Dagur - 30.07.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 30.07.1988, Blaðsíða 7
otiri b 01 i'\ nn .. u nv 30. júlí 1988 - DAGUR — 7 segir Axel Beck íðnráðgjafi Austurlands ákváðum að skipta þessu í tvennt var að við töldum erfitt að vera með samstarf milli þessara staða í verkefni sem byggist á því að fólk hittist kannski oft í sömu vik- unni. Petta svæði er of stórt og erfitt til að slíkt gangi. Það er líka spurning hvort menn tala í raun sama tungumál á þessum tveimur stöðum þar sem atvinnulíf er svo ólíkt,“ segir Axel. Að hans mati er samstarf sveitarfélaga á Aust- Myndir: ET urlandi ekki nægilega gott en fer þó batnandi. „Við verðum bara að byrja einhvers staðar og það sem skiptir máli er að gera eitt- hvað,“ segir hann. Þegar halda á leitarráðstefnu er grundvallaratriði að fá ákveð- inn hóp manna til að taka þátt í henni. Hópur þessi á að saman- standa af fulltrúum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og hópa, fólki sem hefur áhuga á að gera breytingar og hefur bolmagn til þess. A leitarráðstefnunni, sem haldin var á Seyðisfirði í febrúar og stóð í tvo daga, var þáttakend- um skipt í sjö hópa sem hver um sig fjallaði um eitt afmarkað svið. Ráðstefnan hófst á því að í stuttu máli var farið yfir sögu staðarins og þær breytingar sem átt hefðu sér stað í gegnum árin. Fyrsta verkefnið sem hóparnir unnu var að tína til jákvæða og neikvæða þætti þess að búa á staðnum síðustu tíu ár eða svo. Næsta verkefni var svo að lýsa því hvernig ástandið væri í dag, hvað væri gott og hvað mætti bet- ur fara. Þriðja verkefnið var svo að fjalla um framtíðina, mögu- leika og væntingar sem menn binda við hana og setja fram til- lögur til úrbóta. Loks var fjórða verkefnið að segja til um það hver ætti að framkvæma tiltekin verkefni og hvernig. í maí síðast- liðnum var síðan haldin önnur ráðstefna þar sem framkvæmdar eins konar naflaskoðun á því sem þá hafði verið gert. Noregs, nánar tiltekið til Tromsö í Tromsfylki, en þar var mikið að gerast á þessum tíma. Þar leitaði hann til miðstöðvar atvinnuþró- unar í Troms (SENTAS) og starfsmanns hennar Jan Roger Iversen. Jan þessi kom til íslands í þeim tilgangi að finna út hvers konar verkefni Austfirðingar ættu að fara út í og hvaða leið væri rétt að fara til að ná settum markmiðum. Við framkvæmd ýmissa átaksverkefna hefur SENTAS notað þrenns konar „átakslíkön“ en ákveðið var að Astandið krufíð og fram- tíðarhugmyndir reifaðar Sem fyrr segir eru það Egils- staða- og Seyðisfjarðarkaupstað- ur sem standa að verkefninu í samvinnu við Iðnþróunarfélag Austurlands. Samstarf þeirra felst hins vegar eingöngu í sam- eiginlegri verkefnisstjórn en einn verkefnisstjóri stjórnar verkefn- inu. „Ástæðan fyrir því að við Lónið setur skemmtilegan svip á Seyðisfjaröarbæ. hvorki meira né minna. Áður fyrr voru það stofnanir sem sögðu okkur hvað við ættum að gera en nú gerum við þetta sjálf. Þetta er erfitt við verðum að byggja upp reynslu, en þegar við höfum aflað hennar þá getur vel verið að við getum farið af stað með svona verkefni víða um land,“ segir Axel. Aðspurður hvað ætlunin sé að gefa framtak- inu langan tíma til að sanna til- gang sinn segir hann að hér sé um tveggja ára áætlun að ræða. „Hvað þá tekur við er óljóst ennþá. Það sem við erum að gera með svona verkefni er að skapa nýtt andrúmsloft. Fólk sem hefur aldrei talað saman áður byrjar að ræða málin og vinna saman. Hvort sem framhaldið verður stofnun einhvers konar þróunar- félags Seyðisfjarðar, verður bara að koma í ljós en fólk verður að halda áfram að tala sarnan," segir hann. En hvaða vonir binda menn við svona verkefni? Ekki hafa verið sett nein skýrt afmörkuð markmið um fjölgun ársverka eða aukningu heildartekna sem afleiðingu verkefnisins. Á Seyð- isfirði er staðan þannig að frekar vantar fólk en störf en markmið- ið er að skapa fjölbreytilegt atvinnulíf. „Ég held að vænting- arnar séu þær helstar að byggja eitthvað nýtt á þeim grunrii sem fyrir er. Mikið af þessum hug- myndum er eitthvað sem fólk hér hefur verið að tala um í mörg ár en núna fyrst er eitthvað farið að gerast,“ segir Axel Beck. ET „Átaksverkefnið er samfélagsvirkjun. Hugmyndafræðin er í stuttu máli sú að við gleymum Reykjavík, þingmönnum, stofnunum og öllu því sem talið hefur verið nauðsynlegt til að eitthvað gerist, og gerum hlutina sjálf,“ segir Axel Beck iðnráðgjafi Austurlands, en Iðnþróun- arfélagið hefur í samvinnu við Seyðisfjarðar- og Egilsstaðabæ komið af stað svokölluðu átaksverkefni sem ætlað er að leggja grundvöll að nýsköpun og uppbyggingu í atvinnulífi, menningarlífi, tómstundaiðju og öðru á þessum stöðum og stórbæta þannig hæfni byggðanna til að búa íbúum sínum lífvænleg kjör og betra mannlíf í víðasta skilningi. Hvemig hefur okkur vegnað undanfarinn áratug? Hvernig líður okkur í dag? Hvers konar lífi viljum við lifa eftir tuttugu ár og hvernig náum við að gera þá draumsýn að veruleika? Þessar spurningar má segja að lýsi þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið í átaksverkefninu sem nú hefur staðið yfir í um eitt ár og ekki úr vegi að forvitnast lítillega um aðdraganda þess, framkvæmd og væntanlegan árangur. Axel Beck hefur starfað sem iðnráðgjafi á Austurlandi frá ára- mótum 1985/86. Árið 1986 var honum falið að koma af stað ein- hvers konar þróunarverkefni á Austurlandi. Þróunarverkefni var búið að vera á dagskrá Byggðastofnunar í nokkur ár en að sögn Axels vissi í rauninni enginn hvað við var átt, hvaða hugmyndafræði byggi að baki og hvaða leiðir ætti að fara. „Þetta var einhvers konar töfraorð,“ segir hann. Hugmyndin er norsk Hugmyndin að þessum átaks- verkefnum er sennilega upprunn- in í Noregi og segir Axel að þar hafi 70-80% sveitarfélaga lagt út í eitthvað slíkt. Axel fór einmitt til velja það sem mest reynsla er komin á, Leitarráðstefnulíkanið, enda var það talið henta aðstæð- um á Austurlandi betur en hin tvö. „Þetta var einhvers konar töfraorð.“ Austurlandsferja, kvennahús og skipakaup Verkefnin sem talin voru vænleg- ust og mikilvægust eru nú komin í gang og meðal þeirra má nefna að sjávarútvegshópurinn vinnur að athugun á möguleikum á að keypt verði fiskiskip til Seyðis- fjarðar, samgönguhópurinn vinn- ur m.a. að athugun þess að hefja rekstur ferju á Áustfjörðum, kvennahópur hefur komið upp hlutafélagi um rekstur kvenna- húss og svo mætti lengi telja. í haust verður haldin enn ein ráð- stefna þar sem ný verkefni verða að líkindum tekin inn og þá er m.a. ætlunin að reyna að tengja einstök fyrirtæki verkefninu meira. Veríð að skapa nýtt andrúmsloft „Ég lít á átaksverkefnið sem breytingu í byggðastefnu íslands, Átaksverkefni á Seyðisfirði og Egilsstöðum: Breyting í by stefnu íslands“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.