Dagur - 29.04.1988, Qupperneq 22
22 - DAGUR - 29. apríl 1988
Ég er óskamaður þjóðarinnar
Stebbi má vera óskabarnið...
- Litið inn á tónleika með Sverri Stormsker og Stefáni Hilmarssyni og þeir félagar teknir tali að þeim loknum
Hvernig sem á því stendur hefur mér alltaf þótt
sunnudagar vera fremur leiðinlegir. Dagurinn sjálfur sem
slíkur er svo sum ekkert leiöinlegri en gengur og gerist
meö daga en dapurleg örlög hans má rekja til þess þegar
einhverjum snillingnum datt í hug að á þessum degi hefdi
Drottinn allsherjar lokið við sköpun heimsins. Skyldu því
allir guðhræddir menn nota dag þennan til hvíldar og
tilbeiðslu á áðurnefndan Drottin og það afslíkri andakt að
ekki þótti hæfa að mönnum stykki bros við iðjuna.
Sem sagt, lögboðin leiðindi.
Og íslendingar, sem bæði eru
hamingjusamasta og trúaðasta
þjóð í heimi samkvæmt skoðana-
könnunum, hafa alltaf verið
alveg dásamlega leiðinlegir á
sunnudögum.
Skelfilegasti tími sunnudagsins
er kvöldið. Það er þá sem það
rennur upp fyrir manni að sitt-
hvað fleira hefði átt að fram-
kvæmast um helgina en að
styrkja Ólaf Laufdal. Okkur sem
enn erum í skóla gagntekur
skelfileg tilhugsun um ókláruð
heimaverkefni og vinnandi fólk
geispar og hugsar með hryllingi
til enn einnar vinnuvikunnar. Og
61% af þjóðinni dettur ekkert
betra í hug en að horfa á Ómar
Ragnarsson í bakfallablús.
Sunnudagurinn 17. apríl sór sig
nokkuð í ættina. Þó var tæplega
forsvaranlegt að fýlupokast svo
mjög, sól skein í heiði og náhvítir
Akureyringarnir, þyrstir í góða
veðrið, þustu upp í Hlíðarfjall og
renndu sér hver í kapp við
annan. Þegar degi var síðan tekið
að halla mátti sjá nokkra tugi
manna læðast inn um dyrnar á
Hafnarstræti 100 með það í huga
að hlýða á júróvisjónsveinana
Sverri Stormsker og Stefán Hilm-
arsson. Saman mynda þeir tví-
eyki ársins, Beathoven, sem
þjóðin væntir stórafreka frá í
Dyflinni á írlandi annað kvöld.
En þrátt fyrir þá ást sem
alþýða manna ku hafa á þeim
kumpánum var fjöldi tónleika-
gesta rétt tæplega í meðallagi.
Kannski var því um að kenna að
tónleikarnir voru fremur illa aug-
lýstir en þó held ég að mikið sé til
í því sem félagi minn stakk einu
sinni að mér að íslendingar
tímdu einfaldlega ekki að borga
sig inn á tónleika með innlendum
poppurum (þó ekki hefði verðið,
500 kr., átt að fæla neinn frá),
það væri helst þegar erlendir
„stórpopparar" heimsæktu klak-
ann að landinn tæki við sér.
Ég var sem sagt mættur á tón-
leikana ásamt ljósmyndara rétt
upp úr 10 en af gamalkunnri
íslenskri hefð voru áheyrendur
látnir bíða í röska klukkustund
áður en leikur hófst. Byrjunin
var heldur skrýtin, það vantaði
púða undir rass meistarans,
textastatífið hafði týnst og illa
gekk að fá almennilegt hljóð úr
hljóðnemanum. Sverrir var einn
til að byrja með og flutti nokkur
af eldri lögum sínum. Ekki er þó
hægt að segja að þau lög séu
gömul mjög þar sem einungis
þrjú ár eru síðan fyrsta plata hans
kom út, en pilturinn hefur æ síð-
an verið með endemum afkasta-
mikill, gaf t.a.m. út tvær breið-
skífur á síðasta ári og var önnur
þeirra tvöföld í ofanálag.
Sverrir hefur gaman af því að
stuða fólk, mörg laga hans fjalla
t.d. um þá hluti sem gerast neðan
þindar. Hvort einhver leynd hvöt
liggur þar að baki, eða bara þörf
fyrir að vera fyndinn, veit ég ei
en þó Sverrir megi leita yrkisefna
í brók sinni ef hann vill finnst
mér hann alltaf hnyttnastur þegar
hann stillir fimmauranárabrönd-
urunum í hóf.
Aðall hans hefur þó einmitt
verið textarnir, enda drengurinn
ótrúlega glúrinn f sniðugum
orðaleikjum. Stundum skýtur
hann þó hressilega yfir markið í
útúrsnúningunum, Andskodans
er t.d. á forskólastiginu. Hann er
býsna sleipur lagasmiður og ekki
óvitlaus á píanó eins og tónleika-
gestir fengu að heyra þegar hann
renndi í gegnum nokkur klassísk
lög í bland við poppið.
Söngurinn hefur stundum ver-
ið að þvælast fyrir Stormskerinu
og því hefur hann tekið piltung
úr Sniglabandinu, Stefán Hilm-
arsson að nafni, upp á arma sína
og nýtur í staðinn ágætra
raddbanda sveinsins. Þeir eiga
bara skrambi vel saman sem
dúett, hvell rödd Stefáns fer
nokkuð léttilega þær torfærur
sem Sverrir kemst ekki yfir.
Hvað um það, sveinarnir tveir
voru einstaklega heimilislegir á
tónleikunum í Zebra, sátu í
mestu makindum úti í horni og
renndu sér í gegnum vænan slurk
laga. Að sjálfsögðu var endað á
Þú og þeir og eftir að hafa verið
klappaðir upp í tvígang hljómaði
síðan enska útgáfan af laginu,
sem gengur undir nafninu Sókra-
tes. Býsna skemmtilegt allt sam-
an og ættu þeir að skammast sín
sem héldu heim með fýlusvip á
„ . . . ég er svoddan óskabarn.“
fésinu, jafnvel þótt mánudagur til
mæðu hafi verið genginn í garð!
En ég var ekki alveg tilbúinn
að yfirgefa staðinn strax, hugði
enda góma piltana í viðtal. Það
tókst eftir að allir höfðu náð að
komast á barinn fyrir lokun og
fyrstu spurningunni var pundað á
Sverri.
- Hvenær byrjaðirðu að semja
lög og texta?
„Það var svona í kringum 11-
12 ára aldurinn og ég hef verið að
gutla í þessu æ síðan.“
- Þú hefur ekki verið í skóla-
hljómsveitum?
„Nei, í raun og veru forðaðist
ég skólahljómsveitir eins og heit-
an eldinn, ég hef alltaf haft and-
styggð á þessum hljómsveitar-
bransa.“
- Alltaf verið einn þíns liðs
kannski?
„Ja, ekki lengur þetta er orð-
inn dúett, Stefán og ég“ (nei,
grípur Stefán inn í, þetta er tríó,
ég, þú og píanóið!).
- Stefán, hvenær byrjaðir þú
að fikta í tónlist?
„Ég byrjaði í einhverju smá
hljómsveitarbraski þegar ég var í
Kvennaskólanum, fór síðan í
Fasteignatorgið
Geislagötu 12, Sími: 21967
Sölustjóri Björn Kristjánsson, heimasími: 21776
Rimasiða: 150 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 36 fm
bílskúr. Lóð frágengin. Eign í sérflokki.
Sunnuhlið: 380 fm einbýlishúsá 2 hæðum með innbyggð-
um bílskúr og 60 fm íbúð í kjallara. Eign í sérflokki. Mögu-
leiki á að taka minni eign upp i.
Grænamýri: Einbýlishús á tveim hæðum ásamt bilskúr.
Skipti á minni eign möguleg.
Langahlíð: Til sölu góð hæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr,
iaus eftir samkomulagi.
Lyngholt: 5 herb. e.h. m/bílskúr 172 fm. Raðhús
m/bílskúr æskilegt í skiptum.
Þverholt: 170 fm einbýli m/risherb. Bílskúrsréttur.
Möðruvallastræti: 200 fm einbýlishús á besta stað. Ýmis
skipti möguleg.
Höfðahlfð: 5 herb. einbýli m/bílskúr. Góð eign á góðum
stað.
Ásvegur: 126 fm e.h. I skiptum fyrir lítið raðhús á Brekk-
unni.
Hafnarstræti: 120 fm e.h. m/bílskúr, gott útsýni, allt sér.
Laus strax.
Strandgata: 106 fm e.h. til sölu. Mikið áhvilandi.
Þórunnarstræti: 5 herb. miðhæð m/bílskúr 161 fm. Óskað
eftir litlu raðhúsi.
Einholt: 4 herb. raðhús í rólegu umhverfi. Skipti á einbýlis-
húsi eða góðri hæð.
Grænagata: 138,8 fm e.h. og ris, óskað eftir minni eign í
skiptum.
Núpasiða: Mjög vönduð raðhúsaibúð í skiptum fyrir raðhús
á Brekkunni.
Heiðarlundur: 118 fm raðhúsibúð á tveimur hæðum. Góð
eign á góðum stað. Ýmis skipti möguleg.
Melasfða: 4ra herb. íbúð á 4. hæð i fjölbýlishúsi, góð eign.
Frábært útsýni. Laus eftir samkomulagi.
Vanabyggð: 166 fm raðhúsaíbúð á 3 hæðum. Góð eign á
góðum stað.
Tjarnarlundur: 4ra herb. endaíbúð á 4. hæð í svalablokk.
Laus strax.
Keilusiða: 3ja herb. ibúð á 1. hæð ca. 87 fm.
Skarðshlíð: 3ja herb. ibúð á 1. hæð. Laus eftir samkomu-
lagi. Hagstæð lán geta fylgt.
Tjarnarlundur: 3ja herb. íbúðir á 2. og 3. hæð.
Hrísalundur: 3ja herb. íbúðir á 2. og 3. hæð.
Hjarðarholt: Lítil 3ja herb. íbúð á n.h. 65 fm.
Kringlumýri: 2ja herb. íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi. Laus
eftir samkomulagi.
Lundargata: 2ja herb. íbúð í tvíbýlishúsi. Mikið endurnýj-
uð. Laus eftir samkomulagi.
Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 2. hæð ca. 60 fm. ibúð í góðu
standi. Laus eftir samkomulagi.
Borgarhlfð: 4ra herb. blokkaríbúð á besta stað. Laus eftir
samkomulagi.
Melasíða: Ný 2ja herb. ibúð ca. 60 fm í fjölbýlishúsi, hægt
að fá hana afhenda tilbúna undir tréverk eða fullbúna. Laus
strax.
Melasíða: Ný 2ja herb. 60 fm blokkaríbúð fullbúin til
afhendingar fljótlega.
Oalsgerði: 150 fm raðhús á tveimur hæðum. Ýmis skipti
möguleg.
Dalsgerði: 130 fm raðhús á tveim hæðum. Mikið áhvílandi.
Laus fljótlega.
Lítið verktakafyrirtæki í fullum rekstri til sölu. Góðir verk-
samningar fylgja. Hentugt fyrir 2 samhenta menn.
Kaupvangur: 170 fm húsnæði á tveimur hæðum hentugt
fyrir verslun og ýmiskonar rekstur. Eign á besta stað í
bænum.
Sunnuhlíð: Gott verslunarhúsnæði é 1. hæð, hægt að hafa
sér inngang.
Sunnuhlíð: Videoleiga til sölu. Góð aðstaða með kvöld-
sölu.
Fyrirtæki í fullum rekstri í eigin húsnæði til sölu. Upplýsing-
ar á skrifstofunni.
Glerárgata verslunarhúsnæði m/mikilli lofthæð, 400 fm á
1. hæð, góður staður á uppleið.
Höfum kaupendur að 3ja og 4ra herb. blokkaríbúðum í
Glerárhverfi.
Höfum kaupendur af 2ja og 3ja herb. blokkaríbúðum með
mikið áhvílandi.
Höfum kaupanda af góðri hæð á Brekkunni.
Ennfremur vantar okkur á skrá allar
stærðir og gerðir fasteigna.
Fasteigna-Torgið
Geislagötu 12, Akureyri
Sími: 21967
Opið frá kl. 13-19
Lögmaður Ásmundur S. Jóhannsson.