Dagur - 27.09.1988, Síða 16
r
þÓRSHAMAR HF.
Við Tryggvabraut ■ Akureyri • Sími 22700
Norðurlandaskákmót framhaldsskóla:
Sveit Noregs sigraði
Sveit Noregs bar sigur úr být-
um í Norðurlandamóti fram-
haldsskólasveita í skák sem
haldið var á Akureyri um helg-
ina. Sveitin hlaut 15 vinninga,
sveit Danmerkur kom næst
með 13 v. og þá sveit Mennta-
skólans á Akureyri með 12Vi.
Verslunarskólinn fékk 8 vinn-
inga, Svíþjóð IVi og Finnland
4.
Sveit MA var mjög óheppin í
2. umferð er hún tapaði 1:3 fyrir
norsku sveitinni og sigurmögu-
leikar sveitarinnar voru endan-
lega úr sögunni er hún tapaði fyr-
ir Dönum í síðustu umferðinni.
Menntskælingar unnu hinar
sveitirnar mjög sannfærandi.
Bogi Pálsson MA náði þeim
einstaka árangri að vinna allar
skákir sínar á 4. borði og fékk því
fullt hús, 5 vinninga. Hutters frá
Danmörku stóð sig best á 1.
borði og fékk vinning, Arnar
Porsteinsson MA fékk 2'/i Á 2.
borði var það Rettedal frá Noregi
sem fékk flesta vinninga en Tóm-
as Hermannsson MÁ krækti í
IVi. Magnús P. Örnólfsson MA
fékk flesta vinninga á 3. borði
ásamt Svela frá Noregi, eða 3Vi.
SS
Norðurland:
Mikil hálka á
flallvegum
- margir að skipta yfir á naglana
í gær var fljúgandi hálka á
flestum fjallvegum norðan-
lands. Fjöldi vanbúinna bíla er
lagt hafði á heiðar, þurfti að
snúa við en ekki urðu alvarleg
umferðarslys vegna færðarinn-
ar.
Samkvæmt upplýsingum frá
vegaeftirliti Vegagerðar ríkisins,
varð að moka veginn í Víkur-
skarði en hann var ekki fólksbíla-
fær vegna snjóa. f Öxnadal og á
Öxnadalsheiði var mikil hálka,
en ekki ófærð. Vegagerðin var
reiðubúin með tæki, ef ryðja
þyrfti veginn, en til þess kom
ekki.
Ökumönnum er ekki ráðlagt
að leggja upp í langferð á van-
búnum bifreiðum næstu daga,
þar sem spáð hefur verið áfram-
haldandi kulda fram að helgi.
í gær var mikið að gera á hjól-
barðaverkstæðum á svæðinu þar
sem margir voru að skipta yfir á
vetrarhjólbarða. Samkvæmt
reglugerðum er tími nagladekkj-
anna ekki kominn fyrr en 1.
október, en leyfilegt er að setja
þau undir bílana fyrr, ef aðstæð-
ur bjóða upp á það. VG
Fjallvegir á Austurlandi:
Hjálparsveit skáta
aðstoðaði ökumeim
Snjókoma hrelldi ökumenn
víða á Norður- og Austurlandi
um helgina, enda bílar yfirleitt
á sumardekkjum ennþá. Hjá
lögreglunni á Egilsstöðum
fengum við þær upplýsingar að
Hjálparsveit skáta hefði farið
sína fyrstu ferð á nýjum snjóbíl
til að aðstoða ökumenn á
Fagradal og Fjarðarheiði.
Gríðarleg hálka var á áður-
nefndum fjallvegum og lentu
margir bílar utan vegar, aðrir
festust í sköflum. Engin óhöpp
eða slys hlutust í þessum hremm-
ingum ökumanna, en margir
lentu í erfiðleikum í hálkunni.
Vegurinn yfir Fagradal var
opnaður á sunnudagskvöld, en
hann er þó enn varasamur vegna
hálku. Möðrudalurinn var
þokkalega fær í gær en þó var
smávægilegt haft um 20 km frá
Egilsstöðum. Ökumenn ættu því
að huga að snjódekkjunum áður
en þeir leggja á fjallvegi. SS
Hann var sannarlega forsjáll hann Ólafur Haukur Baldvinsson þegar hann
skipti yfir á vetrardekkin á laugardaginn var í Oddeyrargötunni. Mynd: gb
Dekkja-
vertíðin
að heíjast
Annríki var á hjólbarðaverk-
stæðum á Akureyri í gær þegar
bílstjórar komu til að setja
vetrardekkin undir bfla sína.
Snjókoman á sunnudag mark-
aði upphaf haustvertíðarinnar
svonefndu á hjólbarðaverk-
stæðum.
í reglugerð um gerð og búnað
ökutækja segir að skylt sé að nota
vetrarhjólbarða, neglda eða
óneglda, eftir 15. október ár
hvert, því annars er bifreiðin
vanbúin til aksturs í hálku. Á
öðrum árstímum er einnig skylt
að nota vetrarhjólbarða ef
akstursaðstæður gefa tilefni til.
Á hverju hausti selst mikið af
vetrarhjólbörðum, bæði sóluðum
og nýjum. Algengt verð á sóluðu
og negldu vetrardekki af stærð-
inni 165x13 er á bilinu frá liðlega
þrjú þúsund krónum upp í tæpar
fjögur þúsund krónur. Stærri
dekk, t.d. 14 tommu, eru yfirleitt
dýrari. Umfelgun og jafnvægis-
stilling kostar um 300 krónur pr.
dekk. EHB
Aðalfundur Sævers hf. í Ólafsfirði:
Hluthafar afsali sér hlutafé
sínu til bæjarsjóðs
Á aðalfundi Sævers hf. í Ólafs-
firði sem haldinn var á laugar-
daginn kom fram tillaga um að
hluthafar afsöluðu sér hlutfé
sínu til bæjarsjóðs Ólafsfjarð-
ar. „Bæjarsjóður mun síðan
gera sitt ítrasta til að halda
félaginu lifandi, til dæmis með
nauðasamningum,“ sagði
Bjarni Kr. Grímsson bæjar-
stjóri. Hluthafar í Sæveri voru
150 talsins, Ólafsfjarðarbær,
Kaupfélag Eyfrðinga og frysti-
húsin á staðnum voru þar
stærstir.
Núverandi hlutafé Sævers er
tapað, en það var 6,5 milljónir.
Reikningar félagsins voru ekki
afgreiddir á fundinum, en þeir
verða teknir fyrir á framhaldsað-
alfundi sem enn hefur ekki verið
boðaður. Lögfræðingur Ólafs-
Eyja^örður:
Vörubíll valt við Austurhlíð
fjarðar og Sævers er í útlöndum
og því hefur stjórnarfundur í
félaginu ekki verið haldinn.
Bjarni sagði að í kjölfar til-
lögunnar sem samþykkt var á
aðalfundinum hefði bærinn eign-
ast um 80% af hlutafé Sævers.
„Það á eftir að koma í ljós hvort
sú tilraun sem við ætlum að gera
með nauðasamningum tekst.
Fyrirtækið er mjög illa statt,
hreinlega gjaldþrota, nema þá að
einhver lausn finnist. Það er ljóst
að aukahlutafé þarf að koma til,“
sagði Bjarni.
Ekki er enn ákveðið hvort og
þá hvernig starfsemi fyrirtækið
mun taka upp, þ.e. hvort áfram-
hald verði á kavíarframleiðslunni
eða eitthvað annað verði fyrir
valinu. Bjarni sagði að efnahags-
ástandið í þjóðfélaginu gæfi ekki
tilefni til yfirlýsinga þar um.
Sæver hf. var óskabarn at-
vinnumálanefndar Ólafsfjarðar
og var það sett á laggirnar fyrir
þremur árum. Með vinnslu
á kavíar var tilraun gerð til að
auka fjölbreytni atvinnulífsins í
Ólafsfirði. „Sú tilraun hefur ekki
heppnast nægilega, því miður.
Niðurstaðan er því sú að málið er
komið inn á borð bæjarstjórnar,
enda hefur bærinn gengið í veru-
legar ábyrgðir fyrir félagið,“
sagði Bjarni. mþþ
Scania malarflutningabifreið í
eigu Guðmundar Kristjáns-
sonar verktaka valt á hliðina
við bæinn Austurhlíð í Eyja-
firði síðari hluta dags á
sunnudag. Hér er um töluvert
tjón að ræða.
Óhappið varð með þeim
hætti að bílstjóri var að sturta
malarhlassi í húsgrunn en örlítill
hliðarhalli er á þessum stað.
Þegar pallurinn var að lyftast
brotnaði fjaðrahengsli annars
vegar með þeim afleiðingum að
bíllinn valt á hliðina, en hlassið
var ekki farið að renna af.
Þrettán tonna hlass var á pallin-
um og grind bílsins varð fyrir
miklum skemmdum af þessum
sökum. Ekki urðu nein slys á
mönnum. EHB
Grind vörubifreiðarinnar er mikið undin eins og sjá má. Mynd: gb