Dagur - 16.09.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 16. september 1988
Matvöniverslanir KEA
Illboð vikunnar
Sama verð
á öllu félagssvæðínu
Nýtt tQboð í hverri viku.
Stendur eina viku í senn.
Sjá nánar auglýsingar í Degi fyrr í vikunni
Matvömverslanir KEA
Vélavörð vantar
á Sænes, 110 lesta bát frá Dalvík.
Upplýsingar í símum 96-61614 og 96-61408.
Fimleikaráð
Akureyrar
óskar eftir kven- og karlþjálfurum til starfa í vetur.
Upplýsingar í síma 23021 (Amí) eftir
kl. 21.00.
Við leitum að góðum ritara allan daginn (eða
tveimur hálfan daginn) til að vinna almenn skrif-
stofustörf, annast símavörslu, mótttöku, veita
upplýsingar o.fl.
Þarf að geta unnið sjálfstætt, hafa góða íslensku-
kunnáttu, gjarnan einhverja þekkingu í Norður-
landamáli og ensku, og geta byrjað 1. okt.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni að Brekkugötu
1, sími 27577, opið kl. 13-16.
Stefanía Arnórsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir.
Amerískir dagar
í Sja.lla.nnm
Amerískir dagar verða í Sjallan-
um dagana 21. og 22. september.
14 manna hópur söngvara og
dansara frá Discoveryland í
Oklahoma, Bandaríkjunum,
verður með fjöruga sýningu í hálf-
an annan tíma samfleytt, sem
fléttuð er saman úr völdum atrið-
um úr söngleiknum Oklahoma og
Villta vestrinu og krydduð með
ærslafengnum en þrautþjálfuðum
kúrekaleikjum, sveitasöngvum
og dönsum. Sýningin hefst kl. 21.
Matseðillinn þessi kvöld er að
hætti þeirra Ameríkumanna -
kjúklingasúpa og safarík nauta-
steik með maískorni, bakaðri
kartöflu og grilluðum tómat.
Heildarverð fyrir sýningu og mat
er kr. 2.350,-
Þessar tvær sýningar sem fyrir-
hugaðar eru á Akureyri eru liður
í hátíðahöldum Sjallans í tilefni
25 ára afmælisins.
Iionessur
selja plastpoka
Þessa dagana stendur yfir hin
árlega sala Lionessa á Akureyri á
heimilispokum og munu þær
ganga í hús í bænum í dag og
næstu daga.
Ágóði sölunnar rennur til líkn-
armála. Lionessur á Akureyri
styrktu Fæðingadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri til
tækjakaupa á síðasta ári og munu
einnig gera það nú. Vonast þær
til að bæjarbúar taki þeim vel að
vanda og sýni með því áhuga sinn
á að ljá góðu málefni lið.
Og svo er alltaf not fyrir hand-
hæga plastpoka á heimilinu, ekki
satt?
R^ÐQOFCXiR^DSÍNGAR
Vanur ritari
Torfærukeppni
í bæjar-
krúsunum
Bílaklúbbur Akureyrar heldur
síðustu torfærukeppni sumarsins
í bæjarkrúsunum í Glerárdal á
laugardaginn. Keppnin hefst
klukkan 14.00 og stendur fram
eftir degi. Öruggt er að keppnin
verður mjög hörð þar sem lítill
stigamunur er á keppendum, en
þetta er síðasta torfærukeppnin í
Islandsmeistarakeppninni í ár.
Bílaklúbbur Akureyrar hvetur
fólk til að mæta og fylgjast með
harðri og spennandi keppni á
laugardag.
Skriðjöklar á
heimaslóöum
- stórdansleikir í Sólgarði
og Hótel Höfn um helgina
[ kvöld mun gleðisveitin
ikriðjöklar frá íslandi halda
itórdansleik í Sólgarði í Eyja-
Irði. Verður þetta í fyrsta sinn
tæpt ár sem hljómsveitin
FáJkafells-
opnunar-
veisla!
Laugardaginn 17. september
verður hin árlega opnunarveisla í
Fálkafelli, sem er stærsti útilegu-
skáli Skátafélagsins Klakks.
Mæting er kl. 20.15 við Pásu-
stein, og verður lagt af stað kl.
20.30. Einnig munu dróttskátar
verða vígðir. Skátahöfðingi
íslands, Gunnar Eyjólfsson, er
gestur kvöldsins.
Rætt verður um starfið á kom-
andi starfsári og ekki má gleyma
hinum glæsilegu veitingum sem í
boði verða. f lokin verður svo
stutt kvöldvaka að skátasið.
Skátar og velunnarar eru hjart-
anlega velkomnir.
Með skátakveðju.
Dróttskátar 3. deild.
kemur fram á sínum heima-
slóðum ef útihátíðin á Mel-
gerðismelum um verslunar-
mannahelgina er undanskilin.
Annað kvöld mun sveitin síðan
troða upp á Hótel Höfn á
Siglufírði.
Að sögn Eggerts Benjamíns-
sonar, eða Skeggerts eins og
hann er oft kallaður, hefur
hljómsveitin undirbúið sig af
kostgæfni fyrir þessa dansleiki og
hyggst hún m.a. leika ný lög af
væntanlegri breiðskífu. „Auk
þess er ekki útilokað að við kom-
um naktir fram,“ sagði „Skeggi“
og glotti við tönn.
Jöklarnir hafa haft í ýmsu að
snúast í sumar. Sveitin hefur leik-
ið á u.þ.b. 40 dansleikjum vítt og
breitt um landið frá því í júní og
innan skamms mun hljómsveitin
haída utan til tónleikahalds.
„Okkur fannst ekki hægt annað
en að kasta kveðju á hin norð-
lensku sprund áður en við höld-
um utan. Þetta verður trúlega í
síðasta sinn á þessu ári sem við
komum fram á Norðurlandi og
því ástæða til að hvetja allar
skvísur til að líta við í Sólgarði
eða á Hótel Höfn,“ sagði Eggert
Benjamínsson, hinn blíðlyndi
trymbill Skriðjökla.
DAGIIR
Blönduósi
S 954070
Norðlenskt dagblað