Dagur - 23.02.1988, Side 3
3j&(ffbj»íán ia8ft)r DAPyBcr-3s
Lífeyrissjóðirnir:
„Ómæld vinna við að
breyta skattkortum “
„Það hefði mátt komast hjá
þeirri miklu vinnu, sem er í
kringum þetta, með því að
taka það fólk út úr sem er með
tekjutryggingu, og sinna því
síðar, því það eru ekki þeir
aðilar sem greiða skattana í
landinu. Fyrir fjármálaráðu-
neytið verður það ómæld
vinna að endurgreiða slíku
fólki þegar mistök verða. Mál-
ið snýr ekki eingöngu að
Tryggingastofnun og lífeyris-
sjóðum heldur einnig ráðu-
neytinu,“ sagði Jón Helgason
hjá lífeyrissjóðnum Samein-
ingu á Akureyri.
Tilefni þessara ummæla Jóns
er sú rnikla ringulreið, sem
skapaðist hjá ntörgu eldra fólki á
félagssvæði Sameiningar vegna
skattkerfisbreytinganna. Þeir, sem
fá bætur af einhverju tagi frá
Tryggingastofnun ríkisins, verða
að sækja unt aukaskattkort til að
nýta persónuafslátt sinn, ef þeir
fá greiðslur úr lífeyrissjóði. Ef
lífeyrissjóðirnir eru fleiri en einn,
þarf fleiri aukaskattkort, og
útreikninga til að skipta prósentu
persónuafsláttar milli sjóðarina
þannig að afslátturinn nýtist sem
best. Einnig getur þurft að sækja
um aukaskattkort vegna ónýtts
persónuafsláttar maka.
Jón Helgason sagði, að mjög
margir lífeyrisþegar ættu erfitt
með að skilja þetta kerfi, og ótal
dæmi væru um misskilning, sem
ntikil vinna færi í að leiðrétta.
Með desembergreiðslu sjóðsins
hefði verið sent bréf til allra líf-
eyrisþega, þar sem fólk var hvatt
til að skila aukaskattkorti til
sjóðsins. Fjöldi fólks hefði ekki
sinnt þcssum tilmælum, nt.a.
vegna þess að bréf frá Trygginga-
stofnun ríkisins, sem kom áður,
olli misskilningi. Fólk áleit í stór-
um hópum að það þyrfti ekki að
skipta sér neitt af skattkortum,
þar til það sá að staðgreiðslan var
dregin af lífeyrisgreiðslum. Þá
tóku flestir við sér. „Það verður
ómæld vinna í framtíðinni hjá líf-
eyrissjóðunum við að breyta
skattkortum," sagði Jón. EHB
Grciðabílar frá Glæsibílum sf. hafa gert usla á Akureyri og Bílstjórafélag
Akureyrar fékk sett lögbann á akstur þeirra. Mynd: tlv
Vinningstölur 20. febrúar.
Heildarvinningsupphæö kr. 5.058.032.-
1. vinningur kr. 2.536.438,-
Skiptist á milli 3 vinningshafa kr. 845.476.-
2. vinningur kr. 758.500.-
Skiptist á milli 250 vinningshafa kr. 3.034,-
3. vinningur kr. 1.763.104.-
Skiptist á milli 7.871 vinningshafa sem fá 224 kr. hver.
Upplýsingasími 91-685111
Lögbann á Glæsibíla:
Málið þingfest
á fimmtudag
Lögbannsstefna Bílstjórafélags
Akureyrar gegn Glæsibílum sf.
verður þingfest í bæjarþingi
Akureyrar tunmtudaginn 25.
febrúar. Asgeir Pétur Asgeirs-
son héraðsdómari sagði það
ekki Ijóst hvenær málflutning-
ur hæfist.
Hann sagði að málsaðilar
fengju frest til að leggja fram
gögn í málinu og gæti það tekið
nokkrar vikur, ef um viðamikil
gögn er að ræða. Nú er liðið á
annan rnánuð frá því lögbannsúr-
skurður var kveðinn upp gegn
tryggingu frá Bílstjórafélagi
Akureyrar, en lögbannið þarf að
staðfesta með dómi. SS
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Tillaga um að dag-
heimilinu verði ekki lokað
vegna sumarleyfa
Á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur sl. þriðjudag lagði Lilja
Skarphéðinsdóttir varafulltrúi
B-listans fram tillögu sem vís-
að var til félagsmálaráðs.
Efni tillögunnar er á þá leið að
dagheimilinu Bestabæ verði ekki
lokað vegna sumarleyfa nk. sum-
ar og framvegis. í tillögunni
segir: „Tel ég að þetta fyrirkomu-
lag sem verið hefur komi sér
mjög illa, bæði fyrir fyrirtæki
bæjarins og foreldra barnanna.
Síðast en ekki síst tel ég að börn-
in fái ekki raunverulegt sumarfrí
nema þau eigi þess kost að taka
það á sama tínia og foreldrar
þeirra, annað eða bæði.
Ég tel þetta vel framkvæman-
legt, en þarfnast að vísu tölu-
verðar skipulagningar sent ég er
fullviss um að dagvistarstjóri er
vel fær um að framkvæma. Einn-
ig geri ég tillögu að breyttum
opnunartíma; að opnað verði kl.
7.15.“
Lilja sagði að ástæðan fyrir því
að hún bæri fram þessa tillögu
væri sú að hún hefði orðið vör við
mikla óánægju fólks vegna lok-
unar dagheimilisins vegna sumar-
leyfa því fólk sem ætti börn á
dagheimilinu hefði ekki alltaf tök
á að taka sér frí á þessum tíma.
IM
cMV;
Nýkomið niikið úrval ái;jakkaiotum, stök-
um jökkuni og buxum Jrá Bernhardt, Vnn
Gils og Falbe.
Kjólföt - Smokingföt
Klæðskeraþjönusta -
l/W. CfiU
liafnarstrætt ('Búúfahus suðurendiK siiiii 26708.
MK