Dagur - 08.06.1988, Qupperneq 15
8. júní 1988- DAGUR~ 15
ÍSLANDSMÓTIÐ
Jónas leikur sinn
100.1. deildarleik
í röð í kvöld
Hefur leikið lengst allra
samfleytt í 1. deild
Jónas Róbertsson, hinn snjalli
miðvallarleikmaður Þórsara,
mun leika sinn 100. 1. deildar-
leik í röð þegar Þórsarar taka á
móti Skagamönnum í kvöld.
Jónas hefur þar með leikið
lengst allra í 1. deild án þess að
missa úr leik. Þess má geta að
félagi hans úr Þór, Halldór
Áskelsson, hefur leikið næst-
lengst í 1. deildinni án þess að
missa úr leik en hann leikur
sinn 77. leik í röð í kvöld.
Kristján Kristjánsson Þór er í
þriðja sæti en hann hafði leikið
72 leiki í röð fyrir þetta tímabil
en missti af fyrsta leiknum í ár
vegna meiðsla.
Jónas lék sinn fyrsta dcildar-
leik með meistaraflokki Pórs
gegn FH árið 1979. Fyrsta 1.
deildarleik sinn lék hann gegn
ÍBV árið 1981 og alls eru þeir nú
orðnir 108, þar af 99 í röð. Deild-
arleikir hans með Þór eru orðnir
167.
Jónas sagðist í samtali við Dag
ekki hafa leikið alla leiki Þórs frá
1981 þar sem hann hefði misst úr
hálft sumarið 1982 vegna
meiðsla, en það ár léku Þórsarar
í 2. deild.
Jónas var spurður hvort ein-
hver leikur væri minnisstæðari en
aðrir og svaraði hann því neit-
andi. Hann var einnig spurður
hvort hann væri ánægður með
gengi Þórsliðsins undanfarin ár:
„Nei, ég er ekki nógu ánægður
með það. Það munaði að vísu
litlu að við næðum Evrópusæti
’85 og '87 en við náðum ekki að
halda það út.“
Jónas hló þegar hann var
spurður hversu mikið hann hefði
skorað í einum leik. „Ég er nú
ekki frægur fyrir afrek á þeim
vettvangi. Ég held ég hafi skorað
mest tvö mörk í 1. deildarleik og
aldrei meira en eitt í 2. deild.“
Þegar Jónas var spurður hvern-
ig honum litist á leikinn gegn ÍA
í kvöld sagði hann: „Ég held ég
hafi nú enga ástæðu til að vera að
monta mig, við höfum ekki spilað
það vel. Við skulum segja að ég
sé svona hæfiiega bjartsýnn."
JHB
Jónas Róbertsson snýr af sér 3 Leiftursmenn í leiknum í Ólafsfirði um síðustu helgi. Mynd: Tt.v
Stórleikur á Húsavík:
Völsungur leikur gegn
meisturum Vals á Húsavík
- „Höfum ekki átt minna í síðustu leikjum,“
segir Helgi Helgason
Fyrsti grasleikur Þórs
- Liðið fær ÍA í heimsókn á Pórsvöllinn í kvöld kl. 20
Þaö verður stórleikur á Húsa-
vík í kvöld þegar Völsungur
tekur á móti Valsmönnum í 4.
umferð SL-deildar íslands-
mótsins í knattspyrnu. Völs-
ungar hafa farið illa af stað á
þessu keppnistímabili, tapað
þremur fyrstu leikjum sínum,
og hafa eflaust fullan hug á að
bæta stöðu sína með sigri í
kvöld. Islandsmeistararnir
hafa einnig farið illa af stað í
ár. Þeir hafa aðeins fengið eitt
stig það sem af er tímabilinu og
því er hætt við að þeir muni
mæta mjög ákveðnir til leiks í
kvöld. Það er því Ijóst að þessi
leikur verður erfiður fyrir
Völsung. Dagur hafði sam-
band við Helga Helgason,
leikmann Völsungs, og kann-
aði hvernig leikurinn leggðist í
hann.
„Mér líst ekki illa á hann. Það
hafa komið ágætir kaflar hjá okk-
ur þannig að þetta hefur ekki ver-
ið eins slæmt og staðan gefur til
kynna. Við stefnum á að vinna og
ég er ekki svartsýnn á að það
takist. Við höfum ekki átt neitt
minna í síðustu leikjum, töpuð-
um t.d. síðasta leik í lokin, höf-
um átt ágætis tækifæri þannig að
við erum ekki eins lélegir og allir
halda," sagði Helgi.
Þegar Helgi var spurður í
hverju hann teldi styrkleika Vals-
liðsins liggja sagðist hann í upp-
hafi hafa reiknað með að vörnin
hjá Valsmönnum yrði sterk auk
þess sent mikið yrði stílað upp á
Helgi Helgason er ekki hræddur við
Islandsmeistarana.
Árni Stcfánsson: „Kominn tími til
að við vinnum leik.“ Mynd: kk
Það verður stórleikur á Þórs-
vellinum á Akureyri í kvöld
þegar Þórsarar taka á móti
Akurnesingum í 4. umferð SL-
deildarinnar. Leikurinn, sem
hefst kl. 20, verður leikinn á
grasi og verður því fyrsti „gras-
leikur“ Þórsara í ár.
Þórsliðið hefur aðeins leikið
tvo leiki til þessa í íslandsmótinu
þar sem leik þeirra gegn KA í
fyrstu umferð var frestað. Liðið
hefur aðeins hlotið eitt stig úr
þessum tveimur leikjum, það
tapaði fyrsta leiknum gegn Fram
á Akureyri og gerði jafntefli sl.
laugardag við Leiftur.
Skagantenn hafa byrjað mótið
ágætlega og hlotið 7 stig úr fyrstu
þrernur leikjum sínum. Liðið
\ irðist sterkara en margir höfðu
reiknað með í upphafi móts og er
til alls líklegt í sumar. T.d. sigr-
aði það Valsmenn um síðustu
helgi, 1:0. Það verður því fróð-
legt að sjá hvernig þeim reiðir af
gegn Þórsurum í kvöld. JHB
Fyrsti úti-
leikur Leifturs
- leikur gegn Víkingi í kvöld kl. 20
„Mér líst vel á þetta og ég held
að möguleikar okkar séu
góðir. Það er kominn tími til
að við vinnum leik. Víkingun-
um hefur ekki gengið sein
skyldi og við vonumst til að
vinna þarna okkar fyrsta
sigur,“ sagði Árni Stefánsson,
leikmaður Leifturs, þegar
hann var spurður um mögu-
leika Leifturs gegn Víkingi í
Reykjavík í kvöld.
Leikurinn er liður í 4. umferð
SL-deildarinnar og markar
ákveðin tímamót fyrir Leiftur þar
sem þetta verður fyrsti útileikur
liðsins í deildinni. Liðið hefur
sem kunnugt er leikið 3 heima-
leiki og gert jafntefli í þeim
öllum. Liðið er því enn taplaust
og hefur sá árangur komið mörg-
unt á óvart.
Eins og Árni segir hefur Vík-
ingsliðinu ekki gengið vel til
þessa. Liðinu var spáð nokkurri
velgengni en hefur ekki staðið
undir þeim spám. Það hefur að-
eins hlotið eitt stig úr þremur
leikjum og því má búast við að
Víkingarnir verði grimmir í
kvöld. Þá má geta þess að Lárus
Guðmundsson er nú kominn inn
í lið Víkinga og því má reikna
með að leikurinn verði erfiður
fyrir Leiftursmenn.
Aðspurður um styrkleika Vík-
ingsliðsins sagði Árni: „Þetta eru
liprir strákar og flinkir en ég held
að það vanti dálitla baráttu í
liðið. Ef við komum af fullum
krafti í leikinn þá eigum við að
vinna hann. Það þýðir ekkert
annað en að vera bjartsýnn, við
ætlum að standa okkur í sumar,"
sagði Árni Stefánsson og spáði að
lokum 2:0 sigri Leifturs. JHB
háar sendingar til Jóns Gunnars í
framlínunni. „Það hefur síðan
komið í Ijós að vörnin hefur stað-
ið sig ágætlega en þeir hafa hins
vegar ckki skorað eitt einasta
mark og það hefur komið mér
mest á óvart af öllu því sem hefur
gerst í deildinni til þessa."
Helgi mun að ölium líkindum
leika framar á vellinum í kvöld
en til þessa og hann var spurður
hvort hann reiknaði með að
skora.
„Mér er eiginlega alveg sama
hvort ég skora eða ekki. Aðalatr-
iðið er að við spilum vel og
vinnum. Ég held að það sé stíg-
andi í þessu hjá okkur og ef við
náum toppleik er ég ekkert
hræddur við Valsmenn," sagði
Helgi Helgason. JHB
Staðan
2. defld
Þriðju umferð 2. deildar
íslandsmótsins í knattspymu
lauk á mánudagskvöld með
leik Þróttar og Fylkis. Honum
lauk með sigri Fylkis, 2:4, og
staðan eftir 3. umferðina er
því þessi:
FH
Fylkir
Víðir
LBK
KS
ÍR
ÍBV
Tindastóll
Selfoss
Þróttur
Markahæstir:
Eyjólfur Sverrisson LiMFT 3
Guðmundur Magnússon Selfossi 3
Hörður Magnússon FH 3
Jón Þórir Jónsson UBK 3
Pálmi Jónsson FH 3
Sigurður Hallvarðsson Þrótti 3
3 3-0-0 8: 2 9
3 2-1-0 7: 4 7
3 1-1-1 5: 3 4
3 1-1-1 6: 5 4
3 1-1-1 7: 7 4
3 1-1-1 5: 6 4
3 1-0-2 6: 8 3
3 1-0-2 6:10 3
3 0-2-1 5: 7 2
3 0-1-2 6: 9 1