Dagur - 30.07.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 30.07.1988, Blaðsíða 15
By helgarkrossgátan 11 Tekið skal fram að skýr greinarmunur er gerður á grönnum og breiðum sérhljóðum. Þegar þú hefur ráðið gátuna, skaltu skrifa stafina í tölusettu reitunum á lausnarseðilinn hér að neðan. Klipptu síðan lausnarseðilinn út og sendu til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri, merktan: „Helgarkrossgáta nr. 34“ Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa. Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er bókin „Fjögur skáld í för með presti“, eftir séra Bolla Gústavsson í Laufási. í bókinni eru birtir viðtalsþættir Bolla við hin þjóðkunnu skáld Braga Sigurjónsson, Hjört Pálsson, Heiðrek Guðmundsson og Kristján frá Djúpalæk, auk þess sem fjölda ljóða eftir þá er þar að finna. Útgefandi er Skjaldborg. Kristín Jónsdóttir, Furulundi 6g, Akureyri, hlaut verðlaunin fyrir helg- arkrossgátu nr. 31. Lausnarorðið var Pláneturnar. Verðlaunin bókir „Dómsorð“, verða send vinningshafa. Helgarkrossgáta nr. 34 Lausnarorðið er ............................... Nafn .......................................... Heimilsfang ................................... Póstnúmer og staður ........................... 30. júlí 1988 - DAGUR - 15 nr>t*> t» 11 j'' n '■ í 4- r c§b I lúsn:eðisstofnun ríkisins TÆKNIDEILD Simi 696900 Útboð Eskifjörður Stjórn verkamannabústaða á Eskifirði, óskar eftir til- boðum í byggingu tveggja hæða fjölbýlishúss byggðu úr steinsteypu. Verk nr. Z. 05.01 úr teikn- ingasafni tæknideildar Húsnæðisstofunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 428 m2. Brúttórúmmál húss 1371 m3. Húsið verður byggt við götuna Dalbarð 8, Eskifirði og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn. Afhending útboðsgagna er á bæjarstjórnarskrifstofu Eskifjarðar, Strandgötu 49, 735 Eskifirði, og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins, frá miðviku- deginum 3. ágúst 1988 gegn kr. 10.000.- skilatrygg- ingu. Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðjudaginn 16. ágúst 1988 kl. 11.00 og verða þau opnuð að viðstöddum bjóðendum. F.h. stjórnar verkamannabústaða á Eskifirði. Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. 1 lúsnæðisstofnun ríkisins Sjúkraliðar - Starfsfólk Kristnesspítali óskar eftir að ráða sjúkraliða og ófaglært starfsfólk á sjúkradeildir spítalans. Um framtíðarstarf getur verið að ræða. Uppiýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 31100. Kristnesspítali. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Hjúkrunarfræðingar Lausar eru til umsóknar stöður hjúkrunarfræð- inga, nú þegar eða eftir samkomulagi, á eftirtöldum deildum: Handlækningadeild Gjörgæslu Skurðdeild Svæfingadeild Lyflækningadeild Barnadeild Geðdeild B-deild, öldrunar- og hjúkrunardeild Seli, öldrunar- og hjúkrunardeild. Einnig eru lausar til umsóknar nú þegar eða eftir samkomulagi stöður Ijósmæðra og/eða hjúkrunar- fræðinga með Ijósmæðranám á Fæðinga- og kvensjúkdómadeild. Upplýsingar gefa hjúkrunarframkvæmdastjórar, Svava Aradóttir og Sonja Sveinsdóttir, alla virka daga á milli kl. 13.00-14.00 í síma 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. «t Systir mín og móöursystir, ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR frá Stóra-Eyrarlandi, Akureyri, andaðist 25. júlí. Jaröarförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir færum við starfs- fólki á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Marsilía Jónsdóttir, Valborg Jónsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.