Dagur - 23.02.1988, Page 2

Dagur - 23.02.1988, Page 2
2 Ráðhústorg - Skátagil: Úrslitin Ijós í kvöld I kvöld verður lýðum Ijóst hver hefur borið sigur úr býtum í samkeppni um skipulag og mótun Ráðhústorgs og Skáta- gils. Fyrstu verðlaun í sam- keppninni eru um 500 þúsund krónur en heildarverðlaun eru allt að 900 þús. kr. Að auki er dómnefnd heimilt að verja 200 þús. kr. til kaupa á tillögum. Eftir að úrslit hafa verið gerð opinber verður opnuð sýning á tillögunum og víst er að Akureyr- ingar og landsmenn nær og fjær bíða ólmir eftir því að sjá hvernig hjarta Miðbæjarins mun líta út í framtíðinni. AIls bárust dóm- nefnd 14 tillögur og munum við gera verðlaunatillögunum skil eftir föngum er úrslit liggja fyrir. SS Tap og óþægindi fyrir Skautafélagið - vegna bilunar ísvélanna Nú hefur komið í Ijós, að svo- kallaðar skrúfur, sem eru um Blönduós: Vaxandi áhugi fyrir skák - æfingar vel sóttar Taflfélag Blönduóss er með skákæfingar fyrir fullorðna og þá unglinga sem eru vel á veg komnir í skáklistinni, á Hótel Blöndósi, öll þriðjudagskvöld og hefjast þær kl. 20.30. Síð- degis á mánudögum eru skákæfingar fyrir börn og ungl- inga í æskulýðsmiðstöðinni Skjólinu. Leiðbeinandi ungl- inganna er Sverrir H. Þóris- son, æskulýðsfulltrúi. Að sögn Baldurs Daníelsson- ar, formanns Taflfélags Blöndu- óss, er mikill áhugi fyrir skák- íþróttinni á Blönduósi og nám- skeiðin vel sótt. Strax í haust var fjölmennt á námskeiðunum en eftir að Jó- hann Hjartarson sigraði Victor Korsnoj, í einvíginu, hefur kom- ið verulegur fjörkippur í skák- mennina og áhugi vaxið hjá börn- um og unglingum. Aö sögn Sverris Þórissonar, æskulýðsfulltrúa, eru það 20 til 25 krakkar sem sækja skáktím- ana reglulega. Þetta eru krakkar úr 0.-6. bekk, en best munu æfingarnar vera sóttar af 11 og 12 ára krökkunum. fh metralangar, og ganga eftir endilöngum ísvélum Skautafé- lags Akureyrar, biluðu. Eins og fram hefur komið í fréttum þá biluðu báðar ísvélarnar við nýja skautasvellið á Akureyri fyrir skömmu, og var sér- fræðingur frá framleiðanda kvaddur til. Þegar ljóst varð, hvað hafði bilað í vélunum, voru varahlutir pantaðir frá Amsterdam, og voru þeir væntanlegir á föstudags- kvöld. Varahlutirnir voru fluttir til Akureyrar með flutningabíl um helgina, og vonast var til þess að hægt yrði að gangsctja vélarn- ar fljótlega úr því. Guðmundur Pétursson, formaður Skautafé- lags Akureyrar, sagði að til bráðabirgða yrði félagið að greiða kostnað eins og flutnings- kostnað o.fl. vegna bilunarinnar, en stjórn Skautafélagsins vissi ekki annað en að framleiðandinn tæki kostnað á sig, og ekki hefði neitt komið fram frá hendi þcirra síðarnefndu, sem benti til annars. Von er á sölumanni ísvél- anna í þessari viku til Akureyrar vegna málsins. „Þetta hefur þegar valdið okk- ur tapi og miklum óþægindum. Viö missum aðsóknina niður og þurfum að auglýsa þetta upp á nýtt. Þá eru allar línur farnar og við höfum varla getað spilað á svellinu því línurnar hurfu fljót- lega. Við vildum ekki ntála nýjar línur fyrr en vélarnar væru komn- ar í lag," sagði Guðmundur Pét- ursson, formaður S.A. EHB Helgi Vatnar Helgason við dorgveiði á Mývatni. Mynd: JÓH íslensk hey- sýni vekja athygli í V.-Þýskalandi í byrjun þessa árs voru fímm heysýni frá 3 bæjum á Suður- landi sett í nákvæma rannsókn við Universitat Hohenheim í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi. Gæði heysýnanna hafa vakið mikla athygli þarlendra vísindamanna enda reyndust þau með eindæmum mikil. Eitt sýnið skar sig þó úr enda reyndist það hafa að fóðurgildi 10,2 MJ en það er næstum eins hátt og í fóðurbæti. Sýni þetta kom frá Jens Jóhannessyni í Teigi I í Fljótshlíð. í áratuga sögu rann- sókna á heysýnum við háskólann í Hohenheim hefur aldrei fyrr komið jafn góð niðurstaða í Ijós. Heysýnið frá Teigi var slegið snemma morguns 21.7. 1986 í mjög góðum þurrki, bundið um kvöldið og sett í hlöðu með súg- þurrkun. Hin sýnin sem send voru til Þýskalands komu frá Teigi II og Torfastöðum í Bisk- upstungum. Til samanburðar má geta þess að fóðurgildi í maís er 14 MJ, í byggi 13 MJ og í höfrum 11 MJ. Grcinilegt er því hversu gott sýn- ið frá Teigi I reyndist vera. Rannsóknir á heysýnum fara fram hérlendis. Af heyfeng 1987 hafa verið rannsökuð um 2000 sýni hjá Rannsóknastofnun land- búnaðarins, Ræktunarfélagi Norðurlands og við Bændaskól- ann á Hvanneyri. JÓH Blönduós: Ökumenn virða ekki stöðvunarskyldu Eitt stöðvunarskyldumerki er til á Blönduósi og stendur það við Hnjúkabyggð, þar sem ekið er inn á Norðurlandsveg. Nokkrar efasemdir hafa verið um ágæti þessa merkis ekki síst Byggingaframkvæmdir 1987: Lokið við briár bensínstöðvar í yfírliti byggingafulltrúa Akur- eyrarbæjar yfír byggingafram- kvæmdir á síðasta ári er birtur listi yfír þær sem hafnar voru eða var lokið við á árinu, svo og aðrar þær byggingar sem voru í byggingu á árinu. Þarna er átt við aðrar byggingar en íbúðarbyggingar. Hafnar framkvæmdir á árinu: íþróttahús v/Bugðusíðu, 2 flug- skýli v/Eyjafjarðarbraut, saínað- arheimili v/Eyrarlandsveg, verk- stæðishús v/Fiskitanga, viðbygg- ing við Frostagötu 1B, viðb. v/Furuvelli 7, stórmarkaður KEA v/Glerárgötu, viðbygging við Hótel KEA, viðb. við Hafn- arstræti 99 6. hæð, viðb. v/Árstíg 6, viðb. v/Hrísalund 3 (lokið), golfskáli og verkstæði að Jaðri, 2 birgðaskemmur í Krossanesi (lokið), viðb. v/Norðurgötu 57, iðnaðarhús að Óseyri 22 og bens- ínstöð Esso við Drottningarbraut (lokið). Fullgert á árinu:Árstígur 2, Sel I og II viðbygging, Bensínstöð Shell v/Hörgárbraut, bensínstöð Esso v/Hörgárbraut, viðb. í kirkju- garði, kvikmyndasalur v/Geisla- götu, 4. áfangi Verkmennta- skóla, 2. áfangi Síðuskóla. Aðrar byggingar í byggingu á árinu: Viðb. v/Dvalarheimilið Hlíð, Hofsbót 4, Óseyri 9, K. Jóns- son v/Silfurtanga, Glerárkirkja, Glerárgata 26, Móasíða 1, N.L.F.A. Kjarnaskógi, sundlaug v/Sólborg, skemma v/Tryggva- braut, Sjöfn v/Austursíðu, Fjölnis- gata 6, Hvannavellir 14 og Félags- heimili Þórs v/Skarðshlíð. ET Bygging íbúða á Akureyri. Tala íbúða: 1985 1986 E = Einbýlishús R = Raðhús F = Fjölbýlishús S = Samtals 1987 í byggingu í ársbyrjun Bygging hafináárinu Fullgerð á árinu í byggingu í árslok Fokhelt í árslok Skemmra á veg komin í árslok í byggingu á árinu Fokhelt á árinu s = E + R + F s = E + R + F S = E + R + F 119 57 52 10 98 43 45 10 96 38 36 22 17 2 15 0 28 0 6 22 110 3 16 91 38 16 22 0 30 5 15 10 21 6 15 0 98 43 45 10 96 38 36 22 185 35 37 113 68 35 23 10 54 31 23 0 128 29 27 72 30 8 22 0 42 7 13 22 57 6 10 41 136 59 67 10 126 43 51 32 206 41 52 113 8 4 4 0 16 1 15 0 95 4 19 72 vegna þess að talið er að fáir ökumenn virði það sem skyldi. Blaðamaður Dags gerði könn- un á umferðinni við umrætt merki, að morgni til, þegar umferð er mest og fólk á leið til vinnu. Niðurstaðan varð vægast sagt ömurleg. Af sautján öku- mönnum sem óku af Hnjúka- byggð, inn á Norðurlandsveg þcnnan morgun, á meðan könnunin var gerð, stöðvuðu aðeins tveir þeirra bifreiðar sínar við stöðvunarskyldumerkið. Þetta var þó ekki það versta. Á mcðan annar af þessum tveim löghlýðnu ökumönnum var með bifreið sína kyrrstæða við gatna- mótin kom annar ökumaður á fullri ferð og keyrði fram með kyrrstæðu bifreiðinni og ók við- stöðulaust inn á Norðurlandsveg- inn. Fyrr má nú rota en dauð- rota. Þess skal getið að könnun var gerð á sama stað í hádeginu og var hún hagstæðari, þó að ekki væri útkoman góð. fh Skyldi þessi hafa virt stöðvunarskyldu? Mynd: fh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.