Dagur - 30.07.1988, Page 14
<h - nutDAö - mu iiii/[ .cc
14 - DAGUR - 30. júlí 1988
HVAÐERBREÝTT
OG HVAÐ ÓBREYTT
íÁIAGNINGUNNI1988?
Álagningu opinberra gjalda 1988 vegna
ársins 1987 er nú lokið í öllum skattum-
dæmum. Þessa dagana er verið að dreifa til
gjaldenda álagningarseðlum þar sem fram
koma niðurstöður álagningarinnar.
vegar að skattframtali 1988 hafi verið skii-
að og hins vegar að tekjur hafi ekki verið
yfirfærðaráárið1987.
Hafi skattframtali ekki verið skilað sætir
gjaldandi áætlun skattstjóra. Kemurálagning
opinberra gjalda vegna áætlunar skattstjóra
til innheimtu með venjulegum hætti.
SfÐASTA ÁLAGNING SAMKVÆMT
ELDRA SKATTKERFI
Álagning opinberra gjalda 1988 er síðasta
álagning sem fer fram samkvæmt eldra skatt-
kerfi. Að forminu til er álagning tekju- og eign-
arskatts í aðalatriðum samkvæmt sömu lög-
um og giltu um álagningu á árinu 1987. Hins
vegar fellur niður innheimta álagðs tekju-
skatts og útsvars á almennar launatekjur
ársins 1987. Hækkun launa vegna aukins
vinnuframlags gjaldandans sjálfs er almennt
ekki skattlögð.
YFIRFÆRÐAR TEKJUR SKATTLAGÐAR
Frá þessari meginreglu er þó gerð undan-
tekning um reiknað endurgjald manna í
atvinnurekstri (laun sem þeir reikna sér) og
laun til manna sem eru eigendur eða meðeig-
endur í því fyrirtæki sem greiðir þeim laun.
Hafi laun verið yfirfærð á árið 1987, þ.e. skatt-
lausa árið, vegna breytinga á uppgjörsaðferð
eða annarri viðmiðun um tekjumar gilda þar
um sérstök ákvæði: Þær skulu skattlagðar
sérstaklega sem svokallaðar yfirfærðar
tekjur.
SKA TTLAGNING ANNARRA
TEKNA OG EIGNA
Niðurfelling á álögðum tekjuskatti og útsvari
nær eingöngu til launatekna ársins 1987.
Aðrar tekjur sem gjaldandi kann að hafa haft
á árinu 1987 eru hins vegar skattlagðar á
venjulegan hátt enda falla þær utan stað-
greiðslu. Staðgreiðsla opinberra gjalda nær
til launatekna almennra launamanna og
reiknaðs endurgjalds einstaklings í atvinnu-
rekstri. Ýmiss konar bætur, styrkir og verð-
laun teljast til launa svo sem verið hefur. Þær
tekjur sem ekki eru staðgreiðsluskyldar eru
m.a. hagnaður af atvinnurekstri og sjálfstæðri
starfsemi, leigutekjur, hagnaður af sölu eigna
og skattskyldur arður af hlutabréfaeign.
Álagning eignarskatts á eignir gjald-
anda í árslok 1987 er óbreytt frá því sem ver-
ið hefur, enda nær staðgreiðsla opinberra
gjalda ekki til eignarskatts. Óráðstafaður
persónuafsláttur síðasta árs nýtist til greiðslu
eignarskatts að 38.021 krónum á þessu ári.
Álögð opinber gjöld vegna gjaldársins
1988 koma til innheimtu til viðbótar stað-
greiðslu opinberra gjalda á árinu 1988.
Launagreiðendum er sem fyrr skylt að halda
þessum greiðslum eftiraf launum samkvæmt
kröfum frá innheimtumönnum ríkissjóðs eða
gjaldheimtum.
Gjalddagar eru eins og verið hefur, fyrsti
dagur hvers mánaðar frá ágúst. Næsti gjald-
dagi er 1. ágúst og hinn síðasti 1. desember.
ív "-fM- M
BARNABÆTUR, BARNABÓTAAUKI,
HÚSNÆÐISBÆTUR OG VAXTAAFSLÁ TTUR
Barnabætur og barnabótaauki hafa á árinu
1988 verið greiddar framfæranda ársfjórð-
ungslega og fer útborgun þeirra næst fram 1.
ágúst og síðan 1. nóvember. Þeir sem sótt
hafa um húsnæðisbætur, og uppfylla skilyrð-
in, fá þær greiddar út í einu lagi 1. ágúst. Hið
sama gildir um útborgun á vaxtaafslætti.
Allar þessar bætur ganga þó fyrst til
greiðslu á vangoldnum opinberum gjöld-
um áður en þær koma til útborgunar.
SKILYRÐIFYRIR SKATTLEYSILAUNATEKNA
Meginskilyrði fyrir skattleysi launatekna
sem aflað var 1987 eru tvíþætt: Annars
ÓBREYTT
INNHEIMTUFYRIRKOMULAG
Innheimta opinberra gjalda á þær tekjur sem
eru skattlagðar við álagningu verður með
sama hætti og áður, þ.e. greiða ber álögð
gjöld með sem næst jöfnum greiðslum á þeim
gjalddögum sem eftir eru á árinu að lokinni
álagningu.
KÆRUFRESTUR
Athygli skal vakin á því að menn hafa 30
daga frest til þess að kæra álagningu opin-
berra gjalda talið frá og með dagsettri auglýs-
ingu skattstjóra um að álagningu sé lokið.
Þeir sem kunna að hafa sætt áætlun skatt-
stjóra vegna þess að skattframtali hefur ekki
verið skilað, geta þannig skilað inn skattfram-
tali áður en kærufrestur rennur út og fengið
áætlun skattstjóra leiðrétta.
Athugasemdir vegna ákvörðunar skatt-
stjóra varðandi húsnæðisbætur skal senda
skattstjóra viðkomandi skattumdæmis fyrir 1.
september1988.
Kœrur vegna álagningar opinberra gjalda 1988 þurfa að berast skriflega til
skattstjóra viðkomandi skattumdœmis áður en auglýstur kœrufrestur rennur út.
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI