutu 11 vinninga hvor. GÞ.
Basar
Seld verða:
Kökur, laufabrauð og jólamunir í Hótel Varðborg
laugardaginn 28. nóvember kl. 14.00.
Kvenfélag Alþýðuflokksins.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir októbermánuð 1987,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru
orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. des-
ember.
Fjármálaráðuneytið, 20. nóvember 1987.
Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi
Frá menntamálaráðuneytinu:
Tannsmiðaskóli íslands óskar að ráða stundakennara til
kennslu frá næstu áramótum.
Upplýsingar um kennslugreinar veitir forstöðumaður
skólans, Sigurgeir Steingrímsson í síma 23495.
Umsóknir skal senda til Tannsmiðaskóla íslands, Vatns-
mýrarvegi 16, 101 Reykjavík, fyrir 15. desember næst-
komandi.
Menntamálaráðuneytið.
Laus staða
við félagsvísindadeild Háskóla íslands.
Staða lektors í aðferðafræði við félagsvísindadeild
Háskóla íslands er laus til umsóknar. Staðan verður veitt
til þriggja ára.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 20. desember 1987.
Menntamálaráðuneytið, 18. nóvember 1987.
Viljum ráða reglusaman
duglegan unglingspilt
til starfa nú þegar.
Upplýsingar á staðnum.
Niðursuðuverksmiðja
K. Jónsson & Co. hf.
Styrkir til háskólanáms
í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
1. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingum til
háskólanáms eða rannsóknastarfa í Finnlandi námsárið
1988-’89. Styrkurinn er veittur til níu mánaða dvalar og
styrkfjárhæðin er 1.500-2.200 finnsk mörk á mánuði.
2. Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til
háskólanáms í Svíþjóð námsárið 1988-’89. Styrkfjár-
hæðin er 3.880 s.kr. á mánuði í 8 mánuði. - Jafnframt
bjóða sænsk stjórnvöld fram þrjá styrki handa íslending-
um til vísindalegs sérnáms í Svíþjóð á sama háskólaári.
Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar, en skipting í styrki til
skemmri tíma kemur einnig til greina. Ennfremur gefst
íslenskum námsmönnum kostur á aö sækja um styrki
þá, er sænsk stjórnvöld bjóða fram í löndum þeim, sem
aðild eiga að Evrópuráðinu, en þeir styrkir eru eingöngu
ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla.
3. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrki hafnda erlendum
ungmennum til námsdvalar við norska lýðháskóla eöa
menntaskóla skólaárið 1988-’89. Ekki er vitað fyrirfram
hvort nokkur styrkjanna kemur í hlut fslendinga. Styrk-
fjárhæöin á að nægja fyrir fæði, húsnæði, bókakaupum
og einhverjum vasapeningum. - Umsækjendur skulu
eigi vera yngri en 18 ára og ganga þeir að öðru jöfnu fyrir
sem geta lagt fram gögn um starfsreynslu á sviði félags-
og menningarmála.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15.
janúar n.k., á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt með-
mælum.
Menntamálaráðuneytið, 23. nóvember 1987.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRUNN SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR,
frá Selskerjum,
Gilsbakkavegi 1a, Akureyri,
lóst á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri þann 19. nóvember sl.
Útförin fer fram laugardaginn 28. nóvember kl. 13.30 frá Akur-
eyrarkirkju.
Sigríður Sigurðardóttir,
Sólveig Sigurðardóttir,
Sigvaldi Sigurðsson,
Gunnsteinn Sigurðsson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.