Dagur - 01.03.1988, Blaðsíða 9

Dagur - 01.03.1988, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - 1. mars 1988 1. mars 1988 - DAGUR - 9 - Dagur heimsækir „flugdellukalla“ sem eyða þúsundum klukkustunda ✓ • ’S. 1 i • rrt t , y • Kristján í flugmannssætinu og i aö gera viö skemmda svimugu og gamlan dvrgnp v»ir ís«tin«»ndaM O O J O iT tilbúnir til flugtaks. Talsvert er þangað til vélin verður tilbúin. Myndir: TLV Hvar liggja skilin á milli þess að hafa áhuga á einhverju og hins að vera með dellu? Þessu er auðvitað ekki gott að svara. Sennilega má þó draga þetta saman í það að áhugi sé orð- inn að dellu þegar mestallur frítími viðkomandi fer í það að sinna áhugamálinu, eða dellunni. Þeir sem úrskurðað- ir eru með einkenni „dellu“ eru gjarnan kallaðir „dellu- kallar“. Þetta nafn getur með góðu móti aðeins átt við karl- menn og líklega er ástæða þess að sambærileg nafngift þekkist ekki fyrir kvenfólk sú, að karlmönnum er hættara við að taka „bakteríuna“. Bíladella, frímerkjadella, íþróttadella, bókadella, flug- della og hestadella. Allt eru þetta vel þekktir „sjúkdóm- ar“. Ef til vill eru þessi dellu- nöfn öll orðin nokkuð ofnot- uð í íslensku máli. A.m.k. virðist oft ekki þurfa mikið til að menn fái á sig eitt slíkt. Peirri spurningu er í það minnsta alltaf jafn erfitt að svara hvenær menn eru orðnir dellukallar. í flugskýlum inni á Akureyr- arflugvelli hitti blaðamaður nýlega þrjá menn sem verða að teljast illa haldnir af flug- dellu. Snæbjörn Erlendsson formaður Svifflugfélags Akur- eyrar vinnur að því um kvöld og helgar að gera við svifflugu sem fyrir nokkrum árum skemmdist verulega og í öðru húsnæði ætla þeir Kristján Víkingsson og Víðir Gíslason að gera upp dýrgrip að nafni „Tiger moth“ sem þeir keyptu nýlega. „Ætla að gera hana betri en nýja“ - segir Snæbjörn Erlendsson formaður Svifflugfélags Akureyrar um kennsluvél sem hann er að gera upp í „félagsheimili“ svifflug- manna á Akureyri, syðst í röð bygginga á Akureyrarflugvelli, er Snæbjörn nokkur Erlends- son trésmiður og formaður Svifflugfélagsins að vinna að endursmíði svifflugu sem félagið á. Um er að ræða tveggja sæta kennsluvél sem keypt var til Akureyrar árið 1962 til að leysa aðra eldri og þyngri af hólmi. Vélin er þýsk, af gerðinni Rhönlerche. Rhön er hérað í Pýskalandi en lerche þýðir lævirki á þarlendri tungu. Hjá sömu verksmiðju hafa verið smíðaðar vélar með nafninu Rhönadler (Örn) og fleiri fugla- nöfnum. Hjá félögum svifflugfé- lagsins hefur vélin aldrei verið kölluð annað en Lerkið, þó svo að skrokkurinn sé úr stálrörum, klæddur með léreftsdúk en væng- irnir séu úr furu og klæddir lér- eftsdúk. „Petta er búið að vera alveg ótrúlega mikið happatæki. Hún er svo þæg og hrekklaus og það er alveg ótrúlegt hvernig hún hlýðir mönnum sem vita kannski misvel hvað þeir eru að gera. Hún er ekki viðkvæm fyrir smá yfirsjónum svo sem slæmum lendingum," segir Snæbjörn um Lerkið. Þetta korn þó ekki í veg fyrir það að vélin stórskemmdist í slæmu veðri í nóvember 1983. Vélinni hafði þá um haustið verið flogið í bæinn framan af Mel- gerðismelum, þar sem svifflug- menn hafa aðstöðu sína. Þann 12. nóvember var svo ætlunin að draga vélina frameftir aftur, en skömmu áður en átti að leggja af stað, gerði vindhviða sér lítið fyr- ir og þeytti vélinni hálfa leið upp á þak félagsheimilisins. Par lá hún á bakinu eins og afvelta skepna, með vinstri vænginn brotinn. „Það var alveg ótrúlegt að sjá hana takast allt í einu á loft og upp á þakið,“ segir Víðir Gísla- son sem varð vitni að atvikinu. Vélinni hefur verið flogið í um 7.400 flug og flestir félagar Svif- flugfélagsins hafa numið fluglist- ina á gripinn. Vélin var helsta kennsluvél félagsins í 21 ár eða frá því að hún var keypt og þang- að til óhappið varð. Það var ein- mitt Snæbjörn sem flaug vélinni framan af Melgerðismelum, í síð- asta fluginu. Flugið var númer 1699 í röðinni hjá honum en það er sama talan og númerið á flug- skírteininu hans. Snæbjörn ætlar sér að fara í fyrsta flugið eftir við- gerð vélarinnar og tengja þannig saman fyrra og síðara skeiðið í flugsögu TF-SBE. í Svifflugfélagi Akureyrar eru nú um 50 félagar og segir Snæ- björn þá gjarnan mega vera fleiri. A veturna er félagsstarfið einkum fólgið í viðgerðum og viðhaldi á vélum félagsins sem nú eru fimm talsins. Viðgerðin á Svona lítur svifflugan hins vegar út í heilu lagi. Myndina tók Gylfl Magnús- son á Melgerðismelum. ar- og hliðarstýri. Að sögn kunn- ugra er um algjöra „tannstöngla- vinnu“ að ræða en Snæbjörn segir: „Ég ætla helst að gera hana betri en nýja.“ Aðspurður hvort hann ætli að fljúga vélinni í sumar, segir hann að til þess þurfi hann að skrópa alveg í vinnunni eða lengja sólarhringinn því í verkið fari a.m.k. 1000 klukkustundir. „Ætli ég reyni ekki að ljúka þessu vorið 1989 og fljúga henni þá um sumarið,“ segir hann. Mynd: Árni Magnússon. HHHHHHHHIHHHBHIi TF-SBE hálf uppi á þaki félagsheimilisins 12. nóvember 1983. Snæbjörn Erlendsson við vængbrotið. „lerkinu" hófst í desember síð- astliðnum, fjórum árum eftir „slysið“. Mesta vinnan er fólgin í því að skeyta saman aðal burðar- bitann í vængnum en hann kurl- aðist í sundur eins og myndirnar sýna glögglega. Þarna er að sögn kunnugra um mikið vandaverk að ræða. Bitinn verður að halda upphaflegum styrkleika sínum og gæta verður þess að ekki komi á hann neinn vindingur. Auk þessa er talsverð vinna fólgin í að yfir- fara alla aðra hluta svo sem hæð- dregill alveg út á flugbraut“ - þegar Víðir Gíslason og Kristján Víkingsson hafa lokið við að gera upp dýrgrip að nafni Tiger Moth Innan um spegilgljáandi vél- ar í hinu nýja flugskýli Vél- flugfélags Akureyrar er ein sem muna má fifíl sinn fegri. Vélin er af gerðinni De Havil- land Tiger Moth og hún er í eigu þeirra Kristjáns Víkings- sonar og Víðis Gíslasonar. „Þetta er dýrgripur. Sjáðu Iínurnar maður,“ segir Krist- ján án þess að blikna, þar sem hann heldur á rifnu og óásjá- legu stéli vélarinnar. Kristján hefur lengi verið veikur fyrir þessum vélum og á meðal ann- ar flugmódel af þessari gerð. Styttra er síðan Víðir fékk dell- una fyrir „Motharanum“. í tímaritinu FLUGsagan þar sem fjallað er um Tigermothana segir að alls hafi þeir verið 7 tals- ins sem til íandsins komu skömmu eftir stríð. Vélarnar voru keyptar frá Kanada þar sem breski flugherinn notaði þær við þjálfun flugmanna. „Margir eiga um hana góðar endurminningar og vildu nú muna fífil hennar fegri, en því miður voru menn ekki svo fram- sýnir hér fyrrum. Enginn Tiger- moth er nú til hérlendis iengur utan einn sem enginn veit hver á og enginn þorir að snerta við,“ segir í inngangi áðurnefndrar greinar. Þetta eintak sem enginn þorði að snerta við liggur nú í pörtum í flugskýlinu nýja og bíð- ur þess að þeir félagar taki til hendinni. TF-KBD var skrásett á íslandi TF-KBD. Myndinu tók Snorri Snorrason árið 1945. I baksýn má meðal annars sjá Landspítalann. „Sjáðu línurnar maður“ segir Kristján þar sem hann heldur á stélinu. árið 1945 eins og flestar vélanna sjö. Kaupandinn var flugskólinn Cumulus sem Jóhannes Snorra- son, Magnús Guðmundsson og Smári Karlsson áttu og ráku. I þeim skóla hófu margir af núver- andi flugstjórum Flugleiða feril sinn þannig að líklega er óhætt að taka undir orðin hér á undan með að margir eigi um vélina góðar minningar. „Upp úr 1960 var litið á þessar vélar sem algjört drasl og það hafði enginn maður áhuga á að eiga þetta. Vélarnar voru notað- ar hjá slökkviliðinu á Reykjavík- urflugvelli til að æfa sig á og ég veit til þess að þegar flugvöllur- inn var stækkaður þá voru ein- hverjar leifar þeirra notaðar í uppfyllingu undir flugbrautir,“ segir Víðir og hugsar sjálfsagt með hryllingi til þess ef farið hefði eins fyrir þeirri einu sem eftir er, TF-KBD. Eftir að vélin var afskráð árið 1955 var hún geymd í Reykjavík og síðan í skýli Svifflugfélags íslands á Sandskeiði. Þaðan fór hún svo aftur tii Reykjavíkur þar sem inargir hafa falast eftir henni nú á tímum söfnunaráráttu. Eig- andinn hefur hins vegar ekki vilj- að láta hana fyrr en hann lét und- an þeim Kristjáni og Víði. Vélin var jólagjöf þeirra félaga því þeir greiddu hana á aðfangadag. Verðið er leyndarmál. „Það þarf að yfirfara hvert ein- asta stykki í henni. Mótorinn er alveg í tætlum og við ætlum ekki að reyna að gera hann upp heldur fá einn nýuppgerðan frá Bret- landi,“ segir Víðir. Skrokkinn segir hann hins vegar vera í all- góðu ástandi. í honum er stál- grind klædd með striga en í vængjunum er grindin úr timbri. Vélin er tvíþekja og eru vængirn- ir stagaðir saman með stálvírum. Hönnun þessi mun vera frá því um 1931 cn vélin er smíðuð árið 1942. Til þess m.a. að eiga auðveld- ara með að nálgast varahluti í gripinn hafa þeir Kristján og Víð- ir gerst félagar í breskum klúbbi áhugamanna um Moth-vélarnar. Klúbburinn heldur árlega svo kallaða „flugkomu" þar sem menn hittast íklæddir föturn frá þessum „gullárum", og spjalla um þetta helsta áhugamál sitt. í heiminum eru nú líklega um 800 eintök af vélinni, þar af um 250 í flughæfu ástandi. Aðspurður hvort ætlunin væri að fljúga gripnum eða bara hafa hann upp á punt segir Víðir að svo sannarlega eigi að fljúga honum. „Það er ekkert gaman að þessu öðruvísi," segir hann. Gera má ráð fyrir að 2000 klukkustundir fari í viðgerð á vél- inni. Kannski er rétt að tala um smíði á vélinni því taka þarf hvert einasta stykki fyrir eins og Víðir sagði. Stefnan hefur verið sett á að ljúka verkinu árið 1992, á fimmtíu ára afmæli vélarinnar. „Það verður lagður rauður dregill alveg út á flugbraut," segir Kristján og horfir dreymandi augum út í loftið, hugsandi um það að svífa um loftin blá í þess- ari glæsilegu vél, hlusta á vindinn hvína í stálvírum vængjanna og horfa með viðeigandi lítilsvirð- ingu niður á nýlegar vélar sem klæddar eru með venjulegum álplötum og aka um á nefhjóli. ET

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.