Dagur - 05.10.1988, Síða 13
& oktÖbérif§88‘ - DÁGÚft - fá
Tombóla til styrktar hungruðum heimi
Þær stöllur, Tinna Haraldsdóttir og Guörún Ösp Hallsdóttir á Sauðárkróki, héldu tombólu fyrir skömmu til styrktar
hungruðum heimi. Alls söfnuðu þær 2400 krónum á tombólunni og komu ágóöanuni til sr. Hjálmars Jónssonar
prófasts á Sauðárkróki, sem kom pcningunum rétta leið.
Starfsþjálfun fatlaðra:
Annað starfsár haííð
Starfsþjálfun fatlaðra hóf annað
starfsár sitt, í núverandi mynd, í
byrjun september. Haustið 1987
hófu 13 nemendur nám í starfs-
þjálfuninni, um áramót bættist
annar hópur við og nú stunda alls
24 nemendur þar nám.
Utan reglubundna námsins
voru í sumar haldin námskeið,
þar sem boðið var upp á tölvu-
kynningu fyrir byrjendur og voru
þau mjög vel sótt.
Fyrsti nemendahópurinn mun
útskrifast um næstu áramót, eftir
þriggja anna nám. Síðasta önnin
verður meðal annars notuð til
náms- og starfskynningar.
I janúar 1989 verður tekinn inn
nýr hópur nemenda og er innrit-
un í þann hóp nú að hefjast.
Umsóknarfrestur er til 1.
nóvember nk.
í sumar gaf félagsmálaráðu-
neytið út kynningarbækling um
starfsþjálfun fatlaðra þar sem
m.a. má finna upplýsingar um
aðdraganda hennar, tilgang og
markmiö, kennslugreinar og
skipan námsins. Bækling þennan
má meðal annars fá hjá Svæðis-
stjórnum um málefni fatlaðra um
allt land, þar liggja einnig frammi
eyðublöð til umsóknar um skóla-
vist.
Starfsþjálfun fatlaðra er til
húsa á efstu hæð í Hátúni 10 a,
Reykjavík, þar sem Öryrkja-
bandalagið hefur látið innrétta
björt og falleg húsakynni fyrir
starfsemina.
Vantar smiði og verka-
menn í vinnu strax
Upplýsingar á vinnustað (Verkmenntaskólanum)
eða í símum 27589 og 27590.
FJOLNISMENN
Fjölnismenn sf.
Byggingarverktakar
Trésmiðja
Draupnisgötu 7 • Akureyri.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir að ráða starfskraft til
afgreiðslustarfa í sérverslun í Mið-
bænum (ekki fataverslun).
Við leitum að samviskusömum og nákvæmum starfs-
manni.
Um heilsdags starf er að ræða.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
ffII RÁÐNINGAR
FELL hf. Tryggvabraut 22, sími 25455.
ROCJOF OC FV\ÐNINCAR
Ábendi á eins árs afmæli í dag, miðvikudag-
inn 5. október, og við minnum á fjölbreytta
þjónustu.
★ Leitum að fólki til hvers kyns starfa og sérstakra
verkefna.
★ Könnum áhugasvið og starfsþarfir starfsmanna,
sem er t.d. gagnlegt til að skipuleggja breytta
verkaskiptingu innan fyrirtækja og stofnana.
★ Gerum starfslýsingar og ráðningarsamninga.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni að Brekkugötu 1, sími 27577,
opið kl. 13-16.
Stefanía Arnórsdóttir Valgerður Magnúsdóttir
Námskew
til undirbúnings meiraprófs
verða haldin í Reykjavík og annars staðar á
landinu, þar sem næg þátttaka fæst.
Umsóknir berist bifreiðaeftirlitinu fyrir
14. október nk.
Bifreiðaeftirlit ríkisins
— bifreiðastjóranámskeiðin
Dugguvogi 2, 104 Reykjavík, sími 91-685866.
Akureyri, sími 96-23570 og 96-24203.