Dagur - 29.04.1988, Side 15

Dagur - 29.04.1988, Side 15
29. apríl 1988 - DAGUR - 15 ----------------------"Wk Kristinn G. Jóhannsson skrifar Bakþankar mJrnÆ Svo geríst það í fyrradag að einhver hringir heim til mín og spyr konuna mina, sem svar- aði, hvort verið geti að óg sé ennþá í neðri skápunum síðan þama fyrir jólin í hreingerning- unum, þar sem ekkert hafi til mín heyrst síðan. Konan mín var ekki viss svo hún gáði inn í pottaskápinn. En þar voru þá bara hin matarílátin eins og hún sagði þessum ágæta Dagsles- anda í símanum. Aðrir hafa líka spurt mig hvort búið væri að reka mig úr flokknum eða hvort ég hafi móðgað kvenlesendur blaðsins með sóðaskrifum og enn aðrir vilja vita hvort blað- stjórnin hafi bannaö að bak- þankar mínir væru birtir. Nú er engu þessu til að dreifa nema síður sé og ég löngu kominn úr neðri skápunum þótt konan mín hafi ekki tekið eftir þvi sem ekki er von. En þótt ekki væri nú til annars en losa fólk við allar þessar vangaveltur hefi ég nú enn fengið bakþanka. Það er þó með hálfum huga, enda ýmis- legt gengið á hjá okkur fram- sóknarmönnum að undanfömu sem er þess eðiis satt að segja að ég hefi ítrekað fundið hjá mér löngun til að halda bara áfram með neðri skápana. Ég vgr reyndar kominn á fjóra fætur þegar upp kom umræða um viss forstjóraiaun, aftur kominn á hnén vegna fyrirhug- aðrar forsetaheimsóknar til Rússlands og farinn að glamra í kastarholum í þessum sömu skápum þegar við fórum að tala viö PLO-menn án þess að segja nokkuð það sem við vor- um sagðir segja og meintum auðvitað það sem við sögðum ekki en ætluðum að meina ef við hefðum sagt það. Og nú er enn svo komið að óg er alvar- lega að velta því fyrir mór hvort ekki sé rótt að koma sór i skjól. Hvorutveggja er að víð þurf- um nú mjög á einbeitingu að halda til að ákveða hvort ekki er réttast að yfirgefa þessa guðs- fordæmdu ríkisstjórn sem við erum hvort sem er á móti af því að við erum í henni og í öðru lagi er nú rétt einu sinni farið að ræða um bjór á hinu háa Alþlngi. Það hefur aldrei brugð- ist að þegar sá vökvi kemst á borð hjá alþingismönnunum okkar að mörgum þeirra hættir til að verða ákaflega innskeifir, einkum til augnanna, og mál- flutningurinn dálítiö í samræmi við það ekki síst það sem talað er með neðra munnvikinu eins og segir í Ijóðinu góða. Ganga nú rök og mótrök sem hnútur um borð og veisluhöidin öli býsna Goðmundarleg. En allt er þetta vel hugsað og byggt á skynsemi og rökfestu og án til- finningavellu. Þetta kom glögglega fram hjá þingmanninum okkar í sjón- varpinu á dögunum þegar hann sagði að nauðsynlegt væri og sjálfsagt að banna bjór á íslandi vegna þess að Finnar selja hann í matvörubúðum. Svona getur farið fyrir hinum gáfuð- ustu mönnum þegar þeir láta skynsemina ráða. Þegar hór er komið sögu heyri óg út undan mér að einn okkar manna hefur svikið og sent Óla Sig. hjá sjónvarpinu vinnuplöggin okkar um launin hans Bjarts. Ég só þvf þann grænstan að bregða mór aftur í neðri skápana enda er nú farið að minnast á vorhreingemingar hvort sem er. Gleðilegt sumar. Kr, G, Jóh. Við enim klárir! Sumardekkin komin! Með nýjum tækjum á nýuppgerðu hjólbarðaverkstæði okkar bjóðum við okkar bestu þjonustu. Vanir menn - fljót afgreiðsla. Kaupið ekki „köttinn í sekknum“. Kaupið aðeins vönduð merki: Firestone - Michelin - Cooper á frábæru verði. Jafnvægisstillum. Hvítir hringir. Greiðsluskilmálar - Kreditkort. Opið alla daga og um helgar. Nöldursf, Bílaþjónustan, hjólbarðaverkstæði, Tryggvabraut 14, símar 21715 og 23515. Verfcstjórf: Sveinn Bjarmann. V_____________________________________/ r 1 ' ™ , i "V| | “1 1 1 31 * t J 11 * ■ tl ( 1 j i ■00^ & Immé***** ' 06§eé0+ Gulltékki með mynd eykur öryggi þitt, öryggi viðtakanda og öryggi bankans þíns. ím , ía» \ BINAÐARBANKI ISLANDS Frumkvæði - Traust

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.