Dagur - 09.12.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 09.12.1987, Blaðsíða 3
9. desember 1987 - DAGUR - 3 I KA<iNI inw lll THYC.C.VAOOT TIH il>3ÓRSARCUTU ! j 10» HI-YK3AVIK I 1 i**»í*f ijnr ðMM *í*V*« JÓN IIJAH!AHSON TTKOR ER ÁVISUN -á persónuafslátt þlnn ■ tl. / 1 Skattkort vegna staðgreiðslu opinberra gjalda verða send landsmönnum á næstu dögum. Allir sem verða 16 ára og eldri 1988 fá skattkort. HLUTVERK SKATTKORTS Skattkort gegnir mikilvægu hlutverki í staðgreiðslu. Það er lykill að réttum afdrætti. Á skattkortinu kemurfram: • Skatthlutfall það sem draga skal af launum. • Mánaðarlegur persónuafsláttur. • Persónulegar upplýsingar s.s. nafn, heimili, kennitala. • Nafn og kennitala maka. Telji launamaður að þær upplýsingar sem fram koma á skattkortinu séu ekki réttar, ber honum að snúa sér með skattkortið til næsta skatt- stjóra, sem metur hvort gefa beri út nýtt skattkort. NOTKUN SKATTKORTS Launamaður skal afhenda launagreið- anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað- greiðsluárs. Launagreiðandi reiknar síðan staðgreiðslu launamanns á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á skattkortinu. Hafi launagreiðandi ekki skattkort launamanns í vörslu sinni, reiknar hann staðgreiðslu launa- mannsins samkvæmt skatthlutfalli (35.2%) og launamaður fær engan persónuafslátt frá stað- greiðslu. Persónuafsláttur í staðgreiðslu fæst aðeins gegn framvísun skattkorts. Tekjulaus aðili getur afhent maka sínum skattkort sitt. Makinn getur þá nýtt 80% þess persónuafsláttar sem fram kemur á kortinu til viðbótarsínum. Ef launamaðurfullnýtirekki persónuafslátt sinn á einum vinnustað, vinnur ef til vill á fleiri stöðum eða vill afhenda maka sínum ónýttan persónuafslátt, getur hann fengið aukaskatt- kort þar sem mánaðarlegum persónuafslæ.ti erskipt. MEÐFERÐ SKATTKORTS Það er mikilvægt að lesa vel þær leiðbein- ingar sem skattkortinu fylgja og gera viðeigandi ráðstafanir. Síðan ber að afhenda launagreiðanda skattkortið til vörslu, annars verður ekki tekið til- littil persónuafsláttar í staðgreiðslu. Launagreiðandi ber ábyrgð á skattkorti meðan það er í vörslu hans. Þegar skipt er um vinnu afhendir launa- maður nýjum launagreiðanda skattkort sitt. Þeir sem ekki vinna utan heimilis varð- veita kort sín sjálfir ef maki getur ekki nýtt sér persónuafsláttinn. Athugaðu vel. Afhentu launagreiðanda þínum skattkortið í tæka tíð fyrir fyrsta launaútreikning næsta árs. Mundu að það er ávísun á persónu- afslátt þinn. Lestu bæklinginn um stað- greiðsluna - það borgar sig. Án skattkorts enginn persónuafsláttur RSK RIKISSKATTSTJÓRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.