Dagur - 08.06.1988, Qupperneq 1
71. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 8. júní 1988
107. tölublað
Filman þm
a skiliö þaö
besta1
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106' Sími 27422 ■ Pósthólf 196
Hraö-
framköllun
Opið á
laugardögum
frákl. 9-12.
Starfshópur ráðuneyta
um vanda fiskeldis:
Tillögur
um auknar
fjárfestingar
Unnt er að vista umframfram-
leiðslu sjógönguseiða á íslandi
í því eldisrými, sem til staðar
er í landinu, fram á haust.
Þannig mun eldisfyrirtækjum
gefast ráðrúm til ákvarðana
um ráðstöfun þeirra seiða sem
ekki verður sleppt í hafbeit á
næstu vikum.
Þetta kemur m.a. fram í niður-
stöðum samstarfshóps ráðuneyta
sem ríkisstjórnin ákvað á fundi
sínum 10. maí s.l. að setja á fót.
Tildrögin voru upplýsingar um að
verulegt misræmi hefði skapast í
framboði og eftirspurn eftir
gönguseiðum. Af 12 milljónum
gönguseiða hefur aðeins um 5
milljónum verið ráðstafað og
vegna markaðstregðu í Noregi og
innflutningsbanns í írlandi er
útlitið ekki gott.
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra kynnti niðurstöður starfs-
hópsins á fundi ríkisstjórnarinnar
í gær. í þeim segir m.a. að fjár-
festingarlánasjóðir þurfi auknar
lánsheimildir til að hrinda megi í
framkvæmd áformum um áfram-
haldandi uppbyggingu fiskeldis
og að stöðvarnar þurfi að leita
eftir frekari vátryggingum til að
auka svigrúm banka við að veita
rekstrarlán. Þá telur hópurinn
athyglisverða þá hugmynd að sett
verði á fót eignarhaldsfyrirtæki
með það markmið m.a. að
styrkja eiginfjárstöðu eidisfyrir-
tækja.
Starfshópurinn leggur til að
úttekt verði gerð á samkeppnis-
stöðu innlendra fiskeldisstöðva
gagnvart erlendum og að aukin
áhersla verði lögð á vöruþróun,
markaðs- og sölumál. ET
Með uppbrett eyru og hringað skott eða því sem næst. Rammíslenskir, í sólskinsskapi.
Mynd: GB
Fasteignagjöld:
Búið að inn-
heimta 70%
Um síðustu mánaðamót höfðu
Akureyringar borgað um 70%
af fasteignagjöldum sínum, en
síðasti eindagi gjaldanna er
næstkomandi föstudag, þann
10. júní. Þeir sem ekki hafa
gert skil fyrir þann tíma bæta á
sig dráttarvöxtum. í tekjuáætl-
un voru fasteignagjöld áætluð
246 milljónir króna, þar af var
búið að innheimta um 170
milljónir um mánaðamótin.
Valgarður Baldvinsson bæjar-
ritari sagði að þetta væri svipað
hlutfall og á síðasta ári. „Það er
mitt mat að . innheimtan hafi
gengið fremur vel. Við gerum ráð
fyrir að á eindaga verði búið að
greiða á milli 80 og 85% af fast-
eignagjöldunum og að um ára-
mót hafi komið inn um 95-97%
gjaldanna," sagði Valgarður.
Eftir helgina hefjast harðari inn-
heimtuaðgerðir og sagði Val-
garður að það væru alltaf ein-
hverjir sem þyrftu hastarlegar
áminningar áður en þeir borguðu
gjöld sín. mþþ
Áhrif gengisbreytinga:
Skuldir Hitaveitu Akureyrar
hækkuðu um 345 milljónir króna
- „að nýju útlit fyrir aukna skuldasöfnun,“ segir hitaveitustjóri
Gengisbreytingar undanfarna
mánuði hafa komið sér illa fyr-
ir fjárhag Hitaveitu Akureyr-
ar. Skuldir veitunnar voru um
síðustu áramót, á gengi 31.
desember 1987,2 milljarðar og
73 milljónir króna. Miðað við
gengi í dag eru skuldir hennar
Akureyri:
Jóhanni boðið að
í Davíðshúsi
dvelja
- og undirbúa leikfléttur gegn Karpov
Bæjaryfírvöld á Akureyri hafa
boðið Jóhanni Hjartarsyni
stórmeistara að dvelja á Akur-
eyri við æfíngar fyrir einvígið
við Anatoly Karpov sem fram
fer í Seattle í Bandaríkjunum
næsta vetur. Hafa bæjaryfír-
völd hug á íbúð í kjallara
Davíðshúss í þessu sambandi.
Ingólfur Ármannsson, fulltrúi í
menningarmálanefnd, hefur yfir-
umsjón með íbúðinni og hann
sagði að stefnt væri að því að hún
yrði tilbúin í sumar og um leið
íaus til ráðstöfunar. Meiningin
væri að gefa lista- og fræðimönn-
um kost á að dvelja í tbúðinni og
sagði Ingólfur að stórmeistarinn
Jóhann Hjartarson gæti vel fallið
undir þá skilgreiningu.
„Það er hins vegar ekki búið að
taka þessa ákveðnu úthlutun fyrir
hjá menningarmálanefnd. Við
höfum ákveðið að íbúðin verði
tilbúin fyrir haustið og við mun-
um fljótlega hefjast handa við að
kynna þá möguleika sem skapast
með þessari íbúð í Davíðshúsi,"
sagði Ingólfur.
Jóhann hefur margoft látið
hafa það eftir sér að honum líki
vel á Akureyri og hefur honum
gengið einstaklega vel á skák-
mótum í bænum. Því ætti ekki að
vera ólíklegt að hann þiggi boð
um að dvelja á Akureyri við undir-
búning fyrir slaginn við Karpov
fyrrum heimsmeistara. SS
2 milljarðar og 418 milljónir.
Þær hafa því hækkað um 345
milljónir króna.
Á Akureyri eru uppsettar
mælagrindur alls 3200, sem þýðir
108 þúsund króna hækkun á
hverja grind. í kjölfar þessarar
hækkunar sagði Franz Árnason
hitaveitustjóri að vaxtagreiðslur
þessa árs myndu hækka um 21
milljón króna, úr 165 milljónum í
186. Gjaldskrá Hitaveitunnar
hefur að undanförnu hækkað í
samræmi við byggingarvísitölu og
ef hún hækkar minna á ársgrund-
velli en skuldir veitunnar, sagði
Franz að fyrr eða síðar hlyti að
koma til þess að gjaldskrá veit-
unnar yrði endurskoðuð.
„Þessi skuldahækkun kemur
sér mjög illa fyrir Hitaveituna, en
á síðasta ári var farið að líta bet-
ur út með fjárhaginn og veitan
gat á því ári greitt 21 milljón af
skuldum sínum en í ár er að nýju
útlit fyrir aukna skuldasöfnun,“
sagði Franz.
Að öðru leyti sagði Franz
stöðu Hitaveitunnar góða.
Vatnsbúskapur hennar er viðun-
andi þrátt fyrir mikla vatnsnotk-
un á fyrstu fimm mánuðum
í kjölfar gengisbreytinga hækka skuldir Hitaveitu Akureyrar verulega.
Nemur hækkunin um 108 þúsund krónum á hverja uppsetta mælagrind.
Hitaveitustjóra þykir hækkunin ansi myndarleg og greiðendur eru sjálfsagt
sammála honum í þeim efnum.
ársins. Seinni partinn í þessum
mánuði hefjast rannsóknir á veg-
um Orkustofnunar, að Botni í
Eyjafirði þar sem kannað verður
hvort afla megi meira vatns fyrir
veituna. Ekki verður mikið um
framkvæmdir að ræða á vegum
veitunnar í ár, en nýlega var lögð
stofnlögn í Vestursíðu og í athug-
un er að leggja bakrennslislögn
frá Óseyri. Aðrar nýframkvæmd-
ir eru háðar því hversu mikið
verður byggt af húsum. mþþ
Fljótalax hf.:
200 þúsund seiði
seld til Noregs?
Fljótalax hf. hefur fengið leyfi
Hafnarstjórnar Sauðárkróks til
að hafa 2-4 kvíar í sjó út af út-
hlaupi Gönguskarðsár í júní og
júlí í sumar. Þeir hjá Fljótalaxi
ætla að hafa í þessum kvíum
um 200 þúsund seiði, sem þeir
síðan stefna á að selja til
Noregs.
Að sögn Teits Arnlaugssonar
framkvæmdastjóra Fljótalax er
ekki búið að ganga frá þessum
sölumálum til Noregs, en vonast
er til að þau skýrist fljótlega.
„Við erum eingöngu að fá leyfi
fyrir þessum kvíum vegna söl-
unnar til Noregs, við stefnum
ekki á neitt sjóeldi þarna fyrir
utan úthlaupið,“ sagði Teitur.
-bjb