Dagur - 13.01.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 13. janúar 1988
Glaðir skátar að afstöðnu „áramótaártali“.
Hópurinn sem bjó til staflna í ártalið.
Ógleymanleg sjón að
horfa yfir bæínn
- Agnar Sverrisson deildarforingi
segir frá starfsemi skáta í Vaðlaheiði á nýársnótt
Ártalið í Vaðlaheiði er
orðið fastur liður í áramóta-
haldi Akureyringa, en skátar í
bænum hafa nú í meira en tvo
áratugi kveikt ártal gamla
ársins, sem er breytt í það
nýja, á miðnætti á gamlárs-
kvöld. Ártalið skín svo við
bæjarbúum úr Vaðlaheiði og
líklega þætti mörgum tómlegt
að geta ekki fylgst með tíma-
mótunum þetta kvöld með
þessum hætti, og eiga skátar
þakkir bæjarbúa skilið fyrir
óeigingjarnt starf sitt á þessu
sviði. Agnar Sverrisson, deild-
arforingi 3. deildar, ræddi við
blaðamann um ártalið og vinn-
una við það nú rétt eftir ára-
mótin.
- Hvenær hefst undirbúning-
urinn að gerð ártalsins?
„Við byrjum á þessu síðari
hluta nóvembermánaðar. Þá fer
maður að kanna hvort tjöru-
hampurinn fáist hjá KEA og
skoða máiin. Við kaupum tjöru-
hampinn ekki seinna en í byrjun
desember, það fer nokkuð eftir
því hversu mikið er til af honum.
Það fara 75 kg af hampi í ártalið,
en fyrir þá sem ekki þekkja tjöru-
hamp er best að upplýsa að hann
er notaður til að þétta með sam-
skeyti í rörum, t.d. hjá pípulagn-
ingamönnum. Pá notum við líka
300 bréfpoka, þetta eru svokall-
aðir 5 kg pokar sem við fáum hjá
Heildverslun Tómasar Stein-
grímssonar."
- Hvernig er undirbúningi að
þessu að öðru leyti háttað?
„Við rúllum hampinum upp
þar til hann er kominn í svipaða
stærð og matardiskur, en hampur-
inn er framleiddur í ræmunr. Síð-
an er hverjum skammti stungiö
niður í bréfpoka. bessi vinna fer
fram eftir miðjan desember, að
þessu sinni vorum við óvenjulega
seint á ferðinni, eða 27. desem-
bcr, en að öllu jöfnu er þessu
verki lokið um 20. desember.
I>aö má því segja að við höfum
verið frekar seint á ferðinni að
þessu sinni, sem ekki skipti þó
neinu máli til eða frá.“
- Hvenær farið þið upp í
Vaðlaheiði á gamlársdag?
„Þegar allri vinnu við tjöru-
hampinn og bréfpokana er lokið
förum við að hlusta á veður-
spána. Ef slæmu veðri er spáð og
útlit fyrir illa færð á gamlársdag
þá förum við daginn áður, eða
30. desember, upp í heiðina.
Þegar þannig stendur á gröfum
við pokana niður í snjóinn en
þetta var að vísu ekki fyrir hendi
núna og aðstæður allar góðar.
Á gamlársdag lögðum við af
stað frá Akureyri um klukkan tíu
fyrir hádegi. Þegar við komum á
staðinn er liðinu skipt niður á
einstaka stafi í ártalinu. Þetta fer
allt saman fram eftir settum regl-
um sem við þekkjum af reynsl-
unni. Tveir menn eru settir í að
raða ásnum, senr við köllum svo.
Tveir menn raða í níuna, yfirleitt
fjórir í áttuna og svo er það upp
og ofan hversu margir fara í síð-
asta stafinn, það fer eftir því hver
hann er hverju sinni. Núna voru
fjórir menn í sjöunni og jafn-
margir í áttunni.
Tveir menn standa uppi við
veginn og setja upp efstu punkt-
ana í ártalinu í hverjum staf og
ákvarða bilið á milli stafanna.
Þessu næst eru neðstu punktarnir
látnir á sinn stað. Þá er ásnum
raðað, síðan miðpunktunum í
áttunum og út frá því sjáum viö
hvar belgurinn tengist leggnunr á
níunni. Eftir að punktarnir hafa
verið ákveðnir er fyrst hægt að
raða stöfunum upp.
Þegar við erum búin að þessu
verki, en það stendur yfirleitt til
klukkan þrjú um eftirmiðdaginn,
förum við heim. Reynslan sýnir
að ferðin og uppröðunin tekur
alltaf fjóra til fimm tíma svo
þetta er talsverð vinna. Síðasta
verkið okkar, áður en við förum
heinr, er að hella svolítilli stein-
olíu í hvern bréfpoka, alls eru
þetta um 25 lítrar."
- Hvenær leggið þið af stað
aftur að kvöldinu?
„Við reynum að vera komnir
um klukkan ellefu aftur á
staðinn, helst ekki seinna. Þá
hellum við aftur 25 lítrum af
steinolíu ofan í bréfpokana og
rífum um leið smágat ofan á
hvern poka. Þegar klukkuna
vantar sex til sjö mínútur í tólf er
farið að huga að því að kveikja í
ártalinu og þá er smáslatta af
bensíni hellt í hvern poka og síð-
an er kveikt í með kyndli.“
- Þið notið eldfim efni við
þetta, eins og gefur að skilja. Er
þetta ekki hættulegt fyrir þá sem
vinna við ártalið?
„Já, það er rétt, þetta er nokk-
uð óþrifalegt og maður fer ekki
beint á ball þegar heim er komið
heldur beint í bað. Maður lyktar
frekar illa af steinolíu og bensíni
og oftast klæðast menn fatnaði
sem þeim er nokkuð sama um.
Það hefur reyndar komið fyrir að
kviknað hafi í mönnum þarna við
ártalið en af því hefur þó aldrei
orðið neitt alvarlegt slys. Menn
velta sér þá upp úr snjó ef hann
er fyrir hendi. Það er lögð mikil
áhersla á það við skátana að
mæta helst á gallabuxum og í
lopapeysu því það er fatnaður
sem síst kviknar í og tekur lengst
að brenna. En við teljum ekki
mikla hættu á íkveikju þó að við
séum að sjálfsögðu við öllu
búnir.“
- Er nóg að kveikja í hverjum
tölustaf á einum stað?
„Nei, það er ekki hægt því ef
við tökum ásinn, fyrsta stafinn,
sem dæmi þá er hann þrjátíu
metra langur og um 30 dúllur fara
í hann. Það er því um einn metri
á milli punkta og það verður að
kveikja í hverjum og einum fyrir
sig. Til að kveikja í öllu ártalinu
verða menn að kveikja í að
minnsta kosti tvö hundruð og
fimmtíu punktum og hlaupa á
milli punktanna.
Við útbúum sérstaka kyndla til
að kveikja í ártalinu. Þetta er
spýta með tjöruhampi á endan-
um og vír er vafið utan um hamp-
inn til að haida honum á sínum
stað.“
- Þegar menn horfa á ártalið
þetta kvöld hljóta ýmsir að velta
því fyrir sér hvernig þeim líði
sem vinna þarna í sjálfboða-
vinnu, í stað þess að gleðjast með
ættingjum sínum. Hvernig til-
finning er það að vera staddur í
heiðinni þetta kvöld?
„Ég get auðvitað ekki talað
fyrir aöra en sjálfan mig, en mér
líður ágætlega við þetta. Það er
rneð því stórkostlegra sem nokk-
ur getur séð að horfa yfir bæinn á
m
Steinolíu hellt í bréfpokana.
miðnætti og einnig að vita að
flestallir bæjarbúar horfa til okk-
ar á ártalið. Ég vildi alls ekki
skipta á þessu og því að standa
fyrir utan húsið heima hjá mér.
Fjölskyldurnar sýna þessu skiln-
ing, a.m.k. mín fjölskylda.“
- Hversu margir skátar vinna
við ártalið?
„Að þessu sinni • vorum við
fjórtán á gamlársdag en ellefu um
kvöldið. Það er misjafnlega
margt við þetta frá ári til árs og
núna vorum við aðeins þrír af
ellefu á gamlárskvöld, sem höf-
um verið áður, þegar kveikt var í
ártalinu, hinir voru allir í fyrsta
sinn við þetta. Þetta er allt unnið
„Árainótaártalið“ - afrakstur mikillar vinnu og skipulagningar.
Myndir: A.Sv.
sem sjálfboðaliðsvinna innan
skátastarfsins og það hefur aldrei
verið neitt vandamál að fá fólk í
þetta.
Dróttskátasveitin Ævintýrið
hefur séð um þetta gegnum árin
og núna var frekar mannfátt í
þeirri sveit, þannig að dróttskátar
í 1. deild stóðu að verkinu. Núna
voru stúlkur við þetta í fyrsta
skipti í háa herrans tíð. Þetta er
að vissu leyti lýsandi fyrir þá
þróun sem er í skátastarfinu á
Akureyri því mun meira samstarf
en nú milli kven- og karlskáta,
eftir að félögin sameinuðust öll í
Klakki, hinu nýja skátafélagi
Akureyrar.“
- Hvert var upphaf þess að
skátar fóru að kveikja ártal í
heiðinni?
„Hugmyndin að þessu er kom-
in frá Siglufirði og Guðvarður
Jónsson, málarameistari, kom
þessum sið á eftir að hann flutti
til Akureyrar. Guðvarður byrjaði
með ártalið um áramótin 1955 til
1956, eða þ.u.b. Skátarnir tóku
við frá 1960 og síðan hafa þeir
séð um þetta í tuttugu og sjö ár.“
- Er mikill kostnaður fylgj-
andi ártalinu?
„Kostnaðurinn í ár var um
fimmtíu þúsund krónur, þannig
að við þurfum að leggja talsvert
af mörkum í þetta en í staðinn
fáum við líka ánægjuna og þakk-
læti bæjarbúa.“ EHB
13. janúar 1988 - DAGUR - 7
% vwt{ i,m ,* \V,>r*
Fiskeldi hefur verið mörgum
hugleikið undanfarin ár. Sumir
af helstu kunnáttumönnum
þjóðarinnar um atvinnuhætti
og efnahagsmál hafa sagt að í,
fiskeldinu séu framtíðarhags-
munir þjóðarinnar fólgnir og
ekki megi vanmeta mikilvægi
greinarinnar fyrir þjóðarhag.
Víða hafa risið fiskeldisstöðvar
undanfarin ár, bæði nær og
fjær þéttbýli. Staðsetning
tiskeldisins skiptir máli bæði
frá sjónarmiði hagkvæmni og
aðstæðna annars vegar og frá
sjónarmiði atvinnuuppbyggingar
strjálbýlla byggðarlaga hins
vegar. Björn Erlendsson er
einn fimm eigenda hafbeitar-
stöðvar við Eiði á Langanesi,
og ræddi blaðamaður við hann
um hugsanlega uppbyggingu
stöðvarinnar í framtíðinni.
- Hverjir eru eigendur haf-
beitarstöðvarinnar?
„Við erum fimm í þessu. Eig-
endur eru, fyrir utan mig sjálfan,
bróðir minn Hákon Erlendsson,
og bræðurnir Jón, Vilhjálmur og
Sigurður Þórðarsynir. Eignarhlut-
fallið skiptist þannig að við Hákon
eigum 25% hvor en hinir þrír
skipta á milli sín 50%. En það er
nú ekki spáð mikið í þessa hluti,
við erum allir gamlir félagar og
vinir frá Seyðisfirði.“
„Jú, það er æðardúntekjan, og
í dag gefur hún af sér um tíu kíló
af hreinsuðum æðardúni. Við
erum með áform um að ef okkur
tekst að útvega fjármagn til
fiskeldisins þá yrði farið í að
stækka æðarvarpið meðfram og
þá á þá leið að ýta upp hólmum.“
- Hvað væri hægt að gera
þarna ef fjármagn fengist með til-
liti til laxeldis?
„Það væri hægt að byggja upp
hafbcitarstöð sem þyrfti um fimm
prósent endurheimtu til að fjár-
magnið skilaði sér til baka á fimm
árum, minnir mig. Þá myndi bæði
rekstrarfé og upphafleg fjárfest-
ing skila sér til baka á þeim
tíma."
- Eruð þið með einhver ker
þarna fyrir lax eða silung?
„Ekki nema fyrir laxaseiði, í
smáum stíl. Þetta er bara vegna
þeirra seiða sem er sleppt í
sjóinn."
- Hafið þið hugsað ykkur að
fara alveg í seiðaeldið?
„Nei, það eru svo margir um
seiðaeildið og okkur finnst ekki
vera mikil framtíð í slíku. Við
erum meira að hugsa um eitthvað
sem nieiri framtíð er í. Til að efla
fiskeldið á þessum stað þyrfti að
reisa þarna hús, leggja vatnsveit-
ur, koma upp varmadælum og
fleira."
- Hafið þið athugað lána-
möguleika hjá Byggðasjóði?
„Já, reyndar höfum við gert
Miklir laxeldismögu-
leikar á Langanesi
— rætt við Bjöm Erlendsson um hafbeitarstöð og möguleika á stækkun hennar
- Hvernig eignuðust þið land-
svæðið sem stöðin er á?
„Við keyptum þetta á sínum
tíma. Hér er um að ræða þrjár
jarðir, Eiði I og II og Ártún.
Þessar þrjár jarðir eru allar sam-
liggjandi og eru allar í vatnasvæði
Eiðisvíkur. Þarna er einnig á sem
heitir Kíll, en hún rennur úr
tveimur litlum vötnum innar í
Eiðisgarði. Þarna eru líka margir
litlir lækir, lindalækir, sem renna
úr lindum í fjallinu. Þarna er
mikið lindasvæði og mikið um
gott uppsprettuvatn. Þarna eru
ungar bergmyndanir og svæðið er
mjög lekt í heild.“
- Hvað er langt síðan þið fé-
lagarnir byrjuðuð með hafbeit á
þessu svæði?
„Við byrjuðum árið 1974 með
hafbeit og við höfum rekið til-
raunastarfsemi þarna allar götur
síðan. Árangurinn hefur verið
misjafn, m.a. af því að fjár-
magnsþörf í þessari grein er
mikil, en það var eiginlega ekki
fyrr en árið 1983 að við fórum að
átta okkur á þeim árangri, sem
náðst hafði með hafbeitinni."
- Hafið þið uppi áform um
mikla uppbyggingu á þessum
stað?
„Áform um uppbyggingu hafa
verið til staðar undanfarin tvö ár
og við höfum reynt að hafa sam-
band við aðila sem hafa aðgang
að fjármagni. Þó hafa menn ekki
verið tilleiðanlegir til að fjárfesta
í þessu fyrirtæki okkar enn sem
komið er. En við höfum ekki
fengið úthlutað neinum styrkjum
eða fengið lán úr opinberum
sjóðum eða slíkt, því miður, vil
ég segja.“
- Éru fleiri hlunnindi á þess-
um jörðum?
Laxinn skoðaður í hafbeitarstöðinni.
Eiðisvík t.v. og Eiðisvatn fyrir innan eiðið. ií baksýn er fjaliið Naustin.
það. Það má segja að við komum í
humáttina á eftir fyrirtækjum
eins og Vogalaxi og ísnó, við
fylgjumst með því hvaða árangur
fæst hjá þeim og erum tilbúnir að
slá til þegar ljóst er hvernig þessi
mál ganga upp hjá öðrum."
- Ef hafbeitarstöð væri rekin
þarna af krafti hefði þaö þá ekki
töluvert að segja fyrir atvinnu-
möguleika á Langanesi?
„Jú, ég er ekki í nokkrum vafa
um það. Við ræddum við Hrað-
frystistöð Þórshafnar um að þeir
gerist aðilar að fyrirtækinu með
okkur, cn við erum mjög jákvæð-
ir í því efni. Hraðfrystistöðin hef-
ur þá aðstöðu sem til þarf og er
varla vit í að byggja upp þegar sá
möguleiki er fyrir hendi að aka
fiskinum inn til Þórshafnar til
vinnslu. Þá væri líka hægt að
grípa til starfsliðs frystihússins til
að vinna viö móttöku og fleira
þegar miklir toppar koma á viss-
um hlutum árs. Það væri því
mjög æskilegt að hafa samvinnu
við þá aðila.“
- Hvað er löng vegalengd frá
hafbeitarstöðinni að Þórshöfn?
„Það eru um sautján kílómetr-
ar. Leiðin er mjög greiðfær, veg-
urinn liggur hvergi í meira en
tuttugu metra hæð yfir sjó og er
þokkalega góður til aksturs."
- Viltu segja eitthvað unr haf-
beit að lokum?
„Hafbeit er mjög mikilvæg í
fiskeldi því segja má að lítil tak-
mörk séu fyrir því hvað þessi
rekstur getur orðið umfangsmik-
ill. Við sjáum fram á að geta
framleitt tugmilljónir göngu-
seiða, ef út í það er farið, en við
höfum ekki horft á meira núna en
svona milljón gönguseiði. Með
allri þeirri tækni sem nú er hægt
að nota, hreinsun o.fl, sjáum við
mikla möguleika, og hafið tekur
lengi við í þessum efnum.“ EHB