Dagur - 05.10.1988, Side 14

Dagur - 05.10.1988, Side 14
14 - DAGUR - 5. október 1988 30% afsláttur á fatnaði í nokkra daga ★ Peysur ★ Úlpur ★ Pils Verslunin ★ Skyrtur ★ Bolir ★ Glansgallar og fleira. ttmm Sunnuhlíð 12, sími 22484. í Norður-Þingeyingar Höfum opnað eftir breytingar nýja og glæsilega verslun. Mikið úrval af teppum, dúkum, flísum og parketi. 10% afsláttur af gólfefnum í október og 30% afsláttur af til- teknum gerðum flísa. Bjóðum mjög glæsilegt úrval af baðherbergisinnréttingum. Seljum einnig sjónvörp - útvörp - hljómflutningstæki o.fl. Leitið ekki langt yfir skammt. Sendum í póstkröfu. Byggingavörudeild. Húsavík s. 41444. ~~~—- /?»5.o7 ^qxftnifin Fnimtii GJALDDAGI FYRIRSKIL A STAÐGREÐSLUFE Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endur- gjaldi mánaðarlega. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hversu oft í mánuði laun eru greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram eðaeftirá. Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar en eindagi þann 15. Með greiðslu skal fylgja grein- argerð á sérstöku eyðublaði „skilagrein". Skilagrein ber að skila, þó svo að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heilum krónum. Allir launagreiðendur og sjálf- stæðir rekstraraðilar eiga að hafa fengið eyðublöð fyrir skilagrein send. Þeir sem ein- hverra hluta vegna hafa ekki fengið þau snúi sér til skatt- stjóra, ríkisskattstjóra, gjald- heimtna eða innheimtumanna ríkissjóðs. -Gerið skil tímanlega og forðist örtröð sfðustu dagana. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Fræðsluvarpið: Þáttaröð um umferðarmál hefst í kvöld í kvöld frumsýnir Fræðslu- varpið fyrsta þátt af átta um umferðarmál en þessir þættir eru gerðir fyrir FararheiII ’87. Þættimir eru sérstaklega ætl- aðir nemendum í 7.-9. bekk grunnskóla en höfða eflaust til fleiri aldurshópa. Handrit þáttanna hlaut 1. verðlaun í samkeppni sem efnt var til í lok síðasta árs. Höfundur er Einar Guðmundsson, yfir- kennari í Ártúnsskóla í Reykja- vík. Þættir þessir fjalla um pilt sem búið hefur í sveit en flyst til Reykjavíkur. Þar þarf hann að læra ýmsa nýja hætti t.d. hvernig á að haga sér í umferðinni. Þættirnir verða frumsýndir á miðvikudögum og endursýndir á laugardögum. Ætlunin er að sýna ýmiss konar fræðsluefni jafnframt þáttunum og er þetta efni nú í vinnslu á vegum Fararheillar ’87. ____________________JÓH Sjálfsbjörg á Akureyri 30 ara Sjálfsbjörg félag fatlaðra á Akur- eyri og nágrenni vill minna félaga og aðra íbúa Eyjafjarðarsvæðis á að félagið verður 30 ára 8. októ- ber nk. Af þessu tilefni munum við hafa opið hús þann dag að Bjargi, Bugðusíðu 1, frá kl. 13.30 til 16.00. Þar verður kynnt starf- semi Endurhæfingarstöðvar, Veggbolta og Plastiðjunnar. Að Óseyri 4, mun einnig verða kynnt framleiðsla Ako-plasts. Á sama tíma mun félagið bjóða gestum kaffiveitingar í Félagssalnum að Bjargi. Allir Sjálfsbjargarfélagar og velunnarar félagsins eru vel- komnir. Bókaútgáfan Reykholt hf.: Land og synir í skólaútgáfu Bókaútgáfan Reykholt hf. hefur gefið út skáldsögu Indriða G. Þorsteinssonar, Land og syni, í útgáfu sem sérstaklega er ætluð skólum. Gunnar Stefánsson ann- aðist útgáfuna. Saga þessi gerist í sveit á kreppuárunum og er eitt helsta skáldverk höfundar síns. Umsjónarmaður útgáfu ritar inn- gang að sögunni þar sem gerð er grein fyrir sögulegu baksviði verksins, einnig rakinn ferill höfundar, lýst öðrum verkum hans og tengslum þeirra við Land og syni. Loks er drepið á nokkur listræn einkenni sögunnar. Athugunarefni fyrir nemendur eru aftan við hvern kafla og orð- skýringar fylgja. Loks eru heild- arverkefni og skrá um heimildar- rit. Land og synir kom fyrst út árið 1963 og er þetta þriðja útgáfa sögunnar. Hún var kvikmynduð árið 1979 undir stjórn Ágústs Guðmundssonar. Sú mynd var frumsýnd í ársbyrjun 1980 og hlaut á sínum tíma metaðsókn. Hefur hún verið sýnd víða um lönd. Kvikmyndin ér tiltæk á myndbandi hjá Námsgagnastofn- un handa skólum sem taka sög- una til lestrar. Land og synir er 160 blaðsíður. Prenthúsið prent- aði. Kápa er unnin úr mynd úr kvikmyndinni. Námsgagnastofn- un mun dreifa bókinni til skóla.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.