Dagur - 30.07.1988, Síða 11
bílor
30. júlí 1988- DAGUR-11
Toyota Corolla 4WD
Toyota Corolla 4WD er ný gerö
af Corolla, sem ætlað er að
koma í stað Tercel 4WD, sem
verið hefur vinsæll hér á iandi
undanfarin ár. Toyota Corolla
er reyndar til í fleiri gerðum en
flestir aðrir bílar og framleiddir
hafa verið fleiri bílar með þessu
tegundarheiti en nokkru öðru.
Þessi nýi fjórhjóladrifni bíll er
náskyldur öðrum nýjum Cor-
olla bílum og útlitið ber það
með sér ef framendinn er
skoðaður. Að öðru leyti er Cor-
olla 4WD allsérstæður og auð-
þekktur af útlitinu. Einkum eru
það sérkennileg hliðarrúða aft-
ast og „bólgið" þak ásamt
vindskeið, sem setja sérstakan
svip á bílinn.
Bólgan á þakinu er gagnleg
og veitir aukið rými, svo betur
fer um fólk af hinum hávaxna
og glæsilega norræna kynstofni í
þessum bíl en mörgum öðrum
slíkum frá landi sólarinnar.
Innandyra er bíllinn í hefð-
bundnum japönskum stíl.
Mælaborðið og stjórntækin líkj-
ast þó í vaxandi mæli því sem
tíðkast í evrópskum bílum og
eru því ágætlega staðsett og
auðveld í notkun. Sætin eru góð
og veita ágætan stuðning án
þess að vera beinlínis í sér-
flokki. Rými í bílnum er allgott
miðað við stærð hans og vegna
áðurnefndrar þaklyftingar virð-
ist bíllinn jafnvel enn rýmri en
hann er í raun og veru. Ágæt-
lega fer um farþega bæði í fram-
og aftursæti. Farangursrýmið er
drjúgt, og mun stærra en í Terc-
elnum. Hægt er að leggja aftur-
sætið niður, að hluta eða allt
(skipting 'A eða %) og stækka
þannig farangursrýmið. Nokkur
smáhólf eru í bílnum fyrir minni
hluti. Miðstöðin virðist nægi-
lega afkastamikil og tiltölulega
hljóðlát. Frágangur er ágætur
jafnt innan sem utan.
Toyota Corolla 4WD er
tæknilega svipuð framhjóla-
drifnum frænkum sínum. Aftur-
ásinn í Corolla 4WD er þó auð-
vitað frábrugðinn hinum þar
sem hann er drifinn. Toyota
hefur valið heilan afturás sem
festur er með 4 langsörmum og
Panhardstöng og fjaðrar á
gormum. Það kemur nokkuð á
óvart að Toyota „splæsir" ekki
sjálfstæðri fjöðrun að aftan því
það hefði verið í samræmi við
það sem lagt er í Corolluna að
öðru leyti. Toyota sparar nefni-
lega hvergi við sig tæknilegt
góðgæti í þennan bíl.
Ef við höldum okkur við drif-
búnaðinn til að byrja með þá er
hér um að ræða sítengt fjór-
hjóladrif með venjulegu „mekan-
ísku“ mismunadrifi, sem læsa
má handvirkt. Þessi búnaður er
að mínu viti áreiðanlegur og
hrekkir ekki ökumann með því
að læsa drifrásinni fyrirvara-
laust og að ökumanni forspurð-
um. Drifaflinu er skipt bróður-
lega milli fram- og afturhjóla og
því hefur bíllinn alltaf sömu
aksturseiginleikana. Handvirka
læsingin er auðveld í notkun,
einungis þarf að ýta á takka í
mælaborðinu. Eini gallinn er sá
að ekki er hægt að nota ABS-
bremsukerfi með þessum drif-
búnaði.
Vélin er heldur ekki af
ómerkilegustu tegund. Hún er
1,6 lítra og hefur 4 ventla við
hvern strokk, tvo yfirliggjandi
knastása, tvöfaldan blöndung
og skilar 94 hö. við 6CM)0 sn./mín.
Hún er bráðskemmtileg í notk-
un og virðist ekki í neinum
vandræðum með bílinn í götu-
akstri. Það gildir hins vegar um
þennan bíl eins og aðra svipaða
frá Japan, að fátt kemur í stað
slagrýmis þegar þörf er átaks á
litlum snúningshraða. Toyota
hefur valið þann kostinn að
auka afl vélarinnar og eldsneyt-
isnýtingu með því að fjölga
ventlunum og svara þannig
kröfum um meira vélarafl. Þessi
lausn er alveg fullgild í flestum
tilfellum en dugar síður þegar
þörf er á mjúku átaki, eins og
stundum þarf í vondri færð,
hálku eða bröttum brekkum.
Hér er þó ekki yfir neinu að
kvarta og vélin skilar sínu með
prýði og bíllinn hefur furðu líf-
lega eiginleika þegar tillit er
tekið til þess að hann er 1120 kg
að þyngd.
milli fram- og afturhjóla, er
ólæst. Ekki vottar fyrir þvingun
milli fram- og afturhjóla, svo
mismunadrifið vinnur verk sitt
vel. Toyotan er nokkuð há frá
vegi (17,5 cm) og því bærilega
nothæf á vondum vegum. Geta
bílsins í ófærð er þó háð tak-
mörkunum eins og annarra
sambærilegra bíla. Þetta er
fólksbfll en ekki jeppi. (Svona
bílar auðvelda mönnum að
komast leiðar sinnar á vegum
með misjafnri færð af meira
öryggi en í venjulegum bílum.
Þeir eru hins vegar ekki heppi-
legir til að fást við eiginlegar
torfærur og ár og vötn.)
Corolla 4WD er einnig frem-
ur hljóðlátur, einkum ber
minna á veghljóði en gengur og
gerist í bílum af þessum stærð-
arflokki. Og svo er auðvitað
komið í hann vökvastýri.
Toyota Corolla 4WD er að
flestu leyti afbragðs bíll. Útlitið
er sérstakt (dálítið töff) og rým-
ið nægjanlegt og notadrjúgt.
Vél og drifbúnaður eru fyrsta
flokks og það gildir einnig um
aksturseiginleikana. Fjöðrun er
e.t.v. það eina sem Toyota gæti
bætt, og er þá einkum við hinn
þunga heila afturás að sakast og
ég yrði ekki hissa á því þótt
sjálfstæð afturfjöðrun sæist
fljótlega í þessum bíl.
Gerð:
Toyota Corolla 4WD, 5 dyra, 5 manna, vél að framan, drif
á öllum hjólum, sídrif.
Vél og undirvagn:
4 strokka, vatnskæld, fjórgengis-bensínvél, borvídd 81,0
mm, slaglengd 77,0 mm, slagrými 1587,0 cc, 94 hö. við 6000/
ntín., 127,0 Nm við 4000/mín., þjöppun 9,5:1,2 yfirliggjandi
knastásar, tveggja hólfa blöndungur, rafeindakveikja.
Sjálfberandi yfirbygging, fjórhjóladrif, sídrif með læsanlegu
mismunadrifi milli ása, handvirk læsing.
Fimm gíra gírkassi.
Sjálfstæð fjöðrun að framan, þríhyrndir þverarmar með
McPherson gormlegg og jafnvægisstöng; heill afturás með 4
langs-örmum, gormum, dempurum og jafnvægisstöng.
Aflstýri, aflbremsur, diskabremsur að framan, skálar að
aftan, handbremsa á afturhjólum.
Hjólbarðar 185/70 SR 13.
Bensíngeymir 50 1.
Mál og þyngd:
Lcngd 425,0 cm, breidd 165,5 cm, hæð 148,5 cm, hjólahaf
243,0 cm, sporvídd 144,0/138,0 cm, þyngd 1120 kg.
Hámarkshraði ca. 175 km/klst. 0-100 á 12,5 sek.
Framleiðandi:
Toyota Motor Corporation, Tokyo, Japan.
Innflytjandi:
P. Samúelsson & Co. hf., Reykjavík.
Umboð: /
Bílasalan Stórholt, Akureyri.
Verð:
Ca. kr. 850.000.
Umsjón:
Úlfar
Hauksson
Gírkassinn hefur vel heppn-
uð hlutföll til venjulegs aksturs,
en ég saknaði sérstaks lággírs,
sem forverinn, Tercel 4WD,
hafði. Toyotan hefur ekki milli-
kassa með háu og lágu drifi og
því væri slíkur lággír til þæg-
inda, enda þótt vélaraflið sé nú
sýnu meira en í gamla Tercel
bílnum og því minni ástæða af
þeim sokum til að hata serstak-
an lággír. Drifhlutfallið er auk
þess fremur lágt. Gírskiptingar
ganga lipurlega fyrir sig en þó
fylgja þeim dálítil hljóð í milli-
stöngunum sem liggja fram í
gírkassann.
Fjöðrunin er ágæt, virðist
jafnvel heldur slaglengri en
gengur og gerist í japönskum
bílum. Þægindin yrðu þó vafa-
laust enn meiri ef sjálfstæð
fjöðrun væri að aftan, því heil-
um afturás fylgir oftast meiri
ófjöðruð þyngd og þar með
meiri . tregða. Aksturseigin-
leikarnir eru annars góðir og
öruggir og bíllinn er stöðugur
og rásfastur hvort sem er á möl
eða malbiki. Bíllinn er nánast
hlutlaus í beygjum, þ.e. eigin-
leikar hans breytast nær ekkert
þótt gefið sé í í beygjum.Drifbún-
aðurinn er með þeim hætti, eins
og áður er lýst, að bíllinn hefur
ávallt óbreytta aksturseiginleika,
a.m.k. á meðan mismunadrifið
Opið
■um
verslunarmanna-
helgina:
Fösfudag
nœtursala
til 04.00
Laugardag
nœtursala
til 04.00
Sunnudag
nœtursala
til 04.00
◦llt
í ferðalagið
◦llt
í svanginn
◦llt
í drykkinn
◦llt
í veiðiferðina
◦llt
í útileguna
nestin
Leiruvegi • Veganestí
Þar sem
þjónustan
situr f
fyrirrúmi.
aveginn!
Brýr og rmai krefjast sérstakrar varkárni.
Draga verður úr hrada og fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei áhættu! híumferoar