Dagur - 18.04.1988, Side 3
18. apríl 1988 - DAGUR - 3
Húnavatnssýslur:
Ahugi fyrír tölvu-
fræðslu í skólum
Tölvur eru nú sem óðast að
ryðja sér til rúms á mörgum
sviöum og það að kunna að
fara með þessi undratæki fer
að verða hverjum manni nauð-
syn. Blaðamaður Dags gerði
könnun á hvort tölvufræðsla
væri í gangi í grunnskólum í
Húnavatnssýslum. Ovíða
reyndist hún vera komin í gang
að nokkru marki en auðheyrt
var á skólamönnum að áhugi
er fyrir því að nemendur fái að
njóta þeirrar fræðslu.
í Grunnskólanum á Blönduósi
hefur tölvufræðsla verið valgrein
hjá 9. bekk um nokkurra vikna
skeið og kennari er Raimund B.
Urbschat. Að sögn Eiríks Jóns-
sonar, skólastjóra, hafa um 20%
barnanna í bekknum nýtt sér
þessa fræðslu.
Fyrr í vetur gaf kvenfélagið
Vaka á Blönduósi skólanum 100
þús. krónur sem voru að hluta
notaðar til kaupa á tölvu og einn-
ig voru sett upp segulbönd og há-
talarar í kennslustofurnar.
Prjár tölvur eru nú til í skólan-
um og sumir kennaranna hafa
keypt sér tölvur af gerðinni
Macintosh, sem Radíóbúðin er
með umboð fyrir.
Páll Leo Jónsson, skólastjóri á
Skagaströnd sagði að áhugi væri
fyrir því að koma á tölvufræðslu
við skólann, en ekki væri til fjár-
magn til að leggja í tölvukaup.
Skortur væri á fjármagni til að
kaupa nauðsynlegan búnað fyrir
skólann og þá yrði þetta útund-
an. Hann sagðist vera vel settur
að því leyti að starfandi við skól-
ann væru kennarar sem væru
nokkuð vel að sér í þessum
fræðum.
Ein tölva er til í skólanum á
Skagaströnd.
Ein tölva er einnig til í Húna-
vallaskóla og er hún notuð við
ritvinnslu innan skólans. Tölvu-
fræðsla er þar engin, enda ekki
gott að koma henni við sem val-
grein í aukatímum þar skóla-
aksturinn gerir ókleift að sum
barnanna geti verið lengur í
skólanum en önnur.
Skólarnir á Hvammstanga og
Laugabakka eru með tölvu-
fræðslu sem valgrein í 9.bekk.
Börnin sækja þá fræðslu í héraðs-
skólann á Reykjum í Hrútafirði.
Tvær tölvur eru til í skólanum
á Hvammstanga og fá börnin að
nota þær til að vinna viss verk-
efni. Kennarar í Laugabakka-
skóla hafa fengið tilsögn í notkun
tölvu og mun það koma sér vel
þegar að því kemur að skólinn
eignist tölvur sem notaðar verða
við kennslu.
Guðmundur Pór Ásmundsson,
skólastjóri Laugabakkaskóla,
taldi að þessi mál mæti leysa með
þeim hætti að skólar sameinuðust
um kaup á tölvubíl sem yrði
færður á milli skólanna. Pannig
næðist besta nýtingin á þessum
dýra en nauðsynlega búnaði. fh
Strandaglópar á Sauðárkróki
íslendingar búa í landi rysjóttrar veðráttu. Þetta finna flugfarþegar oft manna best en oft þarf að aflýsa flugi
vegna veðurs á Islandi. Þessir farþegar í flugi Arnarflugs til Siglufjarðar fyrir viku fengu að kenna veðurguðun-
um. Vélin gat ekki lent á Siglufirði en lenti á Sauðárkróki í staðinn og þaðan var snúið aftur til Reykjavíkur.
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarðarbæjar afgreidd:
Grasvöllur stærsta framkvæmdin
- lántökur bæjarsjóðs 2,4 milljónir umfram afborganir lána
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
bæjar fyrir yfirstandandi ár var
afgreidd á fundi bæjarstjórnar
síðastliðinn þriðjudag. Sam-
eiginlegar tekjur bæjarsjóðs
þ.e. skatttekjur eru áætlaðar
75 milljónir kr. og rekstrar-
gjöld eru áætlaöar 73,5 millj-
ónir króna. Mismunur er því
1,5 milljónir sem er 2,1% af
rekstrargjöldum. Sé reiknað til
viðbótar rekstur málaflokka þá
eru heildartekjur 130,6 millj- Reiknað er með að heildar-
ónir kr. og heildarrekstrar- rekstur bæjarsjóðs á árinu 1988
gjöld 129,1 milijónir króna. verði 30% dýrari en heildarrekst-
ur ársins 1987.
Stærsta einstaka framkvæmd á
vegum bæjarins á þessu ári er
gerð grasvallar og er til þess varið
5 milljónum króna. Áf öðrum
liðum má nefna að varið er 1,6
m. kr. í gerð gangstétta, í undir-
byggingu gatna fer 1,3 m. kr., í
fegrunarátak bæjarins er veitt 1,5
m. kr. og í endurnýjun tölvubún-
aðar á bæjarskrifstofum er varið
1,9 m. kr. Heildargjaldfærð fjár-
festing er samtals 13,7 milljónir
króna.
Stærsti liður í eignfærðri fjár-
festingu er bygging sorpbrennslu-
þróar í samvinnu við Dalvíkur-
bæ, Svarfaðardals- og Árskógs-
hrepp. Hlutur Ólafsfjarðarbæjar
er reiknaður 1,2 m. kr. en þróin
verður byggð í sumar. Einnig
verður á árinu varið 3 m. kr. til
nýs íþróttahúss en raunverulega
er um að ræða 1,5 m. kr. framlag
bæjarins á móti framlagi ríkis
samkvæmt fjárlögum. Heildar-
eignfærð fjárfesting á árinu er
áætluð 6,6 milljónir króna.
„Vissulega þurfti að skera nið-
ur til að koma áætlun saman og
raunar er skelfilegt að geta ekki
framkvæmt meira. Pó eru þær
framkvæmdir sem farið verður í á
mörkum okkar getu. Þetta þýðir
að lántökur bæjarsjóðs verða 2,4
milljónir króna umfram afborg-
anir eldri lána en markntið okkar
var að þessir liðir mættust. Um
slíkt hefði einfaldlega ekki verið
að ræða nema að skera allar
framkvæmdir niður og slíkt er að
sjálfsögðu ekki hægt,“ segir Val-
týr Sigurbjarnarson bæjarstjóri í
Olafsfirði. JÓH
Þráinn á Stjömuna
- mun sjá um frétta og dagskrárgerð að norðan
Þráinn Brjánsson hefur verið
ráðinn frétta- og dagskrárgerð-
armaður á Akureyri fyrir
útvarpsstöðina Stjörnuna.
Þráinn var áður starfsmaður á
Hljóðbylgjunni en hefur að
undanförnu starfað hjá
Hljómdeild KEA.
Stjarnan er með aðstöðu á
Hótel Akureyri og þar mun Prá-
inn starfa. Að sögn Ólafs Hauks-
sonar útvarpsstjóra er áætlunin
að Akureyrarmaðurinn starfi
jafnhliða að frétta- og dagskrár-
gerð. AP
Til leigu skrifstofu-
eða verslunarhúnæði
ca. 100 fm í Miðbæ Akureyrar.
Upplýsingar í síma 24646.
/A\MÍ/\L heilSUQÆSLUSTÖÐIN A akubeyri
Hættum að reykja!
Námskeið fyrir reykingafólk, sem vill reyna að
hætta, hefjast brátt á vegum heilsugæslustöðv-
arinnar á Akureyri.
Lysthafendur láti skrá sig í síma: 22311.
Heilsugæslustöðin á Akureyri.
NAMSKEEE)
SELT í GEGNUM SÍMA.
Allir sölumenn nota símann meira og minna við sölustörf sín. En gerum við
okkur grein fyrir því hversu voldugt sölutæki síminn er? Á námskeiðinu er far-
ið í gegnum helstu þætti sem snerta sölumennsku í gegnum síma, bæði þegar
viðskiptavinurinn hringir inn og þegar sölumaðurinn hringir út.
Tími og staður: Hótel KEA, föstudaginn 22. apríl kl. 9.00-12.00 f.h.
ÓSKIPULAGÐI STJÓRNANDINN.
Gott upprifjunarnámskeið fyrir stjórnendur um almenna skipulagningu hinna
daglegu starfa. Komið er inná tímastjórnun, valddreifingu, verkefnaskipt-
ingu, forgangsröðun verkefna o.fl. Námskeiðið er fyrir stjórnendur á öllum
sviðum og stigum stjórnunar.
Tími og staður: Hótel KEA, föstudaginn 22. apríl kl. 13.30-17.00.
Á báðum námskeiðunum er notast við myndbönd, fyrirlestur og verkefna-
vinnslu. Leiðbeinandi er Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðingur og
rekstrarráðgjafi. Bæði þessi námskeið hefur Þorsteinn leiðbeint á vegum
Verslunarráðs íslands í Reykjavík nokkrum sinnum og hafa þau verið mjög
vel sótt.
Þátttaka tilkynnist í símum 91-687115 og 91-687030 fyrir 22. 4. n.k.
Takmörkuð þátttaka.
K
KAUPSTEFNAN
REYKJAVlK HF
SKIPHOLTI 35 • PÓSTHÓLF 8396
SÍMAR 91-687115 OG 91-687039
128 REYKJAVIK