Dagur - 18.04.1988, Side 2
2 - DAGUR - 18. apríl 1988
Yonskuveður í vetrariok
Mikil snjókoma var á Norðurlandi fyrir helgina og áttu margir
í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar hvort sem þeir voru
akandi eða gangandi. Mikill snjór er nú hér á Norðurlandi og
hreint ekki sumarlegt þó að sumardagurinn fyrsti sé á næsta
leiti. Guðmundur Brynjarsson ljósmyndari var á ferðinni á
Akureyri fyrir helgina og tók þá þessar myndir.
Fólk hvatt til að snið-
ganga vörur frá S-Afríku
Miðstjórn Alþýðusambands
íslands hefur skorað á innflytj-
endur að flytja ekki inn vörur
frá Suður-Afríku vegna
aðskilnaðarstefnu stjórnvalda
þar. Þá er þingsályktunartil-
laga Alþýðubandalagsins um
viðskiptabann á Suður-Afríku
til umfjöllunar hjá utanríkis-
málanefnd.
Reynslan af tilmælum Alþingis
og verkalýðshreyfingarinnar um
að sniðganga vörur frá Suður-
Afríku er sú að fyrst eftir að þeim
var komið á framfæri dró úr við-
skiptum við Suður-Afríku en síð-
an hefur innflutningur á þarlend-
um vörum aukist á ný. í verslun-
um á Akureyri má t.d. sjá mikið
úrval af niðursuðuvörum frá Suð-
ur-Afríku undir merkjunum Del
Monte og Gold Reef.
Nú hefur komið í ljós að fersk-
ir ávextir sem eru á boðstólum í
verslunum konta að töluverðu
leyti frá Suður-Afríku, t.a.m.
bróðurparturinn af vínberjum.
Þeir heildsalar sem rætt var við
sögðu að það væri ekki hægt að fá
vínber frá öðrum löndum en Suð-
ur-Afríku og þeir sögðust ekki
telja að það myndi vekja lukku
hjá neytendum ef þeir gætu ekki
keypt vínber á frjálsum markaöi.
Einn þeirra tók svo til orða að
vissulega væri fólk kúgað í Suð-
ur-Afríku og það ætti ekki að
líðast, en misrétti viðgengist í
fleiri löndum og ef viðskiptabann
yröi sett á Suður-Afríku væri þá
ekki eðlilegt að taka fyrir inn-
flutning frá fleiri löndum? SS
I verslunum á Akureyri er mikið úrval af niðursuðuvörum undir vörumerkj-
unum Del Monte og Gold Reef. Þessar vörur koma frá Suður-Afríku.
Mynd: GB
Öryggisbúnaður dráttarvéla:
Veltigrindur skilyrði
Hér eftir skulu allar dráttarvélar búnar öryggishúsum eða öryggisgrindum.
Aðalfundur FEN:
Söluaukning í nautakjöti
og betri birgðastaða
í ársbyrjun 1987 gekk í gildi
reglugerð þar sem kröfur til
öryggisbúnaöar dráttarvéla
voru hertar. Þar var gefinn
frestur til að búa elstu vélarnar
öryggishúsi eða öryggisgrind.
Síðar var hann framlengdur en
rann út þann 15. þessa mánað-
ar.
Meginreglan sem nú kemur til
framkvæmda er sú að frá 15.
apríl skulu allar dráttarvélar sem
eru í venjulegri notkun vera með
öryggishúsi eða öryggisgrind með
þaki. Fram að þeim tíma voru í
gildi bráðabirgðaákvæði í áður-
nefndri reglugerð sem sett voru
m.a. til að gefa bændum og öðr-
um dráttafvélaeigendum frest til
að meta hvort hagkvæmara væri
að búa gamla vél þannig að hún
fullnægði kröfum reglugerðarinn-
ar eða taka hana úr umferð og fá
sér nýja.
Kröfur unt öryggi verða nokk-
uð vægari til dráttarvéla sem voru
seldar eða afhentar fyrir 1. janú-
ar 1966 og segir í reglugerðinni
að þær skuli vera búnar öryggis-
grind eða veltiboga sem Vinnu-
eftirlit ríkisins viðurkennir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnueftirliti ríkisins hafa að
jafnaði orðið 2-3 dauðaslys við
landbúnaðarstörf ár hvert síðan
1970. Þar af urðu 25 slys við
dráttarvélar eða driftmnað
þeirra, langflest vegna veltu vélar
án öryggishúss eða öryggisgrind-
ar. Tólf þeirra sem létust í þess-
um slysum voru innan við 16 ára
aldur og ætti það að minna á
nauðsyn þess að vanbúnar vélar
verði teknar úr umferð eða
öryggisbúnaður verði gerður full-
nægjandi. JÓH
Aðalfundur FEN, Félags ey-
firskra nautgripabænda, var
haldinn 6. apríl í Hlíðarbæ. Að
sögn Odds Gunnarssonar, for-
manns féiagsins, var aðallcga
rætt um sölu nautgripakjöts,
en hún hefur vaxið nokkuð, og
birgðastaða sláturlcyfishafa
hefur batnað.
Oddur sagði að á síðasta ári
hefðu miklar birgðir verið til af
nautakjöti í landinu, en nú hefði
tekist að leysa birgðavandamálið
og í dag væri mjög lítið til af
frystu nautakjöti. Á fundinum
kom fram vilji bænda í þá veru að
framleiðsla og sala nautakjöts
héldust sem mest í hendur svo
komist yrði hjá frystingu UN-
kjöts í stórum stíl.
„Birgðastaðan batnaði, að
hluta vegna þess að nokkuð af
eldra kjöti var selt í refafóður, en
þar fyrir utan jókst sala nauta-
kjöts mikið á síðasta ári. Menn
voru yfirleitt sammála um að
reyna að halda nautakjötsfram-
leiðslu sem mest hjá mjólkur-
framleiðendum á þeirri forsendu
að þeim veitti ekki af eftir að
20% samdráttur varð í mjólkur-
framleiðslu eftir að framleiðslu-
stjórnun tók við. Því ríður á
miklu að sláturleyfishafar standi
sig vel í sölumálum fyrir okkar
hönd,“ sagði Oddur Gunnarsson.
EHB