Dagur


Dagur - 29.04.1988, Qupperneq 1

Dagur - 29.04.1988, Qupperneq 1
71. árgangur Akureyri, föstudagur 29. apríl 1988 81. tölublað Sæver hf. á Ólafsfirði: Gjaldþrot virðist óumflýjanlegt -skuldir nema tugum milljóna og laun hafa ekki verið greidd að fullu Kavíarverksmiðjan Sæver hf. á Ólafsfirði hefur lagt upp laup- ana, um tveimur árum eftir að henni var komið á fót. Skuldir „Þetta er bara svipuð staða og hjá flestum öðrum sveitarfé- lögum. Þau hafa ekki fengið að hækka tekjur sínar til sam- ræmis við kostnaðarhækkanir og því er lausafjárstaðan mjög slæm,“ sagði ísak Ólafsson bæjarstjóri á Siglufírði í sam- tali við Dag. í framhaldi af slæmri stöðu fyrirtækisins nema einhverjum tugum milljóna og eru talsvert umfram eignir. Söluhorfur fyr- ir þetta ár eru allt annað en bæjarsjóðs, hefur bæjarstjóri nú hafið harðar innheimtuaðgerðir gagnvart þeim aðilum sem skulda bæjarsjóði fé. Að sögn ísaks er um að ræða ýmis eldri gjöld. Þyngst vegur ógreitt útsvar fólks sem dvalið hefur í stuttan tíma á Siglufirði en síðan flutt annað. Þessi upphæð nam um áramótin síðustu um 10 milljónum króna. ET góðar og hafa framkvæmda- stjóri og 10 starfsmenn hætt störfum. Laun voru ekki greidd út um síðustu mánaða- mót og við fyrirtækinu virðist ekki blasa annað en gjaldþrot. Skiptar skoðanir eru um það innan stjórnar Sævers hver sé ástæðan fyrir því ástandi sem nú hefur skapast. Sigurður Björns- son segir að þær áætlanir sem Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar gerði fyrir fyrirtækið á sínum tíma hafi algjörlega brugðist. Þá telur hann það hafa haft alvarleg áhrif fyrir Sæver hf. að milli áranna 1985 og 1986 jókst kaví- arframleiðsla K. Jónssonar á Akureyri úr 24 tonnum í 328 tonn. Garðar Guðmundsson stjórn- arformaður Sævers hf. telur vandann fyrst óg fremst felast í of miklu framboði á hrognum. Á síðasta ári sendu Kanadamenn frá sér gífurlegt magn grásleppu- hrogna og með svipuðu framboði nú getur heimsmarkaðurinn auð- veldlega án íslenskra hrogna verið. Sæver hf. er rekið sem almenn- ingshlutafélag. Stærstu hluthaf- arnir eru þó Ólafsfjarðarbær, Kaupfélag Eyfirðinga, Magnús Gamalíelsson hf., Guðmundur Ólafsson hf., Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf. og Iðnþróunar- félag Eyjafjarðar. Hlutafé fyrir- tækisins er 6 milljónir en á síð- asta ári var gerð árangurslaus til- raun til að auka það. Hjá Sæveri eru birgðir af hrognum nú 870 tunnur eða um 87 tonn að verðmæti um 25 millj- ónir króna. Þessi hrogn voru keypt á „kolvitlausu verði“ á síð- ustu vertíð, eftir að SL hvatti mjög til kaupa. „Við höfum ekki alltaf verið hressir með Sölu- arodnun lagmetis," sagði Garðar. Aðalfundur Sævers hf. verður haldinn innan skamms. „Það er best að gera þetta dæmi sem fyrst upp,“ sagði Sigurður aðspurður um það hvort farið verður fram á gjaldþrotaskipti. ET Leikfélag Akureyrar: Leikhús- stjóra- skipti Sunnudaginn 1. maí næst- komandi veröa formleg leik- hússtjóraskipti hjá Leikfé- lagi Akureyrar. Pétur Ein- arsson mun þá afhenda Arnóri Benonýssyni lykil að leikhúsinu og þau völd sem stöðunni fylgja. Pétur sagði í samtali við Dag að hann myndi einnig afhenda Arnóri „Fiðlarann á þakinu“ með ósk um góða aðsókn en Fiðlarinn verður frumsýndur í kvöld. Aðalfundur Leikfélags Akureyrar verður haldinn í næstu viku og þá verða teknar ákvarðanir um mannabreyt- ingar, en nokkrir leikarar eru á förum frá leikfélaginu og aðrir hafa sótt um að koma í þeirra stað. SS Siglufjörður: Ógreidd útsvör 10 milljónir

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.