Dagur - 08.06.1988, Blaðsíða 11
hér & þar
8. júní 1988 - DAGUR - 11
Okkur langar
að eignast
bam saman
- segja Todd 19 ára
og Marta 41 árs
Kennslukonan Marta Sims og
uppáhaldsnemandinn hennar
Todd Colletti hneyksluðu alla
íbúa Texas þegar þau giftu sig í
apríl sl. En hin 41 árs gamla
amma og eiginmaður hennar sem
er 19 ára, eru hamingjusamari en
nokkru sinni fyrr - og núna lang-
ar þau til að eignast barn saman.
„Að eignast barn yrði yndisleg
lifandi sönnun um ást okkar,“
sagði Marta nánum vini.
„Barnið okkar myndi sýna
heiminum að ást okkar er sönn
og að við helgum okkur hvort
öðru algjörlega."
Todd trúði vininum fyrir því að
jafnvel þótt Marta væri orðin
þetta gömul þá myndu þau aldrei
gefa upp vonina á að þetta
kraftaverk gæti gerst.
Marta sem á þrjú börn úr
tveimur misheppnuðum hjóna-
böndum var neydd til að segja
upp stöðu sinni í skólanum þar
sem hún kenndi þegar fréttist að
hún og Todd væru byrjuð saman.
Pau voru bæði gagnrýnd fyrir
þetta hneyksli sem olli mikilli
geðshræringu í heimabæ þeirra.
.Heitasta ósk okkar er að eignast barn saman
segja Marta og Todd
„Móðir Todds, sem er fimrn
árum yngri en tengdadóttir
hennar, kærði Mörtu fyrir að tæla
ungling," segir vinurinn. „En það
kom aldrei til kasta dómarans
vegna ónægra sannana.“
Skötuhjúin eru nú flutt til
Cambridge í Massachusett þar
sem Todd stundar nám við Bost-
on háskóla meðan Marta vinnur
fyrir fjölskyldunni sem tölvu ráð-
gjafi.
Tvær yngri dætur Mörtu sem
eru 13 og 14 ára búa hjá þeim en
elsta dóttir hennar sem er þremur
árum eldri en Todd býr ásamt
ársgömlum syni sínum í Texas.
„Fyrri hjónabönd mín voru
algjörlega misheppnuö, en ég
hugsa að hjónabandið með Todd
komi til með að vara að eilífu,"
sagði Marta vini sínum. Við
þennan sama vin sagði Todd:
„Ég sé ekki eftir neinu sem við
Marta höfum gert og ef við eign-
uðumst barn myndi það gera
þessar kvalastundir sem við höf-
um orðið að þola þess virði.
„Mér finnst yndislegt að vera
giftur Mörtu og við erum ótrú-
lega hamingjusöm. Aldurinn er
okkur engin hindrun. Ast okkar
mun vara að eilífu.“
rl
dagskrá fjölmiðla
SJONVARPIÐ
MIÐVIKUDAGUR
8. júní
18.50 Fréttaágrip og táknmáls-
fréttir.
19.00 Töfraglugginn.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og vedur
20.35 Haiti - Leitin að lýðræði.
(Haiti - Dreams of Democracy).
Nýleg heimildarmynd um
stjórnmál og menningu á Haiti,
gerð af bandaríska kvikmynda-
leikstjóranum Jonathan Demme.
21.30 Kúrekar í suðurálfu.
(Robbery Under Arms).
Lokaþáttur.
22.30 Maður vikunnar - Karólína
Eiríksdóttir.
Sólveig Jónsdóttir ræðir við Karó-
línu Eiríksdóttur tónskáld.
Endursýndur þáttur frá 28. maí sl.
22.55 Útvarpsfréttir í dagskrár-
lok.
18.45 Kata og Allí.
(Kate & Ailie.)
Kata og Allí eru einstæðar
mæður, báðar hafa nýlega geng-
ið í gegnum skilnað. Þær taka
saman höndum og búa sér sam-
eiginlegt heimili. Kata vinnur á
ferðaskrifstofu en Allí fer í skóla
og sér um heimilishaldið. Eins
og gengur og gerist skiptast á
skin og skúrir hjá „fjölskyld-
unni“ en Kötu og Allí tekst að
taka á vandamálunum á óvana-
legan og frumlegan hátt.
Aðalhlutverk: Susan Saint
James og Jane Curtin.
19.19 19:19.
20.30 Pilsaþytur.
(Legwork.)
Hin unga og fallega Claire er
einkaleynilögregla með ráð und-
ir rifi hverju. Henni til aðstoðar
er bróðir hennar sem er lög-
regluþjónn New York borgar. Þó
hún hafi allt á hreinu í málum
sem hún tekur að sér þá eru
hennar eigin fjármál í rúst. Til að
láta enda ná saman leigir Claire
út herbergi til fyrirsætu nokkurr-
ar sem, hvort sem henni líkar
betur eða verr, flækist oft inn í
hin flóknustu mál leigusalans.
Aðalhlutverk: Margaret Colin.
SJÓNVARP
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR
8. júni
16.15 Anna og konungurinn í
Síam.
( Anna and the King of Siam.)
Ung, ensk ekkja þiggur boð
Síamskonungs um að kenna
börnum hans ensku en konung-
urinn reynist ráðríkur og erfiður i
samskiptum.
Myndin hlaut tvenn Óskarsverð-
laun árið 1946.
Aðalhlutverk: Irene Dunn og
Rex Harrison.
18.20 Köngullóarmadurinn.
(Spiderman.)
21.20 Mannslíkaminn.
(Living Body.)
Hitinn í gufubaði fer oft yfir
suðumark en samt getur fólk
haldist þar við og líkaminn þolir
einnig mikið frost. Hið ótrúlega
hita- og kuldaþol mannslíkam-
ans er viðfangsefni þessa þáttar
og fáum við að sjá hvemig lík-
aminn bregst við og aðlagast
miklum breytingum á hitastigi.
21.45 Á heimsenda.
(Last Place on Earth.)
Ný framhaldsþáttaröð í 7 hlutum
um ferðir landkönnuðanna
Amundsen og Scott sem báðir
vildu verða fyrstir til þess að
komast á Suðurpóhnn.
1. hluti.
23.00 Tíska og hönnun.
(Fashion and Design.)
23.30 Elska skaltu nágranna
þinn.
(Love Thy Neighbor.)
Tvenn hjón hafa verið nágrann-
ar um árabil og börn þeirra leik-
félagar. Málin flækjast verulega
þegar eiginmaðurinn og eigin-
konan sem ekki eru gift hvort
öðru stinga af saman.
Aðalhlutverk: John Ritter,
Benny Marshall og Bert Convy.
01.05 Dagskrárlok.
RÁS 1
MIÐVIKUDAGUR
8. júni
6.45 Veðurfregnir - Bæn.
7.00 Fróttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna:
„Hans klaufi", ævintýri eftir H.
C. Andersen.
9.20 Morgunleikfimi.
Umsjón: Halldóra Björnsdóttir.
9.30 Landspóstur - Frá Austur-
landi.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Fjögur skáld 19. aldar.
11.00 Fróttir • Tilkynningar.
11.05 Samhljómur.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir Tilkynn-
ingar.
13.05 í dagsins önn.
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar
himnaríkis" eftir A. J. Cronin.
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Harmonikuþáttur.
14.35 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
15.00 Fróttir.
15.03 í sumarlandinu
með Hafsteini Hafliðasyni.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist eftir Carl Nielsen.
18.00 Fróttir.
18.03 Neytendatorgið.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Giugginn.
20.00 Kvöldstund barnanna:
„Hans klaufi", ævintýri eftir H.
C. Andersen.
20.15 Ungversk nútimatónlist.
21.00 Landspósturinn - Frá Aust-
urlandi.
21.30 Vestan af fjörðum.
22.00 Fróttir • Dagskrá morgun-
dagsins • Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Ertu að ganga af göflunum,
'68?
23.10 Djassþáttur.
24.00 Fróttir.
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
MIÐVIKUDAGUR
8. Júní
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norður-
lands.
- Þröstur Emilsson.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norður-
lands.
- Gestur Einar Jónasson.
MIÐVIKUDAGUR
8. júni
7.03 Morgunútvarpið.
Dægurmálaútvarp með frétta-
yfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum
kl. 8.00 og 9.00. Veðurfregnir kl.
8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Frétt-
ir á ensku að loknu fréttayfirliti
kl. 7.30.
9.03 Viðbit.
Umsjón: Þröstur Emilsson. (Frá
Akureyri).
10.05 Miðmorgunssyrpa.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála.
Umsjón: Rósa Guðný Þórsdóttir.
16.03 Dagskrá.
18.00 Sumarsveifla.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 íþróttarásin.
22.07 Af fingrum fram.
23.00 Eftir mínu höfði.
00.10 Vökudraumar.
01.00 Vökulögin.
Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns.
Veðurfregnir kl. 4.30.
Fróttir eru sagðar kl. 2, 4, 7,
7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20,
14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Hljóðbylgjan
FM 101,8
MIÐVIKUDAGUR
8. júní
07.00 Okkar maður á morgun-
vaktinni, Pétur Guðjónsson,
kemur Norðlendingum á fætur
með góðri tónlist og léttu spjaUi-
09.00 Rannveig Karlsdóttir
með skemmtilega tónlist og tek-
ur á móti afmæliskveðjum og
ábendingum um lagaval.
12.00 Ókynnt afþreyingartónlist.
13.00 Pálmi Guðmundsson
á léttum nótum með hlustend-
um. Pálmi leikur tónlist við allra
hæfi og verður með visbend-
ingagetraun. Síminn er 27711.
17.00 Pétur Guðjónsson
með miðvikudagspoppið,
skemmtilegur að vanda.
19.00 Ókynnt gullaldartónlist.
20.00 Okkar maður á kvöldvakt-
inni Kjartan Pálmarsson
leikur öll uppáhaldslögin ykkar
og lýkur dagskránni með þægi-
legri tónlist fyrir svefninn.
24.00 Dagskrárlok.
8. júní
07.00 Þorgeir Ástvaldsson.
Lifleg og þægileg tónlist, færð,
veður og hagnýtar upplýsingar
auk frétta og viðtala um málefni
líðandi stundar.
Fréttir kl. 8.
09.00 Gunnlaugur Helgason.
Seinni hluti morgunþáttar með
Gunnlaugi og hana nú.
Fréttir kl. 10 og 12.
12.00 Hádegisútvarp.
Bjarni Dagur.í hádeginu og veltir
upp fréttnæmu efni, innlendu
jafnt sem erlendu, í takt við
gæðatónlist.
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson.
Helgi leikur af fingrum fram með
hæfilegri blöndu af nýrri tónlist.
Stjörnuslúðrið endurflutt.
Fréttir kl. 14 og 16.
16.00 Mannlegi þátturinn.
Árni Magnússon með blöndu af
tónhst, spjalli, fréttum og mann-
legum þáttum tilverunnar.
Fréttir kl. 18.
18.00 íslenskir tónar.
Innlend dægurlög að hætti
hússins.
19.00 Stjömutimihn á FM 102.2
og 104.
Öll uppáhaldslögin leikin í eina
klukkustund.
20.00 Siðkvöld á Stjörnunni.
Gæðatónlist leikin fram eftir
• kvöldi.
24.00-07.00 Stjörnuvaktin.
989
'BYLGJANi
f MIÐVIKUDAGUR
8. júní
07.00 Haraldur Gíslason og morg-
unbylgjan.
Haraldur kemur okkur réttum
megin fram úr með góðri morg-
untónlist. Gestir koma við og lit-
ið verður í morgunblöðin.
Fréttir kl. 7, 8 og 9.
09.00 Anna Björk Birgisdóttir.
Hressilegt morgunpopp, gamalt
og nýtt, getraunir, kveðjur og
sitthvað fleira.
Fréttir kl. 10 og 11.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Hörður Arnarson.
Sumarpoppið allsráðandi.
Fréttir kl. 13, 14 og 15.
16.00 Hallgrímur Thorsteinsson i
Reykjavík síðdegis.
Hallgrímur og Ásgeir Tómasson
líta á fréttir dagsins.
18.00 Kvöldfréttatimi Bylgjunnar.
18.10 Magrót Hrafnsdóttir
og tónlistin þín.
21.00 Jóna de Groot og Þórður
Bogason
með góða tónlist á Bylgjukvöldi.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgj-
unnar.
- Bjami Ólafur Guðmundsson.