Dagur - 27.09.1988, Page 9
8 - DAGUR - 27. september 1988
27. september 1988 - DAGUR - 9
íþróttir
Leikur Steinar Ingimundarson með KA næsta keppnistímabil? Mynd: tlv
Örn Viðar Arnarson hélt Sævari Jónssyni í spennitreyju. Það dugði hins vegar ekki til og Sævar skoraði sigurmark Valsmanna.
Knattspyrna 2. deild:
KS kvaddí með sigri
- lagði Fylki að velli 3:0 á Siglufirði
KS kvaddi 2. deildina að þessu
sinni með góðum sigri á Fylki
3:0. Veðurguðirnir settu mik-
inn svip á leikinn, því miklum
snjó kyngdi niður fyrir og með-
an á leiknum stóð og var
leikurinn því oft líkari ísknatt-
leik heldur en knattspyrnuleik.
Fyrri hálfleikurinn var að
mestu leyti tíðindalítill. Leik-
mennirnir þreifuðu fyrir sér og
reyndu að halda jafnvægi á hvít-
um vellinum. Hættulegasta
marktækifærið kom er Siglfirð-
ingurinn Óli Agnarsson brenndi
illilega af um miðjan hálfleikinn.
Síðari hálfleikurinn var mun
fjörugri og náðu heimamenn sér
vel á strik. Hver sóknarlotan af
annarri buldi á marki Fylkis-
manna og áttu þeir í mestu erfið-
leikum með fríska framlínumenn
Siglfirðinga.
Fyrsta markið kom er besti
maður vallarins Hafþór Kol-
beinsson þrumaði knettinum í
mark Árbæinga af löngu færi.
Glæsilegt mark!
Róbert Haraldsson bætti síðan
öðru marki við tíu mínútum síðar
er hann stakk sér inn af kantin-
um, lék fimlega á bakvörðinn og
sendi tuðruna í netið af stuttu
færi.
Hafþór Kolbeinsson setti síðan
punktinn yfir i-ið með því að
skora ágætt mark með laumuleg-
um bananabolta yfir markvörð
gestanna. Heimamenn áttu síðan
nokkur góð marktækifæri, en
tókst að klúðra nokkrum mjög
góðum marktækifærum. Einkum
var það Óli Agnarsson sem var
duglegur í klúðursdeildinni.
Sigur KS-drengjanna var fylli-
lega verðskuldaður og hefði átt
að vera stærri. Þetta var örlítil
sárabót fyrir fallið og sýnir að lið-
ið getur spilað góða knattspyrnu.
Hafþór Kolbeinsson átti stórleik
í liði KS og einnig stóð Magnús
Jónsson sig vel í markinu. Tómas
Kárason var aftur kominn í sína
gömlu stöðu á miðjunni og stóð
sig vel. Jakob Kárason tók stöðu
hans í vörninni og hélt hreinu!
Fylkisliðið hefur heldur betur
misst flugið eftir að þeir tryggðu
sér sæti í 1. deildinni. Þeir hafa
nú tapað þremur leikjum í röð og
betur má ef duga skal hjá Árbæj-
ardrengjunum ef þeir ætla að
standa sig í 1. deildarkeppninni. í
þesum leik bar mest á Erni Valdi-
marssyni og Guðjóni Reynissyni.
KS-ingar kveðja nú 2. deildina
og hlýtur það að vera stuðnings-
mönnum þeirra erfiður biti að
kyngja. En liðið sýndi í seinustu
leikjunum að það getur spilað
góða knattspyrnu, þannig að ef
rétt verður að málum staðið mun
KS ekki dvelja lengi í 3. deild-
inni. AP
Óli Agnarsson kom mikið við sögu í leiknum
SL-mótið 1. deild í knattspyrnu:
KA-menn lágu fyrir Val
- eiga þó hrós skilið fyrir keppnistímabilið
Valsmenn tóku á móti verð-
launum fyrir 2. sætið í SL-
deildinni á Akureyrarvelli á
laugardaginn eftir 1:0 sigur á
KA. Þetta var leikur sem
skipti ekki nokkru máli fyrir
liðin og var hann Ieiðinlegur í
samræmi við það. Ekki bætti
veðrið úr skák, éljagangur og
kuldi, og áhorfendur hafa ekki
verið færri í ómunatíð.
Aðeins eitt lið var á vellinum í
fyrri hálfleik; Valur. Á 11. mín-
útu skallaði Hilmar Sighvatsson
boltann í stöng eftir sendingu frá
Þorgrími Þráinssyni og á 14. mín
þrumaði Þorgrímur yfir KA-
markið eftir einleik. Tveimur
mínútum síðar komst Valur
Valsson í gott færi en Ægir Dags-
son varði vel.
Valsmenn pressuðu stíft og
skutu ótt og títt á KA-markið en
heimamenn lágu í vörn. Loks á
28. mín fékk KA marktækifæri
en Þorvaldur spyrnti knettinum
hátt yfir Valsmarkið. Aðeins
mínútu síðar komust Valsmenn í
upplagt færi en Ægir varði glæsi-
lega þrumuskot Sævars Jónsson-
ar. Sævar átti síðasta orðið, eða
Þorvaldur fékk
bronsskóinn
Markahæstir 1. deild mörk
Sigurjón Kristjánsson Val 13
Guðmundur Steinsson Fram 12
Þorvaldur Örlygsson KA 9
Markahæstir 2. deild
Pálmi Jónsson FH 16
Sigurður Hallvarðsson Þrótti 15
Heimir Karlsson Víði 11
Eyjólfur Sverrisson UMFT 10
Jón Þórir Jónsson UBK 10
Óskar hættir
með Leiftur
- Fer Steinar í KA?
Óskar Ingimundarson mun
ekki þjálfa Leiftursliðið á
næsta keppnistímabil. Hann
iýsti þessu yfir í lokahófí knatt-
spyrnudeildar Leifturs á laug-
ardaginn.
Steinar bróðir hans lýsir því
yfir í DV í gær að til greina komi
að hann skipti í KA. Einnig segir
hann að til greina komi að fara
aftur í sitt gamla félag KR.
Það virðist einnig liggja ljóst
fyrir að Þorsteinn Geirsson mun
ekki snúa aftur til Leifturs, því
hann er farinn til Bandaríkjanna
í nám. Ekki hafa aðrir leikmenn
sagst ætla að yfirgefa herbúðir
Ólafsfirðinga og mun framhaldið
sjálfsagt velta á því hvaða þjálfari
verður ráðinn til þeirra á kom-
andi tímabili. AP
skotið, í fyrri hálfleik, en boltinn
skaust framhjá KA-markinu.
Staðan því 0:0 þegar leikmenn
gengu til messu.
í seinni hálfleik voru tvö lið á
vellinum eins og vera ber en samt
var leikurinn langt frá því að vera
skemmtilegur. Besta færi KA
kom á 49. mín. er Guðmundur
Baldursson varði skot frá Gauta
Laxdal en hélt ekki boltanum og
Anthony Karl þrumaði í
Guðmund, boltinn hrökk í Hall-
dór Kristinsson og skoppaði af
honum framhjá opnu markinu.
Á 54. mín. varði Guðmundur
frá Bjarna Jónssyni, hinum meg-
in brást Ingvari Guðmundssyni
skotfimin og á 58. mín. varði
Guðmundur aftur frá Bjarna.
Eina mark leiksins kom síðan á
65. mínútu. Atli Eðvaldsson
skallaði knöttinn í stöng og bolt-
inn barst til Sævars sem þrumaði
honum í netið. 1:0 fyrir Val.
KA gerði nú nokkrar tilraunir
til að jafna metin en án árangurs.
Valgeir Barðason komst í gott
færi á 75. mín. en varnarmenn
Vals björguðu á markteig. Örn
Viðar þrumaði boltanum fram
hjá Valsmarkinu undir lok leiks-
ins, leiktíminn fjaraði út og sigur
Vals í höfn.
Engin ástæða er til að hrósa
einstökum leikmönnum sérstak-
lega en þó stóðu þeir Ægir og
Erlingur fyrir sínu hjá KA, Ingv-
ar og Valur voru sprækir hjá
silfurliðinu, en markaskorararnir
Sigurjón Kristjánsson og Þor-
valdur Örlygsson sáust ekki í
leiknum. í heild geta KA-menn
unað vel við sitt, þeir komu á
óvart í SL-deildinni og léku
skemmtilega sóknarknattspyrnu
og ekki má gleyma hinni firna-
sterku vörn. Gott sumar hjá KA.
SS
Liö KA: Ægir Dagsson, Friðfinnur Hermanns-
son (Arnar Bjarnason 74. mín.), Erlingur Krist-
jánsson, Steingrímur Birgisson, Halldór Krist-
insson, Þorvaldur Örlygsson, Bjarni Jónsson,
Gauti Laxdal, Stefán ólafsson (Valgeir Barða-
son 74.), Anthony Karl Gregory, Örn Viðar
Arnarson.
Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Þorgrímur
Þráinsson, Sigurjón Kristjánsson, Magni Blönd-
al Pétursson, Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson,
Guðni Bergsson (Einar Páll Tómasson 60.
mín.), Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson,
Ingvar Guðmundsson, Guðmundur Baldursson.
Dómari: Bragi V. Bergmann.
Gult spjald: Hilmar Sighvatsson, Steingrímur
Birgisson, Erlingur Kristjánsson.
Knattspyrna 2. deild:
Stólamir sprungu
á lokasprettinum
Stólarnir frá Sauðárkróki náðu
ekki að enda, þetta annars
ágæta tímabil, með sigri í sín-
um seinasta leik. Þeir flugu
suður í Kópavog en heima-
menn voru ekki gestrisnir og
sigruðu 2:1 í jöfnum leik.
Mikið rok setti svip sinn á leik-
inn á laugardaginn og áttu leik-
menn beggja liða í erfiðleikum
imeð að hemja boltann í mestu
hviðunum. Blikarnir voru öllu
sókndjarfari fyrri hlutann af
leiknum, en náðu ekki að skapa
neina afgerandi hættu upp við
l mark Sauðkrækinga.
Hættulegasta marktækifærið
kom á 30. mínútu er Jón Þórir
Jónsson slapp úr gæslu varnar-
manna Tindastóls og þrumaði
knettinum í þverslána hjá Gísla
markmanni. En boltinn vildi ekki
inn í fyrri hálfleik og því héldu
leikmenn markalausir til bún-
ingsherbergja í leikhléi.
Bjarni þjálfari hefur lesið vel
yfir sínum mönnum í hálfleik því
þeir komu mjög grimmir til leiks
í síðari hálfleik. Einkum var það
Eyjólfur Sverrisson sem angraði
varnarmenn Kópavogsbúanna
með hraða sínum og leikni og
það var einmitt hann sem skoraði
mark Stólanna í þessum leik.
Á 74. mínútu fékk hann bolt-
ann á miðjum vallarhelmingi
Blikanna, lék á tvo varnarmenn
og brunaði að vítateignum. Þar
komu tveir grænklæddir leik-
menn og reyndu að stöðva pilt-
inn en allt kom fyrir ekki.
Eyjólfur var óstöðvandi og skor-
aði örugglega fram hjá Eiríki
Þorvarðarsyni (bróður Einars
landsliðsmarkvarðar) markverði
Blikanna.
En Adam var ekki lengi í Para-
dís og ekki heldur Stólarnir, því
aðeins fimm mínútum síðar skor-
aði Þorsteinn Hilmarsson örugg-
lega eftir að hafa fengið sendingu
frá Halldóri Kjartanssyni.
Nokkrum mínútum síðar
tryggði Jón Þórir Jónsson heima-
mönnum sigur með skoti rétt
utan vítateigs. Gísli hafði hendur
á knettinum en skotið var fast og
inn fór tuðran.
Þrátt fyrir tapið getur Tinda-
stóll vel unað við árangur tíma-
bilsins. Margir spáðu liðinu falli
strax aftur niður í 3. deild. En
eftir tap í fyrsta leik tímabilsins
tóku leikmennirnir sig heldur
betur saman í andlitinu og hafa
Landsliðið í knattspyrnu, skip-
að leikmönnum 21 árs og
yngri, hefur verið valið en liðið
á að leika landsleik við Finna í
Oulu í Finnlandi næstkomandi
miðvikudag. Einn norðanmað-
ur er í liðinu en það er Eyjólfur
Sverrisson sem hefur staðið sig
vel með Tindastól frá Sauðár-
króki í sumar. Liðið í heild lít-
ur þannig út.
Markmenn:
Ólafur Gottskálksson ÍA
Adólf Óskarsson ÍBV
unnið marga góða sigra í sumar. í
þessum leik bar mest á Eyjólfi
Sverrissyni í sókninni, og einnig
átti Jón Gunnar Traustason ágæt-
an leik.
Breiðablik sigraði nú í sínum
þriðja leik í röð og með þessum
góða endaspretti náðu þeir að
bjarga sér frá falli. Það vakti
í nótt mun það ráðast hvort
íslendingar verða áfram í hópi
þeirra bestu í heiminum í
handknattleik. Þá mætum við
Sovétmönnum sem þegar hafa
tryggt sér að leika um ólympíu-
titilinn. Staðan er mjög óljós
og það veltur á úrslitum þessa
leiks og leiks Júgóslava og Svía
um hvaða sæti við spilum.
Aðrir leikmenn: Alexander Högnason ÍA
Haraldur Ingólfsson ÍA
Rúnar Kristinsson KR
Þorsteinn Halldórsson KR
Einar P. Tómasson Val
Steinar Adólfsson Val
Arnljótur Davíðsson Fram
Hallsteinn Arnarson Víkingi
Pétur Óskarsson Fylki
Baldur Bjarnason Fylki
Ólafur Kristjánsson FH
Eyjólfur Sverrisson Tindastól
Ágúst Már Jónsson KR
Gestur Gylfason ÍBK
JÓH
athygli að Blikarnir tefldu fram
þremur úr íslandsmeistaraliði 3.
flokks félagsins í þessum leik;
Arnari Grétarssyni (bróður
Sigurðar Grétarssonar landsliðs-
manns) sem lék allan leikinn, og
þeim Halldóri Kjartanssyni ög
Ásgeiri Baldurs sem komu inn á
sem varamenn. AP
Möguleikarnir eru frá 3. til 8.
sætis.
Leikurinn við Svía aðfaranótt
laugardagsins er líklegast einn sá
slakasti sem íslenskt landslið hef-
ur leikið í háa herrans tíð. Ekki
einn einasti leikmaður íslenska
landsliðsins náði sér á strik og er
þetta líklegast leikur sem þeir
vilja gleyma sem allra fyrst.
Liðið náði sér betur á strik
gegn ólympíu- og heimsmeistur-
um Júgóslava. Sá leikur var jafn
og spennandi og var besti leikur
íslenska liðsins til þessa. Það
kom á óvart hve slakir heims-
meistararnir voru og ef lukkan
hefði verið með Islendingum
hefðum við sigrað í leiknum.
Jakob Sigurðsson skoraði gott mark
gegn Júgóslövum.
I Þorvaldur Örlygsson fer með lands-
liðnu til Danmerkur.
Knattspyrna:
Landsliðið
til
Danmerkur
íslendingar leika landsleik í
knattspyrnu gegn Dönum á
miðvikudagskvöldið. Leikur-
inn fer fram í Kaupmannahöfn
og hefur landsliðshópurinn
verið valinn.
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson Brann
Friðrik Friðriksson B 1909.
Aðrir leikmenn:
Arnór Guðjohnsen Anderlecht
Atli Eðvaldsson Val
Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart
Guðmundur Torfason Genk
Guðni Bergsson Val
Gunnar Gíslason Moss
Halldór Áskelsson Þór
Ólafur Þórðarson ÍA
Ómar Torfason Fram
Pétur Arnþórsson Fram
Pétur Ormslev Fram
Ragnar Margeirsson ÍBK
Sævar Jónsson Val
Viðar Þorkelsson Fram
Þorvaldur Örlygsson KA
Það virðist ganga erfiðlega fyr-
ir Arnór að fá leyfi í leikinn. Ef
hann kemst ekki þá fer Halldór
Áskelsson í hans stað. AP
Karl Þráinsson var hetja
íslenska liðsins og skoraði hann
jöfnunarmark leiksins 19:19 þeg-
ar einungis ein sekúnda var eftir.
Hann skoraði fimm mörk í sex
tilraunum og er það mjög góð
nýting.
Það verður löng nótt hjá
íslenskum handboltaaðdáendum
þegar íslendingar mæta Sovét-
mönnunum og líklegt að margir
mæti vansvefta til vinnu í fyrra-
málið. AP
Lokastaðan
2. deild
Úrslit í 18. ug síöustu umferð
2. deildar í knattspyrnu á laug-
ardag urðu þessi:
Selfoss-ÍBV 1:0
FH-ÍR 1:0
UBK-Tindastóll 2:1
KS-Fylkir 3:0
Víðir-Þróttur 3:3
Lokastaðan varð þessi:
FH 18 14-2- 2 47:20 44
Fylkir 18 9-6- 3 39:30 33
Víðir 18 8-3- 7 38:31 27
ÍR 18 8-2- 8 31:35 26
Selfoss 18 7-4- 7 27:26 25
Tindastóll 18 7-2- 9 27:31 23
UBK 18 6-5- 7 27:33 23
ÍBV 18 6-2-10 29:36 20
KS 18 5-4- 9 38:46 19
Þróttur 18 2-6-10 27:42 12
Knattspyrna:
Eyjólfur valirni
í landsliðið
Sverrir Sverrisson og félagar í Tindastól urðu að láta í minni pokann fyrir
UBK.
Ólympíuleikar:
Islendingar mæta
Sovétmönnum í nótt