Dagur - 05.10.1988, Page 2
2 - DAGUR - 5. október 1988
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Viö lönskólann í Reykjavík er laus til umsóknar staöa
bókasafnsfræðings frá og meö 1. desember nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 1. nóvember nk.
Menntamálaráðuneytið.
Almennir
stjórnmálafundir
á Húsavík
og Akureyri
Guðmundur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra og Valgerður Sverrisdóttir
alþingismaður halda almenna
stjórnmmálafundi sem hér segir:
Félagsheimili Húsavíkur
fimmtudaginn 6. okt. kl. 20.30.
Hótel KEA Akureyri
föstudaginn 7. okt. kl. 20.30.
Kjördæmissamband framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra.
AKUREYRARBÆR
Húsbyggjendur
Húsbyggjendur svo og aðrir þeir sem hafa hug á
að fá lagðar heimtaugar/æðar í hús sín áður en
frost er komið í jörð, eru vinsamlega minntir á að
sækja um fyrir 15. október, til þess að forðast
þann aukakostnað sem kemur eftir að frost er
komið í jörð.
Rafveita Akureyrar,
Hitaveita Akureyrar,
Vatnsveita Akureyrar,
Póstur og sími Akureyri.
Fyrirtæki —
Einstaklingar
Tölvupappírsvinnsla
er hafin
Bjóðum upp á framleiðslu og prentun
hvers konar viðskiptaforma á tölvu-
pappír.
Erum að hefja framleiðslu á grænstrik-
uðum pappír í ýmsum stærðum.
Lítið inn og kynnist
þjónustu okkar
Ágúst Óskarsson afgreiðslumaður, Hilmar Þorvaldsson deildarstjóri og Arnar Guðlaugsson verslunarstjóri á efri
hæðinni.
KÞ Húsavík:
Breytingar hjá
byggingavörudeild
- ^ölbreytt vöruúrval á tveimur hæðum
Lokið er breytingum sem unn-
ið hei'ur verið að á Bygginga-
vörudéild KÞ á Húsavík og sl.
föstudag var fólki boðið að
koma við í breyttri og betri búð.
Verslunarhúsnæðið er á tveim
hæðum, rúmgott og bjart og
virkiiega huggulegt þótt ekki
hafði verið ráðist í kostnaðar-
samar framkvæmdir við breyt-
ingarnar. Hér er um að ræða
eina af bestu byggingavöru-
verslunum norðanlands og
sennilega fást hvergi fleiri
vöruflokkar í sömu verslun.
Á efri hæð verslunarinnar eru
hljómtækjadeild, heimilistækja-
deild og húsgagna- og gólfefna-
deild, þar fást teppi, flísar og
parket. Húsgögn er nýr vöru-
flokkur í versluninni en um er að
ræða létt húsgögn, t.d. ódýr hús-
gögn í barna- og unglingaher-
bergi. Einnig er nýjung að versl-
að verður með innihurðir í deild-
inni.
Sú breyting var gerð í verslun-
inni að hreinlætistæki eru nú seld
á neðri hæðinni og þar hefur ver-
ið sett upp úrval af baðherbergis-
innréttingum.
Deildarstjóri byggingavöru-
deildar er Hilmar Þorvaldsson,
verslunarstjóri á efri hæð er Amar
Guðlaugsson, á neðri hæð Karl
Hjálmarsson og Þorkell Péturs-
son í deildinni með grófari bygg-
ingarefnunum. IM
Unglingaballið í Zebra:
Þeir sem sýndu miða
fengu endurgreitt
í frétt Dags um stympingar í
Miðbænum í síðustu viku, var
sagt frá því m.a. að unglingar
sem vísað var út úr skemmti-
staðnum Zebra, hefðu ekki
fengið aðgöngumiða endur-
greidda.
Forráðamenn Zebra höfðu
samband við blaðið og sögðu
þetta ekki rétt. Þeir sem gátu
framvísað aðgöngumiðum, fengu
endurgreitt er þeir fóru út, aðrir
ekki.
Ástæðan fyrir því hversu illa
fór mun vera sú, að sögn
aðstandenda, að þau hafi of seint
fengið að vita að ekki fengist leyfi
fyrir dansleiknum. Lögreglan
hafi ekki mætt á staðinn fyrr en
kl. 23.30 og þá hafi 212 manns
verið komnir í húsið. Zebra er
vínveitingastaður, en þetta kvöld
voru vínveitingar ekki á boðstól-
um. VG
Tankur á Sauðárkróki
Frá því var sagt í blaðinu í síðustu viku að Olíufélagið hf. hafi fengið bráðabirgðaleyfi til fimm ára fyrir birgða-
stöð á Sauðárkróki og stækkun hennar fyrir fleiri tanka. Eins og er, er aðeins um einn tank að ræða sem Olíu-
félagið ætlar að bæta við og hafa framkvæmdir hafist við að undirbúa niðursctningu tanksins, eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd. Mynd: -bjb