Dagur - 23.02.1988, Side 11
.• 23' febrúar 1988-r DAOUR -í'11
„í ráði að halda fræðslu-
námskeið með bændum
um afmörkuð verkefni “
- Rætt við Ólaf G. Vagnsson hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
Ólafur Vagnsson.
Ólafur G. Vagnsson, búráöu-
nautur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, tók Ijúflega í þá
bón að ræða við okkur um
þingið og þau verkefni sem
Búnaðarsambandið er að eiga
við. Við spurðum Ólaf fyrst
hver sé tilgangurinn með þess-
um árlega ráðunautafundi.
„Það má segja að þetta sé upp-
skeruhátíð þeirra sem vinna við
tilraunir og rannsóknastarfsemi á
sviði landbúnaðar. Hér koma
menn og kynna niðurstöður
rannsókna sinna og fá gagnlegar
umræður um þær niðurstöður.
Þetta getum við ráðunautarnir
svo nýtt í starfi okkar meðal
bænda.
En það eru ekki bara ráðunaut-
arnir og vísindamenn sem kynna
sín sjónarmið hér á þessum
fundi. Forystumenn bænda-
samtaka sitja einnig ráðstefnuna
og kynna sjónarmið umbjóðenda
sinna. Þetta er mjög góður staður
til að bera saman bækur sínar og
heyra sjónarmið annarra sem
starfa að þessum málum.“
- Hvað hefur þú sótt þessar
ráðstefnur oft og finnst þér þessi
öðruvísi en hinar fyrri?
„Ég hef sótt þessar ráðstefnur í
25 ár. Fyrst sem nemandi við
búvísindadeildina á Hvanneyri
og síðar sem ráðunautur. Mér
virðist ráðstefnan í ár vera mjög
hefðbundin. Oft hafa þessar ráð-
stefnur snúist um eitt þema en nú
er rætt um fjögur atriði. Auðvit-
að ber þar sauðfjárræktin hæst
því þar er vandinn mestur.
Umræðurnar hafa verið athyglis-
verðar þótt ekkert alveg nýtt hafi
hér komið fram. Menn virðast
vera raunsæir og gera sér grein
fyrir því hve alvarlegt ástandið
er.“
- Hvað starfa margir ráðu-
nautar hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar og hver eru ykkar
helstu verkefni núna?
„Nú starfa fjórir ráðunautar
hjá búnaðarsambandinu, þar af
einn sem framkvæmdastjóri. Mitt
sérsvið er sauðfjárbúskapurinn
og kartöflurækt. Annars eru
svona héraðsráðunautar yfirleitt
ekki mjög sérhæfðir þannig að
við tökum að okkur ýmis verk-
efni.
Það sem nú er helst á dag-
skránni hjá okkur í Eyjafirðinum
er loðdýraræktin og fræðsla í
kringum hana. Einnig er bænda-
bókhaldið að verða stærri og
stærri þáttur í okkar starfsemi.
Starfsemin undanfarin ár hefur
verið mjög mikið í kringum fram-
leiðslustýringuna og það verk
hefur lent mikið á búnaðarráðu-
nautunum. Bændur hafa leitað
mikið til okkar um hvaða mögu-
leika þeir hafa í þessum efnum,
en það er nú að hægjast um á því
sviði og málin komin í nokkuð
fastar skorður.
Nú getum við snúið okkur að
þeim miklu möguleikum sem eru
að opnast í tölvuvæðingu í sam-
bandi við bókhald og búreikn-
inga almennt. Þetta á eftir að
breyta starfi búnaðarráðunauta
töluvert á komandi árum. Hér á
ráðstefnunni hafa verið kynntir
möguleikar á því að við verðum í
beintengingu við höfuðstöðvar
búnaðarfélagsins í Reykjavík og
það mun að sjálfsögðu auðvelda
alla upplýsingasöfnun. Einnig
getum við þá komist í samband
við önnur búnaðarfélög um allt
land og skipst á markverðum
upplýsingum.
Bændur eru yfirleitt mjög vilj-
ugir að hafa samstarf við okkur
og fá upplýsingar og leiðbeining-
ar frá okkur. Það er hins vegar
alltaf einhver hópur sem ekki
hefur frumkvæði að ná til okkar
og það er vilji hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar að ná til þessa
hóps. Það hefur verið rætt að við
heimsækjum bændur oftar og
heyrum í þeim hljóðið. Einnig
hafa verið uppi hugmyndir um að
halda 2-3 daga fræðslunámskeið
með bændum um einhver
afmörkuð verkefni t.d. fóðrun
nautgripa. Þetta eru nú bara hug-
myndir og ekkert hefur verið
ákveðið ennþá í þessum efnum.“
Ólafur G. Vagnsson ráðunautur
Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
þakka þér kærlega fyrir spjallið.
AP
Búnaðarráðunautarnir úr Húnavatnssýsluni. F.v. Gunnar Þórarinsson, Aðalbjörn Bcnediktsson, Guðbjartur Guð-
inundsson og Jón H. Sigurðsson.
AKUREYRARB/ÍR
EUgl Strætisvagnar
3!» Akureyrar
Frá og með þriðjud. 1. mars verður hætt að aka
leið 6, Glerárhverfi - Brekka, um Hlíðarbraut.
Farþegum í Glerárhverfi er bent á leiðir 3 og
4, og farþegum á Brekkunni er bent á leiðir 1
°g 2.
Skólavagn kl. 7.50 í Glerárhverfi verður áfram á
sama tíma og verið hefur.
Nánari upplýsingar í síma 24929.
Forstöðumaður.
Framsóknarvist
Þriggja kvölda keppni.
Fyrsta spilakvöldið verður þriðjudaginn 23.
febrúar að Hótel KEA og hefst kl. 20.30.
Veglegir vinningar. Góð kvöldverðlaun.
Allir velkomnir.
FRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAR.
Blönduós
Staða húsvarðar við félagsheimilið á
Blönduósi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. mars.
Upplýsingar gefur formaður rekstrarnefndar Sturla
Þórðarson símar 95-4356 og 95-4357.
Sterkstraums-
tæknifræðingur
óskast til starfa, sem fyrst.
Um er að ræða fjölbreytt starf á sviði hönnunar og
ráðgjafar.
ij QTQ-fil Óseyri2 Simi 96-26122
Vri 600Akureyri
Atvinna óskast.
Tuttugu og átta ára maður óskar eftir
atvinnu á Akureyri eða nágrenni.
Hefur verslunarpróf og 10 ára starfsreynslu.
Góð meðmæli.
Upplýsingar í síma 91-72550.