Dagur - 09.09.1988, Side 4
4 - DAGUR - 9. september 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR, 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Stjóm og stjómleysi
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar virðist ætla
að gjalda fyrir forystuleysi sitt. Þessi annars
efnilega ríkisstjórn, sem hefur á bak við sig
mikinn þingstyrk, hefur ekki enn sýnt þau
tilþrif sem við var búist. Hún hefur látið hjá
líða að taka á þeim vanda sem við er að etja
í þjóðfélaginu og ætlar sýnilega að sitja
aðgerðalaus enn um sinn. Á sama tíma eru
undirstöðuatvinnuvegirnir komnir að því að
stöðvast.
Mátt- og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar
skrifast fyrst og fremst á reikning
sjálfstæðismanna. Sjálfstæðisflokkurinn er
að sönnu fjölmennur flokkur en að sama
skapi flokkur margra ólíkra fylkinga. Megin-
hlutverk formanns Sjálfstæðisflokksins hef-
ur verið að sætta ólík sjónarmið innan þeirra
og leggja þá línu, sem allir flokksmenn gætu
sætt sig við. Þetta hefur Þorsteini Pálssyni,
formanni flokksins og forsætisráðherra, ekki
tekist. Hvað eftir annað hafa frjálshyggjuöfl-
in, sem eru áhrifamikil innan flokksins, sett
Þorsteini stólinn fyrir dyrnar og neitað að ljá
máls á ákveðnum atriðum sem til umræðu
hafa verið innan ríkisstjórnarinnar. Frá því
niðurfærsluleiðin kom fyrst til álita, hefur
t.d. lögbinding verðlags og „lækkun vaxta
með handafli", aldrei komið til greina af
hálfu Sjálfstæðisflokksins. í raun hafa for-
ystumenn hans verið tilbúnir til að skoða all-
ar leiðir, svo framarlega sem þær fælu í sér
að fjármagnsmarkaðurinn fengi að vera
frjáls og óheftur áfram. Við þetta geta sam-
starfsflokkarnir auðvitað ekki unað til lang-
frama.
Forsætisráðherra ýtti niðurfærsluleiðinni
út af borðinu áður en hún hafði verið könnuð
til fullnustu og vill nú grípa til annarra
aðgerða, sem enn er ókannað með öllu
hvaða afleiðingar hafa. Þolinmæði sam-
starfsflokkanna er á þrotum, enda hefur
tæpum mánuði verið eytt í að skoða niður-
færsluleiðina - að því er virðist til einskis
vegna einstrengingslegrar afstöðu sjálf-
stæðismanna.
Sú spurning gerist áleitin hvort kosningar
séu ekki að verða álitlegur kostur í stöðunni.
Þeim fylgir að vísu nokkurra vikna stjórn-
leysi, en spurningin er sú hvort stjórnleysi
sé í raun verulega frábrugðið núverandi
ástandi? Sífellt fleiri spyrja sig þeirrar spurn-
ingar þessa dagana. BB.
Fékk fylfulla meri
í hestakaupum
og fylið var Fengur
- segir hrossaræktunarmaðurinn
Guðmundur Sigfússon frá Eiríksstöðum
Flestir þeir sem komið hafa
nærri hestamennsku og hrossa-
rækt kannast án efa við hrossa-
kynið frá Eiríksstöðum í Svart-
árdal. Hross af Eiríksstaða-
kyninu eru löngu orðin dreifð
um allt land og alþekkt. Meðal
landsþekktra kynbótahesta af
Eiríksstaðakyninu má nefna
Sörla frá Sauðárkróki sem er
sonur Fengs frá Eiríksstöðum
og Gust frá Höfða sem er af
Eiríksstaðakyni í báðar ættir.
Sá sem heiðurinn á af ræktun
þessa þekkta hrossakyns er
Guðmundur Sigfússon frá
Eiríksstöðum. Blaðamaður
Dags heimsótti Guðmund og
tók hann tali í Sauðanesi í
Torfalækjarhreppi þar sem
hann dvelur nú hjá dóttur sinni
og tengdasyni. Þótt Guðmund-
ur sé kominn af léttasta skeiði,
svolítið á níræðisaldurinn, er
hann ekki hættur hrossarækt-
inni og fer talsvert á hestbak.
Hann var með sex hross á járn-
um í sumar og fór langferðir á
hestunum sínum.
Eignaðist Feng
af hreinni hendingu
- En hvernig stóð á því að Guð-
mundur eignaðist Feng, þennan
mikla kynbótahest?
„Það var nú af hreinni hend-
ingu að ég eignaðist hann. Þannig
var að Tryggvi í Finnstungu var
með gráa meri sem hann var
alltaf að reyna að hafa hestakaup
á og það endaði með því að ég
skipti við hann og lét hann hafa
jarpan fola sem ég átti, ótaminn,
fyrir merina. Sú gráa var fylfull
þegar ég fékk hana og fylið var
einmitt Fengur,“ segir Guð-
mundur og brosir ánægjulega að
þessum hrossakaupum. „Það
voru ágæt grá hross til í Finns-
tungu af kyni Sveins Ingimundar,
hann átti alveg indælis hross, en
Fengur var ekki af því. Móðir
hans var undan Skó frá Eyvindar-
stöðum og faðir Fengs var Jarpur
frá Brandsstöðum sonarsonur
Þokka frá Brún. Það sem er eftir-
tektarvert við Feng er að Jarpur
frá Brandsstöðum var undan
brúnni meri sem var kölluð
Bensa-Brúnka og hún var undan
brúnni meri taminni sem Bensi,
faðir Sigga á Leifsstöðum átti og
hún var alveg úrvalsgæðingur.
Móðurætt Jarps var út af sokk-
óttri meri frá Leifsstöðum sem
var líka tamin og úrvalshross.
Það voru tamdar góðhryssur sem
að honum stóðu svo ekki þarf að
furða sig á að kæmi gott út af
honum.“
- Var Fengur fljótur til að
sýna kostina þegar þú fórst að
temja hann?
„Alveg um leið og svo var
hann svo sérstaklega þægur og
skapgóður. Þegar ég fór út með
hann í fyrsta skipti missti ég hann
fyrir klaufaskap og það var eina
óþægðin sem hann sýndi um
ævina.“
- Fórst þú strax að fjölga
hrossunum eftir að þú fór'st að fá
undan Feng?
„Já þetta var á mæðiveikiárun-
um og það stuðlaði líka að því að
maður fór að fjölga hrossunum.“
- Fékkst þú strax sölumarkað
fyrir hrossin?
„Já, fljótlega eftir að Fengur
var taminn fór ég að selja folöld
og seinna fullorðna og tamda
hesta.“
- Hvenær var það sem þú
sýndir Feng með afkvæmum?
„Það var 1968 og fékk þá á
hann góð fyrstu verðlaun. Þá
fylgdu honum fjórir hvítir góð-
hestar, Vinur, Hörður, Glaður
og Geisli, sem þá var ungur stóð-
hestur og jarpur hestur frá mér
sem Kristján á Húnsstöðum átti,
það var mikill hörkuhestur. Þess-
ir hestar voru allir fæddir hjá
mér.“
- Hefur ekki hvíti liturinn
horfið mikið úr hrossunum
þínum?
„Þau voru mörg hvít eða grá
en sá litur er horfinn að mestu en
auðvitað er fljótlegt að ná honum
upp aftur vegna þess að hrossin
eru öll út af gráu.“
- Varst þú ekki alltaf með
Feng í brúki eins og hvern annan
taminn hest, að sumrinu?
„Jú, venjan var að þegar hann
var tekinn úr merunum á vorin
var honum riðið í stóðreksturinn
og oft fóru krakkar á honum.
Yildi helst ekki
fara af baki
Einu sinni kom Sigurður Birkis,
söngmálastjóri, að finna mig. Þá
var Fengur í merum en ég sótti
hann og lánaði Sigurði hann.
Sigurður kom ríðandi norðan úr
Skagafirði og ég fylgdi honum að
sýslumörkunum og hann reið
Feng. Hann var svo hrifinn af
klárnum að hann vildi helst ekki
fara af baki. Sigurði þótti afskap-
lega gaman að hestum. Óli Sveins
var með Sigurði og konur þeirra.
Þetta var ansi skemmtilegur
dagur.“
- Hrossaræktarsamband A.-
Hún. keypti af þér stóðhestinn
Storm en seldi hann svo úr landi,
voru það ekki mistök?
„Jú, það voru mistök að selja
Storm það kom út af honum mik-
ið af góðum hrosum. Hann var
ólíkur Feng þótt hann væri sonur
hans, miklu harðari og alveg
gríðarlegur yfirferðarhestur.
Fengur hafði líka mikla yfirferð,
gríðarlega rúmur á öllum gangi.
Það eru nú að gerast skemmti-
legir hlutir með Geisla Fengsson
í hrossunum á Bringu í Eyjafirði.
Góðhryssan Elding á Bringu er
dóttir Geisla og svo notaði Reynir
Rúmfatalagerinn:
Svefiiherbergisvömr í
460 fermetra verslun
Viö Óseyri 4 á Akureyri hefur
verið opnaöur stórmarkaður-
inn Rúmfatalagerinn. Verslun-
in er útibú frá sömu verslun í
Reykajvík, en þar hefur hún
starfað í rúmt ár.
Er Dagsmenn komu þar við á
fyrsta degi, var fjölmennt á
staðnum og kunna Akureyringar
greinilega vel að meta þessa
nýbreytni. Jóhann Purkhus sagði
okkur að vörurnar væru frá versl-
uninni Jysk sengetoy í Dan-
mörku sem ætti að vera mörgum
íslendingum að góðu kunn.
Þarna má fá allt í svefnherbergið,
gardínur, sængur, kodda, sæng-
urfatnað, rúm og rúmteppi, í öll-
um stærðum, gerðum og litum á
góðu verði. Verslunin er í 460
fermetra húsnæði svo vel rúmast
um vörurnar. í vetur verður opið
Aðstandendur Rúmfatalagersins, frá vinstri Jóhann Purkhus, Jónvör Stein
hólm verslunarstjóri og Jakob Purkhus. Mynd tl\
frá kl. 9.30 á morgnana til 18.00
mánudaga til fimmtudaga, til
19.00 á föstudögum og 12.00 á
laugardögum. VG