Dagur - 23.02.1988, Síða 15

Dagur - 23.02.1988, Síða 15
23 'febrúar <1988 ^ ÐAGDR^ 15 fþróttir Skíöaganga: Haukur og Stella sigursæl í Ólafsfirði - sigruðu í tveimur mótum um helgina Skíðamcnn fjölmenntu í Ólafs- fjörð um helgina en þar fóru fram tvö mót í skíðagöngu. Á laugardag fór fram Visa-bikar- mót SKI en á sunnudag svo- kallað útsláttarmót. Haukur Eiríksson frá Akureyri og Stella Hjaltadóttir frá Isafirði, voru sigursælust keppenda en þau sigruðu í sínum flokkum í báðum mótunum. Veður var gott báða keppnisdagana og aðstæður allar mjög góðar. Visa-bikarmótið var minning- armót um Kristin Stefánsson og var að þessu sinni haldið í 20. sinn. Keppt var í þremur flokkum, tveimur karlaflokkum og einum flokki kvenna. Úrslit urðu þessi: Karlar 20 ára og eldri, 15 km: 1. Haukur Eiríksson A 45:49 2. Sigurgeir Svavarsson Ó 48:08 3. Ólafur Valsson S 49:03 Piltar 17-19 ára, 10 km: 1. Baldur Hermannsson S 34:08 2. Guðmundur Óskarss. Ó 35:50 Konur 16 ára og eldri, 5 km: 1. Stella Hjaltadóttirí 22:40 2. Lena Rós Matthíasd. Ó 27:45 Á sunnudaginn var síðan keppt í mjög skemmtilegu móti sem var með útsláttarfyrirkomu- lagi. Gengið var í kringum skól- ana í Ólafsfirði. Mikill fjöldi fólks fylgdist með keppninni o§ var stemmningin mjög góð. í karlaflokki, 15 ára og eldri, kepptu 15 göngumenn og var þeim skipt í fjóra hópa. Síðasti maðurinn í hverjum hópi féll allt- af úr leik. Eftir fjóra spretti hjá hverjum hópi, voru fjórir kepp- endur eftir og þeir kepptu til úr- slita. Hver sprettur var 1,5 km, þannig að þeir sem komust í úr- slit, gengu 5 sinnum 1,5 km. Úr- slit urðu þessi: 1. Haukur Eiríksson A 2. Baldur Hermannsson S 3. Ólafur Björnsson Ó 4. Rögnvaldur Ingþórsson í Á sama hátt var keppt í stúlknaflokki og voru keppend- urnir á aldrinum 12 til 20 ára. Vegalengdin var 1 km og var hún gengin tvisvar sinnum. Úrslit urðu þessi: 1. Stella Hjaltadóttir í 2. Lena Rós Matthíasdóttir Ó Staðan 2. deild kvenna Úrslit leikja uni og fyrir helg- ina í 2. deild kvenna í hand- bolta urðu þessi: IBV-HK Þór-UMFA UBK-ÍBK Þór-UMFA 21:7 32:14 19:23 32:13 Staðan í deildinni er þessi: Þór 15 12-0- 3 353:234 24 ÍBV 13 11-1- 1 267:206 23 Grótta 12 8-0- 4 254:208 16 ÍBK 13 6-2- 5 257:248 14 UBK 13 2-2- 9 231:164 6 UMFA 11 2-1- 8 152:230 5 HK 13 1-0-12162:266 2 3. Eyrún Ingólfsdóttir í 4. Thelma Matthíasdóttir Ó Loks var keppt í flokki drengja 10-14 ára og var vegalengdin sem gengin var sú sama og hjá stelp- unum, eða 1 km. Úrslit urðu þessi: 1. Kristján Hauksson Ó 2. -3. Sigurður Helgason A 2.-3. Kári Jóhannesson A 4. Steingrímur Þorgeirsson A Það verður einnig mikið um að vera í Ólafsfirði um næstu helgi en þá fer þar fram Visa-bikarmót í alpagreinum í flokki ungliriga 15-16 ára. Haukur Eiríksson sigraði í tveimur göngumótuin í Ólafsfiröi um helgina. Mynd: KK Bikarkeppni SKÍ í flokki unglinga 13-14 ára: Einvígi Höipu og Sigríðar - Harpa sigraði í stórsvigi en Sigríður í svigi Visa-bikarmót SKI í alpagrein- um í flokki unglinga 13-14 ára Eggert Óskarsson frá Ólafs- firði sigraði í svigi drengja og Fjórar efstu stúlkurnar í svigi. F.v. Eva Jónasdóttir, Linda B. I'álsdóttir, Sigríöur L. Sigurpálsdóttir og Harpa Hauksdóttir. Ólafur Þ. Hall frá ísafirði í stór- svigi. Annars varð röð efstu manna þessi: Stórsvig drengja: 1. Eggert Óskarsson Ó 98:34 2. Jóhann B. Gunnarsson í 98:57 3. Ásþór Sigurðsson S 99:09 Stórsvig stúlkna: 1. Harpa Hauksdóttir A 100:27 2. Sigríður L. Siguröard. í 100:40 3. Linda B. Pálsdóttir A 103:53 Svig drengja: 1. Ólafur Þ. Hall S . 80:63 2. Ásþór Sigurðsson S 81:25 3. Jóhann B. Gunnarsson í 83:24 Svig stúlkna: 1. Sigríður L. Sigurðard. í 76:55 2. Harpa Hauksdóttir A 77:49 3. Linda B. Pálsdóttir A 78:21 fór fram í Böggvisstaðafjalli við Dalvík uin helgina. Alls mættu um 90 keppendur til leiks víðs vegar af landinu. Mótið fór nijög vel fram enda veður bjart báða keppnisdag- ana og skíðafærið gott. Akureyringar sem hafa jafnan verið mjög atkvæðamiklir á skíðamótum, urðu að gera sér ein gullverðlaun að góðu að þessu sinni. Harpa Hauksdóttir sigraði í stórsvigi og varð í 2. sæti í svigi. Hún háði mikið einvígi við Sigríði L. Sigurðardóttur frá ísafirði sem sigraði í svigi og varð önnur í stórsvigi. Eggert Oskarsson sigraði í stórsvigi á Dalvík. Körfubolti: Tindastóll í 2. sæti - á fjölliðamóti KR sigraði með yfirburðum í síðasta fjölliðamóti b-riðils íslandsmóts 3. flokks, sem fram fór á Sauðárkróki á laug- ardaginn. Tindastóll varð í öðru sæti, Mímir frá Lauga- vatni í þriðja og Þór rak lest- ina. Úrslit einstakra leikja urðu þessi: KR-Mímir 68:62 Tindastóll-Þór 74:58 Tindastóll-KR 44:96 KR-Þór 83:44 Mímir-Þór 68:52 Tindastóll-Mímir 76:66 Þetta var besti árangur Tinda- stóls í keppninni í vetur en hins vegar sá lakasti hjá Þórsurum. Guðbjartur Haraldsson var einna atkvæðamestur hjá Tindastól skoraði 58 stig. Örn Sölvi Hall- dórsson 39 og þeir Atli Sveins- son, Pétur Vopni Sigurðsson og Sigurður Levý litlu minna. Héð- inn Sigurðsson skoraði langmest fyrir Þór, 72 stig. -þá Pétur Vopni Sigurðsson skorar fyrir UMFT í leiknum gegn Þór. Mynd: -þá England: Man. City dróst gegn Liverpool - í 6. umferö FA- bikarsins - Arsenal fær Nott. Forest í heimsókn í gær var dregið um það hvaða liö leiki saman í 6. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Manchester City sem er eina liðiö úr 2. deild sem eftir er í keppninni, fær Liverpool í heimsókn á Maine Koad í Manchester. Liverpool sló Everton úr keppninni eins og sjónvarps- áhorfendur urðu vitni að í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudag. Arsenal sem sló Man.United úr bikarnum á laugardag, fær Nottingham Forest í heimsókn. Q.P.R og Luton gerðu jafntefli á heitna- velli Q.P.R. á laugardag og þurfa því að mætast öðru sinni og þá á heimavelli Luton. Lið- ið sem sigrar í þeirri viðureign fær síöan Portsmouth í heim- sókn í 6. umferð. Port Vale sem leikur í 3. deild gerði jafn- tefli við Watford á laugardag og liöin mætast því aftur á heimavelli Watford. Liðið sem vinnur þann leik sækir Wimbledon heim. Leikirnir í 6. umferð fara fram 12. og 13. mars og þá kemur í Ijós hvaða lið komast í undanúrslit keppninnar. Handbolti: Völsungar leika gegn KA og Þór Eins og kom fram í blaðinu fyrir skömrnu, komust yngri ilokkar Völsungs ekki til Akureyrar, þegar önnur túrn- eringin af þremur í Norður- landsriðlinum í handbolta fór fram. Ófært var frá Húsavík og því sátu Völsungar heima. Þeir ætla að mæta til Akur- eyrar með lið sín í kvöld og annað kvöld og leika frestuðu lcikina gegn KA og Þór. í kvöld verður leikið í íþrótta- húsi Glerárskóla en annað' kvöld í Skemmunni. Niður- röðun leikjanna er þessi: Þriðjudagur Glerárskóli: Kl. 18.00 KA-Völsungur 5. fl. ka. Kl. 18.35 KA-Völsungur 4.11. kv. Kl. 19.15 KA-Völsungur 3. fl. kv. Kl. 20.05 Þór-Völsungur 5. fl. ka. Kl. 20.45 Þór-Völsungur 4. fl. kv. Kl. 21.25 Þór-Völsungur 3. fl. kv. Miðvikudagur Skemman: Kl. 18.00 KA-Völsungur 4.11. ka. Kl. 18.45 KA-Völsungur3.11. ka. Kl. 19.30 Þór-Völsungur 4. fl. ka. Kl. 20.15 Þór Völsungur3. fl. ka. Þriðja og síðasta túrnering- in í Norðurlandsriðli sem fram átti að fara á Húsavík um næstu hclgi, hefur nú verið frestað um viku og fer fram helgina 5. og 6. mars.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.