Dagur - 18.04.1988, Blaðsíða 7
18. apríl 1988 - DAGUR - 7
Skíðamót íslands:
Einar og Guðrún H.
sigursælust keppenda
- Einar varð fjórfaldur meistari en Guðrún þrefaldur
- fimm keppendur urðu tvöfaldir meistarar
Alpagreinar
Norðanmenn náðu sér ekki nógu
vel á strik í alpagreinum og urðu
að horfa á eftir titlunum til
Reykjavíkur og ísafjarðar. Dan-
íel Hilmarsson var með besta
tímann eftir fyrri ferðina í stór-
sviginu og flest benti til sigurs
hans. En öllum á óvart og skaust
Ólafur Sigurðsson í fyrsta sætið í
seinni ferðinni en var með 8.
besta tímann eftir fyrri ferðina.
Sigur hans kom þó engum meira
á óvart en honum sjálfum.
Einar Ólafsson frá ísafirði
varð fjórfaldur íslandsmeistari
í göngu á Skíðamóti íslands
sem lauk í Hlíðarfjalli í gær.
Einar sigraði í 30 og 15 km
göngu, í tvíkeppni og þá var
hann í sigursveit ísafjarðar í
3x10 km boðgöngu. Einar
sýndi því og sannaði enn einu
sinni hversu snjall göngumað-
ur hann er.
Guðrún H. Kristjánsdóttir frá
Akureyri gerði einnig mjög góða
hluti á mótinu og varð þrefaldur
Islandsmeistari í alpagreinum.
Hún sigraði í svigi, stórsvigi og
alpatvíkeppni og þá tryggði hún
sér einnig sigur í bikarkeppni
SKÍ með árangri sínum um helg-
ina. Guðrún hefur verið í fremstu
röð í áraraðir en eins og fram
kemur hjá henni í viðtali við
blaðamann Dags annars staðar á
íþróttasíðunni, er hún rétt að
byrja.
Örnólfur Valdimarsson frá
Reykjavík, Ólafur Sigurðsson
frá ísafirði, Ólafur Björnsson frá
Ólafsfirði, Stella Hjaltadóttir frá
ísafirði og Rögnvaldur Ingþórs-
son frá ísafirði, stóðu einnig fyrir
sínu og hlutu tvo íslandsmeist-
aratitla hvert. Örnólfur sigraði í
svigi og alpatvíkeppni, Ólafur
Sigurðsson í stórsvigi og sam-
hliðasvigi, Ólafur Björnsson í
stökki og norrænni tvíkeppni,
Stella í 7,5 km göngu og tví-
keppni og Rögnvaldur í 15 km
göngu og tvíkeppni pilta.
ísfirðingar
hlutu flest
verðlaun
Ísfírðingar hlutu flest jullverð-
laun á Skíðamóti Islands í
Hlíðarfjalli um helgina. Alls
fengu þeir 10 gull en næstir
komu Ólafsfirðingar með 4
gull. Flest verðlaun á mótinu
fengu Akureyringar og ísfirð-
ingar eða 18. Ölafsfirðingar
fengu næst flest verðlaun eða
15 alls.
Annars skiptust verðlaun milli
einstakra bæjarfélaga þannig:
Gull Silfur Brons
Ólafsfjörður
ísafjörður
Akureyri
Siglufjörður
Fljót
Dalvík
Reykjavík
4
10
3
2
0
0
3
7
2
8
1
1
0
0
Guðmundur Sigurjónsson frá
Akureyri náði besta tímanum í
svigi en hann var síðan dæmdur
úr keppni fyrir að sleppa hliði og
Örnólfur Valdimarsson sigraði
þeirri grein. Sá sigur dugði hon-
um einnig til sigurs í alpatví--
keppninni.
í kvennaflokknum sigraði
Guðrún H. örugglega nema í
samhliðasviginu en þar sigraði
Þórdís Hjörleifsdóttir úr Reykja-
vík.
Ganga
Einar Ólafsson var öruggur sigur-
vegari í göngu karla en í göngu
kvenna varð Stella Hjaltadóttir
frá ísafirði hlutskörpust. Hún
sigraði í 7,5 km göngu og í tví-
keppni. í 5 km göngu sigraði hin
unga og efnilega göngustúlka frá
Siglufirði, Hulda Magnúsdóttir
en hún keppti aðeins í einni
grein.
Rögnvaldur Ingþórsson frá
ísafirði sigraði í 15 km göngu og í
tvíkeppni í flokki pilta.
Norræn tvíkeppni
og stökk
Ólafur Björnsson frá Ólafsfirði
sigraði í stökki og norrænni tví-
keppni, sem er stökk og 10 km
ganga. Porvaldur Jónsson sem nú
mætti til leiks að nýju, veitti Ólafi
harða keppni í tvíkeppninni en
varö þó að gera sér 2. sætið að
góðu.
Erlendu gestirnir
settu svip á mótið
Sex erlendir gestir tóku að þessu
sinni þátt í Skíðamóti íslands. í
göngu kepptu Svíarnir Lars
Haland og Anders Larsson og
stóðu þeir sig báðir mjög vel
enda í fremstu röð í sínu heima-
landi. í alpagreinum kepptu fjór-
ir erlendir gestir, tveir frá Júgó-
slavíu og tveir frá Grænlandi og
stóðu þeir einnig fyrir sínu. Frá
Júgóslavíu komu Mocja Desman
og Pavli Cebul en frá Grænlandi
þeir Jakob Lyberth og Ove
Heilmann.
Desman náði bestum tíma í
stórsviginu en hún sleppti hliði í
sviginu. Cebul var með annan
besta tímann í svigi karla en hann
lenti á hálfgerðu slysi í stórsvigs-
keppninni. Erlendu gestirnir
settu skemmtilegan svip a motið,
með hlýlegu viðmóti og drengi-
legri keppni.
móti íslands um helgina.
Mynd: KK
,Eg er mjög
árangurinn
sátt við
í vetur“
- segir Guðrún H. Kristjánsdóttir frá Akureyri
sem varð þrefaldur íslandsmeistari í alpagreinum
Calgary í
Guðrún H. Kristjánsdóttir frá
Akureyri sigraði í svigi, stór-
svigi og alpatvíkeppni kvenna
á skíðalandsmótinu sem lauk í
Hlíðarfjalli í gær. Sigur Guð-
rúnar kemur fæstum á óvart,
enda hefur hún verið einn
fremsti skíðamaður landsins
undanfarin ár og keppti m.a. á
Olympíuleikunum
vetur.
„Það er ekki hægt annað en að
vera ánægð með þennan árangur
en ég ætlaði að bæta sigri í sam-
hliðasviginu við en það tókst
ekki. Maður fer að sjálfsögðu í
mót með það að markmiði að
vinna, annað gengi ekki upp.“
„Ætlaði að ná mér í gull“
- sagði Daníel Hilmarsson frá Dalvík
en hann hefur ákveðið að hætta í landsliðinu
Daníel Hilmarsson frá Dalvík
sem hefur óumdeilanlega verið
fremsti skíðamaður landsins
undanfarin ár, náði ekki að
vinna til gullverðlauna á Skíða-
móti íslands að þessu sinni.
Hann varð annar í stórsvigi,
fjórði í svigi og fjórði í alpa-
tvíkeppni. Þá var hann sleginn
út af Olafi Sigurðssyni frá ísa-
firði í samhliðasvigi en Ólafur
sigraði bæði í þeirri grein og í
stórs vigskeppninni.
„Nei ég er ekki ánægður því ég
ætlaði að ná mér í gull. En það
eru fleiri góðir skíðamenn í dag
og því mun harðari keppni. Mér
fannst ég einnig hafa verið mjög
óheppinn en það þarf einnig
heppni með til að hlutirnir gangi
upp.“
- Hvað með framhaldið hjá
þér?
„Ég hef ákveðið að hætta í
landsliðinu og snúa mér nú að
fjölskyldulífinu. Ég er búinn að
æfa mjög stíft síðustu 3-4 ár og
það er kominn tími til að hægja
á. Ég mun halda áfram að keppa
hér heima og læt það duga. Þá
mun ég einnig snúa mér að þjálf-
un skíðamanna á Dalvík í náinni
framtíð," sagði þessi geðþekki
skíðamaður ennfremur.
- Hvað með árangur þinn í
vetur?
„Ég er mjög sátt við árangur
minn í vetur. Ég varð að vinna
bæði svig og stórsvig á þessu móti
til þess að verða bikarmeistari
SKÍ og það tókst."
- Hvað með framhaldið hjá
þér?
„Nú það er bara að halda áfram
að æfa og keppa á fullu, ég er rétt
að byrja.“
- Hefurðu sett þér eitthvað
ákveðið markmið í framtíðinni?
„Það væri mjög gaman að
komast á heimsmeistarakeppnina
og einnig á næstu ólympíuleika
og ekki síst vegna þess að þessir
síðustu leikar fóru ekki nógu vel
hjá mér.“
- Varð þessi för á ólympíu-
leikana hálfgerð martröð fyrir
Þ'g?
„Já það má segja það. Ég varð
t.d. að láta mér nægja að horfa á
svigkeppnina í beinni útsendingu
í sjónvarpinu vegna veikinda. En
engu að síður var þetta rnikið
ævintýri og ég hefði ekki viljað
missa af því,“ sagði Guðrún.