Dagur - 29.04.1988, Side 17
Stofnun félags til styrktar
Þjóðminjasafni íslands
Nú um þessar mundir stendur
Þjóðminjasafn íslands á
nokkrum tímamótum. Á þessu
ári eru liðin 125 ár frá stofnun
þess og hefur safnið nú loks
fengið allt húsið við Suðurgötu
til umráða en Listasafn íslands
flutti um áramótin úr húsinu
í nýtt húsnæði að Fríkirkju-
vegi 7 í Reykjavík. Hefur
afmælis Þjóðminjasafnsins
verið minnst með ýmsum
hætti, gefinn hefur verið út
bæklingur um sögu safnsins og
er þar einnig fjallað um hlut-
verk safnsins í nútíð og
framtíð, menntamálaráðuneyt-
ið stóð fyrir hátíðarsamkomu í
Háskólabíói 28. febrúar sl. og
nú hefur verið ákveðið að
stofna félag til að styðja
Þjóðminjasafnið í starfi og
vekja skilning á mikilvægi þess
að vel sé búið að safninu.
Nokkur aðdragandi hefur ver-
ið að þessari félagsstofnun, sem
er að frumkvæði nefndar þeirrar,
er menntamálaráðherra skipaði
sl. haust til að vinna að áætlun
um vöxt og viðgang Þjóðminja-
safns íslands til aldamóta. Hald-
inn var undirbúningsstofnfundur
í febrúar, þar sem kosin var
undirbúningsstjórn til að sjá um
hina formlegu stofnun félagsins. í
henni eiga sæti Katrín Fjeldsted
formaður, Ólafur Ragnarsson,
Sverrir Kristinsson, Sigríður Er-
lendsdóttir og Þór Magnússon og
til vara Sverrir Scheving Thor-
steinsson og Guðjón Friðriksson.
Enn hefur félagið ekki hlotið
nafn en hefur það gengið undir
nafninu Þjóðminjafélagið.
Samin hafa verið lög fyrir
félagið en samkvæmt þeim geta
allir orðið félagar, sem stuðla
vilja að því að vekja skilning
stjórnvalda og annarra á mikil-
vægi safnsins í nútímaþjóðfélagi.
Félagið vinnur að því að auka og
bæta tengsl Þjóðminjasafnsins
við alla þætti þjóðlífsins,
stjórnvöld, fyrirtæki, stofnanir og
einstaklinga bæði innanlands og
utan. Þá mun félagið afla safninu
minja og gripa, sem best verða
varðveitt í safninu eða á vegum
þess vegna meinningarsögulegs
gildis. Mun það leita fjáröflunar-
leiða til kaupa á slíkum munum
og til kostnaðarsamra viðgerða á
gripum í eigu safnsins. Félagið
mun einnig afla fjár til sérstakra
rannsóknarverkefna. Það mun
efna til fyrirlestra fræðimanna,
efna til skoðunarferða og verða
Þjóðminjasafninu til aðstoðar við
útvegun farandsýninga frá öðrum
löndum.
Stofnfundur félagsins verður
haldinn í Þjóðminjasafni íslands
við Suðurgötu á krossmessu,
þriðjudaginn 3. maí kl. 17.15
Þannig er allt áhugafólk um
menningarminja velkomið en
einnig getur fólk haft samband
við Þjóðminjasafnið eða ein-
hvern úr undirbúningsstjórn til
að láta skrá sig í félagið. Þeir sem
skrá sig fyrir 3. maí teljast stofn-
félagar. Síminn í Þjóðminjasafni
er 91-28888 og er skrifstofan opin
kl. 8.00-16.00.
Rétt er að geta þess, að hafi
menn hugmyndir að nafni á
félagið þá eru ábendingar vel
þegnar og við þeim er tekið hjá
ofangreindum aðilum.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Húshitunarmál Gerða-
hverfis n í
Sigurður J. Sigurðsson, lör-
maður stjórnar veitustofnana
Akureyrar, gerði tillögu Páls
Hlöðvessonar að umræðuefni
á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Tillaga Páls er á þann veg að
orkukaupendur í þeim
hverfum, sem ekki hafa átt
þess kost að tengjast hitaveitu,
þ.e. íbúar í Gerðahverfi II
njóti sama afsláttar frá Raf-
veitu Akureyrar og Lands-
virkjun veitir frá 1. apríl.
í tillögu Páls segir ennfremur,
að hann leggi til að þegar verði
hafist handa við hönnun hitaveitu
í framangreint hverfi með
ákveðna verkáætlun í huga.
„Rafhitunar R.A. hefur um ára-
bil verið hærri en niðurgreiddir
raforkutaxtar RARIK og Orku-
bús Vestfjarða og enn óx munur-
inn eftir afslátt Landsvirkjunar
sem gildir frá 1. apríl sl. Hitakút-
ar og þilofnar í þessu hverfi eru
þegar farnir að bila og skriða
endurnýjunar í hverfinu er að
fara af stað ef ekki verður ákveð-
ið að leggja hitaveitu í hverfið
mjög fljótlega." Afgreiðslu til-
lögunnar var frestað í veitu-
stjórn.
Sigurður J. sagði m.a. á bæjar-
stjórnarfundinum: „Hugmyndin
á bak við þetta mun vera sú að sá
afsláttur sem Landsvirkjun ákvað
að veita íbúum á svæðum sem
njóta niðurgreiðslu rafmagns-
svæði RARIK og O.V.-lækkun á
sínum töxtum sem nemur 25 aur-
um á kwst. til viðbótar þeim 63
aurum sem er niðurgreiðsla ríkis-
ins. Þessi lækkun Landsvirkjun-
ar, sem tók gildi 1. apríl, tekur
þeim breytingum 1. maí að þessir
deiglunni
25 aurar hækka í 31 evri. Með
þessu verður sú brevting á að
þrátt fyrir hækkun á gjaldskrá
RARIK vegna hækkunar á
gjaldskrá Landsvirkjunar, þá
gerir þessi afsláttur til aðilanna
að þeir búa við óbreytt orkuverð
frá 1. maí að telja.
Ef Rafveita Akureyrar ætlaði
að gera hið sama gagnvart íbúum
Gerðahverfis II væri um að ræða
að rafveitan greiddi orkuverð til
húshitunar niður um 31 eyri.
Núna eru seldar 10 Gwst. í þetta
hverfi árlega sem þýðir 3 milljón-
ir króna í afslátt. I mínum huga
er mikilvægast að íbúar Gerða-
hverfis greiði sama orkuverð og
Akureyringar almennt, og þó að !
það kunni að vera rétt að raforku-:
verð til húshitunar sé ívið hærra
á Akureyri en á RARIK og
O.V.-svæðunum, þá búa íbúar á
Akureyri við lægra orkuverð
gagnvart sínu heimili heldur en
íbúar á framangreindum
svæðum. Eg hef ekki séð að
neinn taxti hjá Rafveitu Akur-
eyrar sé svo lágt reiknaður að
forsvaranlegt sé að hækka hann
til mótvægis við þann afslátt sem
flutningsmaður nefndrar tillögu
gerir ráð fyrir.
Þá ber að benda á að við er.um
í markaðsátaki og íbúar í Gerða-
hverfi II hafa, að eigin frum-
kvæði, hafið könnun á vilja til að
tengjast hitaveitu. Ég fagna
þessu frumkvæði, en þó liggur
hagkvæmni þessa engan veginn
fyrir því hér er um verulega fjár-
festingu að ræða. Stefna bæjarins
og veitustofnana er að hafa sama
orkuverð til húshitunar, hvort
sem um er að ræða kyndingu með
hitaveitu eða rafveitu." EHB
XX
11
Auglýsendur
takið eftir!
Frá og með 1. maí nk. þurfa allar smáauglýsingar, 2ja dálka
auglýsingar og tilkynningar að berast auglýsingadeild
fyrir kl. 11.00 daginn fyrir útgáfudag, en ekki kl. 12.00
eins og verið hefur.
Einnig skal vakin athygli á að skila stórum auglýsingum,
þ.e. 3ja dálka eða stærri fyrir kl. 16.00, tveimur dögum fyrir
útgáfudag.
Auglýsingadeilci DAGS
29«,prí! Ig88.r Ofögjfc. 11,
Aðalfundur
U.M.F. Skriðuhrepps
verður haldinn að Melum laugardaginn 30. apríl kl.
13.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Dorgveiði
í Svartárvatni
Seld verða dorgveiðileyfi næstu daga.
Hvert veiðileyfi kostar kr. 1.000,- og er hámarks-
veiði 25 silungar.
Upplýsingar gefur Tryggvi Harðarson, Svartárkoti,
sími 96-43267.
Úrvalsútsæði
Kartöfluræktenduri
Höfum allar tegundir af úrvalsútsæði til sölu.
Einnig stofnútsæði.
Upplýsingar í símum 96-31339, 96-31183 og 96-31184.
Öngull hf.
V__________________I__________________/
Orlofshús
Frá og með mánudeginum 2. maí 1988 hefst útleiga
á orlofshúsum neðanskráðra félaga.
Húsin eru leigð til viku í senn og ber að greiða
leiguna kr. 6.000.- við pöntun á húsunum.
Þeir félagsmenn sem ekki hafa sótt um hús sl. 3 ár
hafa forgang til 9. maí nk.
Einnig er Félag málmiðnaðarmanna með íbúð í
Reykjavík og verður vikuleigan þar kr. 7.000.-
Iðja, félag verksmiðjufólks,
Skipagötu 14, sími 23621.
Sjómannafélag Eyjafjarðar,
Skipagötu 14, sími 25088.
Félag málmiðnaðarmanna,
Skipagötu 14, sími 26800.
Trésmiðafélag Akureyrar,
Skipagötu 14, sími 22890.
Lærið að fljúga
Flugið er heillandi og skemmtilegt tóm-
stundagaman.
Flugkennslan er nú komin í fullan gang.
Flugskóli Akureyrar
sími 27900 eða (22000).
Nánari upplýsingar veita:
Ármann Sigurðsson, flugkennari, s. 26149.
Gylfi Magnússon, flugkennari, s. 22531.