Dagur - 14.09.1988, Síða 3
14. september 1988 - DAGUR - 3
„Andlits-
lyfting“ á
Seyðisfirði
í sumar var gert stórátak í fegr-
un og snyrtingu Seyðisfjarðar-
bæjar. Ungt par, nemar í
skrúðgarðyrkju, var ráðið til
bæjarins og unnu þau ötullega
að skipulagningu og gróður-
setningu í bænum. Þau hafa
verið endurráðin næsta sumar.
Snemma í júní var ákveðið að
fá bæjarbúa á Seyðisfirði til þess
að safnast saman um helgi og
hreinsa bæinn. Tókst það ágæt-
lega til og var yfir 100 bílum af
drasli ekið á haugana. Hreinsað
var drasl, bæði gamalt og nýtt,
jarðfast og laust.
Að þessu loknu tók bærinn
sjálfur til við fegrun með aðstoð
skrúðgarðyrkjunemanna. „Þau
gjörbreyttu bænum, hafa skipu-
lagt opin svæði, tyrft og gróður-
sett tré og blóm. Svæðið við
sjúkrahúsið, minnisvarðann við
brúna yfir Fjarðará, kringum lón-
ið og kirkjuna er nú allt annað.
Þá tóku þau tjaldstæðið líka í
gegn í sumar,“ sagði Jóhann
Sveinbjörnsson gjaldkeri á
bæjarskrifstofunni á Seyðisfirði í
samtali við blaðið.
Á Seyðisfirði eru nú yfir 90%
af götum bæjarins malbikaðar. í
sumar stóð til að vinna töluvert
við gangstéttagerð en sakir
lélegrar tíðar, tókst það ekki.
Jóhann sagði að um þessar
mundir væri verið að ljúka við að
taka félagsheimilið í gegn að
utan. Gert var við þakið fyrir 2
milljónir króna og það hefur ver-
ið málað utan sem ku vera mikil
andlitslyfting. VG
HSÞ:
FjaUahlaup
í Mývatassveit
Héraðssamband S.-Þingeyinga
stendur fyrir svokölluöu Fjalla-
hlaupi laugardaginn 17. sept-
ember nk. Hlaupið verður í
Mývatnssveit og hefst kl.
14.00.
Leiðin sem hlaupin verður er
u.þ.b. 6 km og er hér um nokk-
urs konar víðavangshlaup að
ræða, en eins og nafnið bendir til
er ekki farið beint troðnar slóðir
heldur leitast við að velja leið
sem er nokkuð frábrugðin því
sem þekkist í hlaupum hér á
landi.
Gunnar Jóhannesson, HSÞ
sagði að tilgangur sambandsins
með að bjóða upp á hlaupið væri
að prófa eitthvað nýtt. Sagðist
hann vona að þekktir hlauparar
kæmu til að taka þátt í hlaupinu.
Gunnar veitir nánari upplýsingar
og tekur við þátttökutilkynning-
um tii föstudagsins 16. sept., í
símum 41076 - 41948 og 41641.
Þátttökugjald er kr. 300,- Auk
hefðbundinna viðurkenninga
verða veittir æfingastyrkir fyrir
þrjú efstu sætin. IM
Þingmeim
á Húsavík
Þingmenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra verða með við-
talstíma í kjördæminu 18.-21.
september.
Mánudaginn 19. sept. verða
þingmennirnir staddir á Húsavík
og geta sveitarstjórnarmenn, full-
trúar þeirra eða aðrir sem óska
eftir viðtalstímum snúið sér til
Bjama Þórs Einarssonar bæjar-
stjóra. IM
r ■■
AVOXTUNIN A
SPARISKÍRTEINUM ríkissjóðs
ER ALLS STAÐAR SÚ SAMA
Það er í sjálfu sér einföld athöfn að kaupa spariskírteini ríkissjóðs en í
því eins og öðru getur skipt máli að réttar upplýsingar og þjónusta séu
fyrir hendi.
öll útibú okkar eru viðbúin því að taka á móti þér með sérþjálfað
starfsfólk, þægilega aðstöðu sem gefur tækifæri til ráðlegginga í góðu
tómi og fjölbreytta sérþjónustu.
• Við veitum þér allar fáanlegar upplýsingar um spariskírtemin.
« Við upplýsum þig um það hvers vegna spariskírteinin eru ef til vill
svo hagstæð fyrir þig núna.
• Við athugum fýrir þig, hvort hagstætt er að innleysa gömlu skírtein-
inþínogkaupaný.
• Við sjáum um að innleysa gömlu skírteinin fyrir þig og kaupa ný eða
leggja féð inn á Bónusreikning eða önnur ávöxtunarform bankans.
» Við gætum þess að sparifé þitt missi ekki verðbætur og vexti við
gjalddaga spariskírteinanna eins og hent hefur svo marga.
• Viðvarðveitumskírteininfyrirþig.
Heimsæktu okkur í eitthvert útibúanna, þar verður tekið vel á móti þér
með persónulegri nútíma þjónustu.
lónaóarbankínn
-tötím MO
0
Það er þjónustan sem
skiptir sköpum