Dagur - 10.09.1988, Side 9
10. september 1988 - DAGUR - 9
Fríður hópur starfsfólks LA. Efsta röð frá vinstri: Arnór Benónýsson, Theodór Júlíusson og Viðar Eggertsson.
Miðröð: Sunna Borg, Nanna Ingibjörg Jónsdóttir, Þráinn Karlsson og Hallmundur Kristinsson. Neðsta röð: Guð-
rún Svava Svavarsdóttir, Guðrún Stcfánsdóttir, Freygerður Magnúsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir. Myndir: tlv
Leikfélag Akureyrar:
Spennandi leikár
Starfsemi Leikfélags Akureyr-
ar er nú komin á fulit skrið og
æfingar hafnar á fyrsta verki
leikársins sem er Skjaldbakan
kemst þangað Iíka, eftir Árna
Ibsen. Arnór Benónýsson
leikhússtjóri, Yalgerður
Bjarnadóttir, formaður leik-
húsráðs og aðstandendur
„Skjaldbökunnar“ boðuðu til
blaðamannafundar af þessu
tilefni.
Skjaldbakan verður frumsýnd
föstudaginn 7. október en vænt-
anlegir leikhúsgestir fá forskot á
sæluna dagana 22.-25. septem-
ber. í*á kemur Gríniðjan í heim-
sókn og verður með gestaleik á
vegum Leikfélags Akureyrar.
Þetta er hinn geggjaði gaman-
Ieikur NÖRD, sem er skamm-
stöfun fyrir: Nær öldungis ruglað-
ur drengur.
NÖRD var sýndur á Hótel ís-
landi síðastliðinn vetur en nokkr-
ar mannabreytingar verða frá
þeim sýningum í sýningunum
fjórum á Akureyri. Laddi fer þó
sem áður með aðalhlutverkið og
af öðrum ieikendum má nefna
Eddu Björgvinsdóttur, Sigrúnu
Waage og Gísla Rúnar Jónsson.
Gísli Rúnar er jafnframt leik-
stjóri.
Gagnkvæm leikaraskipti
íslenski dansflokkurinn er næsti
gestur leikfélagsins, en hann
verður með eina eða tvær sýning-
ar í kringum mánaðamótin októ-
ber-nóvember. Dansflokkurinn
sýnir þá verðlaunaverkið Af
mönnum, eftir Hlíf Svavarsdótt-
ur, ásamt fleiri verkum.
íslenski dansflokkurinn verður
einnig með kynningu í skólum á
Akureyri, sem mun vera
nýbreytni, en listdans er í mikilli
sókn. „Þetta er listgrein sem lítið
hefur verið til sýnis utan höfuð-
borgarsvæðisins, en listdans er
eitt það merkasta sem er að ger-
ast í leikhúslífinu urn þessar
rnundir," sagði Viðar Eggerts-
son, sem leikstýrir verkinu
Skjaldbakan kemst þangað líka.
Arnór Benónýsson hélt áfram
að rekja verkefnaskrána á þessu
leikári og kom nú inn á jóla-
leikritið sem er Emil í Kattholti.
Þetta sívinsæla barnaleikrit verð-
ur frumsýnt annan dag jóla.
Leikstjóri er Sunna Borg.
Um miðjan febrúar verður hið
klassíska verk, Hver er hræddur
við Virginíu Wolf, frumsýnt í
leikstjórn Ingu Bjarnason. Leik-
arahjónin Helgi Skúlason og
Helga Bachmann verða þar í
aðalhlutverkum og fá þau góð-
fúslegt leyfi frá Þjóðleikhúsinu til
að taka þátt í sýningunni. Aðrir
leikarar eru þau Ragnheiður
Tryggvadóttir og Ellert A. Ingi-
mundarson og leikmyndateiknari
er Guðrún Svava Svavarsdóttir.
m /'*’ •. r' ■>. -'ii, •: • 'ji .. 'í
Guðrún Svava Svavarsdóttir hannar
leikmynd í Skjaldbökunni og Virg-
iníu Wolf.
Arnór gat þess að leikaraskipt-
in væru ekki einhliða því Leikfé-
lag Reykjavíkur mun fá Theo-
dór Júlíusson lánaðan og Arnór
leikur sjálfur í Marmara hjá
Þjóðleikhúsinu.
Síðasta verkefni Leikfélags
Akureyrar er Blúndur og blá-
sýra, glæpsamlegur gamanleikur,
vel skrifaður farsi, en þó á eftir
að manna það verk og áskilur
leikfélagið sér allan rétt til breyt-
inga. Auk áðurnefndra verka er
fyrirhugað að bjóða upp á leik-
húsdagskrá með þátttöku kórs og
áhugafólks.
„Óður til lands-
byggðarfólks“
Viðar Eggertsson er Akureyring-
um að góðu kunnur en hann starf-
aði um árabil með Leikfélagi
Akureyrar auk þess sem hann
setti upp sýningu með Leik-
klúbbnqm Sögu. Nú fær hann
tækifæri til að leikstýra hjá
atvinnúleikhúsi því hann var
fenginn til að setja upp leikrit
Árna Ibsens, Skjaldbakan kemst
þangað líka. Viðar þekkir þetta
verk vel, hann lék á móti Arnóri
Benónýssyni í Skjaldbökunni fyr-
ir nokkrum árum og hann hefur,
sem Egg-leikhúsið, ferðast víða
með þetta verk. Guðrún Svava
Svavarsdóttir hannar leikmynd í
uppfærslu Leikfélags Akureyrar
en Þráinn Karlsson og Theodór
Viöar Eggertsson leikstýrir Skjald-
bökunni.
Júlíusson leiða saman hesta sína
á sviðinu.
„Mér til mikillar ánægju hef ég
fengið tækifæri til að setja upp
það verk sem mér þykir einna
vænst um. Þótt þetta verk fjalli
um tvö amerísk ljóðskáld þá á
það erindi við allt landsbyggðar-
fólk. í rauninni fjallar Skjaldbak-
an um tvær manneskjur sem taka
hvor sína stefnuna í lífinu. Önn-
ur fer út f heim og reynir að
„meika það“ en hin er eftir á
heimaslóðum og ræktar garðinn
sinn,“ sagði Viðar. „Þetta er
óður til landsbyggðarfólks."
Hann sagði að Skjaldbakan
hefði hvarvetna vakið mikla
athygli og umræðu um gildi þess
að vera trúr uppruna sínum.
Hann sagðist vera mjög ánægður
með Þráin og Theodór í hlut-
verkum ljóðskáldanna, en þeir
hafa til skiptis verið burðarásar í
verkum Leikfélags Akureyrar og
gaman verður að sjá þá saman á
sviðinu, báða í aðalhlutverkum.
SS
Breyttur
opnunartími
Frá og með 15. september breytist opnunartími
frá því sem verið hefur!
Framvegis verða skrifstofur félaganna opnar frá
kl. 9-17.
Trygging hf.
Almennar Tryggingar hf.
Brunabótafélag íslands
Sjóvá — Hagtrygging.
V__________________________/
Sveitarstjórnir, forsvarsmenn
félaga, fyrirtækja og stofhana
Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra verða
til viðtals dagana 18.-21. september ’88 á eftir-
töldum stöðum:
Raufarhöfn sunnudaginn 18. sept.
Húsavík mánudaginn 19. sept.
Akureyri þriðjudag og miðvikudag 20. og 21.
sept.
Tímapantanir og frekari upplýsingar fást hjá Gunn-
ari Hilmarssyni sveitarstjóra Raufarhöfn, Bjarna Þór
Einarssyni, bæjarstjóra Húsavík og Valgarði Bald-
vinssyni, bæjarritara Akureyri.
Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra.
V____________________________________________/
Fjölnýtikatlar
til kyndingar með
rafmagni, olíu eða
timbri, margar
gerðir.
Mjög góð hitanýt-
ing og möguleiki á
stýrikerfum, til að
fá jafnara hitastig.
C.T.C. Total er
öflugur nýr ketill
fyrir rafmagn, timb-
ur og olíu með inn-
byggðu álagsstýri-
kerfi.sem nýtir vel
rafmagnið fyrir þá
sem kaupa
árskílóvött.
UÓSGJAFINN HF.
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 49 • SÍMI23723 ■ 600 AKUREYRI
FYRIRTÆKISNÚMER 6148-9843