Dagur - 13.01.1988, Blaðsíða 3
13. janúar 1988 - DAGUR - 3
Nýja tollskráin:
Hofsóshreppur:
Fær 25% minna inn fyrri
hluta ársins en í fyrra
„Eflaust mun þetta koma hart
niður á þeim sveitarfélögum
sem hafa haft gott innheimtu-
hlutfall, en hjá hinum breytir
þetta kannski ekki svo miklu,“
sagði Ofeigur Gestsson sveit-
arstjóri á Hofsósi í tilefni þess
að fyrri hluta þessa árs mun
Hofsóshreppur aðeins fá 32%
áætlaðs útsvars í stað 57% sem
hann fékk á fyrri hluta síðasta
árs.
Ófeigur sagði ekki laust við að
stöðugt væri kreppt að sveitarfé-
lögunum. T.d. hefði hreppurinn
nú fyrir áramótin ekki fengið
nema 37% af aukaframlagi
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem
honum bæri samkvæmt lögum.
Vegna skerðingar á framlögum
til sjóðsins við gerð fjárlaga ’86
og eins því að félagsmálaráðu-
neytið og Samband sveitarfélaga
komu sér saman um að dreifbýl-
issveitarfélögin fengju fullt auka-
framlag úr sjóðnum, en blönduð
og þéttbýlissveitarfélög ekki. Og
þegar litið væri á aukaframlög
jöfnunarsjóðs til Hofsóshrepps á
árunum ’83-’87 kæmi í ljós að
hreppurinn hefði verið skertur
um alls 7 milljóna framlag, á
núvirði.
„Það er ekki hægt að segja að
maður sé neitt sérstaklega bjart-
sýnn um þessar mundir og ljóst
að framkvæmir hér á þessu ári
verða alvcg í lágmarki eða næst-
um engar. En við höfum verið
með tiltölulega miklar fram-
kvæmdir undanfarin ár," sagði
Ófeigur. -þá
Nýtt ítarlegra
tollnúmerakerfi
- matarliður vísitölufjölskyldunnar
hækkar um 7% eða 1800 krónur á mánuði
Um áramótin tóku gildi ný lög
um tollafgreiðslu. Ný tollskrá
er því komin út sem felur í sér
ýmsar breytingar. Þær helstu
eru þær, að nýtt tollnúmera-
kerfi var tekið í notkun, þar
sem öll tollaflokkun er mun
ítarlegri. Tollar lækka almennt
og verða ekki hærri en 30%,
að tóbaki og bensíni undan-
skildu.
Vörugjald sem áður var 24%
og 30% lækkar og verður 17,5% í
raun við innflutning. Þó Verða
lögð innflutningsgjöld á sumar
vörur sem lækka í tolli, t.d. fá
vélsleðar sem áður höfðu 70%
toll, sem lækkar nú í 10%, 60%
innflutningsgjald, svo álagningin
er í raun sú sama. Sömu sögu er
að segja um fjórhjólin.
Þorsteinn Pétursson sagði í
samtali við Dag, að þótt nýja toll-
skráin sé ítarlegri en sú gamla,
þýddi það ekki að hún væri flókn-
ari. „Hún verður kannski einfald-
ari fyrir bragðið því skorið er úr
um tvíræð atriði."
Hann sagði að kerfisbreytingin
gerði ráð fyrir að tollkerfið verði
í stórum dráttum byggt á tveimur
tekjustofnum, almennum tollum
og vörugjaldi, í stað margra
smærri tekjustofna. Þá er gert
ráð fyrir að tollar á matvælum
verði nær undantekningarlaust
felldir niður en hámarkstollar á
þeim eru nú 40%. Þessi breyt-
ing hefur í för með sér talsverða
röskun á verðhlutföllum hér
innanlands. Þess eru jafnvel
dæmi, að einstakar vörutegundir
lækki um meira en helming í
verði á meðan aðrar hækka um
15-20%.
Talið er að þessar breytingar
valdi ekki hækkun á fram-
færsluvísitölu, þótt ljóst sé, að
matvælaliður vísitölufjölskyld-
unnar gæti hækkað um 7% að
meðaltali, eða sem svarar um
1800 króna útgjaldaaukningu á
mánuði.
Þorsteinn sagði að helsta
breyting sem orðið hafi við sjálfa
tollafgreiðsluna sé að nú þarf ein-
göngu að skila ljósriti af reikn-
ingi, en ekki er lengur skilyrði
fyrir tollafgreiðslu að reikningur
sé bankastimplaður. „Nú er það
hætt í reynd, að ríkið sé að fylgj-
ast með því hvort innflytjandi
hafi greitt vöruna sem hann flytur
inn. Farmflytjandi mun væntan-
lega taka þetta eftirlit í sínar
hendur,“ sagði Þorsteinn að
lokum. VG
Bændur — Varaafl
RAFÁLAR DRÁ TTARVÉLARAFALAR
mmmiúsM
RAFVERKTAKAR
FURUVÖLLUM 13-600 AKUREYRI
SÍMAR (96)25400 & 25401
Alhliða rafverk og
rekstur verslunar
Önnumst m.a. húsarafmagn,
skiparafmagn, bílarafmagn, töflusmíði
og hönnun byggingastaðatafla.
■ BÍLARAFMAGN ■ HÚSARAFMAGN ■ SKIPARAFMAGN
Akureyri - Nágrenni
Tökum að okkur
alla raflagnavinnu
Nýlagriir, viðgerðir
3&afmar V\ VffSLm™*
Frá Öldungadeild
Menntaskólans á Akureyri
Innritun á vorönn fer fram á skrifstofu skólans
dagana 14.-21. janúar.
Skólameistari.
V______________________________________/
-------------------------------------------------------------------ð
AKUREYRARBÆR
Akureyringar
Eigendum þeirra númerslausu bifreiöa sem
fjarlægðar hafa veriö, af hálfu Heilbrigöiseftirlits
Eyjafjarðar, af götum og opnum svæðum Akur-
eyrarbæjar áriö 1987, er hér með gefinn loka-
frestur til 23. janúar 1988 til aö leysa þær út gegn
áföllnum kostnaöi.
Aö þeim tíma liðnum mun bifreiðunum verða
hent.
Heilbrigðisf ulltrúi.