Dagur - 16.09.1988, Page 6
6 - DAGUR - 16. september 1988
Júdó-æfíngar
veturinn 1988-1989
Æfingarnar hefjast mánudaginn 19. september
Flokkur 5-8 ára:
Miðvikudaga kl. 18.10-19.10.
Sunnudaga kl. 13.00-14.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 1500,-
Flokkur 9-13 ára:
Þriðjudaga kl. 18.10-19.10.
Fimmtudaga kl. 18.10-19.10.
Sunnudaga kl. 14.00-15.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 2000,-
Flokkur 14 ára og eldri:
Mánudaga kl. 19.30-21.00.
Þriðjudaga kl. 19.30-21.00.
Miðvikudaga kl. 19.30-21.00.
Fimmtudaga kl. 19.30-21.00.
FÖStudaga kl. 18.30-20.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 3000,-
Kvennaflokkur:
Mánudaga kl. 21.00-22.00.
Fimmtudaga kl. 21.00-22.00.
Sunnudaga kl. 15.00-16.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 2000,-
Æfingar eru í íþróttahöllinni.
Tvær vinsælustu
hljómsveitir landsins
ÐE LÓhLÍ BLÚ B0J5 00
ROKK5VEIT RÚHAR5 JÚLÍU550MAR
í Sjallanum föstudags- og laugardagskvöld
OKLAHOMA
OO VILLTA VE5TRIÐ
90 mínútna stórsýning með söngvurum og dönsurum
frá OKIahoma í Bandaríkjunum.
Valdar perlur úr sönglelknum Oklahoma
ásamt vlllta vestrinu með tilheyrandi dönsum,
kúrekaleikjum og sveitasöngvum
dagana 21. og 22. september.
Kynnir Bjarni Dagur Jónsson.
Miða- og borðapantanir
í síma 22970.
Markús Örn Antonsson:
Landsbyggðin
í fjöhmðlum
„Enginn fjölmiðill annar en
útvarpið getur nánast fyrirvara-
laust tekið á málum og gert þeim
skil, flutt fréttir og áríðandi til-
kynningar með hraði til fólks um
land allt.
Ekkert fær betur tryggt ítar-
lega og áreiðanlega umfjöllun í
fréttum útvarps af viðburðum í
fjarlægum landshlutum en vitnis-
burður sjónarvotts á staðnum,
fréttamanns eða fréttaritara.
Þetta eru alkunn sannindi um
gildi öflugrar útvarpsstarfsemi,
sem mönnum verða ljósust við
skilyrði lík þeim sem ríkt hafa í
Ólafsfirði undanfarna daga og
mjög hafa sett svip sinn á frétta-
flutning Ríkisútvarpsins síðustu
viku.
Þróttmikill, tíður og ábyrgur
fréttaflutningur og gerð frétta-
tengds efnis er aðalsmerki hverr-
ar útvarps- og sjónvarpsstöðvar.
Því hafa forráðamenn Ríkisút-
varpsins lagt allt kapp á að
treysta innviðina í starfsemi
fréttastofanna síðustu árin, efla
fréttaöflunarkerfi og fjölga
fréttatímum og sérstökum dag-
skrárþáttum sem ætlaðir eru til
lengri umfjöllunar um einstök
málefni og efnisatriði.
Landsbyggðin í fjölmiðlum og
fréttum er yfirskrift þessa dag-
skrárliðar fjórðungssambands-
þings. Ég kýs eftir atvikum að
snúa henni lítillega við í þessu
erindi mínu. Fjölmiðlar á lands-
byggðinni eru, að því er Ríkisút-
varpið varðar, órjúfanlegur þátt-
ur af þeim tengslum við fólkið í
landinu, miðlun upplýsinga milli
landshluta og innan þeirra sem
Ríkisútvarpið hefur á undanförn-
um misserum lagt sérstaka rækt
við að efla.
í útvarpslögum frá 1985, sem
Ríkisútvarpið og einkstöðvar
starfa eftir er með allólíkum
hætti skilgreint hlutverk og skyld-
ur þessara fyrirtækja og kröfur
um þjónustu við landsmenn.
Einkastöðvarnar fá heimildir
til svæðisbundinnar starfsemi en
hafa í reynd getað fært út kvíarn-
ar til þeirra þéttbýlisstaða utan
höfuðborgarsvæðisins sem arð-
vænlegust þykja fyrir rekstur
þeirra. í lögum er tekið fram að
einkastöðvum beri að stuðla að
almennri menningarþróun og
efla íslenzka tungu. Þeim er einn-
ig skylt að lesa tilkynningar frá
almannavörnum, löggæzlu, slysa-
varnafélögum eða hjálparsveit-
um og gera hlé á dagskrá ef brýna
nauðsyn ber til og almannaheill
krefst.
Frekari dagskrárlegar skyldur
eru ekki lagðar einkaútvarps- og
sjónvarpsstöðvum á herðar sam-
kvæmt hinum nýju útvarpslög-
um.
í þeim kafla laganna, sem fjall-
ar um Ríkisútvarpið er í fyrsta
lagi undirstrikað að það skuli
senda út til landsins alls og næstu
miða tvær hljóðvarpsdagskrár og
minnst eina sjónvarpsdagskrá
árið um kring. Til þess að ná
þessu markmiði hefur Ríkisút-
varpið byggt upp afar víðfeðmt
og öflugt dreifikerfi um allt land.
Rás 1 er dreift um 65 FM-
stöðvar, tvær langbylgjustöðvar
og nokkra miðbylgjusenda. Ann-
að sjálfstætt kerfi þarf fyrir Rás
2, sem enn er í uppbyggingu. í
því kerfi eru nú 46 FM-sendar.
Til samanburðar má geta þess að
samanlagt notast einkastöðvarn-
ar Bylgjan og Stjarnan við 9 FM-
senda á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurlandi og Eyjafjarðarsvæði.
Allir FM-sendar hafa sjálfstætt
tíðnisvið til að forðast að útsend-
ingum frá tveim eða þrem nær-
liggjandi sendum slái saman og
þeir trufli hver annan. Þess vegna
þurfa notendur að stilla útvarps-
tækið í bílnum á milli stöðva ef
hlustað er á FM-útsendingu þeg-
ar ekið er um landið.
Dreifikerfi Sjónvarpsins
samanstendur af 9 hnútstöðvum í
örbylgjuneti hringinn í kringum
landið og 134 endurvarpsstöðv-
um sem annast miðlunina til ein-
stakra byggðarlaga.
Stofnverð alls dreifikerfis
Útvarps og Sjónvarps reiknað til
núvirðis er um 1800 milljónir
króna og árlegur reksturskostn-
aður er rúmlega 70 milljónir.
Ríkisútvarpið fjármagnar sjálft
stofnkostnað og rekstur dreifi-
kerfisins en Póstur og sími annast
framkvæmdir fyrir það, rekstur
og viðhald. Dreifikerfið er enn í
þróun og verður svo um mörg
komandi ár. Þörf er á endurnýj-
un langbylgjustöðvar, öflugri
útvarps- og sjónvarpssendingu út
á miðin svo og þéttingar á FM-
og sjónvarpsendurvarpskerfinu.
þannig að móttökuskilyrði verði
bætt á þeim svæðum, sem illa eru
sett í þessu tilliti nú.
Það eru stór orð að segja, en
hljóta þó að lýsa lokatakmarki
útvarps allra landsmanna, það er,
að útvarp og sjónvarp Ríkisút-
varpsins náist með viðunandi
hætti á hverju byggðu bóli á land-
inu. Með tilliti til þeirrar byggða-
stefnu sem endurspeglast í öllum
aðgerðum varðandi dreifingu
dagskrárefnis Ríkisútvarpsins og
þeirrar samfélagslegu þjónustu
sem í henni felst, verður seint séð
að aðrir aðilar taki að sér þann
rekstur einir og óstuddir. Opin-
ber tilstuðlan og fjármögnun af
almannafé með einhverjum hætti
yrði óhjákvæmilega að koma til.
Því hefur löggjafinn ætlað Ríkis-
útvarpinu þetta hlutverk og
markað því tekjustofna sem m.a.
felast í almennu afnotagjaldi á öll
viðtæki er gera mönnum kleift að
taka á móti útvarps- og sjón-
varpssendingum.
Snúum okkur þá að þeim kafla
útvarpslaga sem tíundar dag-
skrárlegar skyldur Ríkisútvarps-
ins. í 15. gr. er þeim svo lýst:
„Ríkisútvarpið skal leggja rækt
við íslenska tungu, sögu þjóðar-
innar og menningararfleifð.
Ríkisútvarpið skal halda í
heiðri lýðræðislegar grundvallar-
reglur og mannréttindi og frelsi til
orðs og skoðana. Það skal gæta
fyllstu óhlutdrægni í frásögn,
túlkun og dagskrárgerð.
Ríkisútvarpið skal m.a. veita
almenna fréttaþjónustu og vera
vettvangur fyrir mismunandi
skoðanir á þeim málum sem efst
eru á baugi hverju sinni eða
almenning varða. Það skal flytja
fjölbreytt skemmtiefni við hæfi
fólks á öllum aldri. Sérstaklega
skal þess gætt að hafa á boðstól-
um fjölbreytt efni við hæfi barna,
jafnt í hljóðvarpi og sjónvarpi.
Ríkisútvarpið skal flytja efni
m.a. á sviði lista og bókmennta,
vísinda og sögu auk tónlistar.
Erindi flutt á
Fjórðungsþingi
Norðlendinga
að Húnavöllum
undir dagskrárliðnum
„Fjölmiðlun
á landsbyggðinni“
Það skal veita almenna fræðslu
og gera sjálfstæða dagskrárþætti
er snerta ísland eða íslendinga
sérstaklega.
Útvarpsefni skal miða við fjöl-
breytni íslensks þjóðlífs. Veita
skal alla þá þjónustu sem unnt er
með tækni útvarpsins og þjóðinni
má að gagni koma.“
Þá er í 16. gr. tekið fram að
Ríkisútvarpið skuli stefna að því
að koma upp aðstöðu til dag-
skrárgerðar og hljóðvarps í öllum
kjördæmum landsins.
Ennfremur, að Ríkisútvarpið
skuli starfrækja fræðsluútvarp í
samvinnu við fræðsluyfirvöld og
skuli veita til þess fé á fjárlögum.
Með tilliti til þess að hin nýju
útvarpslög kveða á um gjörbylt-
ingu í útvarpsmálum þjóðarinnar
Markús Öm Antonsson.
með heimild til útvarpsrekstrar
til handa öðrum en Ríkisútvarp-
inu þótti ástæða til að setja eftir-
farandi setningu í lögin: Þjónustu
Ríkisútvarpsins skal í engu
minnka frá því sem nú er hjá
Ríkisútvarpinu.
Stjórnendum Ríkisútvarpsins
og starfsmönnum var ljóst að
yfirvofandi samkeppni í útvarps-
málum kallaði á margs konar
endurskipulagningu innan stofn-
unar, breyttar og auknar áherzlur
á einstök þjónustusvið. Þetta
starf tók til margra ólíkra þátta í
rekstri stofnunarinnar. Ríkisút-
varpið varð að styrkja svo sem
kostur var stöðu sína í sam-
keppni, þar sem saman fóru kröf-
ur notenda um forystu þess á öll-
um sviðum fram yfir aðra sam-
bærilega miðla og stórfelldir pen-
ingalegir hagsmunir á auglýsinga-
markaði. Árið 1985, þegar nýju
lögin voru sett námu tekjur af
auglýsingum helmingi heildar-
tekna Ríkisútvarpsins. Það lá í
augum uppi, af ýmsum ástæðum,
að umtalsverð breyting yrði þar á
en hlutverk okkar var að bregð-
ast við óvissu og umróti með
þeim aðgerðum sem taldar voru
skynsamlegastar og rúmuðust
innan allra þeirra þröngu tak-