Dagur - 16.09.1988, Blaðsíða 2

Dagur - 16.09.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 16. september 1988 Akureyringar - nærsveitamenn! Tökum aö okkur alla almenna járnsmíði - nýsmíöi og viðgerðir. Gerum föst verðtilboð ef óskað er. Stáltak sf. - Járnsmíðaverkstæði Fjölnisgötu 4 b, Akureyri ■ Sími 27622. Pottaplöntu- og haustlaukamarkaður föstudag og laugardag. 15% kynningarafsláttur. Opið laugardag í Hafnarstræti kl. 9-16 og í Sunnuhlíð kl. 10-18. Blómabúðin Laufás Hafnarstræti og Sunnuhlíð. HÓTEL KEA Dansleikur Laugardagskvöldið 17. september Hinir bráðhressu Miðaldamenn frá Siglufirði leika fyrir dansi Kristján Guðmundsson ieikur fyrir matargesti Hótel KEA Fjölskyldutilboð sunnudaginn 18. september Sjávarréttasúpa og fyllt grísasteik verð aðeins kr. 690,- Frítt fyrir börn 0-6 ára, V2 gjald fyrir 6-12 ára ■ ■ • og íspinni fyrir þá sem vilja SMlliy Bordapantanir i síma 22200 Verðlaunagarður Þessi mynd er af öðrum tveggja garða á Sauðárkróki, sem útnefndir voru fegurstu og snyrtilegustu garðar bæjarins í ár. Dagur skýrði frá þessari verðlaunaveitingu í gær, en vegna mistaka birtist einungis mynd af öðrum garðinum. Þessi fallegi garður stendur við Grundarstíg 7 á Sauðárkróki og eigendur eru Sigurgeir Þórarinsson og Jóhanna Valdimarsdóttir. Mynd: -bjb. Flugáhugamenn: Flytja hús úr Vaðlaheiði yfir á Melgerðismela Á laugardaginn verður hús flugáhugamanna í Eyjafirði flutt af núverandi stað í Vaðla- heiði yfir á Melgerðismela. Eins og skýrt hefur verið frá í Degi keyptu flugáhugamenn gamla Menntaskólabástaðinn í Vaðlaheiði fyrir skömmu og ná er sem sagt komið að því að flytja hann á þann stað sem hann á að standa um ókomin ar. Á Melgerðismelum hafa flug- áhugamenn leigt sér 10 hektara athafnasvæði og þar verða módelflugmenn, vélflugmenn, Raufarhöfn: Framkvæmdum við togarakant að ljúka Um þessar mundir er verið að leggja síðustu hönd á fram- kvæmdir við löndunarbryggju frystihássins á Raufarhöfn. Um helgina verður lokið við að steypa togararakantinn en hér er um að ræða 80 metra kant. Framkvæmt hefur verið við kant- inn fyrir 8-9 milljónir í sumar og strax að loknu þessu verki, verð- ur hafist handa við að steypa sökkla undir dvalarheimili aldr- aða. Stefnt er að því að fylla grunninn fyrir veturinn en húsið verður á 3. hundrað fermetrar á stærð, alls fjórar íbúðir. VG svifflugmenn og fallhlífastökkv- arar með aðstöðu í framtíðinni. Stefnt er að því að koma upp merktri flugbraut í tengslum við athafnasvæðið á Melgerðismel- um, viðurkenndri af flugmála- stjóm. Sem fyrr segir skal bústað- urinn fluttur á Melgerðismela á laugardag. Stefnt er að því að hefja flutninginn kl. 8.00 árdegis og eru áhugamenn hvattir til að fjölmenna og aðstoða við verkið. Þeir sem geta mætt upp að bú- staðnum í Vaðlaheiði á föstudag kl. 14.00 eru einnig hjartanlega velkomnir, en þá er ætlunin að „tjakka“ bústaðinn upp og undir- búa flutninginn. Búast má við nokkurri röskun umferðar á þeim vegum sem bústaðurinn fer um á laugardag og eru vegfarendur beðnir um að sýna tillitssemi. Þess má að lokum geta að sleg- ið verður upp mikilli hátíð á Melgerðismelum þegar flutning- arnir verða afstaðnir síðdegis á laugardag. Fiskvinnslan færist í auknum mæli út á sjó: „Frystihúsin snúi sér að meiri og dýrari vinnslu - og sæki meira inn á beinan neytendamarkað“ segir Benedikt Sveinsson aðstoðarframkvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar SÍS Fiskvinnsla í landinu hefur undanfarin ár færst í auknum mæli át á sjó. Rekstur flestra þeirra skipa sem vinna aflann um borð, hefur gengið mun betur en frystihásanna í land- inu og auk þess virðist mark- aður fyrir þann fisk sem unn- inn er áti á sjó, vera góður t.d. í Áusturlöndum fjær og Evrópu. „Það sem hefur gerst hjá Sam- bandinu á þremur árum, er að 30% af okkar afurðum eru nú unnar úti á sjó,“ sagði Benedikt Sveinsson aðstoðarframkvæmda- stjóri Sjávarafurðadeildar SÍS í samtali við Dag um þetta mál. „Þetta er auðvitað mjög merkileg þróun en ætti þó ekki að koma mönnum á óvart. Frystiskipunum fjölgar ört og væntanlega bætist nýtt skip í okkar flota innan skamms en það er Snæfellið í Hrísey. Þegar Snæfellið hefur bæst við, erum við komnir með 10 frystiskip sem framleiða fyrir okkur. Ég spái því að á þessu ári munu þau framleiða þriðjung af allri okkar framleiðslu en fyrir 5 árum var engin vinnsla hjá okkur úti á sjó.“ Benedikt sagði að vaxtar- broddurinn væri í vinnslu úti á sjó, því vinnsla í frystihúsunum hefur dregist saman eins og flest- um væri kunnugt. „Frystihúsin vinna í stórar hefðbundnar veit- ingahúsapakkningar og hafa gert lengi en ég tel að vinnsla í stórar einfaldar pakkningar á t.d. þorsk, ýsu og ufsa fyrir Evrópu, sé enn hentugri um borð í skipunum. Og ýmislegt af því sem frystihúsin gera í dag, eru skipin að gera með miklu betri árangri, sem sést m.a. á því að þau eru rekin með mun betri afkomu en frystingin. Það sem frystihúsin ættu að gera, væri t.d. að snúa sér að meiri og dýrari vinnslu og þá nýta sér það að vera með fast land undir fótum. Einnig væri hugsan- legt að frystihúsin sæktu meira inn á beinan neytendamarkað og eftirlétu þá togurnum vinnslu á einfaldari pakkningum." - Vandi frystihúsanna er flest- um ljós og síðustu daga hafa heyrst uggvænlegar tölur um tap- rekstur þeirra hvern dag. Hvað þarf að gera til bjargar frystihús- unum? „Það eina sem getur bjargað

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.